Morgunblaðið - 21.08.2009, Page 27
V i n n i n g a s k r á
16. útdráttur 20. ágúst 2009
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
4 3 8 9 3
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
4 4 1 5 1 0 6 7 4 1 0 7 3 3 7 0 8 3 3
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
274 10982 19179 56914 62250 65969
8481 17505 26482 57249 63771 70278
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
5 0 9 1 0 7 3 4 1 8 1 1 5 2 6 7 5 4 4 3 3 8 3 5 4 0 5 3 6 2 9 2 2 7 2 6 9 0
2 1 8 7 1 1 1 7 6 1 9 3 7 4 2 9 7 3 5 4 3 5 8 1 5 4 8 7 8 6 4 8 2 1 7 2 7 0 4
3 5 5 7 1 1 6 1 5 2 0 2 2 5 3 1 0 1 3 4 4 3 2 1 5 5 4 0 9 6 5 0 1 4 7 3 2 4 8
3 8 3 9 1 2 5 0 0 2 0 6 8 8 3 1 7 0 3 4 4 8 0 2 5 5 4 3 3 6 5 0 8 3 7 5 0 1 5
4 9 0 8 1 2 7 6 7 2 0 9 1 3 3 3 1 5 6 4 5 0 6 3 5 6 0 5 1 6 6 2 8 1 7 7 0 3 2
6 1 1 7 1 2 9 0 1 2 0 9 5 4 3 3 3 2 0 4 6 2 8 7 5 6 1 0 7 6 6 6 9 7 7 7 8 0 7
7 3 9 5 1 3 2 9 1 2 1 1 2 7 3 3 4 7 6 4 6 9 0 8 5 7 2 7 0 6 7 2 2 7 7 8 3 8 1
7 5 9 3 1 3 5 9 5 2 2 1 5 5 3 5 0 5 4 4 7 1 1 2 5 7 4 1 5 6 7 5 8 2 7 8 3 8 4
8 3 0 4 1 3 7 8 7 2 3 2 8 9 3 6 5 2 2 4 7 7 6 6 5 7 4 7 5 6 7 8 8 8 7 9 8 3 9
8 4 7 5 1 3 8 0 8 2 4 5 4 4 3 7 3 2 8 4 8 4 4 0 5 8 6 8 5 6 8 6 8 1
8 6 6 3 1 4 0 9 3 2 5 2 8 3 3 8 0 9 3 4 9 4 3 3 5 9 9 2 3 6 9 4 0 5
9 7 8 0 1 6 8 7 8 2 5 8 3 8 3 8 4 7 9 5 1 5 9 2 6 1 0 4 2 7 0 1 0 8
1 0 7 3 2 1 7 5 9 1 2 6 0 9 1 4 3 1 4 7 5 2 4 3 2 6 1 3 3 5 7 1 5 8 7
Minningar 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
✝ Haukur Jónassonfæddist á
Hvammstanga í A-
Hún. 30. maí 1929.
Hann lést á heimili
sínu 16. ágúst sl. For-
eldrar hans voru
Guðmunda Sylvia
Siggeirsdóttir, f. 6.
nóv. 1898, d. 5. júní
1984 og Jónas Sveins-
son, héraðslæknir á
Hvammstanga og síð-
ar læknir í Reykjavík,
f. 7. júlí 1895, d. 26.
júlí 1967. Þau skildu.
Systkini Hauks eru: 1) Ingibjörg,
maki Kristmundur Bjarnason, lát-
inn, 2) Helga, maki Jóhann Indr-
iðason og 3) Reynir, maki Elín Þór-
hallsdóttir. Systkini, samfeðra: 1)
Ragnheiður Kristín, maki Bert
Hanson, og 2) Þórarinn, maki Heiða
Gíslason.
Haukur kvæntist 25. okt. 1956
Vilborgu Katrínu Þórðardóttur, f.
5. maí 1933. Þau skildu 1970. Börn
þeirra eru: 1) Björg, f. 15. ágúst
1947, þau slitu sambúð.
Haukur var stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík 12. júní 1948.
Cand. med. frá Háskóla Íslands 1.
júní 1956. Amerískt útlendingapróf
(ECFMG) í Boston í sept. 1961. Al-
mennt lækningaleyfi 8. mars 1964.
Sérfræðingaleyfi í lyflækningum
með sérstöku tilliti til meltingar-
sjúkdóma 8. mars 1964. Haukur var
aðstoðarlæknir héraðslæknisins í
Patreksfjarðarhéraði júlí-okt. 1956.
