Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 26
26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 ✝ Halldóra Hall-dórsdóttir fædd- ist í Vörum í Garði 27. september 1915. Hún lést á Garðvangi 20. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Halldór Þor- steinsson, skipstjóri og útvegsbóndi frá Melbæ í Leiru, f. 22.2. 1887, d. 3.1. 1980 og Kristjana Pálína Kristjáns- dóttir, húsfreyja frá Hellukoti á Vatns- leysuströnd, f. 2.11. 1885, d. 1.8. 1975. Systkini Halldóru eru: Þor- steinn Kristinn, f. 22.2. 1912, d. 19.1. 1990, Vilhjálmur Kristján, f. 5.7. 1913, d. 1.4. 1997, Gísli Jó- eldrar Kristjáns Valdimars voru hjónin Kristján Indriðason, f. 6.1. 1881, d. 19.2. 1962 og Lukka Lars- ína Friðriksdóttir, f .2.10. 1887, d. 31.10. 1976. Eiginkona Þórðar er Ásta Guðmundsdóttir frá Ak- ureyri, f. 2.8. 1944. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Guðmundsson, f. 29.11. 1914, d. 9.9. 1949 og Petra Sigríður Stein- dórsdóttir, f. 14.4. 1919, d. 1.3. 1967. Börn Þórðar og Ástu eru: 1) Guðmundur, f. 7. sept. 1963, kvæntur Kristínu Couch, f. 22.7. 1965. Börn þeirra eru Bríet, f. 30. ágúst. 1998 og Marín, f. 19.8. 1995. 2) Dóra, f. 29. apríl 1965. Maki 1. Guðni Söring Þrastarson, f. 8. des. 1964, þau skildu. Dætur þeirra Anna Rós, f. 6.10. 1986 og Ásta Bergmann, f. 21.8. 1989. Maki 2. William Tomas Ramsey, f. 27. apríl 1974. Dóttir þeirra Lilli- an Marin, f. 10.4. 2002. 3) Petra, f. 2.11. 1980. Útför Halldóru fer fram frá Út- skálakirkju í dag, 27. ágúst, og hefst athöfnin klukkan 14. hann, f. 10.7. 1914, d. 20.4. 2001, Steinunn, f. 29.10. 1916, d. 29.12. 2001, Guðrún, f. 23.3. 1918, Elísabet Vilborg, f. 22.5. 1919, d. 4.3. 1998, Þorvald- ur, f. 17.8. 1920, d. 22.11. 2008, Kristín, f. 22.11. 1921, Marta Guðrún, f. 12.2. 1923, d. 31.3. 2001, Helga, f. 9.9. 1924. d. 9.9. 1924, Þorsteinn Nikulás, f. 10.1. 1927, d. 24.12. 1984 og Karitas Hallbera, f. 12.9. 1928. Sonur Halldóru og Kristjáns Valdimars Kristjánssonar frá Eskifirði, f. 27. 10. 1919, er Þórð- ur Kristinn, f. 25.11. 1942. For- Elsku amma mín. Það er erfitt að kveðja þig í dag, en ég veit að þú ert ánægð að vera komin í faðm foreldra þinna og systkina. Við áttum margar góðar stundir saman á Smáratúninu, eða uppi í bústað hjá afa og ömmu. Þú kenndir mér svo margt um lífið og tilveruna. Við spiluðum oft saman olsen, olsen og rommí sem við höfðum svo gam- an af. Ég man þegar ég var yngri og gisti hjá þér margar helgar, og eins þegar frí var í skólanum. Um jólin þegar jólasveinarnir voru á ferð spurði ég þig alltaf, veit jólasveinninn að ég er hjá þér? og þú svaraðir, já, Anna mín, hann veit hvar þú ert. Og viti menn, alltaf fékk ég í skóinn hjá ömmu minni. Margar bænir kenndir þú mér, faðirvorið og fleira, við fórum með það saman áður en við fórum að sofa og þú hélst í höndina á mér, þar til ég sofnaði. Ég er mjög ánægð að hafa séð þig í febrúar 2008, þú sýndir mér Garð- vang, og síðan fórum við inn í her- bergið þitt, sem var fullt af þínum munum, síðan var spjallað mikið og hlegið eins og oft áður. En nú ert þú komin á leiðarenda og líður vel hjá þínum nánustu. Þú munt alltaf vera í mínu hjarta, elsku