Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 ✝ Bragi Frið-þjófsson fæddist í Reykjavík 17. ágúst 1978. Hann lést 17. ágúst 2009. For- eldrar Braga eru Friðþjófur Bragason, f. 24.10. 1954, og Ell- en Ásthildur Ragn- arsdóttir, f. 10.1. 1957. Systkini Braga eru 1) Ragnar Þórð- ur Friðþjófsson, f. 25.1. 1982, d. 9.4. 1982, 2) Róbert Frið- þjófsson, f. 3.2. 1984 og 3) Ragna Björg Friðþjófsdóttir, f. 18.10. 1990. Bragi ólst upp í Hafnarfirði og bjó þar til æviloka. Útför Braga fer fram frá Fríkirkj- unni í Hafnarfirði í dag, 27. ágúst, og hefst athöfnin kl. 13. Meira: mbl.is/minningar Bragi var litli frændi minn sem ég passaði þegar við vorum lítil. Hann var skemmtilegur litli frændi með prakkarasvip og glampa í bláum aug- unum sínum. Frá því ég fékk hörmu- legu fréttirnar af örlögum frænda míns hefur eftirfarandi ljóð Vilhjálms Vilhjálmssonar ekki vikið úr huga mér og langar mig að minnast frænda míns með þessu ljóði: Óðum steðjar að sá dagur, afmælið þitt kemur enn. Lítill drengur, ljós og fagur, lífsins skilning öðlast senn. Vildi ég að alltaf yrðir við áhyggjunar laus sem nú, en allt fer hér á eina veginn, í átt til foldar mjakast þú. Ég vildi geta verið hjá þér, veslings barnið mitt. Umlukið þig með örmum mínum unir hver við sitt. Oft ég hugsa auðmjúkt til þín einkum þegar húmar að. Eins þótt fari óravegu átt þú mér í hjarta stað. Man ég munað slíkan, er morgun rann með daglegt stress, að ljúfur drengur lagði á sig lítið ferðalag til þess að koma í holu hlýja, höfgum pabba sínum hjá. Kúra sig í kotið hálsa, kærleiksorðin þurfti fá. Einka þér til eftirbreytni alla betri menn en mig. Erfiðleikar að þó steðji alltaf skaltu vara þig, að færast ekki í fang svo mikið, að festu þinnar brotni tré. Allt hitt góða í heimi haldi í hönd á þér og með þér sé. Þín frænka Svala Heiðberg. Hvað getur maður gert þegar ung- ur maður í blóma lífsins er tekinn burt? Það er engu líkara en öskrandi útvarpsþögnin hafi skollið á og minn- ingarnar streyma. Bragi kom til mín sjö ára á Klaust- ur og var hjá mér um sumartíma og þegar ég hugsa til baka er ekki svo langt síðan. Okkar samband var alltaf gott og það sást best þegar ég varð veik í sumar þegar hann kom upp á spítala til mín fyrsta daginn og heim- sótti frænku gömlu, hann sat hjá mér og spjallaði og ekki datt mér í hug að þetta yrði í síðasta skipti sem ég sæi hann, en enginn ræður sínum næt- urstað. Bragi var mér alltaf góður og hjálpsamur, eitt var sérstakt þegar hann hjálpaðir mér að flytja fyrir ell- efu árum, þá var dótið allt tekið í gegnum svalirnar og alltaf þegar hann kom í heimsókn eftir það kom hann inn um svaladyrnar, ég spurði hann af hverju hann kæmi alltaf þarna inn og þá sagði hann: „Þetta er eina leiðin sem ég rata, maður.“ Bragi var mikið ljúfmenni og gerði ekki flugu mein, hann lifði hratt og stundum náði fíknin yfirhöndinni því miður. Það verður að segjast eins og er að þessi vímuheimur er hræðilegur og hefur eyðilagt bæði stóra og smáa. En elskulega Braga minn kveð ég að sinni og vona að hann sofi rótt. Ég veit að það hefur verið tekið vel á móti honum, amma hans, afi og Ragnar Þórður hafa umvafið hann í sínum englaheimi. Elsku Ellen, Bubbi, Róbert og Ragna, ykkur votta ég mína dýpstu samúð í þessari miklu sorg, en min- nigin um Braga mun lifa. Einnig votta ég Braga, Svölu og langt upp eftir fjalli og könnuðum allt það svæði sem við komumst yfir. Maður heldur alltaf að maður hafi nægan tíma en svo einn daginn er sá tími tekinn frá manni og hann kemur aldrei aftur, tími sem maður vildi nota til að endurnýja gamla vináttu, tími sem átti að vera fyrir okkur en verður aldrei. Þín verður sárt saknað af mörgum og þín verður ávallt minnst með ást og hlýju og einn daginn munum við hittast á ný og getum þá rifjað upp það sem okkur gafst ekki tími til í þessu lífi. Þín frændsystkin Sigfús og Sif. