Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.08.2009, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009 – meira fyrir áskrifendur Fjármál heimilanna og einstaklinga Fáðu þér áskrift á mbl.is/askrift Nú hefur aldrei sem fyrr þurft að huga að fjármálum heimilanna og einstaklinga, hvað er til ráða, hvað á að gera og hvað hentar mér eru spurningar sem við reynum að varpa ljósi á í sérblaði. Viðskiptablaðs Morgunblaðsins sem tekur á þessu málefni í veglegu sérblaði 10. september næstkomandi • Hvaða úrræði standa venjulegum heimilum til boða til að rétta úr kútnum? • Hvaða leiðir eru færar til að spara í útgjöldum heimilisins án þess að draga úr lífsgæðum? • Kunna Íslendingar að fara með peninga eða kunna þeir ekki að varast gildrurnar? • Hvaða úrræði eru í boði fyrir þá sem vilja geyma spariféð sitt? • Hvaða kostir og gallar eru við það að lengja í lánum? Þetta sérblað Viðskiptablaðs Morgunblaðsins er líklegt til að vera mikið lesið utan síns venjulega markhóps vegna efnis síns. Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir 569 1134 - 692 1010 - sigridurh@mbl.is Auglýsendur! Auglýsingapantarnir eru í síma 569-1134 eða sigridurh@mbl.is til 7. september og skilafrestur er til hádegis 9. september. FRÉTTASKÝRING Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is BRÚIN YFIR Mjóafjörð í Ísa- fjarðardjúpi verður tekin í notkun 4. september næstkomandi. Í sept- ember verður vegurinn um Arn- kötludal milli Reykhólasveitar og Stranda einnig opnaður umferð. „Hólmvíkingar eru glaðir og þessar samgöngubætur munu hafa gífurlega mikið að segja fyrir svæð- ið í heild,“ sagði Ásdís Leifsdóttir, sveitarstjóri á Hólmavík, í gær. „Þá er ég að tala um báðar þessar framkvæmdir því góðar samgöngur í allar áttir allan ársins hring gera svæðið enn vænna til búsetu.“ Ásdís segir að með veginum um Arnkötludal verði Reykhólasveit og Strandir eitt atvinnusvæði og segist ætla að ekki taki meira en 15 mín- útur að fara nýja veginn úr Stein- grímsfirði yfir í Reykhólasveit. Hún sagði að þau sjö ár sem hún hefði búið á Hólmavík hefði vegurinn um Djúpið stórbatnað og nefndi í því sambandi bundið slitlag, fækkun einbreiðra brúa og nú brúna yfir Mjóafjörð. Á síðustu metrunum „Við erum að gæla við að opna fyrir umferð um brúna föstudaginn 4. september,“ sagði Sigurður Ósk- arsson, framkvæmdastjóri KNH á Ísafirði, í gær, en fyrirtækið er verktaki við smíði brúarinnar yfir Mjóafjörð. Hann sagði að nú væri unnið við vegrið á brúnni og á mánudag yrðu steyptar örygg- isbríkur. Hann sagði að steypa þyrfti að ná 60% styrk áður en um- ferð yrði hleypt á hana, en ef veður yrði gott í næstu viku og sæmilega hlýtt ætti það að takast. Þess má geta að í gærmorgun var þriggja stiga hiti í Mjóafirði. „Þetta verður þvílíkur munur,“ sagði Sigurður um þýðingu þessa mannvirkis fyrir samgöngur vestra. „Tilkoma brúarinnar breytir engu í kílómetrum talið, en vegurinn verð- ur miklu öruggari og fljótfarnari. Við losnum hins vegar við ónýtan veg yfir Hestakleif og Mjóafjörð- inn, sem bæði hefur verið seinfar- inn og leiðinlegur. Síðustu vikur hef ég orðið var við talsvert óþol í fólki að komast yfir brúna og margir hafa beðið í of- væni eftir þessari samgöngubót. Með tilkomu brúarinnar og veg- arins um Arnkötludal getum við keyrt á bundnu slitlagi alla leið til Reykjavíkur allt árið. Ég held að þessar samgöngubætur réttlæti að við efnum til þjóðhátíðar á Vest- fjörðum,“ sagði Sigurður. Um 20 manns eru nú við vinnu í Mjóafirði á vegum KNH, en mest voru þeir yfir 50. Samkvæmt samn- ingi á að skila verkinu 1. október. Upphaflega var áætlað að fram- kvæmdum lyki í fyrrahaust, en samningaviðræður við eigendur Hrúteyjar töfðu framkvæmdir. Umfangsmeira verkefni Ingileifur Jónsson ehf. hefur séð um vegarlagninguna um Arnkötlu- dal og hefur verkið að mestu verið unnið þrjú síðustu sumur. Ingileifur framkvæmdastjóri segist vonast til að verklok verði í september, en vill ekki tilgreina ákveðna dagsetn- ingu. Framkvæmdum við vegbygg- inguna er lokið og sömuleiðis smíði brúa. Þá er mulningslag komið á mestan hluta vegarins, en eftir er að klæða hann. Verkinu á sam- kvæmt upphaflegum samningi að ljúka um næstu mánaðamót en það hefur reynst mun umfangsmeira en búist var við. Ingileifur nefnir að fram- kvæmdin hafi marga jákvæða þætti í för með sér; aukið öryggi, stækk- un atvinnusvæðis og leiðin frá Reykjavík til Hólmavíkur styttist um 40 kílómetra. Ljósmynd/Jón Þór Guðbjörnsson Mjóifjörður Starfsmenn KNH keppast við svo allt verði klárt eftir tvær vikur er umferð verður hleypt á brúna. Vegabætur vestra VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ KNH á Ísafirði hefur verið um- svifamikið í vegaframkvæmdum á þessu ári. Fyrirtækið er að ljúka vinnu við Mjóafjarðarbrú, en auk þess er það með átta önnur verk í gangi. Um 120 manns vinna hjá fyrirtækinu, en auk þeirra koma undirverktakar og tengd fyrirtæki að framkvæmdum. KNH er að ljúka framkvæmdum við Hreðavatn í Borgarfirði, er með verkefni á Fróðárheiði og í Þorskafirði í Reykhólasveit og er að ljúka snjóflóðavörnum á Bíldudal. Þá er vinna við Suðurstrandarveg í fullum gangi og byrjað er á stóru verki í Vopnafirði, auk verkefna á Raufarhöfn og á Ísafirði. Fjögur síðasttöldu verkefnin verða áfram unnin á næsta ári þann- ig að verkefnastaða fyrirtækisins er góð. Sterk staða KNH  Brúin yfir Mjóafjörð verður tekin í notkun 4. september  Vegurinn um Arnkötludal einnig opnaður í næsta mánuði  Samgöngubætur sem réttlæta þjóðhátíð á Vestfjörðum Með nýjum samgöngumann- virkjum í Ísafjarðardjúpi annars vegar og á milli Stranda og Reyk- hólasveitar hins vegar eykst ör- yggi, ferðatími styttist og at- vinnusvæði verða sameinuð.                               !" # $! %&  !"                  '!&( !" !  )!  *                            

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.