Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 23
Umræðan 23BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009 „EINN dapurlegasti kaflinn í sögubókum framtíðarinnar verður vafalaust sá sem fjallar um Icesave-málið svo- kallaða og þá 700 millj- arða króna skuld sem ríkisstjórnin hefur nú nánast tryggt að lendi að miklu leyti á ís- lensku þjóðinni. … Sagan hefst á því að vegna Evróputilskipunar var Íslandi gert að koma á fót innlánatrygg- ingakerfi og stofna sérstakan sjóð í því skyni, sem meðal annars yrði notaður til að greiða þeim til baka sem eiga sparnaðarreikninga í ís- lenskum banka ef hann skyldi fara í þrot. … Margt er enn óljóst eða óupplýst hvað varðar fundi, bréf og samtöl íslenskra ráðherra og emb- ættismanna sem kann að hafa haft áhrif á að Bretar beittu hryðjuverka- lögum á íslenska banka. Eins og lög- fræðingar hafa bent á var hlutverk innlánatryggingakerfa samkvæmt reglum ESB/EES- svæðisins aldrei að takast á við allsherjar bankahrun, heldur aðeins fall einstakra banka. Sama sjónarmið kemur fram í skýrslum og yfirlýsingum frá Seðla- baka Evrópu og framkvæmdastjórn ESB. Veigamikil rök hnigu því strax frá upphafi að því að íslenska ríkið bæri ekki ábyrgð á skuldum vegna Ice- save-reikninganna umfram þá upp- hæð sem var til staðar í Trygginga- sjóði innistæðueigenda. … Með því að falla fyrst frá því að fá úr því skor- ið hver raunveruleg ábyrgð Íslands er og nú síðast með því að heykjast á því að annaðhvort ríkið eða Lands- bankinn, eða báðir aðilar, höfði mál vegna ákvörðunar breska fjár- málaráðuneytisins að beita hryðju- verkalögum á Íslendinga hefur rík- isstjórnin í reynd afsalað Íslend- ingum öllum lagalegum og réttar- farslegum möguleikum í málinu. … Þó má segja að enn sé örlítil vonar- glæta eftir í málinu því enn á Trygg- ingasjóður innstæðueigenda eftir að taka við skuldunum og trygging- arupphæðirnar eru því formlega séð enn á ábyrgð viðkomandi ríkja. Eins og undirritaður lýsti yfir við at- kvæðagreiðslu um mál- ið í þinginu 5. desem- ber síðastliðinn(2008) lítur þingflokkur Vinstri grænna á samninginn sem riftan- legan eða ógildanlegan nauðungarsamning. Undir þetta sjónarmið hafa nú tekið þeir Stef- án Már Stefánsson lagaprófessor og Lárus L. Blöndal hæstarétt- arlögmaður með þeim rökum að samning- urinn sé til kominn vegna þvingana frá ESB, sem hafi sett það sem skil- yrði fyrir lántöku hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. … Enn er hægt að afstýra stórslysi fyrir ís- lenska þjóð. Taki tryggingasjóð- urinn hins vegar við skuldunum er ljóst að þá verður ekki aftur snúið: Þá hefur þjóðin endanlega verið skuldsett á grundvelli pólitískra þvingunarskilmála sem ríkisstjórnin hafði ekki dug í sér til að standa gegn …“ Þessi texti er ekki eftir mig né er þetta úr grein minni um Icesave- saminginn í þessu blaði sl. föstudag, 14. þ.m. Höfundurinn er ráðherrann, sem kaus að senda mér tóninn úr kór Hóladómkirkju sl. sunnudag, 16. þ.m., fyrir að halda fram sömu sjón- armiðum og hann gerði sjálfur svo skelegglega snemma á þessu ári. Þegar Steingrímur J. Sigfússon skrifaði þetta í janúar 2009 voru hann og nánustu félagar hans að leggja á ráðin um myndun núverandi ríkisstjórnar og söguleg svik Sam- fylkingarinnar við samstjórnarflokk sinn þá, Sjálfstæðisflokkinn. Aðgöngumiðarnir að því stjórnar- samstarfi