Kandídat á Københavns Amts
Sygehus í Gentofte frá nóv. 1956 til
jan. 1958. Aðstoðarlæknir á Nort-
hwestern Hospital í Minneapolis í
Minnesota, lyflækningadeild, frá
júlí 1958 til júní 1959 og á Lahey
Clinic í Boston í Massachusetts, lyf-
lækningadeild, frá júlí 1959 til júní
1961. Sérfræðinám í melting-
arsjúkdómum á Lahey Clinic frá
júlí 1961 til des. 1963. Héraðslæknir
í Kópaskershéraði jan.-mars 1964.
Sérfræðingur í lyflækningum og
meltingarsjúkdómum á Landspít-
alanum frá apríl 1964-1978. Starf-
andi sérfræðingur á eigin lækn-
ingastofu í Reykjavík frá 1978 til
starfsloka.
Útför Hauks fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag, 21. ágúst, kl. 15.
1952, maki hennar
Gústaf Adolf Gúst-
afsson. Dætur þeirra
eru Katrín Ösp og
Kristín Eik. Þau
skildu. 2) Reynir,
grafiskur hönnuður í
NY, sambýliskona
Berglind Helgadóttir,
f. 21. apríl 1966, dóttir
þeirra Rakel Rut. Þau
slitu samvistir. Maki
Monica Tedis-
Hauksson. Synir
þeirra Sebastian Ari
og Lucas Freyr.
Haukur kvæntist aftur 14. okt.
1972 Þórunni Júlíu Steinarsdóttur,
f. 24. des 1945. Þau skildu 1993.
Börn þeirra: 1) Steinarr Kristján
Ómarsson, sonur Þórunnar, f. 3.
maí 1968, kvæntur Úlfhildi Ingólfs-
dóttur, f. 8. des. 1967, dóttir þeirra
Helena Júlía, f. 20. feb 2002. 2) Jón-
as Sveinn, f. 26. okt. 1973, sambýlis-
kona Sandy Nausch, f. 2. feb. 1980.
Sambýliskona Hauks frá 1995 Guð-
rún Ásdís Ólafsdóttir, f. 13. feb.
Látinn er elskulegur og kærleiks-
ríkur bróðir minn, Haukur. Æsku-
minningar renna fyrir hugskotssjón-
um mér. Drengur fjörlegur, góður,
vinamargur í leik, gleði og alvöru.
Haukur var greindur og góður náms-
maður, dugnaðarforkur til náms og
verka. Snemma, níu ára, fór hann
með frænda sínum upp í Borgarfjörð
til vinnu. Unnu þeir allt sumarið af
mikilli hörku. Haukur vildi lengra og
tíu ára sótti hann um vinnu við höfn-
ina í Reykjavík. Var honum sagt þar
að koma aftur eftir tíu ár. Hann mætti
þá ellefu ára og fékk vinnu. Ekki að
gefast upp. Svona var hann. Uppvaxt-
arár Hauks liðu við skólagöngu og
íþróttir. Á sumrin vann hann við
vegavinnu, hásetastörf o.fl. Var hann
þá stundum hætt kominn. Leið
Hauks lá í M.R. og útskrifaðist hann
þaðan 1948. Þau ár voru honum
ánægjuleg. Námið gekk vel. Bekkj-
arsystkini hans voru góður og hress
hópur, og eignaðist hann þar marga
góða og trausta vini. Í bekknum voru
miklir úrvals íþróttamenn: frjáls-
íþróttamenn, skíðakappar, fjall-
göngumenn o.fl. Haukur æfði frjálsar
íþróttir í Í.R. í nokkur ár. Heimili okk-
ar systkinanna stóð öllum vinum okk-
ar opið og var þar oft mannmargt og
glatt á hjalla og margt brallað.
Að loknu stúdentsprófi fór Haukur
í Háskóla Íslands og lagði stund á
læknisfræði, en það hafði verið hans
markmið. Hann útskrifaðist sem
læknir árið 1956. Margt átti hann þó
ólært. Læknishæfileikar Hauks komu
snemma í ljós og varð hann læknir af
lífi og sál. Hann var frábær sjúk-
dómagreinir og það hefur ekki svo lít-
ið að segja í læknisstarfinu. Ég var
lánsöm að vinátta og samgangur hef-
ur verið með okkur alla tíð. Ég vil
þakka bróður mínum þá læknishjálp
sem hann hefur veitt mér og fjöl-
skyldu minni alla tíð. Verkin tala.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim
sem reyndust Hauki bróður mínum
vel síðustu æviár hans.
Blessuð sé minning hans.
