Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009 Kreppir hnefa Anders Fogh Rasmussen reynir að átta sig á íslenskum stjórn- málum þar sem hann fylgist með þingfundi af svölunum ásamt Ástu Ragnheiði. Ómar FRÁ ÞVÍ í mars síðastliðnum hef ég ásamt öðrum stjórnendum Straums unnið að endurskipu- lagningu bankans í nánu samráði við kröfuhafa og skilanefnd. Um nokkurt skeið hafa legið fyrir og verið aðgengilegar á vef bankans tillögur um skiptingu bankans í tvö félög. Annað félagið mun hafa umsjón með eignum bankans og hámarka söluandvirði þeirra á komandi árum. Hitt félagið mun einbeita sér að endurreisn hóf- stilltrar fjárfestingabanka- starfsemi á Íslandi. Tillögurnar og öll sú vinna sem að baki þeim liggur miða að því að hámarka endurheimtur kröfuhafa og þar með takmarka tjón þeirra af greiðsluþroti bankans. Kröfuhafar Straums skiptast í tvo meginhópa. Tryggðir kröfu- hafar, meðal annars Seðlabanki Íslands, ríkissjóður og Íslands- banki, hafa forgang vegna veða og fá kröfur sínar greiddar að fullu. Ótryggðir, almennir kröfuhafar, sem eru að einum þriðja hluta ís- lenskir lífeyrissjóðir og að tveim- ur þriðju erlend fjármálafyrir- tæki, hafa val um að hafna eða samþykkja nauðasamninga fyrir Straum. Samkvæmt áætlunum bankans má gera ráð fyrir að verði nauðasamningar felldir fái almennir kröfuhafar 8% af fé sínu til baka. Verði nauðasamningar hins vegar samþykktir eigi kröfu- hafar von á að endurheimta ríf- lega helming krafna. Jafnframt eignist þeir bæði eignaumsýslu- félagið og fjárfestingabankann óskipt og taki yfir stjórn þeirra. Straumur verði með öðrum orð- um alfarið í eigu og undir stjórn almennra kröfuhafa að lokinni endurskipulagningu bankans. Við framangreint mat á líkleg- um endurheimtum kröfuhafa þurftu stjórnendur Straums með- al annars að gefa sér forsendur um rekstrarkostnað vegna eigna- umsýslu og sölu eigna á komandi árum. Hafa ber í huga að yfir 90% af eignum Straums eru erlend og áætlanir bankans gera ráð fyrir að umsjón með þeim að lokinni endurskipulagningu verði einkum á könnu erlendra stjórnenda í gegnum starfsstöðvar í London og Kaupmannahöfn. Í ljósi þess virtist óraunhæft að taka einvörð- ungu mið af sérstökum aðstæðum á Íslandi við áætlun launakostn- aðar af þessari starfsemi. Óhjá- kvæmilegt er að sú áætlun fari fram í víðara samhengi og í takt við það sem annars staðar þykir eðlilegt, eftir atvikum, með árang- urstengingu launa. Er þá einkum að því stefnt að halda í lykilstarfs- fólk sem býr við annað launa- og samkeppnisumhverfi en er til staðar hér á landi. Óháðir ráðgjafar voru fengnir að verkinu og var það mat þeirra að óformlegar hugmyndir um árangurstengdar greiðslur til starfsmanna Straums á næstu ár- um væru innan eðlilegs ramma í ljósi markaðsaðstæðna þar sem vinnan fer fram og til þess fallnar að tengja saman hagsmuni kröfu- hafa og starfsmanna. Þetta mat er umdeilanlegt, sérstaklega á Ís- landi í ljósi alls þess sem hér hef- ur aflaga farið. Að þessu sögðu þykir þó mikilvægt að árétta að hvorki stjórnendur Straums né aðrir hafa gert þá kröfu að fram- tíðarfyrirkomulag launa verði hluti af nauðasamningum félags- ins. Ávirðingar um siðlausar þvinganir stjórnenda eða að kröfuhafar eigi að hafna hug- myndum um endurskipulagningu Straums vegna krafna um óhæfi- legar greiðslur til starfsmanna eiga því varla rétt á sér. Full sátt ríkir um að greiðslur til starfs- manna við eignaumsýslu markist af stefnu nýrrar stjórnar að end- urskipulagningu lokinni. Þessi stjórn verður alfarið skipuð fulltrúum almennra kröfuhafa. Þannig munu kröfuhafarnir sjálf- ir fara með fullt forræði yfir félag- inu, þar með talið ákvarðanavald um launastefnu þess og samninga við stjórnendur. Í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað undanfarna daga er ég ekki í nokkrum vafa um að ég og aðrir sem að endurskipulagn- ingunni koma hefðum átt að gefa aðstæðum hér á landi betri gaum. Ég tel einnig mikilvægt að fram komi að aldrei hefur staðið til að ég verði þátttakandi í eignaum- sýslu Straums að endurskipu- lagningu lokinni og hef ég því engra persónulegra hagsmuna að gæta í tengslum við launafyrir- komulag þeirrar