Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 15

Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is FREGNIR af áformum Íslands- banka um að lækka höfuðstól lána og breyta myntkörfulánum yfir í óverð- tryggð lán í krónum hafa vakið mikla athygli, ekki síst hjá þeim tugþús- undum fasteigendaeigenda sem eru með útistandandi lán og sífellt þyngri greiðslubyrði. Margir spyrja sig hvað aðrar lánastofnanir ætla að gera og hvort ekki þurfi að gæta jafnræðis meðal skuldara. Umræða um niðurfellingu skulda hefur farið fram innan bankakerfisins og samkvæmt heimildum blaðsins ræddu stjórnendur bankanna sín á milli í gær án þess að einhver nið- urstaða hafi fengist. Kallað er eftir skýrri stefnu frá stjórnvöldum um hvort og til hvaða almennra aðgerða verður gripið. Bent er á að ríkið komi að öllum stærstu lánveitendunum, þ.e. Íbúðalánasjóði og ríkisbönk- unum, og samræmi verði að vera þeirra á milli og sem mest jafnræði á milli lántakenda. Svigrúm lánastofnana er enn- fremur mismikið til einhverra af- skrifta. Efnahagsreikningur Íslands- banka og Nýja Kaupþings liggja fyrir og þar er svigrúmið sagt meira en t.d. hjá Landsbankanum. Þá er samsetn- ing lána mismunandi eftir stofnunum þar sem t.d. engin myntkörfulán hafa verið í boði hjá Íbúðalánasjóði og van- skil ekki eins mikil og hjá bönkunum, þar sem hærri lán voru einnig veitt. Hermann Björnsson, fram- kvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Nýja Kaupþings, segir bankann ekki hafa ákveðið sambærilega leið og Ís- landsbanki, að lækka höfuðstól lána og breyta gengistryggðum erlendum íbúðalánum í óverðtryggð krónulán. Íslandsbanki hafi heldur ekki lagt öll spilin á borðið og margt óljóst ennþá. Þessi mál séu hins vegar til stöðugrar skoðunar innan bankans en Kaup- þing kynnti fyrr í sumar svonefnda skuldaaðlögun, þar sem viðskipta- vinum er boðið að greiða af íbúða- lánum samkvæmt greiðslugetu. Til slíkra sértækra aðgerða geti bankinn gripið en það sé á forræði stjórnvalda en ekki bankanna að ákveða almenn- ar niðurfærslur á skuldum fólks. Það sé ekki verkefni lánastofnana að fara í samkeppni um úrræði vegna greiðsluerfiðleika fólks. Í skuldaaðlögun Kaupþings eru umfram-upphæðir settar á biðlán og Hermann bendir á að umræðan hafi í kjölfarið þróast út í heimildir fyrir einhvers konar afskriftir. „Við fögn- um því, það hefur alltaf verið skoðun okkar að þörf sé á afskriftum. Það er þá byggt á sértækum aðgerðum. Við köllum eftir skýrari sýn, hún er eðli- lega í mótun hjá bæði bönkum og stjórnvöldum. Viðskiptavinir okkar eru eðlilega hugsi yfir stöðu mála og mikilvægt að þeir fái fastara land undir fætur,“ segir Hermann. Aðspurður segir hann mikið hafa verið spurt um skuldaaðlögun Kaup- þings en tvennt hafi dregið úr þeirri eftirspurn; annars vegar gengi krón- unnar og hins vegar sú staðreynd að lántakendur bíði margir hverjir eftir einhverjum almennum aðgerðum, sem ekki sé von ef marka megi um- mæli félags- og fjármálaráðherra. Skuldaaðlögun til skoðunar Hjá Landsbankanum fengust þau svör að skuldaaðlögun væri til skoð- unar innan bankans en ekkert nánar gefið upp að sinni eða hvort farin yrði svipuð leið og Íslandsbanki hefur kynnt. Landsbankinn kynnti í vor óverð- tryggð íbúðalán sem valkost fyrir þá viðskiptavini með erlend lán