Morgunblaðið - 21.08.2009, Síða 18
DRESS to Kill,
uppistand breska
klæðskiptingsins
Eddies Izzards frá
árinu 1998, er
fyndið. Óhemju-
fyndið. Sérstak-
lega eftirminni-
legt er þegar
Izzard tekur orð
fyrsta mannsins á tunglinu um stór
stökk mannkyns og hvað hann sjálfur
er skrefstuttur fyrir og veltir fyrir sér
öðrum möguleikum. Dæmi: „Maður
getur ekki lent á tunglinu og sagt: Ó,
það er klístrað! Þakið sultu.“ Óhemju-
fyndið.
Allt um það, maðurinn er í kjól. Það
er sama hvað hann segir, það er fynd-
ið. Dress to Kill og fleiri uppistönd Izz-
ards fást leigð á DVD á Laugarásvídeó
fyrir einn rauðan seðil, svonefndan
fimmhundruðkarl. skulias@mbl.is
Glens&gaman
Fram úr hófi
fyndinn í kjól
18 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
Þetta yrði fyrsta
skiptið mitt svo ég
var bæði dálítið
spennt og kvíðin.
Aðallega vissi ég
ekki alveg í hverju ég
ætti að vera og var búin að taka
mig nokkrum sinnum til en hætta jafnóðum við aftur. Kannski
myndu fötin koma upp mig og ég vildi að allir héldu að þetta
hefði ég gert margoft áður. Annað var einfaldlega ekki nógu
smart. Síðan var að ákveða hversu mikið ég ætlaði að drekka.
Nóg til að ég slappaði af og þetta gengi allt sársaukalaust fyrir
sig en ekki of mikið til að ég myndi ekkert daginn eftir. Ég von-
aði að aðstæðurnar yrðu góðar og það færi vel um mig því annars
myndi ég kannski bara fórna höndum og hætta við allt saman. Það
vildi ég ekki því mig langaði þetta virkilega mikið í raun og
veru. Vinkona mín hafði sagt mér að hennar fyrsta skipti
hefði verið ógleymanlegt og hún biði spennt eftir því að sjá
hvað mér fyndist. Ég væri samt kannski ekki alveg týpan í
þetta. Við það dró ég andann djúpt og tók til tvo bjóra í við-
bót. Þetta byrjaði allt saman vel og eftir því sem leið á fann
ég að ég varð æ spenntari og kvíðinn fór að hverfa smátt og
smátt. Ég dreif mig í gallann og fann að ég var tilbúin. Þeg-
ar á hólminn var komið sló bjartur eldur bjarma á kinn. Nú
var bara að loka augunum og láta sig falla. Dalurinn umlukti
mig og Eyjarhaftið rofnaði eins og hendi væri veifað. Það
gerðist svo snöggt að ég tók ekki einu sinni eftir því. Ég
var svo allt of upptekin við að opna Tópaspelann og anda
að mér þjóðhátíðarstemningunni.
María Ólafsdóttir | maría@mbl.is
HeimurMaríu
’Vinkona mín hafðisagt mér að hennar
fyrsta skipti hefði verið
ógleymanlegt.
VENJU samkvæmt heldur Sálin hans
Jóns míns tónleika á Nasa á Menn-
ingarnótt. Þetta verða síðustu form-
legu tónleikar Sálarinnar í Reykjavík
um alllanga hríð, því bandið dregur
sig í hlé í septemberlok. Það eru því
síðustu forvöð fyrir Sálaráhugamenn
og -meyjar að hafa Sálfarir, eins og
það er víst kallað.
Forsala verður á Nasa á milli kl. 13
og 17 í dag. Miðaverð í forsölu er
2.000 krónur en við hurðina kostar
miðinn 2.500 krónur. Tónleikagestum
er óskað góðrar skemmtunar.
Tónleikar
Sálin á Nasa
á morgun
Sálverjar Gummi og Stebbi í stuði.
ALLIR sem kunna
að meta góðar
spennubækur
hljóta að falla fyrir
Í meðferð eftir
Sebastian Fitzek
sem nýkomin er út
í íslenskri þýðingu.
Tólf ára gömul
dóttir geðlæknis
hverfur og nokkr-
um árum síðar
birtist skáldkona sem segir geðlækn-
inum afar sérstaka sögu um stúlku
sem minnir um margt á hina horfnu
dóttur. Geðlæknirinn ákveður að
rannsaka málið.
Þessi fyrsta bók hins þýska Seb-
astian Fitzek gerði hann að stjörnu í
heimalandinu og hefur verið þýdd í
28 löndum. Það er ekkert ein-
kennilegt við vinsældir bókarinnar.
Lesandinn veit aldrei hvað mun ger-
ast og höfundi tekst sífellt að koma
honum á óvart og rugla hann í ríminu.
