Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009 Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrver-andi bankastjóri Kaupþings, aftók með öllu í Kastljósi í fyrra- kvöld að hann skuldaði þjóðinni af- sökunarbeiðni.     Hann bað hluthafa, kröfuhafa ogstarfsfólk bankans afsökunar vegna mistaka sinna, en taldi standa öðrum nær að biðja þjóðina afsökunar.     Það lendir ekk-ert á ís- lenzku þjóðinni vegna hruns Kaupþings,“ sagði Hreiðar.     Þegar Kaup-þing og hinir bankarnir hrundu, hrundi líka gjaldmiðill landsins, með tilheyrandi lífs- kjararýrnun. Fjöldi manns hefur misst vinnuna. Margir töpuðu pen- ingum, til dæmis í peningamark- aðssjóðum Kaupþings og í lífeyris- sjóðum í vörzlu Kaupþings, þótt heimturnar hafi kannski verið skárri en hjá öðrum bönkum eins og forstjórinn fyrrverandi virtist stoltur af í viðtalinu.     Verðskuldar þetta fólk enga af-sökunarbeiðni?     Álit flestra, sem um málið hafafjallað, er að áhættusækni bankamanna og sú áhætta, sem þeir sköpuðu með lánveitingum til fárra stórra aðila, sem sumir hverj- ir voru tengdir bönkunum, hafi stuðlað að hruni kerfisins.     Á þessu vildi Hreiðar Már ekkibiðjast afsökunar. Ítrekaði að Kaupþingsmenn hefðu starfað inn- an ramma laga og reglna.     Ef menn ætla ekki að biðjast af-sökunar á neinu nema það sé lögbrot, fækkar afsökunarbeiðnum væntanlega til muna. Hreiðar Már Sigurðsson Afsökunarbeiðnum fækkar Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 10 skýjað Lúxemborg 33 heiðskírt Algarve 30 heiðskírt Bolungarvík 5 rigning Brussel 25 þrumuveður Madríd 35 heiðskírt Akureyri 10 alskýjað Dublin 17 skýjað Barcelona 29 heiðskírt Egilsstaðir 14 skýjað Glasgow 13 skúrir Mallorca 30 léttskýjað Kirkjubæjarkl. 14 skúrir London 21 léttskýjað Róm 35 heiðskírt Nuuk 6 skýjað París 25 heiðskírt Aþena 31 léttskýjað Þórshöfn 12 skúrir Amsterdam 23 léttskýjað Winnipeg 19 skýjað Ósló 24 heiðskírt Hamborg 33 heiðskírt Montreal 24 heiðskírt Kaupmannahöfn 23 heiðskírt Berlín 31 heiðskírt New York 30 léttskýjað Stokkhólmur 20 heiðskírt Vín 28 heiðskírt Chicago 21 alskýjað Helsinki 16 heiðskírt Moskva 13 alskýjað Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 21. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 0.45 0,0 6.50 4,1 12.57 -0,0 19.05 4,5 5:39 21:24 ÍSAFJÖRÐUR 2.53 0,0 8.50 2,3 15.03 0,1 20.59 2,6 5:32 21:40 SIGLUFJÖRÐUR 5.12 0,0 11.27 1,4 17.14 0,1 23.37 1,5 5:15 21:24 DJÚPIVOGUR 3.56 2,2 10.05 0,1 16.23 2,5 22.33 0,3 5:05 20:56 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á laugardag Suðaustlæg átt, 3-8 m/s, en 8- 13 við S-ströndina síðdegis. Dá- lítil rigning með köflum S- og V- lands, en annars bjartviðri. Hiti víða 10 til 16 stig. Á sunnudag Norðaustan 8-13 m/s og rign- ing eða súld A-til á landinu, en annars bjart með köflum. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast V-lands. Á mánudag, þriðjudag og miðvikudag Útlit fyrir nokkuð ákveðnar austlægar áttir með vætu, en úrkomulítið V-lands. Milt í veðri. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir og léttir til vestan til, en áfram stíf norðvestanátt með vætu austanlands. Hiti 5 til 17 stig, hlýjast sunnanlands. FYRSTA skólasetning Framhalds- skólans í Mosfellsbæ fór fram í hús- næði skólans á Brúarlandi í gær. Um sjötíu nemendur eru við skól- ann nú í upphafi. „Það er gaman að skapa skóla og fara þar nýjar leiðir í starfinu,“ segir Guðbjörg Að- albergsdóttir skólameistari. Nýi skólinn mun kenna sig við auðlindir og umhverfi í víðum skilningi; mannauð, lýðheilsu og menningu. sbs@mbl.is Nýr fram- haldsskóli Morgunblaðið/Ómar Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Á síðustu árum hefur tíðni eldinga aukist á Austurlandi að minnsta kosti hafa íbúar á Djúpavogi í nokkrum tilvikum orðið vitni að kraftmiklum þrumum og eldingum. Fyrir skömmu var slökkvilið Djúpa- vogs kallað út vegna eldingar sem hafði slegið niður í raflínustæðu á Öxi með þeim afleiðingum að raf- magni sló tímabundið út á stóru svæði á Austurlandi. Staurinn stóð í ljósum logum Þegar slökkvilið Djúpavogs mætti á svæðið þar sem eldingunni sló nið- ur skíðlogaði í einum raflínu- staurnum þrátt fyrir að mikil rigning væri á svæðinu. Greiðlega gekk þó að slökkva eldinn en þrír staurar reyndust ónýtir og er ljóst að miklir kraftar hafa verið þarna að verki. Svo mikill kraftur hefur fylgt eld- ingu þessari að allt að þriggja metra langir spýtubútar höfðu sprungið frá staurunum og lágu í nærri 50 metra fjarlægð frá þeim. Elding er ljós sem sést frá raf- straumi sem hleypur milli staða í skýjum eða milli skýja og yfirborðs jarðar. Rafstraumurinn sem myndar eldinguna hitar loftið í næsta ná- grenni svo snöggt að úr verður sprenging og hljóðbylgja sem við köllum þruma berst í allar áttir. Á sumrin verða þrumur helst í tengslum við hitaskúrir sem mynd- ast síðdegis á heitum dögum yfir landi. Þrumuveður af þeirri gerð standa yfirleitt stutt yfir, oft ekki nema um klukkustund. Kraftmikil eldingin kveikti í staurnum Morgunblaðið/Andrés Skúlason Orka Krafturinn var mikill og staur- inn klofinn endilangt eftir eldinguna. Rafmagnsstaur stóð í ljósum logum við veginn um Öxi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.