sem vildu losna undan gengisáhættu og töldu að óverðtryggðir vextir myndu lækka. Vaxtakjör á þessum lánum eru nú 9,5% en boðið er upp á greiðsluaðlögun fram í maí 2011. Til þess tíma greiða lántakar ekki af- borganir af höfuðstól og að hámarki 7% vexti. Mismunurinn á óverð- tryggðum íbúðalánavöxtum Lands- bankans og greiddum vöxtum kemur síðan til hækkunar á höfuðstóli láns- ins og greiðist niður á afborgunar- tímabilinu. Hjá Landsbankanum fengust þau svör að mikill áhugi hafi verið fyrir þessum lánum. Þar sem gengi krón- unnar hafi lækkað síðan í apríl hafi þeir aðilar sem skuldbreyttu erlendu láni yfir í óverðtryggt lán notið góðs af þeirri þróun. Kallað eftir samræmi  Kaupþing og Landsbankinn ekki ákveðið að fara sömu leið og Íslandsbanki en segja skuldaaðlögun vera til skoðunar  Svigrúm bankanna talið vera mismikið                Lánastofnanir kalla eftir sam- ræmdum aðgerðum og skýrri stefnu frá stjórnvöldum ef fella á niður íbúðarlánaskuldir. Gæta þurfi jafnræðis á milli lántakenda. Íbúðalánin lækkuð Hve mörg lán eru í umferð? Þau skipta tugþúsundum og fjölg- aði hratt á síðustu árum. Hjá Íbúða- lánasjóði eru lántakendur ríflega 49 þúsund og fjöldi lána ríflega 93 þús- und. Hjá bönkum og sparisjóðum eru lánin um 40 þúsund talsins en ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um fjölda lántakenda hjá lífeyrissjóð- unum. Hverjar eru skuldir og eignir? Talið er að útistandandi íbúðalán séu um 1.400 milljarðar króna en mesta óvissan er hjá bönkunum. Fyrir hrunið stóðu íbúðalán þeirra í nærri 500 millj- örðum kr. en hafa hækkað síðan. Hjá Íbúðalánasjóði nema lánin um 650 ma. kr. og í lok júní sl. var upphæðin 170 ma. kr. hjá lífeyrissjóðum. Heildareignir fólks í fasteignum eru um 2.400 milljarðar. S&S GUÐJÓN Rún- arsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka fjár- málafyrirtækja, segir að allt frá bankahruninu hafi samtökin unnið með stjórnvöldum og bönkunum um samræmingu að- gerða vegna greiðsluerfiðleika fólks. Einstök fjármálafyrirtæki hafi verið að þróa ýmsar lausnir fyrir sína viðskiptavini. „Félagsmálaráðherra hefur verið að ræða um afskriftir af töpuðum útlánum. Það hljóta að þurfa að vera einhver samræmd viðmið sem menn koma sér saman um til að vinna eftir,“ segir Guðjón og reikn- ar með að nefndin sem félagsmála- ráðherra skipaði til að fara yfir úr- ræði skuldara muni skoða málið í samhengi og eiga góða samvinnu við fjármálafyrirtækin. Það sé hag- ur allra aðila að halda greiðslum í skilum og vinna sameiginlega að einhverjum lausnum. Koma sér saman um samræmt viðmið Guðjón Rúnarsson GYLFI Magnús- son viðskipta- ráðherra segir það jákvætt ef bankarnir taka frumkvæði í að kynna nýjar lausnir fyrir fólk í greiðsluerfið- leikum. Stjórn- völd styðji eftir megni slíka viðleitni og geti með ýmsum hætti liðkað til fyrir nýjum úrræðum. Öll úrræði verði þó á ábyrgð fyrirtækjanna og byggjast á viðskiptalegum forsendum. „Bankarnir standa frammi fyrir því að þeir eru með talsvert af út- lánum sem ekki verða endurgreidd að fullu, bæði hjá fyrirtækjum og heimilum, og þeir verða að vinna úr því. Samningar geta þá falið í sér einhverja niðurfellingu skulda en gæta verður jafnræðis að því marki sem hægt er. Það verða að vera gegnsæjar og opinberar reglur þannig að fólki sé