Morgunblaðið - 21.08.2009, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
Sjá nánar á www.betrabak.is
„Flottirdagar“í ágúst
Tilboð á stillanlegum rúmum og svefnsófum í ágúst
25% afsláttur Öllum stillanlegum rúmum fylgir 2 fyrir 1 tilboð á sængurverum !
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
ANDREA Rán Jóhannsdóttir, 16
ára, er að hefja nám á listnámsbraut
FB. Upphaflega valdi Andrea snyrti-
braut en segist lítið skilja af hverju
því snyrting falli engan veginn undir
hennar áhugasvið. Líklega hafi hún
óttast að velja það sem mest hafi
heillað, myndlistina. Hún skipti um
braut og full tilhlökkunar skundar
hún af stað í bókakaup.
Heppin – náði í síðasta
notaða eintakið
Andrea býr í Hlíðunum og því ligg-
ur skiptibókamarkaðinn hjá Ey-
mundsson í Kringlunni beinast við.
Andrea nær sér í bláa innkaupakörfu
og skimar í kringum sig. „Humm,
stærðfræði, ég á að kaupa þessa bók.
Vá, hvað ég er heppin, þetta er síð-
asta notaða eintakið. Ég fæ bókina á
2.100 krónur en ný kostar hún 4.500.“
Henni stendur nokk á sama þó bókin
sé eilítið þvæld og skítug. Næst brun-
ar Andrea að borðinu sem hýsir
enskubækurnar. Þar fær hún notað
eintak af Nýrri enskri málfræði á
2.750 krónur. Ný kostar bókin 4.890
krónur. „Mig vantar bókina Killing
for Griffin en ég sé hana hvergi.“ Vin-
gjarnlegur starfsmaður finnur hið
snarasta notað eintak á 898 krónur.
Þá vantar hana In line for reading
sem líka finnst notuð á 990 krónur en
ný er hún á 1.980 krónur. Fyrir
dönskuna á Andrea að kaupa hefti
sem selt er í skólanum en hún verður
að fjárfesta í dansk-íslenskri orðabók
sem hún fær glænýja á tilboði á 3.990
krónur í stað 4.400 króna. „Ég á sem
betur fer enska orðabók, sjáðu, hún
kostar 8.490 krónur. Stílabækur, ég
þarf stílabækur eða kannski frekar
laus blöð í möppum. Nei, það er ódýr-
ara að kaupa þessar fimm í pakka á
1.490, ég get rifið blöðin úr og sett
þau í möppu. Hérna er reikningsbók
á 460 krónur. Ég ætla líka að kaupa
milliblöð og plastmöppur.“ Milliblöð-
in kosta 365 krónur og plastmöpp-
urnar eru á 575 krónur. „Ég á fínan
skrúfblýant en mig vantar blý. Það
skiptir máli að eiga góðan skrúf-
blýant, þessir lélegu skemmast
bara.“ Pakki af blýi i pennann góða
kostar 575, strokleður er þarfaþing á
viðráðanlegu verði, 160 krónur, og
góður vinur námsmannsins, yfirstrik-
unarpenninn, kostar 330 krónur.
„Það stendur hérna að ég eigi að
kaupa einhverja sérstaka Casio-
reiknivél. Ég ætla að tala við búð-
arkonuna.“ Andrea skoðar græjuna
en segist geta sparað sér þennan
pening því reiknivélin hennar úr
grunnskóla sé svipuð. Þar sparaði
hún sér 2.490 kr. Ef hún væri á eðlis-
eða náttúrufræðibraut þyrfti hún að
kaupa grafíska reiknivél á um 12.000
krónur. „Samkvæmt bókalistanum
þarf ég ekki að kaupa neitt fleira í
bili. Það stendur ekki hvað ég eigi að
kaupa fyrir kúrsinn Listir og menn-
ing. Ég fer ekki í íslensku og þýsku
fyrr en á næstu önn og kaupi bæk-
urnar þá.“
Sparaði fyrir mömmu
Andrea sleppur nokkuð vel, þarf
að leggja út 14.803 krónur, en ef hún
hefði keypt allar bækurnar nýjar þá
hefði hún borgað 20.205 kr. Andrea
leggur út fyrir bókunum af eigin pen-
ingum en segir að mamma sín vilji
endurgreiða henni námsbækurnar.