voru tveir, báðir á kostnað þjóðarinnar. Annars vegar umsókn um ESB-aðild og hins vegar já og amen við öllum kröfum ESB, Breta og Hollendinga í Icesave-málinu, enda myndi auðmýkt þar bæta stöð- una í aðildarviðræðum. Hvort tveggja þessara skilyrða hefur nú Steingrímur samviskusamlega efnt. Þegar ég leyfi mér að benda á sömu rök fyrir málstað Íslendinga og Steingrímur gerði í blaðagrein í janúar 2009 fer Jón Baldvin Hanni- balsson af hjörunum í Morgun- blaðinu miðvikudaginn 19. þ.m. Í janúar var ég í meginatriðum sammála Steingrími og er það enn að frádregnum pólitískum upphróp- unum hans, sem ég hirði ekki um að endurbirta. Steingrímur taldi þá, að ekki væri ríkisábyrgð á trygginga- sjóðnum og því enn síður á Lands- bankanum. Þá vildi Steingrímur að Íslendingar færu dómstólaleiðina til þess að fá skorið úr um skyldur sínar í málinu og hann taldi væntanlegan samning „riftanlegan eða ógild- anlegan nauðungarsamning“. Nú er Steingrímur leiðtogi „fyrstu hreinu vinstristjórnarinnar“ og þá er hans fyrsta verk að gera allt í Icesave- málinu þveröfugt við það sem hann sagði í janúar. Og ekkert skaðabóta- mál hefur verið höfðað gegn Bretum. Hver skuldar hverjum skýringar? Ég er ekki reiðubúinn til þess að fallast á að Íslendingar gangist í ábyrgð fyrir hundruðum milljarða, án þess að tilraun sé gerð til þess að fá skorið úr réttarágreiningi um skylduna. Rétt er að minna á að nær allir sem taka til máls um greiðslu- skylduna, fræðimenn innlendir sem erlendir, draga hana í efa og helstu blöð Bretlands taka nú undir þau sjónarmið. Hvað er það sem raunverulega knýr stjórnvöld til þess að ganga þessa óheillagöngu? Fullyrðingar Jóns B. Hannibalssonar um aðra þætti Icesave-málsins leiði ég hjá mér. Ég vona að öll gögn málsins komi fram, ekki síst að leynd verði létt af öllum gögnum í Bretlandi um sam- skiptin við Ísland árið 2008 og þau verði ófölsuð. Að lokum ítreka ég að mér vitanlega var ávallt fylgt réttum lögum varðandi margnefnda inn- lánsreikninga. Hvað sagði Steingrímur og hvað gerði hann? Eftir Kjartan Gunnarsson »Höfundurinn er ráð- herrann, sem kaus að senda mér tóninn úr kór Hóladómkirkju 16. þ.m., fyrir að halda fram sömu sjónarmiðum og hann gerði sjálfur svo skelegglega snemma á þessu ári. Kjartan Gunnarsson Höfundur er lögfræðingur. NÚ ER mikilvæg tímasetning til að semja við erlent fag- fyrirtæki til að meta ávinning Breta, stór- felldan skaða okkar, og skaða Breta sjálfra vegna beitingu breskra hryðjuverkalaga á ís- lensku þjóðina og hve beiting hryðjuverkalaganna olli í raun miklu tjóni á eignasafni Landsbankans sem aftur gerði Ice- save tjónið miklu stærra en ella. Sérhæft greiningarfyrirtæki frá USA getur metið allt beint og óbeint tjón sem beiting breskra hryðju- verkalaga kann að hafa valdið. Þetta þarf að meta Ávinning Breta af beitingu hryðjulaganna – hver var hann – var hann einhver? Skaða á eignasafni Landsbankans í Bretlandi sem deilist þá sem skaði fyrir Ísland og Bretland. Skaða sem hryðjuverkalögin ollu á öðrum eignum Landsbankans. Skaða á eignum annarra íslenskra banka erlendis og hér- lendis. Annan skaða hér- lendis. Tjón þjóðarinnar af því að gjaldeyr- isviðskipti voru nánast „fryst“ til og frá land- inu, eftir hefðbundnum leiðum, mánuðum sam- an. Meta hvað gengi ís- lensku krónunnar hafi lækkað mikið til við- bótar því sem orðið var (varanlega) – sérstakt mat sem beit- ing hryðjuverkalaganna hafði á ís- lensku krónuna. Meta hve mikið lífskjör almenn- ings á Íslandi hafa versnað vegna beitingar hryðjuverkalaganna. Meta annað afleitt tjón af beitingu hryðjuverkalaganna á Ísland og Ís- lendinga. Þetta verðum við nú að fá metið, sundurliðað, og heildarmat. Ef íslensk stjórnvöld drífa ekki í að semja við erlent greiningarfyr- irtæki, t.d. virt fagfyrirtæki frá USA, um að láta framkvæma slíkt hlutlaust mat fagaðila á öllu þessu tjóni þá er spurning hvort In- Defence hópurinn getur ekki komið slíkum samningum í kring og safnað verði fyrir kostnaðinum við það mat hérlendis og erlendis. Ábyrgðin Ég þarf varla að spyrja að því hvort það sé ákvæði í almennum hegningarlögum í löggjöf hérlendis eða í Bretlandi um hver er ábyrgð þess aðila sem vísvitandi eða af stór- felldu gáleysi veldur stórfelldum spjöllum á eignum annarra – eða hvort viðkomandi aðlar séu ekki 100% ábyrgir fyrir þeim skaða sem þeir kunna að hafa valdið öðrum með aðgerðum sem hafa valdið stórfelldri eignarýrnun og hérlendis og hjá Bretum sjálfum. Sérhæft matsfyrirtæki frá USA meti tjón hryðjuverkalaganna Eftir Kristin Pétursson » Sérhæft greining- arfyrirtæki getur metið allt beint og óbeint tjón sem beiting breskra hryðjuverka- laga kann að hafa valdið. Kristinn Pétursson Höfundur er fyrrverandi fiskverkandi. KÆRA ríkisstjórn. Í dag er ég reið. Ég á erfitt með að átta mig á því hvað fer fram í hug- arskotum ykkar sem stjórna land- inu. Okkur menntafólki er bókstaflega bolað úr landi. Menn tala um spekileka sem mun vænt- anlega hafa var- anleg áhrif á land- ið. Í dag á ríkið enga peninga, bókstaflega enga peninga, eini auð- urinn sem að við Íslendingar búum að er mannauðurinn. Við höfum nefnilega gríðarlegt úrval af vel menntuðu og kláru fólki. Hins vegar er svo vegið að þessu fólki í dag að það sér sér ekki fært að búa hérna, hag þess er betur borgið í útlöndum þar sem borguð eru mannsæmandi laun og tækifærin eru til staðar. Það er ekki nóg með að landið sé blóð- mjólkað fjárhagslega heldur er mannauðurinn hægt og bítandi að fjara út líka. Verður það svo að eftir 10 ár verður Ísland ekki lengur ham- ingjusamasta og best menntaða þjóð í heimi? Verður Ísland meðal þeirra verst settu? Nú tala erlendir jafnt og innlendir spekingar um það að mannauðurinn og menntastig þjóðarinnar sé einmitt lausn fjárhagskreppunnar. En kæra ríkisstjórn, hvað gerið þið í því? Þið hækkið á okkur skatta, hækkið at- vinnuleysisbætur svo að fólk sér sér betur borgið á bótum en að vinna lág- launastörf. Þið, kæra ríkisstjórn, er- uð að ýta undir misnotkun á kerfinu, misnotkun á mínum skattpeningum! Sjálf er ég háskólamenntuð og rík- isstarfsmaður, ekki glæsileg kjör þar frekar en fyrri daginn. Aðhald í rík- isrekstri er staðreynd og hvar er þá byrjað? Losna við lausráðna rík- isstarfsmenn og hvetja starfsmenn sem eru að komast á aldur til að fara á eftirlaun. Fækka stöðugildum á þeim sviðum þar sem álagið er mest, færa til verkefni, auka vinnuálag. Og hvert fara svo þeir starfsmenn sem að missa vinnuna? Jú á atvinnuleys- isbætur eða eftirlaun, allt borgað úr sama kassanum. Aðrir fara jú úr landi, það er sparnaður! Er spekileki kannski ríkissparnaður? Hvernig væri að spara á öðrum sviðum? Þurfa hinar ýmsu stofnanir og starfsmenn bíl á vegum ríkisins? Hvað