Morgunblaðið - 27.08.2009, Side 10

Morgunblaðið - 27.08.2009, Side 10
10 Fréttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 Í tvo vetur felldi Reykjavíkurborgniður gjald fyrir reykvíska framhalds- og háskólanemendur í Strætó. Ákveðið var að í vetur yrði þessu hætt.     Sú ákvörðun var harðlega gagn-rýnd og nú hefur Reykjavík- urborg tilkynnt að hvert nema- kort, sem reykvískir fram- halds- og há- skólanemendur kaupa hjá Strætó, verði niðurgreitt um „15.000 þúsund krónur“, að því er sagði í frétta- tilkynningu frá borginni.     Það eru fimmtán milljónir og færvart staðist, en annað í frétta- tilkynningunni vekur athygli.     Þar segir: „Reykjavíkurborgfelldi niður gjald fyrir reyk- víska framhalds- og háskólanem- endur síðastliðin tvö skólaár í til- raunaskyni. Verkefnið gafst vel og hefur notið vinsælda nemenda og bættust milljón farþegar við hóp viðskiptavina Strætó vegna kort- anna hvert skólaár. Í könnun sem gerð var kom fram að 80% náms- manna sem fara í strætó á annað borð gera það vegna kortanna, og að hópur nemenda hætti við að kaupa einkabíl vegna þeirra.“     Þetta er sem sagt niðurstaðanþegar verkefni gefast vel.     Þá er hætt við þau.     Þetta kallast háskaleg velgengniog eins gott að verkefnið gafst ekki frábærlega.     Þá hefði Strætó sennilega veriðlagður niður. Strætó Verkefnið gafst vel. Háskaleg velgengni Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður Reykjavík 11 skúrir Lúxemborg 24 heiðskírt Algarve 26 heiðskírt Bolungarvík 10 skýjað Brussel 23 skýjað Madríd 31 heiðskírt Akureyri 15 skýjað Dublin 17 skýjað Barcelona 27 léttskýjað Egilsstaðir 11 skýjað Glasgow 17 skýjað Mallorca 30 heiðskírt Kirkjubæjarkl. 11 rigning London 21 léttskýjað Róm 34 heiðskírt Nuuk 12 heiðskírt París 26 heiðskírt Aþena 29 léttskýjað Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 23 heiðskírt Winnipeg 21 léttskýjað Ósló 18 skýjað Hamborg 22 heiðskírt Montreal 23 léttskýjað Kaupmannahöfn 21 skýjað Berlín 25 heiðskírt New York 27 léttskýjað Stokkhólmur 18 heiðskírt Vín 28 skýjað Chicago 19 alskýjað Helsinki 18 skýjað Moskva 17 léttskýjað Orlando 31 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ HALLDÓR STAKSTEINAR VEÐUR 27. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 4.46 1,1 11.17 3,2 17.31 1,4 23.39 2,9 5:57 21:03 ÍSAFJÖRÐUR 0.37 1,8 6.47 0,7 13.20 1,9 19.42 0,9 5:53 21:17 SIGLUFJÖRÐUR 3.24 1,2 9.12 0,6 15.41 1,2 21.53 0,5 5:35 20:59 DJÚPIVOGUR 1.43 0,6 8.07 1,9 14.35 0,8 20.17 1,6 5:24 20:34 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið Á föstudag og laugardag Norðanátt, víða 8-13 m/s og rigning, en þurrt að kalla SV- lands. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast syðst. Á sunnudag Norðaustan 8-13 m/s NV- lands, en annars mun hægari. Rigning á N-verðu landinu, en skúrir syðra. Hiti 6 til 12 stig, mildast S-lands. Á mánudag og þriðjudag Breytilegar áttir og væta í flest- um landshlutum. Milt veður. VEÐRIÐ NÆSTU DAGA SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðlægar áttir og hvessir NV- lands. Dálítil rigning N- og A- lands, en annars skúrir. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast syðst. EMBÆTTI ríkissaksóknara hefur ákveðið að fella niður svokallað ís- bjarnarmál þar sem það þykir ekki líklegt til sakfellis. Málið varðar skröksögu um ísbjörn í grennd við Hofsós í maí sl. Mbl.is sendi ríkissaksóknara fyr- irspurn um málið og í svari frá emb- ættinu kemur fram að málið hafi verið skoðað með hliðsjón af 120. gr. almennra hegningarlaga. Í greininni segir: „Ef maður gabb- ar lögreglumenn, brunalið, björg- unarlið eða annað hjálparlið, með því að kalla eftir hjálp að ástæðulausu eða með misnotkun brunaboða eða annarra hættumerkja, þá varðar það sektum eða [fangelsi] allt að 3 mán- uðum.“ Í maí bárust fréttavef Morgun- blaðsins tvær ljósmyndir af hvíta- birni, úr farsíma, og á annarri þeirra var nokkur fjöldi fólks í grennd við björninn. Þegar hringt var í símann vísaði eigandi hans á félaga sinn, Sigurð Guðmundsson, verslunar- mann á Akureyri, en þeir voru í hópi fólks í skemmtiferð um Skagafjörð. Sigurður sagði blaðamanni að hóp- urinn hefði séð hvítabjörn og lýsti aðstæðum. Eftir að aftur var hringt í Sigurð og hann staðfesti fyrri frásögn, var birt frétt á vefnum. Eftir nokkra stund kom í ljós að fréttin átti ekki við rök að styðjast. Sigurður stað- festi síðar að hann hefði logið. Ekki gefin út ákæra í ísbjarnarmálinu Laug að fréttavefnum mbl.is og sagðist hafa séð ísbjörn við Hofsós Hvítabjörn Engir ísbirnir hafa sést á Íslandi á þessu ári. Smárit Ferðafélags Íslands Handhægar gönguleiða- lýsingar til að hafa með í bakpokanum Fást á skrifstofu FÍ og í næstu bókabúð SKRÁÐU ÞIG INN – DRÍFÐU ÞIG ÚT! www.fi.is FERÐAFÉLAG ÍSLANDS | Mörkinni 6 | 108 Reykjavík | Sími: 568 2533 | Fax: 568 2535 | Netfang: fi@fi.is Í nýjasta fræðsluriti FÍ, sem er það fimmtánda í röðinni, er umfjöllunar- efnið fjalllendið milli Snæfellsness og Borgarfjarðar. Ritinu er ætlað að bæta úr skorti á aðgengilegum leiðarlýsingum og kortum, bæði varðandi Vatnaleiðina milli Hnappa- dals og Norðurárdals og eins um önnur áhugaverð göngusvæði á þessum slóðum. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.