amma mín, og þegar ég hugsa um engla, þá mun ég alltaf hugsa um þig. Þín langömmustelpa, Anna Rós. Í dag kveð ég móðursystur mína, Dóru í Vörum, hinstu kveðju. Hún hefði orðið 94 ára nú í september og var því búin að lifa langa ævi, en dauðanum fylgir alltaf söknuður og eftirsjá, sérstaklega þegar um kær- an vin er að ræða. Dóra var fjórða í röð þrettán systkina frá Vörum í Garði. Þau hafa sagt mér margar sögur frá því hvernig var að alast upp í Vörum, heimilið var mannmargt og störfin mörg. Afi var útvegsbóndi og hann og amma stunduðu jöfnum höndum búskap, útgerð og fiskverkun. Börnin á heimilinu voru því ekki há í loftinu þegar þau fóru að taka til hendinni, allir þurftu að hjálpast að. Eftirminnilegast úr frásögum systkinanna er að fá að skynja þann kærleika sem ávallt ríkti þeirra á milli og þá óendanlegu ást og virð- ingu sem þau báru til foreldra sinna. Með kærleikann að leiðarljósi urðu störfin þeim auðveld, gefandi og skemmtileg. Sem ein af eldri systkinunum, hefur ábyrgð Dóru efalítið verið mikil. Það var stórt hlutverk að vera hjálparhellan hennar ömmu við heimilisverkin svo og að gæta yngri systkina, en hún taldi það ekki eftir sér. Það var eðli hennar að vilja fremur veita en þiggja. Þegar Valdi og Inga fluttu frá Vörum í nýja hús- ið sitt fannst Dóru það sjálfsagt að hún kæmi aftur heim að Vörum til að búa hjá ömmu og afa og vera þeim til halds og trausts. Með henn- ar hjálp gátu þau haldið áfram að halda heimili í Vörum og búa þar til æviloka. Það var ætíð gestkvæmt í Vörum, ættingjar og vinir komu þar reglu- lega í heimsókn til að spjalla, taka í spil og njóta samvista við heimilis- fólkið. Það var lengi fastur liður hjá Vara-fjölskyldunni að koma saman í Vörum á jólum og eiga þar góða samverustund, syngja saman og gleðjast saman. Jólasálmar, og önn- ur falleg lög voru sungin og Dóra spilaði undir á orgelið. Þau höfðu mörg mjög fallega söngrödd og Dóra ekki síst, þetta voru góðar stundir og eftirminnilegar. Dóra var mjög listfeng kona, hafði yndi af fallegri tónlist og naut þess að syngja og spila á orgelið hvenær sem tækifæri gafst. Hún var líka mikil hannyrðakona og var heimili hennar prýtt mörgum fal- legum verkum sem hún hafði unnið í höndunum. Það var alltaf svo nota- legt að koma heim til Dóru, hvar sem hún bjó. Þar var öllu haganlega fyrir komið, heimilið hlýlegt og manni leið vel, alltaf nóg til með kaffinu. Ég var að vinna í næsta ná- grenni við heimili hennar við Smá- ratún í Keflavík og hún lét mig vita að ég væri alltaf velkomin til hennar í hádegismat, en því miður gat ég ekki þegið það góða boð. Dóra naut þeirra forréttinda að fá að halda sæmilegri heilsu og búa á heimili sínu þar til hún var orðin 90 ára gömul, en þá bilaði heilsan og hún gat ekki lengur séð um sig sjálf. Það var henni erfitt því eins og ætíð, vildi hún miklu fremur veita en þiggja og þannig er gott að muna Dóru frænku mína. Ég kveð hana með þökk og virðingu. Elsku Dúddi minn og Ásta, ég sendi ykkur og börnum ykkar inni- legar samúðarkveðjur og bið góðan Guð að gefa ykkur styrk á sorgar- stund. Hann blessi minningu Dóru í Vörum. Jóhanna A. Kjartansdóttir. Nú er