starfsemi. Sem starfandi forstjóri félagsins ber ég hins vegar ríka ábyrgð á því sem frá félaginu kemur og biðst afsökunar, fyrir eigin hönd og fé- lagsins, á að þær forsendur sem áætlanir mínar og annarra stjórn- enda voru reistar á hafi einblínt um of á erlendar aðstæður og ekki verið í nægjanlegum tengslum við þann veruleika sem við Íslend- ingar búum nú við sem þjóð. Framhald málsins verður í höndum nýrrar stjórnar og nýrra eigenda bankans. Það er þeirra að meta hvernig hagsmunir þeirra verða best tryggðir. Óttar Pálsson Lögðum rangt mat á veruleikann Höfundur er forstjóri Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. MESTU mistök stjórnvalda frá hruninu í október felast í að ekki sé leitað allra leiða til að mynda samstöðu meðal Íslend- inga. Gildir þá einu um hverja ríkistjórnanna þriggja er að ræða. Afstaða valdhafanna hef- ur verið að ákvarðanir skuli taka með einföldum meirihluta og að ekki þurfi að útskýra fyrir þjóðinni á hvaða grunni þær séu teknar. Þetta eru mikil mistök – mistök sem Íslendingar súpa nú seyðið af. Í stað þess að mynda samstöðu hafa stjórn- málamenn með hjálp hælbíta ýmiskonar alið á tortryggni, heift og ósamstöðu – allt í þágu póli- tískra stundarhagsmuna. Ráðherrar eru staðnir að því að fegra hlutina þannig að jaðrar við ósannindi. Alþingi stundar tilraunalögfræði. Lausnirnar sem boðið er upp á eru heima- tilbúnar og standast enga skoðun. Heimótt- arskapurinn ræður ríkjum. Meðan á þessu stendur sekkur efnahagur ríkisins, fyrirtækja og heimila í hið djúpa fen skuldanna. Því lengur sem þetta ástand varir því lengra er þar til að efnahagsbatinn hefst. Þetta hefur ófyrirséðar afleiðingar fyrir heim- ilin og fyrirtækin – Íslendingar eru nú svartsýn- astir 22 vestrænna þjóða á efnahagsástandið heima fyrir. En hvaða ákvarðanir eru það sem er svo erfitt að taka? Í meginatriðum eru þrjár ákvarðanir sem skilja munu milli feigs og ófeigs: hvernig standa á að því að ljúka IceSave-ófögnuðinum; hvað gera skal í ríkisfjármálunum og; hvernig leið- rétta eigi skuldastöðu heimila og fyrirtækja þannig að greiðsluviljinn sé varðveittur. Öll efnahagsvandamál sem við stöndum nú frammi fyrir eru afleidd af þessum þrem vandamálum. Icesave Það er mikilvægt að ekki verði hægt að benda til Íslands af hinum alþjóðlega fjármagnsmark- aði og segja að þar fari óreiðumenn. Óreiðu- menn hafa ekki lánstraust en þjóðir verða að búa við lánstraust. Annars geta þær ekki nýtt sér krafta fjármagnsins og lífskjörum hrakar. Það er sama hve sár Íslendingum kann að finnast sú niðurlæging sem felst í að ganga til samninga vegna Icesave, niðurlæg- ingunni verður að kyngja. En fyrr má rota en dauðrota. Nauðarsamn- ingurinn sem nú stendur til boða er algjörlega óásættanlegur. Hann er myndaður af röð mistaka sem rekja má til heimóttarskapar stjórnvalda. Hagsmunir Íslands voru ekki hafðir að leiðarljósi né þau viðmið sem al- þjóðasamfélagið lagði til (Brussel- viðmiðin). Íslendingar verða að ganga frá málefnum Tryggingasjóðsins á við- unandi hátt en þá aðeins með hagsmuni Íslands í forgrunni. Fyrr náum við ekki sáttum við um- heiminn. Það er jafnframt bagalegt að mikils metnir hagfræðingar komi fram og segi Íslendinga ekki þurfa á erlendum lánum að halda. Engin þörf sé á lánum sem hafi þann eina tilgang að liggja á bankabók í útlöndum engum til gagns. Það leiði til einskis nema kostnaðar. Hér hefur stjórnvöldum mistekist að útskýra fyrir þjóð- inni af hverju sterkur gjaldeyrisforði er ein mik- ilvægasta forsendan fyrir endurreisn gjaldmið- ilsins. Sterkur gjaldeyrisforði auk raunhæfrar efnahagsáætlunar myndar trú á íslenskt efna- hagslíf almennt. Þessi trúverðugleiki er grunn- forsendan fyrir styrkingu krónunnar, afnámi gjaldeyrishafta og endurtengingu Íslands við umheiminn. Lífskjör á Íslandi eru bein afleiðing alþjóðaviðskipta – því má aldrei gleyma. Ríkisfjármálin Ríkisfjármálin eru í algjörum ólestri. Á næstu þrem árum þarf að bæta afkomu rík- issjóðs um a.m.k. 150 milljarða. Þetta þarf að gera með sparnaði, auknum tekjum og breikk- un skattgrunna. Hrunið hefur leitt fram þá óþægilegu staðreynd að skattgrunnar hins op- inbera byggðust