Þín systir
Helga Jónasdóttir.
Bróðir minn, Haukur, er horfinn
sjónum okkar. Hann hringdi í mig
föstudaginn 14. ágúst sl. um kl. 18,
virtist hress í tali og ræddi m.a. við
mig um stórmótið í golfi, sem þá var
að hefjast um síðustu helgi og var
hann ekki í nokkrum vafa um að Tiger
Woods myndi vinna. Maðurinn með
ljáinn, sendiboði dauðans, heimsótti
hins vegar bróður minn þetta örlaga-
ríka kvöld, en hann spyr ekki um von-
ir, óskir eða drauma. Hann er mis-
kunnarlaus og komumst við ekkert
hjá því, mannanna börn, að standa
augliti til auglits við hann, hvenær
sem honum þóknast að berja að dyr-
um. Það eitt vitum við.
Haukur var rúmum 5 árum eldri en
ég og er það nokkur aldursmunur á
æskuárunum. Það breytir þó ekki
þeirri staðreynd að hann sýndi mér í
æsku og alla tíð sérstaka umhyggju
og kynntist ég t.d. flestum vina hans,
sem komu reglubundið á heimili okk-
ar. Hann og nokkrir félagar hans í
Menntaskólanum keyptu gamlan
bragga og breyttu honum í einka-
skíðaskála og stunduðu þeir þar
skíðamennsku af miklu kappi. Á þess-
um árum nam ég þá skíðamennsku,
sem hefur dugað mér til þessa dags.
Haukur lærði ungur að vinna,
kynnast lífinu og treysta á sjálfan sig.
Hann var sem drengur sendur að Öl-
valdsstöðum í Borgarfirði og vann þar
almenna sveitavinnu, eins og hún var
stunduð í þá daga. Nú væri slíkt
flokkað undir barnaþrælkun, þrátt
fyrir að sveitin væri ævintýraheimur,
engir eða lítið af bílum, sláttu- og hey-
vinnuvélar ekki til, heldur slegið með
orfi og ljá, heyinu rakað saman og
þurrkað, eins og gert hefur verið um
aldir. Síðar meir, á námsárunum í
Menntaskólanum, vann hann ævin-
lega á síldarbátum eða síldarverk-
smiðjum víðsvegar um landið. Hann
var duglegur til náms og útskrifaðist
sem stúdent rétt orðinn 19 ára.
Mjög líklega hefur hann orðið fyrir
áhrifum frá föður okkar, Jónasi
Sveinssyni, lækni, og þess vegna valið
að fara í læknisfræði, þegar kom að
háskólanámi.
Eftir að hann lauk læknanámi við
háskólann hér heima fór hann í fram-
haldsnám til Kaupmannahafnar og
ári síðar til Bandaríkjanna, þar sem
hann nam og starfaði við Massachu-
setts General Hospital og Lahey Cli-
nic Medical Center í 4 ár. Þaðan út-
skrifaðist hann sem sérfræðingur í
maga- og meltingarsjúkdómum.
Bróðir minn hefur án efa verið læknir
af Guðs náð, þar sem hann stundaði
sjúklinga sína af meiri umhyggju en
auranna vegna. Hann þótti og mjög
snjall við sjúkdómsgreiningar, enda
gaf hann sér góðan tíma til að sinna
og hlusta á sjúklinga sína.
Árið 1971 veiktist yngsti sonur okk-
ar hjóna illilega af meini í lunga. Nor-
rænt röntgenlæknaþing var haldið á
sama tíma í Reykjavík. Haukur sýndi
þessum sérfræðingum röntgenmynd-
irnar, sem teknar höfðu verið af æxl-
inu og bar þeim öllum saman um að
barninu yrði ekki bjargað. Haukur
stóð hins vegar í þeirri trú að hér væri
ekki um krabbameinsæxli að ræða og
samkvæmt sínum bókum liti það
öðruvísi út. Meinið væri hættulegt,
enda lungað fallið saman. Sævar heit-
inn Halldórsson barnalæknir kom
einnig að þessu máli og var sammála
Hauki. Flogið var með drenginn til
Boston og meinið fjarlægt. Mátti ekki
tæpara standa. Fyrir þessi skjótu við-
brögð höfum við hjónin verið honum
ævarandi þakklát.
Við kveðjum góðan dreng, söknum
hans sárt, en óskum honum góðs
gengis í nýrri veröld þar sem hann á
eflaust eftir að sveifla golfkylfu að
nýju.
Reynir Jónasson.
Hann Haukur frændi er dáinn.