komið að kveðjustund. Hún Dóra frænka mín er dáin. Hún var orðin níutíu og þriggja ára gömul og fékk fallegt andlát. Það er skrýtið að sjá kynslóðir hverfa og nýjar taka við. Hún Dóra var yndisleg manneskja, hún var ung í anda, mikil dama og alltaf gaman að tala við hana. Hún var einlæg og hlý og styrkur hennar mikill. Ég sagði stundum við hana að hún hefði orðið góð hjúkrunarkona, því ef einhver slasaði sig eða átti bágt var svo gott að leita til hennar. Þegar amma mín og afi í Vörum urðu fullorðin og áttu erfitt með að búa ein flutti Dóra til þeirra og hlúði að þeim fram í and- látið. Hún tók á móti okkur ættingj- unum með rausn. Bananatertan fannst mér ógleymanleg. Þar var oft spilað á spil og hlegið saman. Á jólunum settist hún við orgelið og söng með okkur jólasálmana. Hún hafði sérlega fallega söngrödd. Mig langar að þakka henni allt sem hún var mér og fjölskyldu minni. Ég veit að Dóra hefur það gott þar sem hún er núna en ég sakna hennar samt. Elsku Dúddi, Ásta, Gummi, Dóra, Petra og fjölskyldur. Við sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur, stór persóna er fallin frá. Kristjana Jónatansdóttir og fjölskylda. Þeim fækkar óðum Varasystkin- unum, þessu heilsteypta dugnaðar- fólki frá útgerðarheimilinu Vörum í Garði. Þrettán fæddust þau, áttu til merkra ætta að rekja og vöktu at- hygli fyrir dugnað, ósérhlífni og orðheldni. Í hugum okkar hjóna skipaði Halldóra sérstakan sess, þar sem Steinunn, móðir Kristjönu sem kveður hér Halldóru, var systir hennar og alltaf voru með þeim systrum miklir kærleikar. Ungar fóru þær m.a. saman í kaupavinnu út á land og sömuleiðis í síldarsölt- un. Þá auðsýndi Halldóra okkur og börnum mikla vináttu og ræktar- semi alla tíð sem og öðrum fjöl- skyldumeðlimum Varaættarinnar. Nú eru liðin 30 ár frá því við hjón- in bjuggum fyrir norðan en þangað heimsóttur okkur þær systur eitt haustið í berjamó. Eftirminnilegt er hversu vel þær nutu sín í aðalblá- berjabrekkunum og vildu helst það- an ekki fara. Í slíkt berjaland höfðu þær ekki komið í fjölda ára. Halldóra bjó lengst af í Keflavík. Í hennar hlut féll þó að flytja í Varir og annast þar húshald síðustu ár foreldra sinna, Varahjónanna Hall- dórs og Kristjönu, og gerði það með sóma. Þangað var alltaf gott að koma, hvort heldur var á hátíðum og öðrum tyllidögum, eða rúmhelga daga. Kaffi á stofuborði og tilheyr- andi bakkelsi Halldóru sem alltaf var nóg af. Allir boðnir velkomnir; bros á vör og sögur sagðar. Á mat- málstímum var venjulegur íslensk- ur heimilismatur á borðum, Hall- dóra uppvartaði og Halldór, gamli ættfaðirinn, spjallaði við gesti og gaf seppa sínum einn og einn bita á milli þess sem hann lagði eyrun að útvarpsbylgju sjómanna og fylgdist með aflabrögðum hjá Valda sínum, skipstjóranum á Gunnari Hámund- arsyni. Yfir þessu öllu hvíldi nota- legur friður en jafnframt mátti hverjum og einum vera það ljóst að Varir voru í senn miðstöð fjölskyld- unnar og griðastaður allra með til- heyrandi gestagangi og umstangi. Varaheimilið var kjölfesta allrar fjölskyldunnar og þar var lagður grunnur að þeim anda sem enn ríkir meðal afkomenda Varahjónanna. Ber ekki hvað síst að nefna