Andrea sparaði mömmu sinni því ríf-
lega 5.000 krónur með því að kaupa
notaðar bækur. „Mamma leggur svo
mikla áherslu á að ég læri, þess
vegna vill hún borga bækurnar. Ann-
ars er ég í góðum málum því ég var í
fínni vinnu í gleraugnabúð í sumar.
Svo er ég búin að fá vinnu með skól-
anum í vetur í skóbúð. Flestir vinir
mínir voru í unglingavinnunni.“
Andrea segist eyða stórum hluta af
peningunum sínum í DVD-myndir.
„Já, mamma hefur dálitlar áhyggjur
af þessu. En þetta er einhver svona
árátta hjá mér að safna alls konar
„legend“-myndum og „seríu“-
myndum. Svo fer nú töluvert í föt en
kannski ég fari að eyða í málningar-
og teiknivörur núna.“ Þar með er
Andrea rokin út í framtíðina.
Eilítið þvæld og skítug en ódýrari
Hagsýni nemand-
inn kaupir náms-
bækurnar á skipti-
bókamarkaði
Morgunblaðið/Heiddi
Í nógu að snúast Andrea Rán Jóhannsdóttir er að hefja nám í framhaldsskóla og í mörg horn er að líta.
! ! "
#" $ %&'
( ) %&'
"
"
"
"
"
"
"
*
+,
- .
SKIPTIBÓKAMARKAÐIR eru hag-
stæður kostur fyrir fátækan fram-
haldsskólanemandann. Verslunar-
stjórar og starfsmenn markaðanna
segja að ef bókin sé til notuð þá
verði hún fyrir valinu. Því panti
verslanir takmarkað magn nýrra
námsbóka. Vinsældir skiptibóka-
markaða ná lengra aftur í tímann
heldur en óburðugt árferðið og þeir
hafa verið starfræktir árum saman.
Starfsmenn námsbókamarkaðanna
segjast ekki merkja aukningu á
sölu notaðra bóka umfram það sem
verið hafi undanfarin ár. Náms-
menn hafi ætíð verið fjárvana hóp-
ur sem trauðla vilji eyða allri sum-
arhýrunni í námsbækur. Hins vegar
virðist nemendur vera meðvitaðri
um verð núna og fara á milli búða
og skiptibókamarkaða í leit að
besta verðinu. Notaðar námsbækur
hafa hækkað og er verð þeirra yf-
irleitt 50 til 60% af verði nýrrar
bókar. Námsmenn fá 30 til 40% af
listaverði fyrir notaðar náms-
bækur. Einungis Griffill kaupir og
selur notaðar, vel með farnar
vinnubækur sem búið er að stroka
allar lausnir úr. Samkeppnin er
virk á námsbókamarkaðnum og
fylgjast kaupmenn með verði hver
hjá öðrum og alls staðar eru tilboð
á nýjum námsbókum, sérstaklega
núna í skólabyrjun. Það er því hag-
stæðast fyrir nemendur að kaupa
nýjar bækur strax. Núna eru líka
mestu líkurnar á að næla sér í vel
með farið notað eintak bókanna.
Dregið úr úreldingu námsbóka
Almennt virðast kennarar og
skólastjórnendur framhaldsskól-
anna hafa dregið úr úreldingu
námsbóka. Stefán Benediktsson,
aðstoðarskólameistari Fjölbrauta-
skóla Breiðholts, segir það meðvit-
aða stefnu í því árferði sem nú ríki.
„Við úreldum ekki bækur nema
eitthvað nýtt hafi komið fram svo
að undan því verði ekki vikist að
skipta út bókum. Við viljum gefa
nemendum tækifæri á að nota bæk-
ur eldri systkina eða kaupa notaðar
bækur á betra verði.“ Enginn við-
mælenda kannaðist við að höfundar
námsbóka hafi agnúast út í að bæk-
urnar gangi kaupum og sölum not-
aðar án þess að þeir fái hlut af sölu-
verði. Eða eins og einn verslunar-
stjóri orðaði það: „Þeir sem skrifa
námsbækur og þeir sem gefa út
bækur eru ekki í þessu vegna pen-
inganna.“ Stefán skólastjóri segir
nokkra kennara skólans hafa samið
námsbækur og hann hafi aldrei
heyrt neinn þeirra hafa orð á þessu.
„Ég held helst að þeim hafi aldrei
dottið þetta í hug.“
Notaðar námsbækur öðlast framhaldslíf
Notað eða nýtt? Óþarft er að
dæma skólabækur af kápunni.