Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
GRÍÐARLEGUR vöxtur hefur orð-
ið á öllum sviðum hjá Ferðafélagi Ís-
lands (FÍ) í sumar, að sögn Ólafs
Arnar Haraldssonar, forseta FÍ.
Það á jafnt við um þátttöku í ferðum,
aðsókn að skálum og spurn eftir
bæklingum og árbókum félagsins.
„Þetta er algjört metár,“ sagði
Ólafur Örn. „Það er greinileg bylgja
í áhuga á gönguferðum og náttúru-
skoðun að ríða yfir. Hún kemur bæði
frá útlendingum og Íslendingum.
Við erum fullviss um að hún muni
rísa hærra á næsta ári.“
Margar nýjungar í sumar
Ólafur Örn sagði Ferðafélagið vel
statt til að taka á móti þessari aukn-
ingu. Það hafi langa reynslu af
rekstri og sjálfboðaliðastarfi. Félag-
ið sé fullbúið að taka á móti miklu
fleira fólki. Ráða þurfi fleira fólk til
starfa á skrifstofu félagsins og eins
fjölga verkefnabundnum störfum, að
sögn Ólafs Arnar. Ferðafélagið hef-
ur bryddað upp á ýmsum nýjungum
undanfarið. Þar má nefna Ferða-
félag barnanna sem var stofnað í
sumar. Einnig hófst unglingastarf
undir merkjum Fjallaskóla Ferða-
félagsins og ýmis verkefni því
tengdu. Þá er félagið farið að bjóða
upp á heilsutengdar ferðir. Stöðugt
er unnið að því að bæta aðstöðuna á
ferðamannaslóðum.
„Það sem er brýnast nú er að
bæta aðstöðu fyrir fólk í tjöldum
sem gengur Laugaveginn,“ sagði
Ólafur Örn. Hann var í sumar mikið
að Fjallabaki og dvaldi þar í tjaldi.
Ólafur vinnur að ritun næstu árbók-
ar FÍ sem mun fjalla um Torfajök-
ulssvæðið og Friðland að fjallabaki.
Hann gekk fjölda gönguleiða, bæði
merktra og ómerktra og hefur því
góða yfirsýn yfir svæðið.
„Náttúran umhverfis Land-
mannalaugar og Landmannalauga-
svæðið þolir vel það álag sem þar er.
Þökk sé Umhverfisstofnun sem hef-
ur lagt þar stíga með sínu starfsfólki
og sjálfboðaliðum, aðallega erlend-
um. Þessir stígar eru í prýðilega
góðu standi. Með auknum fjölda
stíga getur svæðið tekið við miklu
fleirum. Á einstaka stað þarf að loka
hliðarstígum og lagfæra þar sem
runnið hefur úr en svæðið þolir þetta
algjörlega. Fólkið bókstaflega hverf-
ur inn í þessa náttúru.“
Bæta verður aðstöðu tjaldgesta
Ólafur sagði að þegar hann bæri
Landmannalaugar saman við að-
stæður sem hann þekkir vel í Ölp-
unum, t.d. staði í kringum Chamonix
og í Noregi þá standi þær vel undir
þeim fjölda sem þangað sækir.
„Með góðum stígum og góðri að-
stöðu er hægt að taka á móti gríð-
armiklum fjölda. Það sem fyrst og
fremst þarf að bæta í Land-
mannalaugum er aðstaðan fyrir
tjaldgesti, en hún er komin að þol-
mörkum. Tjaldsvæðið sjálft er að
mestu á áreyri og er auðvelt að
stækka það svo engar skemmdir
verði af. Fólk þarf einnig að geta
haft skjól fyrir veðri og vindum til að
elda og matast. Þá er ég ekki að tala
um hús heldur skýli. Það þarf líka að
hafa þurrkaðstöðu og að komast á
salerni. Þetta má ekki bíða og er al-
gjörlega nauðsynlegt að bregðast
við þessu strax í vor,“ sagði Ólafur
Örn. Hann sagði mikinn meirihluta
gesta í Landmannalaugum vera út-
lendinga og landi og þjóð ekki til
sóma að geta hvergi boðið þessu
fólki að leita skjóls í vondum veðrum
nema í salernishúsinu.
Á Laugaveginum verður nýr skáli
við Álftavatn fljótlega tekinn í notk-
un. Gamall skáli verður fluttur það-
an niður í Emstrur, þar sem á að
stórbæta tjaldaðstöðuna.
Jarlhettuslóðir ný gönguleið
Nýjar gönguleiðir eru einnig að
bætast við. Ólafur Örn nefndi t.d.
leið sem kölluð er Jarlhettuslóðir.
