Morgunblaðið - 27.08.2009, Síða 14

Morgunblaðið - 27.08.2009, Síða 14
Myken Friðsælt og fagurt. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „VIÐ höfum engan til að sinna þessu starfi, maðurinn sem sinnti því er kominn um áttrætt og varð að láta af störfum. Við erum aðeins 16 manns á eyjunni að staðaldri en samgöngur við fastalandið eru okkur mjög mik- ilvægar,“ segir Bjørn Skauge, íbúi á eyjunni Myken við strendur Noregs. Íbúarnir leita nú að manneskju til starfa á bryggjuna við að ferma og afferma ferju sem kemur daglega með vistir og nauðþurftir. „Við vitum að efnahagskreppan hefur gert ykkur erfiðara fyrir en okkur og flestum hér þykir Íslend- ingar og Norðmenn vera tengdir sterkum böndum,“ segir Skauge, inntur eftir því af hverju eyjar- skeggjar snúi sér til Íslendinga með atvinnutilboðið. Afskekkt en friðsælt Skauge segir það vissulega svo að erfitt hafi reynst að manna stöðuna þar sem eyjan sé fámenn og nokkuð afskekkt. „Við erum einangruð og langt í hafi úti og auglýsingar hafa því borið lítinn árangur,“ segir Skauge. Hann segir samfélag íbúanna á eyjunni vera mjög gott þrátt fyrir mannfæðina og að fjöldi fólks komi þangað til sumardvalar. „Hér er mikið um að vera þrátt fyrir smæð- ina, fólk gerir upp húsin á eyjunni, stundar veiðar og nýtur lífsins við sjóinn,“ segir Skauge. Hann biður þá sem hafi áhuga að skrifa til: bjskauge@online.no. Vilja Íslending á bryggjuna  Íbúar litlu eyjunnar Myken við Noregsstrendur leita til Íslands eftir starfskrafti  Aðeins 16 manns búa á eyjunni sem liggur rétt norðan við heimskautsbaug 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is SIGMUNDUR Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingar, neitar því að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hann talaði úr ræðustól Al- þingis að kvöldi 20. ágústs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem hann birtir á vefsíðu sinni. Sigmundur kveðst hafa neytt víns með mat fyrr um kvöldið en ekki kennt áhrifa þess. Í svæðisútvarpi Ríkisútvarpsins á Austurlandi fyrr í vikunni var haft eftir honum að hann hefði ekki bragðað áfengi áður en hann steig í ræðustól. Þá kveðst DV hafa heimildir fyrir að þingmað- urinn hafi verið „æði slompaður“ í veislu fyrr um kvöldið. Í tilkynningu sinni skrifar Sigmundur að hann hafi verið þreyttur og að honum hafi verið heitt í hamsi vegna ítrekaðra frammíkalla þingmanna. Ekki náðist tal af Sigmundi í gær en hann hyggst ekki tjá sig frekar um málið fyrr en forsætisnefnd hef- ur fjallað um það. „Mér finnst ástæða til að forsetar þingsins ræði stöðuna í þingsalnum á fimmtudag og föstudag,“ segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrsti varaforseti Alþingis. Hún segir mál Sigmundar Ernis vera meðal þess sem tekið verður fyrir í forsætis- nefnd að hennar beiðni en aðallega verði farið yfir framkomu þing- manna á þinginu að undanförnu. Ber hún að þing- menn sýni þing- haldinu ekki til- hlýðilega virðingu. „Það ætti ekki að þurfa, það á bara að ríkja al- menn skynsemi,“ segir Ragnheiður innt eftir því hvort til standi að setja þingmönnum nánari reglur í þingsal. Lög um ríkisstarfsmenn taka ekki til alþingmanna og þeir lúta aðeins þingsköpum í þing- störfum sínum. Þar er kveðið á um þingforseti skuli gera hlé á eða slíta fundi komi upp „alger óregla“ en að öðru leyti er ekki kveðið á um hegð- un eða ástand þingmanna. Ölvun í ræðustól Alþingis þekkt „Þetta hefur þekkst og það voru þónokkur brögð að þessu þann tíma sem ég var á þingi,“ segir Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum þingmaður, inntur um hvort hann kannist við að þingmenn stígi ölvaðir í pontu. Kristinn sat á þingi frá árinu 1991 þar til í ár, ýmist fyrir Alþýðu- bandalag, Framsóknarflokk, Frjáls- lynda flokkinn eða utan flokka. Kveður hann að þetta hafi liðið und- ir lok með tíunda áratugnum. „Þetta er nokkuð sem þingmenn eiga ekki að gera og þeir sem hafa brennt sig hafa lært á því.