Morgunblaðið - 21.08.2009, Síða 30
30 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2009
Sudoku
Frumstig
8
3 4 6 5
1 7
4 9 6 1
5 7 4 8
1 4 6
7 6
5 2
5 3 7 1
2
9 5
3 7 6 1
8 2
5 7 9
2 1
7 5 6
1 4 8 7
8 4 3
4 6 5
4
7 1 2
8 4
5 1 6
7
3
7 6 4 8
6 9 8 5 1
3 7 8 4 9 1 5 6 2
4 5 2 8 7 6 1 3 9
6 9 1 5 2 3 7 8 4
1 8 9 3 6 2 4 7 5
7 6 3 1 5 4 9 2 8
2 4 5 9 8 7 6 1 3
9 2 6 7 3 5 8 4 1
5 1 7 2 4 8 3 9 6
8 3 4 6 1 9 2 5 7
3 6 1 9 2 7 4 5 8
4 7 8 3 1 5 6 9 2
5 2 9 8 6 4 1 7 3
2 8 6 4 9 3 7 1 5
7 9 5 1 8 2 3 4 6
1 3 4 5 7 6 2 8 9
8 5 2 7 3 1 9 6 4
9 1 3 6 4 8 5 2 7
6 4 7 2 5 9 8 3 1
6 3 8 7 9 5 4 1 2
5 7 9 2 4 1 6 3 8
1 2 4 8 6 3 7 9 5
8 6 1 3 7 9 2 5 4
2 9 7 4 5 8 3 6 1
3 4 5 6 1 2 8 7 9
4 1 2 5 3 6 9 8 7
7 5 6 9 8 4 1 2 3
9 8 3 1 2 7 5 4 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 21. ágúst, 233. dag-
ur ársins 2009
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að
þér elskið hver annan, eins og ég hef
elskað yður. (Jh. 15, 12.)
Stelpurnar okkar, kvennalands-liðið í fótbolta, fara til Finnlands
í dag til þess að taka þátt í 12 liða úr-
slitakeppni Evrópumótsins. Í bítinu
á Bylgjunni í gærmorgun minnti
einn leikmaður liðsins á að úrslita-
leikurinn verður í Helsinki. Um leið
birti til og í raun hefur sólin skinið
þar sem þessi hópur hefur farið.
x x x
Víkverji er bjartsýnismaður, semhefur fengið nóg af umræðunni
um Icesave og öðru bölsýnistali, og
þakkar fyrir að geta snúið sér að
stelpunum jákvæðu. Rigningar-
sumarið 2007 er að baki og fram-
undan er síðsumarsólin 2009.
x x x
Það er auðvelt að rífa allt niður ogskammast út í allt og alla, boða
ragnarök. Umræðan frá falli bank-
anna í fyrrahaust bendir til þess að
hér sé allt að fara til andskotans og
landsmanna bíði ekkert nema dauði
og djöfull. En það er of snemmt að
örvænta, þökk sé stelpunum okkar
og þjálfaranum Sigurði Ragnari
Eyjólfssyni. Þegar allt virðist stefna
lóðrétt til vítis kemur hópurinn fagn-
andi og segist ætla upp úr riðlinum.
Stefnan er upp en ekki niður.
x x x
Það er frábær árangur að vera íúrslitakeppni 12 bestu liða Evr-
ópu og í raun varla hægt að biðja um
meira. Samkvæmt allri tölfræði er
gengið út frá því að Þýskaland, Nor-
egur og Frakkland, mótherjar Ís-
lands í riðlinum, blandi sér í topp-
baráttuna, en stelpurnar okkar hafa
sýnt frábæra takta og hafa ekki sagt
sitt síðasta orð. Víkverja verður
hugsað til Dana sem komu bakdyra-
megin inn í úrslitakeppni Evr-
ópumóts karlalandsliða rúmri viku
áður en hún hófst 1992. Smala varð
landsliðsmönnunum saman þar sem
þeir voru í fríi vítt og breitt um
heiminn og litu þeir á þetta sem
skemmtilega uppákomu. Fáir áttu
von á því að þeir kæmust upp úr riðl-
inum og í undanúrslit, en þeir fóru
áfram á gleðinni og urðu Evr-
ópumeistarar. Það léttir lund að
vera bjartsýnn. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 tilviljunar-
aðferðar, 8 mannsnafn, 9
telja úr, 10 kraftur, 11
ósar, 13 veðurfarið, 15
skoðunar, 18 sjá eftir, 21
op á ís, 22 japla á, 23
svipað, 24 grautarhaus.
