Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 27.08.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is FRAMLEIÐSLA og sala á sementi hefur breyst mikið á síðustu árum. Árið 2000 hóf Aalborg Portland inn- flutning á sementi, en Sementsverk- smiðja ríkisins hafði ein framleitt og selt sement hér á landi í áratugi. Fyrirtækið náði fljótlega sterkri stöðu á markaði. Þegar þenslan á markaðinum var sem mest var fyrir- tækið með helming af allri sements- sölu. Samkeppnin hafði áhrif á verð- ið, en frá 2000 til 2003 lækkaði sementsverð um 25%. Lægra verð og minni markaðshlutdeild hafði að sjálfsögðu áhrif á rekstur Sements- verksmiðjunnar. Árið 2003 tók ríkið ákvörðun um að selja verksmiðjuna. Söluverðið var ekki hátt, 68 milljónir króna. Kaupandi var Íslenskt sem- ent ehf. sem er í eigu Framtaks fjár- festingarbanka, BM Vallár, Norcem á Íslandi og Björgunar. Í tengslum við söluna yfirtók ríkissjóður eignir verksmiðjunnar sem ekki tengdust rekstri hennar, að verðmæti um 450 milljónir króna. Þá yfirtók ríkis- sjóður lífeyrisskuldbindingar Sem- entsverkmiðjunnar sem námu rúm- lega 400 milljónum króna. Aalborg kærði sölu verksmiðjunnar til eft- irlitsstofnunar EFTA, en hún vísaði kærunni á bug. Langstærstu kaup- endur sements eru BM-Vallá og Steypustöðin. BM-Vallá á stóran hlut í Sementsverksmiðjunni og kaupir allt sement frá henni. Steypu- stöðin hefur hins vegar keypt allt sement frá Aalborg Portland, m.a. vegna þess að fyrirtækið hefur ekki viljað skipta við samkeppnisaðilann. Steypustöðin var í eigu Mest, en það fyrirtæki varð gjaldþrota sl. haust. Við það færðist eignarhald á Steypu- stöðinni yfir til Íslandsbanka. Þegar menn tala um að ríkið sé að kaupa innflutt sement eiga menn við að Steypustöðin, sem er í óbeinni eigu ríkisins í gegnum Íslandsbanka, sé að kaupa danskt sement. Jón Bjarnason, landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, tók málefni Sementsverksmiðjunnar upp í ríkis- stjórn í vikunni. Spurningin er hvort ríkið ætlar að beita eigendavaldi sínu með þeim hætti að þvinga Steypu- stöðina til að hætta að kaupa innflutt sement. Í fljótu bragði virðist það vera eina leið ríkisins til að beita sér því ríkið kaupir ekki sement beint af selj- endum. Öll verk sem Vegagerðin og Landsvirkjun fara í eru boðin út og það er mál verktakanna sem vinna verkin að semja um kaup á steypu. Stofnanir ríkisins geta ekki haft þar nein áhif á. Gunnar H. Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Sementsverksmiðj- unnar, segir að Aalborg hafi reynt að taka yfir íslenska markaðinn, m.a. með því að selja sement undir mark- aðsvirði. Bjarni Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Aalborg, hafnar þessu og segir að Sementsverksmiðjan hafi núna um 70% markaðshlutdeild. Fyrirtækið hafi nýlega náð til sín viðskiptum við steypustöðina Borg- ir. Bjarni segir það lýsandi fyrir stöðu Sementsverksmiðjunnar að ekki hafi tekist að reka hana með hagnaði í góðærinu. Tap hafi verið öll árin frá 2000 utan eins. Gunnar bendir á að Sementsverk- smiðjan hafi skilað þjóðinni miklum arði í gegnum árin og sparað þjóð- inni gjaldeyri. Stöðvist Sements- verksmiðjan tapist á annað hundrað störf og tækniþekking tapist. Bjarni bendir á að hjá Aalborg Portland starfi líka fólk. Þar hafi starfað 14 menn en þeim hefur nú fækkað í 9. Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is HÆSTIRÉTTUR hefur úrskurðað að Hlyni Jónssyni, formanni skila- nefndar SPRON, sé skylt að svara því fyrir dómi hver hafi verið selj- andi tiltekinna stofnfjárbréfa í spari- sjóðnum, sem keypt voru í júlí 2007. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áð- ur hafnað kröfu kaupandans um að nafn seljanda yrði upplýst. Málavextir eru þeir að Davíð Heiðar Hansson keypti stofnfjárbréf í SPRON hinn 24. júlí 2007 fyrir rúmar 55,5 milljónir króna, en nafn- verð bréfanna var tæpar 4,9 millj- ónir. Stjórn SPRON samþykkti framsal á umræddum stofnfjár- hlutum til Davíðs Heiðars á fundi sínum sama dag en um var að ræða 0,1% útgefinna stofnfjárbréfa. Fram kemur í dómnum að viðskipti með stofnbréf, sem stjórnin samþykkti á fundi sínum, hafi alls tekið til rúm- lega 225 milljón stofnfjárhluta. Hinn 7. ágúst 2007 voru viðskipti með stofnfjárbréf SPRON stöðvuð. Í kjölfarið var sparisjóðnum breytt í hlutafélag og það skráð opinberri skráningu í Kauphöllinni. Seldi bréfin með miklu tapi Verðmæti stofnfjárbréfanna og síðar hlutabréfanna hríðlækkaði frá því Davíð Heiðar keypti bréfin. Nokkrum mánuðum eftir kaup stofnfjárbréfanna, þ.e. í nóvember 2007, seldi hann þau með miklu tapi. Fjármálaeftirlitið ákvað í mars sl. að víkja stjórn SPRON frá störfum og setja í hennar stað skilanefnd yfir félagið. Davíð Heiðar skrifaði skila- nefndinni bréf þar sem hann lýsti viðskiptum sínum og sagðist hafa ríka ástæðu til að ætla að seljandi þeirra hafi verið stjórnarmaður í sparisjóðnum, vegna þess m.a. hve stór hluturinn var. Fram hafi komið opinberlega að stjórnarmenn í spari- sjóðnum hafi selt verulegan hluta stofnfjárbréfa sinna dagana eftir að ákveðið var á stjórnarfundi SPRON að breyta sjóðum í hlutafélag. Í tengslum við þá ákvörðun hafi stjórnarmenn haft undir höndum upplýsingar um verðmæti spari- sjóðsins, sem aðrir höfðu ekki. Sagðist Davíð Heiðar hafa í hyggju að leita réttar síns vegna þess tjóns sem hann varð fyrir við kaup umræddra stofnfjárbréfa en til þess skorti hann upplýsingar um hver hafi verið seljandi bréfanna. Skilanefndin tilkynnti Davíð Heiðari í apríl að hún yrði ekki við þessari ósk nema staðfest yrði að henni bæri skylda til þess. Hæstiréttur hefur nú komist að þeirri niðurstöðu, að upplýsingar til kaupanda stofnfjárbréfa um það hver seljandi þeirra hafi verið, geti ekki varðað viðskipta- eða einkamál- efni seljandans þannig að stjórnar- mönnum eða starfsmönnum spari- sjóðs sé óheimilt að veita þær vegna lagaákvæða um bankaleynd. Fram kemur í dómi Hæstaréttar að til sé listi um öll viðskiptin, sem stjórn SPRON samþykkti á fund- inum 24. júlí 2007. Ekki hafi verið leitað úrskurðar héraðsdóms um að fá listann birtan í heild og var kröfu um birtingu hans vísað frá Hæsta- rétti. Skylt að upplýsa hver seldi stofn- bréfin í SPRON Grunar að stjórnarmaður hafi selt Morgunblaðið/Brynjar Gauti Sala á sementi hefur minnkað gríðarlega eftir bankahrunið. Sáralítið er byggt af húsnæði og stórframkvæmdum eins og Kárahnjúkavirkjun og álveri á Reyðarfirði er lokið. Samdrátt- urinn er líklega yfir 70% miðað við síðasta ár og enn meiri ef miðað er við 2007. Stærstu verkefni sem nú eru í gangi eru tónlistarhúsið í Reykjavík og ál- verið í Helguvík. Sementsverk- smiðjan framleiðir sement í bæði þessi verk. Algert hrun í sementssölu Morgunblaðið/Árni Sæberg Steypa Síðustu mánuðina hefur ríkið verið helsti kaupandi steypu í landinu. Sala á sementi hefur hrunið. Á að múra Dani úti? Kröfur um að ríkið hætti að kaupa innflutt sement fela í sér að ríkisvaldið þvingi Steypustöðina til að kaupa innlent sement Menn verða ekkert