Mér þótti vænt um hann og ég mun
sakna hans. Hann var heimilislækn-
irinn minn á meðan hann stundaði
lækningar og sá til þess að ég fengi
bestu meðhöndlun sem völ var á þeg-
ar eitthvað bjátaði á. Hann sýndi mér
alltaf hlýju og væntumþykju. Ég er
þakklát fyrir allt sem hann hefur gert
fyrir mig og minningar um það, hlát-
urinn hans og frásagnargleðina,
munu fylgja mér.
Ég votta sonum hans, systkinum
oghálfsystkinum og öðrum sem stóðu
honum nær, mína innilegustu samúð.
Helga Jóhannsdóttir.
Á Sólheimasjúkrahúsinu við Tjarn-
argötuna vitjuðu læknarnir fjórir,
Haukur Jónasson og faðir hans Jónas
Bjarnason, Bjarni Bjarnason og Þór-
arinn Guðnason, sjúklinga sinna.
Sjúkrahúsið við tjörnina sinnti
ýmsum sjúkleik manna og þó aðallega
magaveiki. Alltaf fundum við inni-
liggjandi upp á ýmsu til að gleðja
læknanna með, við ortum þakkarvís-
ur til þeirra fyrir atgang þeirra í okk-
ar málefnum og þáðum góðgjörninga
og mannúð þeirra.
Haukur var náfrændi minn og hafði
ávallt gætur með framvindu ungu
telpunnar, jafnöldru fósturdóttur
hans. Megi hans ávallt minnst.
Frænka, Edda Geirsdóttir.
Margir munu minnast Hauks Jón-
assonar sem frábærs læknis. Haukur
gaf hverjum sjúkling þann tíma sem
þurfti enda var hann þekktur fyrir
góða sjúkdómsgreiningu. Ég og mín
fjölskylda erum þakklát Hauki fyrir
þá aðstoð sem hann veitti okkur.
Hauks minnist ég þó fyrst og
fremst sem eins af mínum bestu vin-
um. Kynni okkar hófust í bernsku og
stóðu með miklum ágætum til ævi-
loka. Þar bar aldrei skugga á. Við vor-
um bekkjafélagar í menntaskóla,
stunduðum saman fjallaferðir, veiði,
skíði, golf, svo fátt eitt sé nefnt. Á góð-
um stundum rifjaði Haukur iðulega
upp atburði frá slíkum ferðum. Hann
minnti mig, til dæmis, nýlega á það,
að í göngu okkar á Snæfellsjökul árið
1950 stökk hann lengra en ég af
stökkpalli, sem við gerðum við jök-
ulröndina, þar sem við biðum í tvo
daga eftir að þokunni létti.
Þegar ég lít til baka að Hauki
gengnum, þykir mér satt að segja
ótrúlegt, að ég minnist þess ekki að
nokkru sinni hafi slest upp á okkar
vinskap. Vissulega kom fyrir, að við
værum ósammála, en slíkt leystum
við ávallt í mesta bróðerni. Það hefur
verið mér ómetanlegt að eiga slíkan
vin. Um Hauk Jónasson og okkar
kynni mætti skrifa langt mál. Á
kveðjustund er það þó ekki efst í min-
um huga. Orð fá ekki lýst okkar góðu
kynnum. Ég þakka Hauki Jónassyni
ævilanga og einlæga vináttu.
Við Edda vottum fjölskyldu og öðr-
um aðstandendum Hauks okkar sam-
úð.
Steingrímur Hermannsson
Margs er að minnast á svona
stundu, þegar óvænt frétt um andlát
Hauks frænda míns barst okkur hjón-
um, en við höfum bæði notið vináttu
hans og hjálpsemi svo lengi. Ég er svo
þakklát fyrir stundina með þér heima
hjá Helgu systur þinni fyrir nokkrum
dögum við að skipuleggja næsta ætt-
armót. Einnig töluðum við saman í
síma fyrir stuttu og hlógum mikið við
að rifja upp ferðalög okkar heim að
Skarði og kirkjuferðir kl. 8 á páska-
dagsmorgunn í Fríkirkjuna, og síðan
farið heim á Öldugötuna og drukkið
páskakaffi ásamt góðu meðlæti.
Já minningarnar ná allt til bernsku-
áranna þegar spilað var fjörugt púkk
um jólin á Sólvallagötunni og glað-
værðin réði ríkjum, þó undir ströng-
um aga spilamennskunnar.