Lóðrétt | 2 atburður, 3
kosta mikið, 4 heilnæmt,
5 fumið, 6 mynni, 7 for-
boð, 12 blóm, 14 vætla,
15 kvísl, 16 voru á hreyf-
ingu, 17 slark, 18 lista-
maður, 19 fatnaður, 20
mjög.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 horsk, 4 næpan, 7 arkar, 8 síðar, 9 tík, 11
næði, 13 áðan, 14 notar, 15 jafn, 17 assa, 20 far, 22
tangi, 23 jakar, 24 reiða, 25 losar.
Lóðrétt: 1 hrafn, 2 ríkið, 3 kært, 4 nísk, 5 peðið, 6 nýr-
un, 10 ístra, 12 inn, 13 ára, 15 játar, 16 fenni, 18 sekks,
19 aurar, 20 fima, 21 rjól.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. h3 e6 7. g4
h6 8. Bg2 Rbd7 9. f4 Dc7 10. De2
g6 11. Be3 Rb6 12. O-O-O Bd7 13.
e5 dxe5 14. fxe5 Rh7 15. Hhf1 Rc4
Staðan kom upp á alþjóðlegri
skákhátíð sem lauk fyrir skömmu í
Kaupmannahöfn í Danmörku. Sig-
urvegari mótsins, indverski stór-
meistarinn Parimarjan Negi
(2.590) hafði hvítt gegn sænska
kollega sínum Emanuel Berg
(2.610). 16. Rd5! Dc8 17. Df2! f5
18. exf6 exd5 19. Bxd5 Bd6 20. Bf4
Dc7 21. Bxd6 Rxd6 22. De3+ Kd8
23. De7+ Kc8 24. Re6 Db6 25. f7
De3+ 26. Kb1 De5 27. f8=D+ Hxf8
28. Hxf8+ og svartur gafst upp.
Negi þessi er 16 ára og efnilegasti
skákmaður Indlands um þessar
mundir.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Háspil og hundar.
Norður
♠G10865
♥8643
♦D952
♣--
Vestur Austur
♠Á3 ♠K
♥1072 ♥K95
♦1063 ♦ÁKG8
♣DG984 ♣76532
Suður
♠D9742
♥ÁDG
♦74
♣ÁK10
Suður spilar 4♠.
Útspil í tígli myndi tryggja vörninni
sigur, en vestur byrjar skiljanlega á
♣D, enda hafa sagnir enga vísbend-
ingu veitt: opnun á 1♠ í suður og stökk
í 4♠ í norður. Ekki þar fyrir, tíu slagir
eru ekki beinlínis í augsýn.
Háspilin í laufi nýtast illa – eru raun-
ar frekar til trafala, því lykillinn að ár-
angri er að líta á ♣ÁK eins og hverja
aðra hunda. Markmið sagnhafa er að
fría þrettánda hjartað og nota það svo
til að veikja tromp varnarinnar. Hand-
tökin eru þessi: Útspilið er trompað til
að svína strax í hjarta. Næst er ♣K
trompaður og aftur svínað í hjarta.
Hjartaás er tekinn, ♣Á trompaður, frí-
hjartanu spilað og tígli hent heima. Það
kostar vörnina strax slag ef austur
trompar með ♠K, en trompi vestur
með þristi falla ás og kóngur saman
síðar.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þetta er góður dagur til að fara
yfir eigna- og skuldastöðuna. Taktu
því eins og maður og láttu það ekkert
eyðileggja fyrir þér daginn.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú vill ólm/ur láta að þér kveða
og verður svekktur ef þú færð ekki að
gera eitthvað áhugavert eða óvenjulegt
á næstunni.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það gengur ekki að blanda
saman léttúð frístundarinnar og alvar-
leika starfsins. Vertu ímynd hins
áhrifamikla.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú ríður á að þú skipuleggir
hlutina af mikilli nákvæmni því ekkert
má útaf bera ef viðunandi árangur á að
nást. Gakktu sjálfur úr skugga um
sannleiksgildið.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þótt oft sé gaman að láta hugann
reika, verður þér lítið úr verki á með-
an. Uppáhaldsíþróttin þín núna er vits-
munaleg: þú elskar að ráða dularfullar
gátur.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er auðveldara að yfirvinna
hindranir í peningamálum ef maður fer
ekki á taugum. Titringur er innan fjöl-
skyldunnar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Láttu afbrýðina ekki ná tökum á
þér og segðu ekkert sem þú gætir iðr-
ast síðar. Láttu þig berast með vind-
inum.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Dagurinn í dag hentar alls
ekki fyrir samningaviðræður við yf-
irmanninn eða aðra sem hafa yfir þér
að segja. Vertu samt hvergi smeykur,
þú ert með allt þitt á hreinu.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eitt og annað sem þú
þarft að velta fyrir þér og hugsa til
enda. Skipuleggðu þig aðeins, þannig
leysist málin.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Óvenjulegar nútímalegar og
tæknilegar hugdettur geta með ein-
hverju móti styrkt stöðu þína. Allt sem
þú þarf að gera er að vera þú sjálfur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú þarft rými þar sem þú
getur verið öruggur og skapandi.