þátt Halldóru þar að lútandi. Svo kom að því að gömlu hjónin féllu frá – Kristjana og síðan Hall- dór. Þá færði Halldóra sig um set aftur til Keflavíkur og hélt þar heimili þar til fyrir þremur árum er hún flutti heilsu sinnar vegna að Garðvangi, þar sem hún dvaldi til hins síðasta. Þá gaf hún okkur hjón- um fyrrverandi borðstofustóla sína sem prýða nú sumarhús okkar norður í Nýhöfn og þar er einnig út- skorin hilla sem þær systur, Hall- dóra og Steinunn, gáfu Kristjönu, móður sinni. Þykir okkur hjónum vænt um þessa hluti sem áður voru á Varaheimilinu. Halldóra kvaddi lífið í sátt við Guð og menn – hafði sannarlega á lífsins senu skilað hlutverki sínu með miklum ágætum. Kæru vinir Þórður, Ásta, börn og barnabörn. Okkar einlægustu sam- úðarkveðjur á sorgarstundu. Í ykk- ur, afkomendum Halldóru, felst hinn góði arfur hennar, dýr og mik- ill, og varðveitir minningu hennar um ókomin ár. Við biðjum algóðan Guð, sem Halldóra trúði svo einlæglega á, að taka á móti henni, blessa og varð- veita um alla eilífð. Kristjana og Níels Árni. Árið var 1950. Þrjár stoltar syst- ur frá Vörum í Garði, þær Guðrún, Karítas og Kristín, voru að láta skíra börnin sín í stofunni í Vörum. Guðrún með Sigurð, sem lézt aðeins fjögurra ára gamall, Karitas með Gunnar og móðir mín Kristín, sem lét undirritaða heita í höfuð á systur sinni, Halldóru. Það var séra Eirík- ur Brynjólfsson á Útskálum sem skírði. Halldóra, móðursystir mín, spilaði á orgel, eins og hún gerði gjarnan við hátíðleg tækifæri. Ég er afar stolt af að bera nafn móðursystur minnar. Lengi vel hélt ég að hún hefði verið skírð eftir föð- ur sínum Halldóri, en Dóra, eins og hún var ævinlega kölluð, eða Dóra í Vörum, sagði mér að hún hefði verið skírð í höfuðið á langömmu sinni. Halldóra Halldórsdóttir ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GYÐA FANNEY ÞORLEIFSDÓTTIR, Skálateigi, Norðfirði, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað laugardaginn 15. ágúst, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 29. ágúst kl. 13.00. Valgerður Jónsdóttir, Halldór Þorbergsson, Leifur M. Jónsson, Jarþrúður Þórisdóttir, Ragnar D. Jónsson, Björk Rögnvaldsdóttir, Jón Þorgeir Jónsson, Sesselja Einarsdóttir, Jóhann Jónsson, Ágústa Þórarinsdóttir, Bryndís Þ. Jónsdóttir, Árni Guðjónsson, Axel Jónsson, Ólafía Einarsdóttir, Hans Sigfússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför SIGRÍÐAR INGIMUNDARDÓTTUR, Hornbrekku, Ólafsfirði. Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á Hornbrekku. Gíslína Helgadóttir, Ingimar Antonsson, Sigurður Helgason, Ágústa Pétursdóttir, Hannes Helgason, María Jónsdóttir, Ingimundur Helgason, Arndís Friðriksdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, SÓLVEIG VILHJÁLMSDÓTTIR, dvalarheimilinu Kjarnalundi, áður til heimilis Víðivöllum 4, Akureyri, lést aðfaranótt þriðjudagsins 25. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Vilhjálmur Ingi Árnason, Tryggvi Árnason, Ingibjörg Bryndís Árnadóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrr- þey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengdarmörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.