“ Segist ekki hafa kennt áhrifa í pontu á Alþingi Ölvun á þingi lagðist af í lok tíunda áratugarins segir fyrrum þingmaður Sigmundur Ernir Rúnarsson Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is GRÍMSÁ í Lundarreykjadal er rétt að smella í þúsund laxa í sumar, að sögn Jóns Þórs Júlíussonar hjá Lax ehf. Í fyrra var metveiði í Grímsá, eins og víðar, og gaf áin þá 2.225 laxa. Veitt er á átta stangir og einungis leyfð fluguveiði. „Við eigum töluvert mikið inni því Grímsá er mjög góð í september. Ég vona að við náum henni í svona 1.400 laxa,“ sagði Jón Þór. Hann sagði veiðina „mjatl- ast áfram“ þessa dagana. „Okkur er farið að langa í alvöru haustveður og rign- ingu,“ sagði Jón Þór þegar hann var spurður um gang mála í Grímsá. Hann sagði vatnsleysi ekki há Grímsá en það dofnaði yfir veiðinni þegar veðrið væri lengi aðgerðarlaust líkt og verið hefði undanfarið. Lengi væri búið að spá rigningu, en hún léti á sér standa. „Við erum farnir að bíða, eins og gert er víðar held ég, eftir vatnavöxtum og rigningu svo þetta komist í gang.“ Góður gangur í Þistilfjarðaránum Lax ehf. er með þrjár ár í Þistilfirði á sínum vegum, Hölkná, Hafralónsá og Svalbarðsá. Jón Þór sagði að mjög vel hefði gengið í Þistilfirðinum í sumar. Þar hefði ekkert verið nema rigning og þoka í allt sumar, eða þveröfugt við Borgarfjörðinn. „Svalbarðsáin stefnir í að vera með albesta móti. Hún er komin yfir 300 laxa núna og gæti mögulega náð 400 löxum sem ég held að yrði met,“ sagði Jón Þór. Hann sagði að í Svalbarðsá mætti sjá fiska sem greinilega væru að ganga í ána í annað skipti. Hollin í Svalbarðsá hefðu undanfarið fengið hátt í þrjátíu fiska á þrjár stangir á þremur dögum. Í Hafralónsá hafa einnig veiðst nokkuð yfir 300 fisk- ar og Hölkná hefur líka verið með besta móti. Í Hölkná er búið að veiða á annað hundrað laxa. Jón Þór sagði að laxinn í Þistilfirði væri mjög vænn. „Þarna er meirihlutinn stór fiskur. Mikið af fallegum fiskum milli 80 og 90 sentimetra.“ Öllum fiski er sleppt í þessum ám í Þistilfirði og einungis veitt á flugu. Í Hafralónsá má þó hirða smærri fiska. Veitt er í fyrrnefndum ám í Þistilfirði til 20. septem- ber. Jón Þór sagði að veiðin gæti verið mjög góð í sept- ember í Þistilfirði, en meiri spurning væri um veðrið. Ef hann legðist í norðanátt gæti orðið mjög kalt. Um daginn kom kuldaskot og hitinn var aðeins 2-3°C þegar veiðimenn komu út um morguninn. Laxá í Kjós hefur einnig verið á fínu róli síðustu daga og er veiðin að komast þar yfir 900 fiska, að sögn Jóns Þórs. Hann sagði að þar væru menn einnig orðnir lang- eygir eftir vatnsveðri. Miðað við síðustu ár hefði verið góð veiði í Kjósinni um mánaðamót ágúst og septem- ber. Ljósmynd/Jón Þór Júlíusson Svalbarðsá Þórður Ingi Júlíusson fékk þennan fallega fisk í Svalbarðsá í Þistilfirði í sumar. Góð laxveiði í Þistil- fjarðaránum í sumar  Grímsá er að smella í 1.000 laxa veiði  Laxá í Kjós er að komast yfir 900 laxa  Beðið er eftir vatnavöxtum ÖLL sveitarfélög sem standa að rekstri Strætó bs. bjóða nem- endum sínum af- sláttarkort í strætó eða svo- kallað nemakort. Allir nemendur sem hafa lög- heimili í Reykja- vík, Hafnarfirði, Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Álftanesi og stunda nám í viðurkenndum skólum á framhalds- og háskólastigi geta sótt um nemakortið á vefsvæðinu www. straeto.is. Nemakortið fyrir marga Í strætó Nem- endur fá afslátt. Veiði í Eystri-Rangá hefur gengið ágætlega og hafa veiðst um 80 laxar á dag að meðaltali undanfarið, að sögn Einars Lúðvíkssonar, framkvæmdastjóra veiði- félags árinnar. Veitt er á 18 stangir í ánni. Veiðimet var sett í Eystri-Rangá í fyrra og veidd- ust þá rúmlega sjö þúsund laxar sem var tvöföld meðalveiði í ánni. Veiðin var einnig langt yfir með- allagi sumarið 2007. Einar taldi stefna í að veiðin yrði yfir meðallagi í sumar. Veitt er í Eystri-Rangá út september. Í Eystri-Rangá hefur verið sleppt 200.000 seiðum á ári allt frá árinu 1996. Árið 2006 var þó sleppt tvö- falt fleiri seiðum eða 400.000 og skilaði það sér í góðri veiði sumarið 2007. Einar sagði að nú væri stefnt að því að auka seiðasleppingar og sleppa næst um 400.000 seiðum. Seiðin koma aftur í ána að ári og í litlum mæli eftir tvö ár. Veiðifélagið rekur sína eigin fiskeldisstöð og nú eru um 600.000 seiði í eldi í stöðinni. 80 laxar á dag úr Eystri-Rangá

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.