Sýndu öðrum tillitssemi.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Reyndu að láta minniháttar
rifrildi ekki hafa áhrif á þig. Andaðu
djúpt og komdu þér inn fyrir marka-
línuna.
Stjörnuspá
21. ágúst 1906
Glímufélagið Grettir á Akur-
eyri „hélt kappglímu mikla,“
eins og sagði í blaðinu Norður-
landi. „Sigurvegarinn varð
Ólafur V. Davíðsson og hlaut
að verðlaunum silfurbúið
belti.“ Beltið hefur síðan verið
nefnt Grettisbeltið og er keppt
um það árlega í svonefndri Ís-
landsglímu.
21. ágúst 1958
Friðrik Ólafsson, 24 ára laga-
nemi, var tekinn í tölu stór-
meistara í skák, fyrstur Ís-
lendinga.
21. ágúst 1973
Ásgeir Sigurvinsson, 18 ára,
lék sinn fyrsta leik sem at-
vinnumaður í knattspyrnu
með belgíska félaginu Stand-
ard Liege. Ásgeir hætti at-
vinnumennsku 1990 og hafði
þá meðal annars orðið vestur-
þýskur meistari með Stutt-
gart.
21. ágúst 1994
Bandaríski prédikarinn Benny
Hinn hélt fjölmenna samkomu
í Kaplakrika í Hafnarfirði.
Töldu sumir sig fá bót meina
sinna.
21. ágúst 2008
Sjálfstæðisflokkur og Fram-
sóknarflokkur mynduðu
meirihluta í borgarstjórn
Reykjavíkur og Hanna Birna
Kristjánsdóttir varð borgar-
stjóri. Nýir meirihlutar höfðu
verið myndaðir í júní 2006,
október 2007 og janúar 2008.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
„ÉG ætla að bjóða öllu starfsfólki Borgarleik-
hússins í hádegismat. Hér starfar frábært
starfsfólk sem vinnur einstaklega vel saman
undir styrkri stjórn Magnúsar Geirs Þórðar-
sonar leikhússtjóra,“ sagði Theódór Júlíusson
leikari sem fagnar í dag 60 ára afmæli.
Theódór er að mæta til vinnu í Borgarleik-
húsið þessa dagana eftir kærkomið sumarfrí
sem hann varði á æskuslóðum sínum í Siglufirði.
Hann segir að nóg hafi verið að gera hjá sér á
síðasta vetri, en þá tók hann þátt í fimm leiksýn-
ingum. Leikárið hafi verið ótrúlegt, en 207 þúsund gestir hafi komið á
leiksýningar í húsinu. „Nýtt leikár lítur einstaklega vel út. Í október
tek ég þátt í að setja upp leikritið Fjölskylduna – ágúst í Osage-sýslu
eftir Tracy Letts. Þetta er eitt heitasta leikritið í heiminum í dag,
margverðlaunað. Þetta er fyndið verk um fjölskyldu í eldfimum að-
stæðum. Persónurnar hafa allar sinn djöful að draga. Þetta á eftir að
verða mögnuð sýning.“
Áhorfendur sjá Theódór fyrst á fjölunum í haust þegar sýningar á
Söngvaseið hefjast á ný, en aðsókn að verkinu hefur slegið öll met.
egol@mbl.is
Theódór Júlíusson leikari sextugur
Býður öllu starfsfólki í mat
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is