með allar þessar ráðstefnur er- lendis og dagpeninga? Þarf alla þessa yfirstjórnendur? Kæra ríkisstjórn, ég hef ákveðið að spara ykkur pening og flytja úr landi sem fyrst. Nýta menntun mína þar sem að hún er metin að verð- leikum, þar sem ég fæ mannsæmandi laun. Til hamingju með spekilekann! VERA KNÚTSDÓTTIR, B.A. í stjórnmálafræði. Opið bréf til ríkisstjórnarinnar Frá Veru Knútsdóttur Vera Knútsdóttir FRÁBÆR frammistaða ríkis- stjórnar undir stjórn Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráðherra og formanns Samfylkingar er að koma í ljós, er það ekki? Er það í anda jafn- aðarmanna að kreista sem mest og fyrst út úr eldri borgurum allt sem mögulegt er? Ríkisstjórnin sendi okkur kveðjuna um mánaðamót júní/ júli gegnum Tryggingastofnun rík- isins. Þeir sem höfðu t.d. lágmarks- greiðslur frá TR fengu skerðingar upp á nokkra tugi prósenta. Atvinnumöguleikar skertir eða sama sem, það erum við eldri borg- arar sem erum aðalhjól þeirra er greiða skulu skuldir Íslands, eða það virðist vera þannig. Hvað mundu t.d. kennarar, heilbrigðisstéttir, já sjálf- ir þingmenn og ráðherrar og allt stjórnarliðið segja ef skerðingar upp á 27% kæmu bara sísvona á laun þeirra? Það er sú upphæð er und- irritaður upplifði í skerðingu frá háttvirtri ríkisstjórn. Fólk sem búið er að þræla í gegn- um lífið og greiða alla skatta af laun- um sínum gegnum tíðina er svo hundelt er það kemur á efri ár, og þá helst af vinstristjórn, sem menn ættu að halda að hugsaði frekar um hag eldri borgara. Á sama tíma eru þó nokkrir, er gáfu upp takmark- aðan hluta launa, látnir njóta allra hlunninda sem TR veitir. Mér segir svo hugur að haustið verði mjög heitt, þ.e.a.s. að baráttan geti orðið hörð hjá eldri borgurum til að halda sínum réttindum. Við munum ekki endalaust láta vaða yfir okkur, það kemur að því að upp úr sýður með sama áframhaldi. Ekki eigum við þátt í efnahags- hruninu hér á landi, en það virðist sjálfsagt að leita fyrst á garðinn þar sem hann er einfaldastur og lægst- ur. Meðan lítið sem ekkert gengur að fanga þá, er sannarlega stóðu fyr- ir bankahruninu síðastliðið haust, er þetta hið nýja Ísland. JÓN KR. ÓSKARSSON, formaður Félags eldri borgara Hafnarfirði. Er þetta í anda jafnaðarmanna? Frá Jóni Kr. Óskarssyni GAMALT máltæki segir um heimska menn: „Þeir reiða ekki vitið í þverpokum.“ Einhvern veginn finnst manni þetta eiga við þegar menn halda að íslenska þjóðin búi ekki yfir almennri skynsemi. Þegar Hreiðar Már heldur að íslenska þjóðin fái í hnén og trúi vitleys- unni í honum bara við það að sjá hann á skjánum í Kastljós- inu, þá skjátlast Hreiðari. Stór hluti þjóðarinnar mun í framtíðinni finna fyrir því við hver mánaðamót að lífsgæði hafa rýrnað af völdum Hreiðars Más og annarra stjórnenda KB- banka. Þetta mun koma fram meðal annars í skertum lífeyr- isgreiðslum. Maður sem skilur ekki alvöru þess að hafa rýrt fé lífeyrissjóðanna um tugi eða hundruð milljarða með störfum sínum sem forstjóri banka reið- ir ekki vit í þverpokum skv. gamla máltakinu. Fyrst þjóðin fær ekki afsökunarbeiðni frá Hreiðari Má má hún kannski eiga von á teppum eins og um árið þegar Kaupþing reyndi að blíðka landann! Þorsteinn Ingason Hreiðar Már reiðir ekki vitið í þverpokum Höfundur er fyrrverandi útgerð- armaður og fiskverkandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.