Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 34
34 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand ÍSBÍLLINN ER KOMINN VISSIR ÞÚ AÐ ÞAÐ ER ALÞJÓÐLEG TEIKNIMYNDA- SÖGUVIKA NEI! STELPUR FÁ EKKI NEINAR GJAFIR! ÞETTA Á ALDREI EFTIR AÐ VIRKA Í ALVÖRU? ER EKKI HEFÐ AÐ GEFA STELPUM GJAFIR ALLA VIKUNA? KLAPP KLAPP KLAPP KLAPP KLAPP KLAPP KLAPP ROOOP!! ÞAU VORU EKKIEINS HRIFIN FRÁBÆRT! FRÁBÆRT! ÆÐISLEGT! MEIRA! MEIRA! VIÐ ERUM TÝNDIR! ÉG VILDI AÐ VIÐ VÆRUM MEÐ ÁTTAVITA EKKERT VANDAMÁL! MOSI Á STEINUM VEX ALLTAF Á ÞEIRRI HLIÐ SEM VÍSAR Í SUÐUR NÚNA ÞURFUM VIÐ BARA AÐ FINNA STEIN AF HVERJU HORFIR ÞÚ SVONA Á MIG? ÉG VAR VALINN TIL AÐ SMAKKA HUNDAMAT! FLOTT HANN ER BÚINN TIL ÚR KLÓNUÐU KJÖTI! ER ÞAÐ EKKI HÆTTU- LEGT? FJÓRIR AF HVERJUM FIMM GRÍMUM SEGJA „NEI“ SPILAR ÞÚ ENNÞÁ MEÐ HLJÓMSVEIT- INNI ÞINNI? JÁ, AÐEINS MINNA OG MINNA... VIÐ VORUM AÐ TALA UM ÞAÐ UM DAGINN AÐ VIÐ FÁUM EKKI AÐ SPILA NEINS STAÐAR LENGUR ÞÚ ÆTTIR AÐ SPILA HJÁ VINI MÍNUM ÞÚ FINNUR HVERGI FÓLK SEM KYNNI EINS MIKIÐ AÐ META ÞAÐ Í FANGELSI HVAR ER HANN? VILT ÞÚ EIGNAST „DAILY BUGLE“ SVO ÞÚ GETIR LÁTIÐ ÞAÐ STYÐJA ÞIG SEM NÆSTA FYLKISSTJÓRA? RÉTT OG EF KÓNGULÓARMAÐURINN HÆTTIR AÐ HJÁLPA HONUM, NEYÐIST JAMESON TIL AÐ SELJA OG EF SPRENGJAN MÍN SÁ EKKI UM PÖDDUNA ÞÁ Á ÉG EITT TROMP Á HENDI... ÞIG HANN sýndi nokkra fima takta, áhugaljósmyndarinn sem var við mynda- tökur á fugli við Reykjavíkurtjörn á dögunum. Ljósmyndarinn litríki og kona hans með gula regnhlíf vakti athygli ljósmyndara Morgunblaðsins. Morgunblaðið/Heiddi Taktar við Tjörnina Góðir gestir á Menningarnótt ÞEGAR þess var get- ið að þema Menning- arnætur í ár skyldi vera Húsin í bænum datt mér í hug að gaman væri að láta húsið mitt við Njáls- götuna, taka þátt í henni. Húsið er byggt árið 1907 og er fyrsta par- húsið sem reist var hér á landi. Fjöldinn allur hefur búið í hús- inu þessi 102 ár, það hefur tekið ýmsum breytingum, bæði innan og utan, á þessum langa tíma, og hef ég sjálf sett kommuna yfir í-ið með því að koma fyrir stórum, eldrauðum kínverskum dúskum, undir hvern fjögurra glugga á efri hæðinni. Málið er að ég er með Kína á heil- anum. Ég hef búið stofurnar hjá mér kínverskum húsgögnum og munum og á Menningarnótt hafði ég opið hús og bauð öllum sem litu inn upp á kínverska te- drykkju. Ég hafði gestabók liggj- andi frammi, í hana skrifuðu 235 gestir nafn sitt og vil ég koma ánægju minni á framfæri, með þessum orðum, til þeirra allra og einnig til þeirra, sem skrifuðu ekki nafnið sitt í hana – það ferst oft fyrir. Sem sagt; kæru gestir, ég þakka ykkur öllum hjartanlega fyrir heimsóknina, það var mér óblandin ánægja að hafa ykkur hér, dagstund, á mínu „kínverska heimili“. Unnur Guðjónsdóttir, Njálsgötu 33 og 33A. Appelsínukaka úr Lifun ER einhver sem liggur á gömlum Lifun-blöðum sem fylgdu Mogg- anum hér um árið? Í einu þeirra var alveg mögnuð uppskrift að appelsínuköku þar sem appelsínurnar voru soðnar í heilu en síðan maukaðar í matvinnsluvél áður en þurrefnunum var bætt út í. Úr varð massíf, svolítið römm kaka sem sló ítrekað í gegn hjá