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Drottinn minn faðir lífsins ljós lát náð þína skína svo blíða. Minn styrkur þú ert mín lífsins rós tak burt minn myrka kvíða. Þú vekur hann með sól að morgni. Þú vekur hann með sól að morgni. Faðir minn láttu lífsins sól lýsa upp sorgmætt hjarta. Hjá þér ég finn frið og skjól. Láttu svo ljósið þitt bjarta vekja hann með sól að morgni vekja hann með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Minning þín lifir. Helga Berglind og fjölskylda. Bragi, okkar ástkæri vinur, nú hef- ur þú fundið frið í dauðanum sem þig svo áberandi vantaði í lífinu. Við vitum að þú hefur ekki aðeins dáið frá okkur sem þú skilur eftir, heldur hefur þú risið til hins eilífa lífs og þróttur þinn aukist. Við sjáum þig standa í fremstu víglínu hersveita guðs og við vitum að nú getur ekkert fellt þig framar og dauðinn ekki hald- ið þér. Ástkæri vinur okkar, við mun- um sakna þín og minnast stunda okk- ar saman, þegar við könnuðum hliðarvíddir tilverunnar, þegar við stóðum saman og brostum yfir orðum og gerðum hver annars. Við vorum villtir en nú munum við þroskast í sitt hvoru lagi. Þú munt alltaf dvelja í okkar hjarta og huga og þú alltaf vera okkur ná- lægur, okkur sem elskuðum þig, og þú munt vissulega lifa áfram með okkur. Þú varst svo góður vinur okkar og baðst aldrei um neitt í staðinn, þú varst raunverulegur vinur sem alltaf var hægt að treysta á, þú komst alltaf til hjálpar fyrstur manna og það skipti þig miklu máli að hjálpa fé- lögum þínum. Við munum minnast þín í bænum okkar og vera þakklátir fyrir að hafa kynnst þér. Guð veri með fjölskyldu og vinum Braga á þessum erfiðu tímum og veiti þeim styrk, við vottum þeim okkar dýpstu samúð og samhug. Hvíl í friði, okkar ástkæri vinur. Þínir vinir Kristján og Styrmir. Mér finnst ég varla heill né hálfur mað- ur og heldur ósjálfbjarga, því er verr. Ef værir þú hjá mér vildi ég glaður verða betri en ég er. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. Við gætum sungið, gengið um, gleymt okkur með blómunum. Er rökkvar ráðið stjörnumál. Gengið saman hönd í hönd, hæglát farið niður á strönd. Fundið stað, sameinað beggja sál. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. (Vilhjálmur Vilhjálmsson.) Blessuð sé minning þín, Jón Ómar. Bragi Friðþjófsson Ó, æska sú, er gaf oss sinn ynd- isleik og fögnuð var úthaldslaus frá byrjun og hennar rödd er þögnuð. Og vinirnir, sem týndust, og sál vor einu sinni fann sárast til að kveðja, eru horfnir voru minni. Svo lítil eru takmörk þess, sem tíminn leggur á oss. Hann tekur jafnvel sárustu þján- inguna frá oss. (Tómas Guðmundsson.) Amma og afi. HINSTA KVEÐJA öðrum aðstandendum samúð mína. Minning þín er perla. Kær kveðja Soffía frænka. Kæri Bragi. Það er erfitt að hugsa til þess að þú sért farinn. Það er svo margt sem þú áttir eftir að gera, þinn tími kom allt of fljótt. Þú varst alltaf vinur okkar og alltaf glaður að hitta okkur og við þig líka og hefðum viljað gera meira af því. Við vitum að amma Björg tekur á móti þér. Hvíldu í friði, kæri frændi. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum.) Þín frændsystkini Jóhannes og Björg. Elsku vinur. Lífið fer ekki alltaf eins og við óskum okkur. Þú gafst okkur góðar minningar. Um strák sem var fullur af orku og mikið á ferð- inni. Líka varstu ljúfur og blíður. Í raun varstu sérstakur. Fróðleiksfús, last mikið. Fjölskyldan var þér allt. Ef einhver veiktist og fór á spítala varstu alltaf fyrstur til að koma og athuga hvort allt væri örugglega í lagi. Sem sýndi svo vel að þér þótti vænt um fólkið þitt. Í dag felldu blómin mín blöðin sín. Og húmið kom óvænt inn til mín. Ég hélt þó að enn væri sumar og sól- skin. Að augum mér bar eina bernskusýn – úr blámanum hófust æskulönd mín, fjarlægar strendur fjarlægra daga – Og sál mín hlustaði, sál mína bar yfir sumar og haust inn í landið þar sem dagarnir sofna og draumarnir vakna. (Tómas Guðmundsson.) Ljós og friður fylgi þér. Elsku Bibbi, Ellen, Róbert, Ragna. Minningarnar gleymast aldrei. Þær eigum við í hjarta okkar. Björk og Þorvaldur. Í dag kveðjum við ástkæran frænda okkar og leggjum til hinstu hvílu, Bragi, þú varst alltaf góður vin- ur og leikfélagi þegar við vorum yngri. Við brölluðum margt saman og það voru ófá skiptin sem við lékum okkur í hverfinu, stökkvandi ofan af skúrum eða hlaupandi um leikskóla- lóðina í byssuleik. Eins þegar við vor- um uppi í bústað þar sem við dund- uðum okkur við að smíða okkar eigin litlu hús og fórum í langa göngutúra Á einum fegursta degi sumarsins kvaddi Matthías, föð- urbróðir okkar, þetta líf. En það var líka hans háttur að fylla umhverfi sitt með gleði, hlýju og birtu. Matthías frændi hefur verið hluti af okkar tilveru frá því við munum eftir okkur – og því dimmir aðeins í birtu sumars við fráfall hans. Matthías var alltaf glaður í bragði og snöggur að sjá broslegu hliðina á tilverunni og það var t.d. alltaf hann sem minnti ömmu Guð- björgu á, um leið og hann óskaði henni til hamingju með afmælið, hinn 20. apríl, að ónefndur maður hefði átt afmæli sama dag. Svo hló hann … Afgerandi hlátur, afgerandi augnaráð, afgerandi hlýja. Raun- góður, bóngóður með eindæmum – fagurkeri á lífið og sá fallegu hliðina á öllum hlutum. Kannski ekki að undra, þar sem hann ólst upp í einstakri náttúru- fegurð á bökkum Þverár í Rang- árvallasýslu. Með einstaka foreldra og bræðrahóp sem mótuðu hvert annað – og sennilega er það vegna þessarar sterku heildar að bræð- urnir eru eins og þeir eru. Ein- stakir allir sem einn. Við eigum eftir að sakna kveðj- unnar hans Matthíasar: „Sæl frænka“ … en um leið þökkum við fyrir að hafa átt hann að sem frænda. Við vitum að hjónin frá Ux- ahrygg hafa tekið vel á móti honum. Elsku Ingibjörg, Óli, Magnús, Birgitta og fjölskylda – og bræður – við sendum ykkur hlýjar samúðar- kveðjur. Við kveðjum Matthías frænda með bæninni sem amma Guðbjörg kenndi okkur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Góða nótt. Þórunn og Sveinbjörg Jónsdætur. Það er með söknuði sem ég kveð nú Matthías Sveinsson, föðurbróður minn en reyndar líka þakklæti fyrir þær stundir sem ég átti með hon- um. Mér er ofarlega í huga ferðin sem ég fékk að fara með honum og Ingibjörgu norður á Siglufjörð þeg- ar hann gegndi framkvæmdastjóra- stöðu hjá Húseiningum á Siglufirði. Ég var 10 ára gamall og fékk að upplifa mikil ævintýri fjarri heima- högum. Ég var ókunnugur staðhátt- um en naut verndar Matta og Imbu og veitti held ég ekki af. Einhverju sinni fór Matthías með mig niður á höfnina á Siglufirði og leiðbeindi mér um það hvernig ég gæti veitt þar fisk. Sjálfur var hann hlaðin verkefnum og varð því að skilja mig eftir á bryggjunni en þar voru fyrir nokkrir peyjar á mínum aldri sem allir kepptust við að veiða. Matthías bað mig um að vera ekki kominn heim í mat seinna en klukk- an sjö um kvöldið. Klukkan var orð- in níu þegar ég sá hvar Matthías koma akandi niður á bryggjuna þar sem ég stóð með fullt af fiski, að- allega marhnút. Ég hafði gleymt mér og það sem verra var að sveim- huginn ég hafði fært mig um set á gjöfulli fiskimið með innfæddum jafnöldrum mínum þannig að Matt- hías hafði þurft að leita að mér. Ég minnist þess ekki að ég hafi Matthías Böðvar Sveinsson ✝ Matthías BöðvarSveinsson fæddist á Uxahrygg á Rang- árvöllum 1. maí 1931. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 4. ágúst sl. og fór útför hans fram frá Garðakirkju 17. ágúst. hlotið fyrir þetta eig- inlega refsingu en hinsvegar skynjaði ég það skýrt að þarna hafði mér orðið á í messunni og mér þótti sárt að hafa valdið honum óþarfa áhyggjum. Okkur Hrund er það sér- staklega minnisstætt þegar Matthías og Imba komu til okkar og gáfu okkur fallegt ljós til minningar um dóttur okkar Auði. Þessi gjöf og sá hugur sem fylgdi henni hefur verið okkur Hrund of- arlega í huga nú undanfarið þegar Matthías hefur þreytt baráttu við illvígan sjúkdóm. Ég er þakklátur fyrir þær stund- ir sem ég fékk notið með Matthíasi. Þakklátur fyrir glaðværðina og húmorinn sem einkenndi hann. Það var alltaf stutt í brosið og hláturinn. Fyrir þetta viljum við Hrund þakka Matta frænda og um leið votta Ingi- björgu, Óla, Magnúsi, og Birgittu okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning hans. Einar Magnús Magnússon og Hrund Gunnarsdóttir. Matthías B. Sveinsson heldur í sína hinstu ferð þegar hallar einu glæstasta sumri sem menn muna. Hann var maður allra árstíða en best naut hann sín í sólríkri sum- artíð Suðurlands. Þótt vinátta okk- ar næði yfir sex áratugi og öll þroskastig frá æsku tveggja manna, sem voru samstiga í andanum á sinni brautinni hvor í sviptivindum samtímans, þá leitar hugurinn fyrst hinna sunnlensku sumra unglings- áranna og þeirrar ununar sem þau geymdu í glöðum vinahópum. Matt- hías var mikill og sannur fulltrúi gleðilegrar samveru og alla sína tíð framtakssamur miðlari hinnar sönnu vináttu sem hvergi sér ann- marka á því að styðja við sitt fólk. Vinahópurinn var því stór og hann reyndist mörgum þeirra vina af báðum kynjum mikið haldreipi, ekki síst ef eitthvað bjátaði á. Hann ólst upp við þá hugmyndafræði að hver væri sinnar gæfu smiður, guð hjálp- aði þeim sem hjálpuðu sér sjálfir og að margar hendur ynnu létt verk. Hugsjónir hans vísuðu til þess að tryggja afkomu sína og sjálfstæði fyrir eigin atbeina annars vegar og hins vegar að leggja það til sem hann mátti til framgangs og fram- fara landi sínu og samferðafólki. Matthías var forgöngumaður um stofnun og starfrækslu fyrirtækja í iðngrein sinni, rafvirkjun, og kom sem stjórnandi að rekstri í öðrum iðngreinum, auk þess sem lifandi áhugi hans á samfélagsmálum leiddi til farsælla starfa að bæjar- og sveitarstjórnarmálum. Framtaks- semi, heilindi, velvilji, greiðvikni og þjónustulund eru þau orð sem fyrst koma í hug er lýsa skal fyrirferð- armestu þáttunum í skaphöfn Matt- híasar, fólk leitaði því seint og snemma til hans með úrlausnarefni og hvort sem þau voru viðskiptalegs eðlis eða lutu að persónulegum vandamálum viðkomandi leitaði hann lausna af sömu einlægninni. Á umbrotatímum unglingsáranna var vinátta okkar Matthíasar ómetan- lega farsælt afl, hún hélst óbreytt hvort sem hlé í samgangi urðu stutt eða löng og þegar við Kolfinna stofnuðum heimili varð hann einn allra fyrsti fjölskylduvinurinn, ásamt með Ingibjörgu, konu sinni. Góðum vini sem hverfur fylgir svolítið af manni sjálfum en það er ekki frá neinum tekið því að það til- heyrði þeim vini einum. Á móti skil- ur hann eftir það sem hann gaf og ekki eyðist. Við Kolfinna og okkar fólk þakkar Matthíasi samfylgdina og sendum Ingibjörgu, börnum Matthíasar og öllum aðstandendum einlægar samúðarkveðjur. Hinrik Bjarnason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.