Hún er frá Bláfellshálsi ofan Bisk-
upstungna, milli Jarlhettna og
Langjökuls, að Hagavatni og Hlöðu-
völlum, þaðan að Skjaldbreið og nið-
ur í Laugardal. Félagið á þarna
skála og er í góðri samvinnu við
sveitarfélögin um leiðina. Hún er allt
öðru vísi en Laugavegurinn, að sögn
Ólafs Arnar.
„Jökullinn er þarna ráðandi í öllu.
Þarna er mikil kyrrð og sannkall-
aðar óbyggðir. Við ætlum að styrkja
það svæði mikið,“ sagði Ólafur Örn.
Endurbætur eru að hefjast á gamla
skála FÍ við Hvítárvatn og er vonast
til þess að hann fáist friðlýstur.
„Þetta er algjört metár“
Gríðarleg aukning hefur orðið í sumar í starfi Ferðafélags Íslands Forseti FÍ
telur Landmannalaugar anna fleiri ferðamönnum en bæta þurfi aðstöðu tjaldgesta
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vinsæll áfangastaður Landmannalaugar laða að sér æ fleira ferðafólk og hefur frægð þeirra borist víða um heim.
Neytendasam-
tökin telja með
öllu óviðunandi
að þeir einstak-
lingar sem nýta
sér greiðsluað-
lögun lendi á
vanskilaskrá og
að þeir verði
mögulega á
skránni í allt að
fjögur ár.
Í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að ekki sé auðvelt skref
fyrir einstaklinga að leita þessa úr-
ræðis. Sporin verði ekki auðveldari
lendi viðkomandi á vanskilaskrá og
nafn hans birt opinberlega í Lög-
birtingablaðinu.
Neytendasamtökin beina þeim
tilmælum til dómsmálaráðherra að
lögunum um greiðsluaðlögun verði
breytt. Jafnframt ítreka samtökin
þá kröfu sína að einyrkjum í at-
vinnurekstri verði heimilt að sækja
um greiðsluaðlögun vegna skulda
viðkomandi heimilis.
Krefjast úrbóta
á reglum um
greiðsluaðlögun
Breytinga er þörf
á greiðsluaðlögun.
BOÐUÐ hafa verið mótmæli á
Austurvelli í dag kl. 12 og reyndar
út um allt land. Í dag kemur Alþingi
saman til að fjalla um Ivesave-
samninginn. „Þeir sem taka þátt í
mótmælunum geta unnið sér inn
1-2 milljónir króna og ólíklegt að
betra tímakaup bjóðist í bráð,“ seg-
ir í fréttatilkynningu, en þetta er
rökstutt með þeim hætti að ef
samningurinn verði felldur þurfi
þjóðin ekki að taka á sig skuldir
vegna samningsins, en þær nemi
sem svarar 1-2 milljónum á hvern
landsmann. Að mótmælunum
standa íslenskir bloggarar.
Mótmæli á Aust-
urvelli í dag
MÖNNUN leikskóla Reykjavík-
urborgar hefur gengið mjög vel
undanfarið en starfsemi hófst að
nýju í byrjun ágúst eftir sumar-
leyfi.
Leikskólapláss eru fullnýtt en
tekist hefur að bjóða nærri öllum
börnum yfir 18 mánaða aldri pláss.
Reykjavíkurborg rekur 78 leik-
skóla en sjálfstætt starfandi leik-
skólar í borginni eru 18. Alls
starfa rúmlega 2.000 manns við
leikskóla Reykjavíkurborgar í um
1.650 stöðugildum.
Áætlað er að börn í leikskólum
sem reknir eru af borginni verði
um 5.760 og að um 950 börn verði
í sjálfstætt starfandi leikskólum á
komandi vetri. Samtals eru því um
6.500 börn í leikskólum í Reykja-
vík.
Mönnun leikskóla
hefur gengið vel
Tölur Ferðafélags Íslands (FÍ) benda til þess að
150.000 ferðamenn hafi komið í Landmannalaugar í
sumar. Það er um 50% aukning frá fyrri árum. Um
70% ferðamannanna eru útlendingar, mest Þjóð-
verjar, Bretar og Frakkar.
Um 10.000 manns gengu Laugaveginn í sumar og
er það fjölgun úr 6-7 þúsund á sumri. Íslendingum
sem heimsóttu Landmannalaugar og gengu Lauga-
veginn fjölgaði um nær 30%. Skálaverðir FÍ skrá og
fylgjast með ferðum göngufólksins og hvort það skil-
ar sér í áfangastað.
150.000 heimsóttu Landmannalaugar
Ólafur Örn
forseti FÍ.
Sjá nánar á www.betrabak.is
„Flottirdagar“í ágúst
Tilboð á stillanlegum rúmum og svefnsófum í ágúst
25% afsláttur Öllum stillanlegum rúmum fylgir 2 fyrir 1 tilboð á sængurverum !