ekki mismunað á bakvið tjöldin,“ segir Gylfi og bend- ir á að staða lántakenda sé mismun- andi eftir lánastofnunum. Verst sé staðan hjá bönkunum. Má ekki mismuna fólki bakvið tjöldin Gylfi Magnússon ÞÓRÐUR Björn Sigurðsson, for- maður Hags- munasamtaka heimilanna, segir það jákvætt að umræðan um íbúðalán og greiðsluvanda heimilanna snúist ekki lengur um hvort grípa eigi til einhverra aðgerða heldur hvern- ig skuli gera það. Fagnar hann áformum Íslandsbanka og annarra banka, sem velta fyrir sér einhvers konar leiðréttingum á lánum. Það sé hins vegar umhugsunarvert að færa lánin yfir í óverðtryggðar krónur, þá komi upp spurning um vaxta- kjörin. Hagsmunasamtök heimil- anna hafi bent á þann möguleika að halda verðtryggingarákvæðinu inni og miða við 1. janúar árið 2008. „Forsendubrestur hefur orðið í öllum lánasamningum og því ber að leiðrétta öll lán, ekki bara sum. Við teljum ekki forsvaranlegt að bara annar aðilinn í lánasamningum taki á sig áhættu af þróun gengis og verðbólgu,“ segir Þórður. Ekki lengur hvort heldur hvernig Þórður Björn Sigurðsson DANSKIR við- skiptabankar eru margir hverjir farnir að bjóða viðskiptavinum sínum að greiða aðeins vexti af húsnæðislánum til næstu tíu ára. Áður hefur fólki í greiðsluerfiðleikum boðist þetta til fjögurra ára í senn. Höfuðstóll lánanna helst þá óbreyttur þar sem verðtrygging lána tíðkast ekki í Danmörku líkt og hér og vextir af lánum eru ennfremur mun lægri. Vilja dönsku bankarnir með þess- um nýju leiðum koma til móts við þá sem eiga í greiðsluvanda eða eru líklegir til að lenda í erfiðleikum. Dönum boðið að greiða bara vextina „VIÐ fylgjum straumnum og erum aðilar að þeim samstarfs- samningum sem gerðir hafa verið í kjölfar banka- hrunsins, eins og varðandi greiðslu- aðlögun,“ segir Hrafn Magnús- son, framkvæmdastjóri Lands- samtaka lífeyrissjóða, og veit ekki til þess að nokkur umræða hafi far- ið fram innan lífeyrissjóða um lækkun höfuðstóls íbúðalána. Hrafn segir lítið hafa borið á vanskilum með íbúðalán sjóðfélaga, enda eng- in gengistryggð lán í boði, en til- mælum hafi verið beint til lífeyris- sjóða um hvernig taka eigi á málum ef upp koma greiðsluerfiðleikar. Boðið hafi verið upp á lengingu lánstímans og frystingu á greiðsl- um og töluvert margir nýtt sér það. „Við munum hins vegar skoða þessi mál aftur núna í haust og bera sam- an bækur okkar,“ segir Hrafn. Lífeyrissjóðirnir fylgja straumnum Hrafn Magnússon SKULDSETNING íslenskra heim- ila er með því mesta sem þekkist meðal þróaðra ríkja, nánast sama við hvað er miðað. Sem hlutfall af ráðstöfunartekjum eru skuldirnar einnig miklar en samkvæmt upplýs- ingum frá Seðlabankanum er ríflega helmingur heimila með húsnæð- isskuldir sem nema innan við þre- földum ráðstöfunartekjum þeirra á ári. Fjórðungur heimila er með skuldir yfir 500% af árstekjum en dreifingin sést nánar hér til hliðar. Seðlabankinn telur greiðslubyrði lána hins vegar vera viðráðanlega fyrir flesta. Um 77% heimila verja innan við 40% tekna í afborganir íbúða-, bíla- og yfirdráttarlána. Gríðarleg skuldsetning íslenskra fasteignaeigenda              !" # $ " "% &  #  # & % "    '  "  &"( )        *"$+,"  ( % -# %$# Fjórðungur heimila með íbúðarskuldir yfir 500% af tekjum 15

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.