Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Eftir Sigrúnu Ásmundar
sia@mbl.is
„ÞETTA var æðislega skemmtilegt,“ segir
Hilmar Páll Hannesson, 15 ára, sem ásamt
Línu Dóru, 12 ára systur sinni, sigldi Dögun
til sigurs í 13. umferð Reykjavíkurmótsins í
siglingum sl. þriðjudag. Í tölvupósti sem
barst á ritstjórn Morgunblaðsins segir m.a.:
„Um miðja keppni var Dögun í 3. sæti, Ís-
molinn í því fyrsta og Lilja í öðru. Brá áhöfn
Dögunar á það ráð að láta Hilmar Pál og
að auðvitað trúi hann því!
Hilmar hefur stundað siglingar í tvö ár.
Hann byrjaði á að sigla á svokölluðum Opt-
imist en er núna kominn á Tópas, sem er
stærri bátur. Systur hans tvær, áðurnefnd
Lína Dóra og tvíburasystir hans Hulda Lilja,
eru líka í siglingunum. „Við höfum æft alveg
fjórum sinnum í viku og í vetur verður æft
tvisvar í viku,“ segir Hilmar. Hann viður-
kennir að þau séu dálítið montin af því að
hafa farið þarna fram úr öllum. „Jú, jú, það
var mjög flott.“
Línu Dóru um stjórnina, enda þaulvanir
kænusiglarar á ferð. Ekki þurfti að spyrja að
leikslokum, Dögun náði að vinna upp forskot
hinna bátanna og komast 42 sekúndum fram
úr Ísmolanum.“
Hilmar segir að félagar hans á Dögun hafi
fullyrt að það hafi skipt sköpum að þau
systkinin tóku þarna við stjórninni. „Við
fengum að taka við stýrinu, það var mjög
fínt. Þeir sögðu að það hefði breytt öllu, að
við hefðum unnið út af því. Ég er ekki alveg
viss,“ segir Hilmar sposkur en játar því svo
Dögun Í áhöfninni með Hilmari og Línu Dóru
voru Magnús Waage og Magnús Arason.
Systkini sigldu til sigurs
Tveir ungir siglingakappar, Lína Dóra og Hilmar Páll Hannesarbörn,
sigldu úr 3. sæti í það fyrsta og voru 42 sek. á undan Ísmolanum í mark
Ljósmynd/Magnús Arason
MENNTARÁÐ
Reykjavíkur-
borgar sam-
þykkti í gær um-
sókn Mennta-
skólans ehf. um
stofnun sjálfstætt
starfandi grunn-
skóla í Reykjavík.
Edda Huld Sig-
urðardóttir
skólastjóri segir
að nú verði að bíða eftir að mennta-
málaráðuneytið afgreiði umsóknina.
„Okkur er ekkert að vanbúnaði,“
segir Edda Huld. „Ef okkur tekst að
fjármagna starfið með fjár-
framlögum fram að áramótum þarf
borgin ekki að bera kostnað af starf-
inu þessa önnina,“ segir Edda Huld,
innt eftir svörum við gagnrýni þess
efnis að ekki sé rétt að verja auknu
fé í nýja skóla eins og staðan sé í
samfélaginu. Hún segir að 40 börn á
aldrinum 5-10 ára séu skráð í skól-
ann, sem verður starfræktur í hús-
næði gömlu Heilsuverndarstöðv-
arinnar við Barónsstíg. jmv@mbl.is
Menntaráð
samþykkir nýj-
an grunnskóla
Skólinn verður
við Barónsstíg.
ALLS hafa 162
greinst með
inflúensu A
(H1N1) á Íslandi
frá því að veiran
greindist fyrst á
landinu í maí,
samkvæmt upp-
lýsingum frá
Landlæknisemb-
ættinu.
Meðal smit-
aðra eru 87 karlar og 75 konur en
ekki er vitað um alvarleg veikindi af
völdum inflúensunnar hér á landi.
Flest tilfelli svínaflensusmita hafa
greinst á höfuðborgarsvæðinu eða
107 og næst koma Suðurnes með 16
tilfelli. Þá hafa 12 greinst á Vest-
urlandi og 10 á Austurlandi.
Fleiri greinast með
svínaflensu á Íslandi
Gríma Flensan
herjar á heiminn.
MAÐURINN
sem setið hefur í
gæsluvarðhaldi
grunaður um
hafa ráðið Braga
Friðþjófssyni í
Hafnarfirði bana
fyrir rúmri viku
hefur játað
verknaðinn.
Þegar rann-
sókn málsins verður að fullu lokið
verður það sent til ríkissaksókn-
ara, að því er Friðrik Björg-
vinsson, yfirlögregluþjónn hjá
rannsóknardeild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu, greinir frá.
Það var aðfaranótt þriðjudags í
síðustu viku sem Bragi fannst lát-
inn í leiguhúsnæði í Dalshrauni.
Sá sem játaði verknaðinn var
handtekinn á staðnum í annarlegu
ástandi.
Játaði manndrápið
í Hafnarfirði
Bragi
Friðþjófsson
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
ÞÓTT verðið á matnum sem skól-
arnir kaupa fyrir grunnskólanem-
endur verði hærra en gjaldið sem
Reykjavíkurborg innheimtir af for-
eldrum vegna skólamáltíða mun það
ekki koma niður á gæðum matarins,
að því er Ásgeir Beinteinsson, skóla-
stjóri Háteigsskóla, fullyrðir.