að hluta til á sandi – á fjár- magnstekjum af yfirverðlögðum hlutabréfum, ofurháum launum og miklum hagnaði. Um leið og bólan sprakk skruppu skattgrunnar og þar með skatttekjur saman. Stjórnvöld standa nú frammi fyrir miklum raunum þegar ákvarða þarf hvar skal bera nið- ur við það verk að bæta afkomu ríkissjóðs. Ákvarðanir sem þarf að taka í þeim efnum eru stjórnvöldum því sem næst örugglega ofviða. Eða trúir því einhver að forsætisráðherra muni beita sér fyrir stórkostlegum niðurskurði í fé- lags- og tryggingamálum, eða heilbrigð- isráðherra í heilbrigðismálum, eða mennta- málaráðherra í menntamálum? Þessir þrír málaflokkar taka undir sig um 2/3 útgjalda rík- isins. Stjórnarþingmenn hafa verið barðir til samþykkis við ESB-aðildarumsókn, nú er verið að berja þá til stuðnings við IceSave og í haust þarf að berja þá til stuðnings við stórkostlegan niðurskurð í velferðarmálum. Engan er hægt að berja svo mikið að hann beri ekki að lokum hönd fyrir höfuð sér. Það þarf að mynda samstöðu um hvernig staðið verður að bættri afkomu ríkissjóðs. Það þarf að útskýra og mynda sátt meðal þjóð- arinnar út af hverju fara þarf út í þær hamfarir sem framundan eru í ríkisfjármálum. Í stað þess er þagað þunnu hljóði. Skuldaleiðréttingar Um ríkisfjármálin og Icesave eru flestir sam- mála en deilt er um hve alvarleg skuldavanda- mál fyrirtækja og heimila eru. Dregnar eru fram hagtölur frá áramótum eða fyrstu mán- uðum ársins til að sýna fram á að hlutirnir séu í þokkalegu horfi og engin ástæða sé til upphróp- ana. Bankarnir segja nú samt að allt að 70% fyr- irtækja séu tæknilega gjaldþrota og vanskil vaxa hröðum skrefum hjá heimilunum. Það sýna hagtölur. En það sem er mest að marka er tilfinning hins venjulega Íslendings. Ef talið berst að skuldabyrði fólks bera nær allir sig illa. Talað er um að fólk hætti að greiða af lánum og að nær sé að koma sér úr landi. Á Íslandi sé ekkert að hafa nema atvinnuleysi, vaxtaokur, skuldabyrði og vonleysi. Því er það eitt mikilvægasta verkefni stjórn- valda að varðveita greiðsluvilja landsmanna. Ef greiðsluviljinn hverfur og fólk og fyrirtæki hætta að greiða af skuldum sínum þá er illa komið. Það leiðir til þess að vantraust verður al- gjört og samfélagið gliðnar. Gömul og góð gildi hverfa og upplausnarástand myndast. Það mun taka mörg ár að endurheimta traustið á ný ef greiðsluviljinn hverfur. Heimili og fyrirtæki urðu fyrir alvarlegum forsendubresti síðastliðið haust – fjárhagsáætl- anir gengu allar úr skoðum. Þrátt fyrir að laga- lega beri hver ábyrgð á þeim samningum sem hann undirgengst var áfallið slíkt að eitthvað róttækt þarf að gera – gefa þarf fólki von. Það er vissulega rétt að margir geta tíma- bundið staðið undir auknum afborgunum en sættir fólk sig við það? Svo virðist ekki vera. Nú sammælist fólk í stórum stíl um að greiða ekki af lánum sínum. Það þýðir ekki að segja við fólk að nóg hafi verið að gert. Ef svo væri tröllriði umræða um að hætta að greiða af lánum ekki þjóðfélaginu. Stjórnvöld virðast almennt ekki hafa áttað sig á þessu. Það er brýnt að brugðist sé við með afgerandi hætti þannig að greiðsluviljinn hverfi ekki og að þeim sem enga von eygja sé komið til hjálpar. Það er hið brýna verkefni stjórnmálanna. Niðurlag Það er ekki á valdi samsteypustjórnar með nauman meirihluta að taka þessar ofangreindu ákvarðanir þannig að sátt ríki til frambúðar. Þær munu alltaf orka tvímælis og það mun leiða til sundrungar meðal þjóðarinnar. Brýnasta verkefni stjórnmálanna í dag er því að mynda andrúmsloft þar sem Íslendingar snúa bökum saman í þeirri viðleitni að takast á við vanda- málin. Þannig vinnum við okkur fljótt og út úr vandanum. Þannig stöðvum við fólksflóttann. Þannig hrekjum við hælbítana aftur niður í hol- ur sínar. Þannig verðum við aftur stolt af því að vera Íslendingar. Eftir Tryggva Þór Herbertsson » Í stað þess að mynda sam- stöðu hafa stjórnmálamenn með hjálp hælbíta ýmiskonar alið á tortryggni, heift og ósamstöðu – allt í þágu póli- tískra stundarhagsmuna. Tryggvi Þór Herbertsson Samstaða Höfundur er prófessor í hagfræði og alþingismaður.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.