mér. En nú er uppskriftin týnd. Ef einhver hefur uppskriftina í fórum sínum og vill deila henni með mér þá þigg ég það með þökkum. Vinsamlegast sendið tölvupóst í netfangið odd- nyha@internet.is. Oddný Halldórsdóttir. Bíllykill í Heiðmörk KONAN sem týndi Toyota Yaris- lyklinum í Heiðmörk sunnudaginn 23. ágúst getur haft samband við finnanda í síma 565-9529. Sími tapaðist í Árbæ BLEIKUR Nokia samlokusími tapaðist mánudaginn 24. ágúst á milli Árbæjarskóla og Hraunbæjar 14. Ef einhver hefur orðið hans var vinsamlega hafið samband í síma 864-6838 eða 587-3226. Gleraugu töpuðust SVÖRT karlmannsgleraugu töp- uðust á höfuðborgarsvæðinu, lík- lega í júlí. Annað glerið er mjög þykkt en hitt mun þynnra. Hafi einhver rekist á gleraugun, vin- samlega hafið samband í síma 860- 8389.          Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Vinnust. opnar kl. 9-16. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, smíði/ útskurður kl. 9-16.30, boccia kl. 9.30, leikfimi kl. 11, helgistund kl. 10.30. Pútt- völlurinn opinn. Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Skrán- ing hafin í aðventuferðina 3.-6. des. Uppl. í síma 898-2468. Félag eldri borgara, Rvk. | Brids kl. 13. Félagsheimilið Gjábakki | Kynning á haustdagskrá kl. 14. Félag eldri borgara, Kópavogi, Íþróttafélagið Glóð og hinir ýmsu hópar og félagsstarfið kynna starf- semi til áramóta. Skráning á námskeið á sama tíma, veitingar. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa- vinnustofan opin kl. 9-16, ganga kl. 10. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Matur og kaffi. Skráning í Jónshúsi í tómstunda- og íþróttanámskeið. Mynd- listarsýning Höllu Har. Félagsstarf í Gerðubergi | Perlusaumur eftir hádegi. Fundur hjá Gerðubergskór mánud. 31. ág. kl. 14.30. Glerskurður hefst 1. sept. Helgistund 3. sept. kl. 10.30, myndlist frá hádegi. Postulíns- námskeið hefst 8. sept. kl. 13. Uppl. á staðnum og í s. 575-7720. Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9-14, matur, félagsvist kl. 13.30, kaffi. Hraunsel | Pútt við Hrafnistu kl. 11, bingó kl. 13.30. Bæklingur um vetrar- starfið kemur út í sept. Sjá febh.is Hvassaleiti 56-58 | Boccia kl. 10, böðun fyrir hádegi, matur , félagsvist kl. 13.30, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir, hársnyrting. Hæðargarður 31 | Myndlist, veður- hópur, skák, söngur, tónlistarhópur, postulín, tölvuleiðbeiningar, framsögn, útskurður, hannyrðir, bókmenntir, kvik- myndahópur, leikfimi, leiklist, línudans, Íslendingaspjall o.fl. Sími 411-2790. Íþróttafélagið Glóð | Pútt á vellinum í á bak við stúkuna á Kópavogsvelli kl. 13 ef veður leyfir. Uppl. í síma 564-1490, 554- 5330 og 554 -2780. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu- stund, spjall, æfingar kl. 9.45, hand- verks- og bókastofa opin m/leiðb. kl. 13, veitingar. Hárgreiðslustofa, s. 552-2488, fótaaðgerðastofa, s. 552-7522. Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15, matur og kaffi. Hárgreiðsla og fótaað- gerðir kl. 9-16.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.