„Það var vitað síðastliðinn vetur
að maturinn yrði miklu dýrari. Sú
ákvörðun var hins vegar tekin að
hækka ekki verðið á matnum fyrir
nemendur. Reykjavíkurborg og
skólarnir taka mismuninn á sig til
þess að auka ekki kostnað foreldr-
anna. Okkur dettur ekki í hug að láta
þetta koma niður á gæðum matarins.
Við breytum ekki matseðlinum til
þess að bjóða upp á ódýrari mat. En
við höfum alltaf hagað rekstrinum
þannig að þetta verði eins ódýrt og
hægt er án þess að dregið hafi verið
úr gæðakröfum,“ segir Ásgeir.
Máltíð fyrir grunnskólanemana í
Reykjavík kostar nú 250 krónur og
er mánaðargjald vegna matar-
áskriftar 5.000 krónur samkvæmt
gjaldskrá borgarráðs.
Mögulega endurskoðað
„Gjaldið hefur reyndar stundum
gert aðeins betur en að duga fyrir
hráefninu og þá hefur mismunurinn
verið hugsaður til endurnýjunar á
búnaði í mötuneytinu ef þurft hefur
og kannski eitthvað til launa-
greiðslna. Við munum sjá þegar líð-
ur á haustið hvort það sem innheimt
er hjá foreldrum og það sem við
kaupum á móti stemmir vel saman.
Mögulega þarf að endurskoða þetta
um áramótin. Ef þetta skekkir mikið
rekstur hjá einstökum skólum verð-
ur rætt við fjármálastjóra mennta-
sviðs og svo fara menn bara yfir
hlutina,“ tekur Ásgeir fram.
Matseðli ekki
breytt þótt
verðið hækki
Ekki dregið úr gæðum skólamatar
Vitað var síðastliðinn vetur að
matur yrði dýrari. Reykjavíkur-
borg ákvað samt að hækka ekki
gjaldið vegna skólamáltíða í vet-
ur heldur lækka. Borgin og skól-
arnir taka á sig mismuninn.
Í HNOTSKURN
»Verð í mötuneytum ígrunnskólum Reykjavíkur
er nú 250 kr. en var áður 250
til 300 kr.
»Ekki þarf að greiða meðfleiri börnum en tveimur á
hverju lögheimili.
»Skólunum hefur veriðbættur kostnaðurinn
vegna þessara atriða.
STÓRU-Vogaskóli í sveitarfélaginu Vogum var annar
tveggja grunnskóla af 124 skólum í 39 sveitarfélögum
sem buðu upp á ókeypis skólamáltíðir samkvæmt könn-
un Neytendastofu fyrir tveimur árum. Það gerir Stóru-
Vogaskóli enn, að sögn skólastjórans, Svövu Bogadótt-
ur.
Nemendur í Stóru-Vogaskóla eru 215 og er maturinn
yfirleitt eldaður í skólanum sjálfum. „Miðað við 5.000
króna mánaðargjald fyrir mataráskrift í grunnskólum
Reykjavíkur er kostnaðurinn sem leggst aukalega á
sveitarfélagið hér vegna frírra skólamáltíða nær 10
milljónir króna,“ segir Svava.
Hún segir það hafa verið yfirlýstan vilja sveitarfélagsins að halda áfram
að bjóða upp á fríar skólamáltíðir í vetur þótt ljóst væri að verð á hráefni
myndi hækka. „Ég veit svo sem ekki hvað sveitarfélög ákveða sín á milli
þegar líður á veturinn en eins og staðan er í dag verður þetta áfram
svona.“
Foreldrar grunnskólabarnanna eru að vonum afar ánægðir með til-
högun mála, að því er Svava greinir frá. Á matseðlinum í Stóru-Vogaskóla
í dag er ostgratíneraður fiskur með brúnum grjónum og soðnu grænmeti.
„Það er alltaf boðið upp á grænmetis- og ávaxtaborð og er það mjög vin-
sælt. Næringarráðgjafi fer yfir innihald matarins. Það eru ekki gerðar
minni kröfur þótt maturinn sé ókeypis fyrir börnin,“ segir Svava.
Ostgratíneraði fiskurinn ókeypis
og einnig allar aðrar máltíðir
Svava
Bogadóttir
„ÞAÐ á að byggja hérna ráðhús, stolt allra landsmanna. Úr föstu formi
leysist upp, teygist út til andannaaaaaaaa,“ var sungið í aðdraganda bygg-
ingar Ráðhúss Reykjavíkur í Tjörninni. Ráðhúsið reis við misjöfn viðbrögð
„allra landsmanna“ og hefur verið þar síðan. Á Tjörninni sjálfri synda
ennþá endur, slétt sama um deilur sem rísa milli „allra landsmanna“ um
hin og þessi málefni. Ráðhúsið mun væntanlega um framtíð alla vera í
Tjörninni og endur munu áfram synda þar, eins og þær gerðu endur fyrir
löngu. sia@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
ALLRA LANDSMANNA