Spennan er gríðarleg, fer stigvaxandi
og erfitt er að leggja bókina frá sér.
Það er enginn leikur fyrir höfund-
inn að ljúka sögu eins og þessari á
sannfærandi hátt, eftir öll þau ósköp
sem gengið hafa á, en honum tekst
það nokkuð vel.
Þeir sem vilja verulega góða
spennubók lesa þessa.
kolbrun@mbl.is
Bækur
Fyrsta flokks
spennusaga
Í meðferð Gríð-
arleg spenna.
Hvað viltu lesa? Sendu okkur
tölvupóst á daglegtlif@mbl.is
Eldri og klassískari form einkenna nú gleraugnatískuna semaldrei fyrr. Léttmálmarnir, sem ráðið hafa ríkjum undanfarinmisseri, eru ekki jafn fyrirferðarmiklir en í staðinn hafa komiðkringlótt gleraugu, mýkri línur með stærri gamaldags spöng-
um. „Þetta er í takt við það umhverfi sem við hrærumst nú í,“ segir Anna
Þóra Björnsdóttir hjá gleraugnaversluninni Sjáðu á Laugavegi. „Við vilj-
um ekki raðgreiðslur og glæsibíla, þetta yfirdrifna, heldur gömlu góðu
gildin. Og það endurspeglast í gleraugnatískunni.“
Undir þetta tekur Kristinn Kristinsson hjá Glerauganu. „Það er retró-
fílingur í gangi en þó í nútímalegum stíl. Línurnar eru mýkri, formin ekki
eins köntuð. Einnig erum við að sjá meira af stærri módelum.“ Tímabilið
sem gleraugnahönnuðir sæki sinn innblástur til sé allt frá um 1960-85.
Hins vegar séu ekki allir sem elti þessa tísku, aðrir kjósi enn hefðbundn-
ari gleraugu. Vinsældir Silhoutte merkisins séu miklar en þeir sem kjósi
retró-fílinginn kaupi frá danska merkinu Örgreen eða svissneska fram-
leiðandanum Götti.
Anna segir vinsældir Moscot-gleraugnamerkisins m.a. undirstrika
þetta afturhvarf til fortíðar. Maocot var stofnað í Bandaríkjunum árið
1915 og hafa gleraugun þeirra lítið breyst í gegnum áratugina. „Þessi
gleraugu hafa haldið sínum stíl og eru því gamaldags og algjörlega í tísku
nákvæmlega núna,“ segir Anna. „Ungu krakkarnir vilja þetta; því
nördalegri og stærri sem gler-
augun eru, því betra,“ segir
Anna hlæjandi. Þá segir hún
eldra fólk einnig í skýjunum
yfir því að gleraugnatískan
skuli hafa tekið þessa U-
beygju. „Það segist fegið
að loksins sé komið eitt-
hvað í þeirra anda!“
Ekki minni menn en leik-
ararnir Johnny Depp, Renee
Zellweger og Jeff Goldblum
setja Moscot-gleraugun upp
við ýmis tækifæri.
Stórt og
nördalegt
Kringlótt Militzen-týpan af Moscot-gleraugunum var fyrst framleidd á fjórða áratugnum. Andy Warhol var m.a. aðdáandi. Fást í versluninni Sjáðu.
Í verslun Sjáðu við Lauga-
veg 32 verður stemning
fimmta áratugarins í al-
gleymingi. Búðin fær því
eðli málsins samkvæmt á
sig blæ fortíðar. „Við ætl-
um að þessu tilefni að vera
með uppsett hár og kisu-
gleraugu. Gefa skít í
kreppuna, taka gömlu
góðu gildin inn og
skemmta okkur og öðr-
um,“ segir Anna hlæj-
andi. „Sérrí og katt-
artungur,“ segir hún
um þann anda sem ein-
kennir tímabilið sem
gert verður hátt undir
höfði annað kvöld.
Flottur Johnny Depp
skartar Moscot-gleraugum
sem fást í Sjáðu. Hann fer
vart út úr húsi án þeirra.
Reuters
Skilaboð Þeir sem velja
Eugen-týpuna frá Götti
vita hvert þeir ætla sér.
Fást í Glerauganu.
Sjáðu! Gylfi og Anna Þóra hjá Sjáðu setja sig
í retró-stellingar fyrir menningarnótt.
Morgunblaðið/Heiddi
Skörp Yukel-týpan af
Moscot-gleraugum er í
anda Malcom X. Gleri,
járni og plasti blandað
saman. Fást í Sjáðu.
Klassík Peggy-týpan frá Götti er
sígild en nútímaleg um leið. Erf-
itt er að líta framhjá þeim sem
þau ber. Fást í Glerauganu.
Sérrí og
kattartungur