mjög múraðir af því að framleiða eða selja sement þessa dagana. Þrýst er á ríkið að það beiti sér til að tryggja áfram rekstur Sements- verksmiðjunnar. „Næsta skref í málinu er það að ég mun fyrir dómi spyrja Hlyn Jónsson þeirrar spurningar sem Hæstiréttur segir að honum sé skylt að svara,“ segir Grímur Sigurðsson hrl., lögmaður Dav- íðs Heiðars Hanssonar. Grímur segir að það velti al- gerlega á því hver seldi, hvað síðan verði gert. „Ef við teljum að viðkomandi hafi búið yfir einhverjum upplýsingum um sparisjóðinn sem kaupandinn bjó ekki yfir og haldið þeim upplýsingum leyndum munum við fara í mál og krefjast þess að kaupverðið verði end- urgreitt,“ segir Grímur. Spurninguna til Hlyns mun Grímur bera fram í nýju þing- haldi hjá Héraðsdómi Reykja- víkur. Mun spyrja Hlyn HJÁLPARSTOFNANIR fengu í gær góðan stuðning fyrirtækja til að hjálpa fjölskyldum skólabarna sem geta ekki staðið straum af kostn- aði vegna byrjunar skólaársins. Fjölskylduhjálp Íslands fékk kl. 14 í gær afhent gjafabréf frá Subway á Íslandi að heildarandvirði 1,3 milljónir króna. Hvert gjafabréf hljóðaði upp á 15 þúsund króna úttekt í Pennanum. Auk þess af- henti Skúli Gunnar Sigfússon, eigandi Subway á Íslandi, Fjölskylduhjálpinni 400 gjafabréf upp á Subway-báta. Einnig færði Penninn Fjölskyldu- hjálpinni 100 skólatöskur að gjöf í gær. Gjafakortin uppurin kl. 16 Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjöl- skylduhjálparinnar, sagði að gjafakortin hefðu öll verið uppurin kl. 16 í gær. Skólatöskurnar voru einnig að klárast síðdegis í gær. „Það vantar miklu meira til að hjálpa þeim sem eru að biðja um aðstoð í dag,“ sagði Ásgerður. Hún sagði að í þau 13 ár sem hún hefði unnið við fjölskylduhjálp hefðu alltaf verið brögð að því að fólk gæti ekki keypt skólavörur fyrir börnin sín. Hljótt hafi verið um þennan hóp fólks hingað til. „Nú er þessi umræða komin í loftið sem er mjög jákvætt, því þá kemur fram þessi samhjálp.“ Einstaklingar hafa einnig styrkt fjölskyldur sem geta ekki staðið straum af námskostnaði barna sinna. Fjölskylduhjálpin hefur haft milli- göngu um slíka aðstoð. Eymundsson afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar Jeva-skólatöskur sem söfnuðust á skiptitösku- markaði Eymundsson. Tekið var á móti töskunum gegn inneignarnótu í Eymundsson. Halldóra Lár- usdóttir, vörustjóri hjá Eymundsson, sem átti frumkvæði að þessari gjöf, afhenti skólatöskurnar í gær. Eymundsson gaf einnig nýjar skólavörur að andvirði 750.000 krónur til Hjálparstarfs kirkj- unnar. Bjarni Gíslason, upplýsingafulltrúi Hjálpar- starfsins, tók á móti gjöf Eymundsson í gærmorg- un. Hann sagði mikið leitað til Hjálparstarfsins vegna skólabyrjunar og koma miklu fleiri nú en áður að biðja um slíka aðstoð. Þeir sem óska að- stoðar fá viðtal hjá félagsráðgjafa sem metur hve mikla aðstoð fólkið fær. Bjarni sagði að Office 1 hafi einnig veitt Hjálparstarfinu góðan afslátt af skólavörum. gudni@mbl.is Skólabörn studd til náms Hjálparstofnanir fengu í gær skólatöskur, gjafabréf og skólavörur til að miðla fjöl- skyldum sem geta ekki staðið straum af kostnaði vegna skólabyrjunar í haust Ljósmynd/Eymundsson Skólatöskur Eymundsson gaf Hjálp- arstarfi kirkjunnar skólatöskur. Í HNOTSKURN »Á Facebook hefur veið stofnuð síðanSkólastoðin þar sem hægt er að styrkja barn til skólagöngu. » Fyrsta verkefni Skólastoðarinnar verð-ur ritfanga- og bókasöfnun sem fer fram í Kringlunni á fimmtudag og föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.