Ferðalög fjölskyldunnar á Skarðs-
ströndina voru árlegir viðburðir, rétt-
ar- og veiðiferðum verður seint
gleymt, enda ekki í kot vísað á ætt-
aróðalinu. Útvegað var heilt hús undir
fjölskylduna á réttardaginn þar sem
ungir sem aldnir áttu skemmtilega
stund saman og síðan skellt sér eftir
Haukur Jónasson fjörugar réttir á ballið á Staðarhóli umkvöldið. Þar urðu oftast skemmtilegar
uppákomur sem enn er hlegið að, þeg-
ar fjölskyldan kemur saman á góðri
stund. Veiðiferðunum fjölmörgu
gleymir Bjarni bóndi minn heldur
ekki, þó stundum hafi þeir komið hróð-
ugir heim með lax prýddan netaförum
eða óvart með verðmiða. Slíkt voru þó
aðeins brellur hinnar hrekkjóttu
Skarðsskottu sem enn leikur ýmsa
grátt þarna á ströndinni. Allsstaðar
varst þú aufúsugestur, frændi minn,
því glaðværðin og hjálpsemin var ætíð
þinn fylgifiskur, og allir í ættinni ungir
sem aldnir nutu lækniskunnáttu þinn-
ar öll árin, endurgjaldslaust. Slíkt
gleymist seint.
Við hjónin og okkar fjölskylda
sendum innilegar samúðarkveðjur til
barna Hauks, systkina, annarra
vandamanna og vina. Megi guð
styrkja okkur öll.
Guðborg Kristjánsdóttir
og fjölskylda.
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
136 9182 16992 23422 31882 39562 46333 53803 62032 73016
441 9280 17237 23901 32076 39985 46416 53883 62203 73418
554 9382 17419 24837 32166 40177 46461 54584 62210 73538
562 9406 17553 24952 33101 40327 46538 54911 62311 73595
689 9460 17698 25129 33133 40417 46626 54945 62852 73784
700 9614 17949 25194 33180 40696 47045 56042 63837 73970
885 9679 18048 25295 33516 40908 47270 56266 64067 73997
1035 10761 18054 25584 33788 40940 47754 56415 64074 74046
1791 10820 18100 26359 33913 41144 47763 56846 64608 74301
1911 11280 18281 26604 34208 41223 47827 56951 64965 74314
1944 11361 18287 26879 34259 41447 47947 57002 65107 74411
2362 11381 18327 26961 34264 41772 48087 57300 65217 74546
2385 11485 18368 27043 34406 41993 48126 57341 65702 75187
2672 11725 18653 27068 34460 42401 48226 57372 66840 75198
2917 11729 19062 27241 34703 42435 48340 57573 66988 75454
3562 11840 19142 27308 34917 42620 48759 57697 67006 75856
4047 11929 19168 27564 34929 42681 48930 57699 67030 75937
4336 12097 19178 27596 35230 42998 49063 57713 67060 76025
4585 12230 19292 27668 35412 43138 49355 57719 67194 76297
4802 12331 19564 27762 35696 43296 49450 58030 67382 76361
5072 12564 19797 27806 35793 43425 49457 58187 68446 76526
5094 12850 19845 27840 36191 43566 49475 58526 68729 76686
5594 13330 20069 27862 36463 43807 49565 58861 68870 76927
6282 13395 20158 28068 36751 43875 49596 58893 69054 77082
6455 13456 20335 28250 36797 44010 49607 59062 69419 77397
6575 13526 20633 28334 37005 44186 49703 59229 69428 77408
6590 13863 20680 28552 37141 44216 49839 59452 69514 77845
6728 13968 20858 29068 37656 44438 49985 59682 69541 77989
6828 13975 20889 29105 37759 44578 49999 59837 70091 78015
6880 14154 21255 29323 37762 44620 50215 59851 70574 78066
6965 14369 21285 29547 37766 44785 50644 60423 71173 78264
7274 14383 21692 29808 37777 44933 51114 60531 71324 78272
7782 14490 22287 30339 37837 45243 51506 60852 71358 78363
8406 15498 22377 30375 37993 45321 51635 60896 71820 78563
8419 15743 22439 30465 38202 45380 51735 61473 72119 78678
8501 16275 22481 30687 38252 45684 52379 61556 72153 78829
8522 16530 22824 30704 38484 46080 52750 61603 72208 79101
8550 16653 22839 30863 39007 46125 53521 61645 72474 79422
8676 16824 23090 31057 39251 46134 53668 61689 72506 79440
8838 16933 23346 31220 39268 46196 53786 61757 73013 79609
Næsti útdráttur fer fram 27. ágúst 2009
Heimasíða á Interneti: www.das.is