Morgunblaðið - 21.08.2009, Qupperneq 19
Rauði varaliturinn er búinn að vera vinsæll undanfarin misseri og
verður áfram ef marka má hönnuði eins og Dolce og Gabbana,
sem notuðu þekjandi djúprauðan lit, og Lanvin, sem var með ljós-
ari gegnsærri lit sem settur var á varirnar með fingrunum til að fá
léttari og nútímalegri áferð á varirnar. Það mátti sjá rauða varalit-
inn í mörgum útgáfum á tískupöllunum fyrir veturinn og er allt
leyfilegt; dökkur, ljós, mattur og glansandi.
Rauðu varirnar
Dolce og Gabbana LanvinGucci
Marc Jaobs
Klassískt og alltaf vinsælt. Kattaraugað er kraftmikið í ár og mátti sjá það í
ýmsum útgáfum á tískupöllunum. Skemmtileg nýbreytni núna er að augn-
skuggi er meira notaður til að móta augað eins og mátti sjá hjá Marc Jacobs
og fleiri hönnuðum. Hin klassíska eyeliner-lína verður áfram vinsæl í vetur í
ýmsum myndum. Lanvin var með fínlega eyeliner-línu á sínum fyrirsætum en
bætti við djúpum vínraðum lit á augnlokið, sem gerði augnsvipinn sterkari.
Áfram verður vinsæll ljós, húðlitur varalitur með dökkum augum. sibba@mbl.is
Kattaraugað
Louis Vuitton
Grái liturinn verður vinsælli en sá
svarti í vetur þó svo hann sé alltaf
notaður með. Það mátti sjá gráa lit-
inn í mörgum útgáfum; allt frá því að
nota hann á einfaldan og mildan hátt
á allt augnlokið hjá Badgley Misckha,
í mikla skyggingu hjá Marc Jacobs og
dökkgráan augnskugga blandaðan
bláum lit hjá Versace.
Grátt
Versace
Góðir maskarar þurfa ekki alltaf að
vera dýrir. Búið er að prufa þessa þrjá
og hafa þeir reynst mjög vel. Allir eru
þeir undir tvö þúsund krónum og get-
ur það sparað nokkrar krónur í budd-
una á ársgrundvelli þegar mælt er
með því að skipt sé um maskara á
þriggja mánaða fresti.
Aqua lash-maskari frá Max Factor.
Vatnsheldur maskari sem helst á allan
daginn og haggast ekki þó mikið gangi
á. 1.569 kr. í Hagkaupum.
Eyedeal-
maskari frá
Gosh. Þykkir
augnhárin vel
og er með
gúmibursta.
1.549 kr. í Hag-
kaupum.
Þrír góðir Super Volume Mascarafrá Body Shop. Gefur
mikla aukaþykkt á
augnhárin og er kol-
svartur. 1.690 kr.
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
NÚ fer saumaklúbbatíminn að
hefjast og þá er um að gera að
fara að fletta í uppskriftunum og
finna nýjar. Þó er freistandi að
nota grillið á svölunum eða pall-
inum fram á haustið. Hér er hug-
mynd að skemmtilegu snakki,
grillbrauði með grískri ídýfu, af
sælkeravefnum Vinotek.is. Í rétt-
inn er notað austurríska grill-
deigið (Grill Dej) frá Wewalka sem
fæst í flestum verslunum.
Fyrst þarf að útbúa grísku ídýf-
una en það sem þarf er:
Grísk jógurt, 250 g
fetaostur, 250 g
fersk mynta, ein lúka af blöðum
sítróna, hálf
hvítlaukur, tvö rif
Byrjið á því að sía fetaostinn frá
vökvanum. Setjið ostinn í skál og
myljið með gaffli. Bætið jógurtinu
saman við og hrærið vel saman
með gaffli.
Eini vandinn í þessari uppskrift
er að fetaostur og grísk jógúrt eru
seld í mjög mismunandi stærð-
arpakkningum. Við þurfum að
blanda þeim nokkurn veginn sam-
an til helminga en það er smekks-
atriði ef menn vilja örlítið meira
jógúrt en ost.
Pressið safann úr hálfri sítrónu
og hrærið saman við osta-
jógúrtblönduna. Saxið myntublöð-
in fínt og rífið hvítlaukinn og bæt-
ið saman við. Kælið.
Þá er að grilla brauðið. Byrjið á
því að rífa niður 2-3 hvítlauksrif
og blandið saman við góða ólífu-
olíu. Best er ef hvítlaukurinn og
olían fá að blandast í nokkra
klukkutíma.
Penslið aðra hliðina á brauðinu
með hvítlauksolíunni og leggið síð-
an brauðið á sjóðandi heitt grill
með pensluðu hliðina niður. Á
meðan sú hlið er að grillast pensl-
ið þið efri hliðina. Fylgist vel með
og verið tilbúin með spaðann að
snúa brauðinu við. Það er mjög
fljótt að grillast. Snúið við og grill-
ið hina hliðina á brauðinu.
Berið fram með ídýfunni.
www.vinotek.is
Gott í gogginn
Grillbrauð með
grískri ídýfu
Sterkir straumar
fyrir veturinn
F
örðun fyrir veturinn er ekki þannig að allt sé slétt
og fellt og helst sjáist ekki að ein einasta snyrtivara
hafi verið notuð. Hin milda og náttúrulega förðun
er á undanhaldi og dökk, kraftmikil augu og rauðar varir
verða mest áberandi í vetur. Núna er allt í lagi að blanda
þessu tvennu saman, en hingað til hefur það ekki verið
talið gott. Inn í þetta læðist samt eitthvað þægilegt fyrir
okkur sem erum kannski aðeins feimnar við að fara yfir í
svona mikla liti og getum við haldið okkur við „eyeliner“
og ljósar varir þar til við fáum hugrekki í sterku litina.
Mikil skygging í andliti er skemmtileg nýjung fyrir
veturinn. Undanfarið hefur skygging verið mild en í
vetur verður hún sterk og látin móta andlitið á kraft-
mikinn hátt. Hjá Alessandro Dell’ Acqua var sami
litatónninn notaður á kinnbein, augu og varir. Förð-
unin hjá Gucci var mjög kraftmikil fyrir veturinn;
dökk augu, mikil og sterk skygging og rauðar varir.
Skygging
Alessandro Dell’ Acqua
Marc Jacobs
Badgley Mischka
Hilmar Jensson og Marc Ducret
ásamt Jim Black
Björn Thoroddsen og Ulf Wakenius
Guðmundur Pétursson: Ologies
NASA
Föstudag 21.ágústkl 21
Húsið opnar kl 20
Forsala hafin á midi.is reykjavikjazz.is
Gít
ark
on
ser
tá
rsi
ns
!