Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 22

Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 22
ÞEIRRAR til- hneigingar gætir æ meira í almennri um- ræðu að leggja að jöfnu vísindaleg rök og þekkingu annars vegar og rökleysu, kukl, hjátrú, hjávís- indi, sögusagnir og óljósa fortíðardýrkun hins vegar. Þrösk- uldur fjölmiðla gagn- vart óvísindalegu efni er lágur og umræðan magn- ast upp á spjall- og bloggsíðum, í spjallþáttum ljósvakamiðla og í svokölluðum lífsstílstímaritum. Alvarlegt dæmi um þetta er umræða um ímynduð tengsl ein- hverfu og bólusetninga sem alltaf skýtur öðru hverju upp kollinum hér á landi. Ábyrgð þeirra sem halda þessari umræðu á lofti er mikil, því foreldrar sem láta blekkjast og láta ekki bólusetja börnin sín, leggja líf barnanna sinna og annarra í hættu. Bólusetningar valda ekki einhverfu Einn af hverjum fjórum Banda- ríkjamönnum telur að bólusetn- ingar geti valdið einhverfu. Talið er að rekja megi mislingafaraldur í Bandaríkjunum árið 2008 til þess hversu margir ákveða að láta ekki bólusetja börnin. Hettu- sótt og kíghósti hafa einnig sótt í sig veðrið af sömu ástæðu. Allt frá þeim tíma þegar þessi um- ræða kom fyrst upp, fyrir um tíu árum, hafa farið fram umfangs- miklar rannsóknir til að kanna hvort bólusetningar geti mögu- lega orsakað einhverfu. Engar vísindalegar niðurstöður benda til þess. Hins vegar sýna fjöl- margar rannsóknir að bólusetn- ingar vernda börn gegn lífs- hættulegum sjúkdómum. En þrátt fyrir að virtar vís- indastofnanir hafi sent frá sér yfirlýs- ingar um að bólu- setningar valdi ekki einhverfu, lifir um- ræðan góðu lífi í samfélaginu, meðal annars í fjölmiðlum og netheimum. Sjálfskipaðir sér- fræðingar um erfðabreytt bygg Annað dæmi um hversu afvega umræða um vísindaleg málefni á það til að fara, er umræða um ræktun á erfðabreyttu byggi hér á landi í vor. Þar var enginn skortur á sjálfskipuðum sérfræð- ingum sem vöruðu almenning við þeirri stórkostlegu hættu sem fælist í því að „sleppa erfða- breyttum lífverum í íslenskri náttúru“. Í fjölmiðlum var það áberandi að vísindaleg og tilfinn- ingaleg sjónarmið voru lögð að jöfnu. Sjálfskipuðum sérfræð- ingum var gefið sama vægi og raunverulegum vísindamönnum á þessu sviði. Þannig tókst um tíma að sá fræjum efasemda meðal al- mennings, þó engin raunveruleg hætta sé fólgin í því að rækta erfðabreytt bygg á Íslandi, hvorki fyrir umhverfið né menn. Þessi umræða hefur nú leitt til þess að óprúttnir einstaklingar hafa eyðilagt mikilvæga tilraun- aræktun nýsköpunarfyrirtækisins ORF Líftækni í Gunnarsholti. Það er mikið áhyggjuefni fyrir ís- Eftir Eirík Sigurðsson »Hins vegar sýna fjöl- margar rannsóknir að bólusetningar vernda börn gegn lífshættu- legum sjúkdómum. Eiríkur Sigurðsson Lítið gert úr vísindum 22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 Ítarleg umfjöllun um EM 2009 í Morgunblaðinu Við höldum með stelpunum okkar HIN NÝJA staða sem er komin uppi í Icesave-málinu hefur opnað möguleika á að fara aðrar leiðir í þessu hagsmunamáli þjóðarinnar. Enn- fremur hefur komið fram við þá rækilegu umfjöllun sem málið hefur hlotið að þeir tveir kostir sem hafa verið í stöðunni, nefnilega að sam- þykkja eða fella samninginn, eru báðir ófærir. Ef við borgum ekki Icesave þá fæst ekki lánsfé inn í landið og engin fyrirtæki geta end- urfjármagnað sig og fara þar með á hausinn, t.d. Landsvirkjun. Hinn kosturinn er að skrifa undir Ice- save- samningana (óbreytta), en þá er aldeilis óvíst að nokkurn tímann verði hægt að vinna fyrir vöxtum af erlendum lánum þjóðarinnar, og jafnvel þótt svo ólíklega vildi til að það tækist að skrapa saman nægi- lega margar íslenskar krónur í landinu þá myndi krónan hríðfalla þegar reynt yrði að skipta henni í stórum stíl út fyrir gjaldeyri til þess að greiða afborganir og vexti. Semsé tvær ófærar leiðir. Sem betur fer er til ágæt þriðja leið sem verður rakin hér. Íslenskir bankamenn höfðu heljartök á ís- lensku samfélagi, þeir stjórnuðu upplýsingaflæðinu til fólksins gegn- um fjölmiðla sína, höfðu áhrif á há- skólasamfélagið, stjórnmálaflokka og allar lýðræðisstofnanir sam- félagsins. Íslendingar sættu sig við að borga langhæstu vexti í heimi, kaupa ónýt hlutabréf og síðar að borga tapið fyrir bankana. Íslenskir bankamenn fóru jafn illa með breskan almúga, tóku sparifé hans og notuðu til eigin þarfa. Íslenskur almenningur er á nákvæmlega sama báti og breskur, deilan ætti að standa milli samein- aðs íslensks og bresks almennings gegn ís- lenskum bankamönn- um. Samt hefur tekist að etja íslenskum al- múga gegn breskum í þessari deilu og ís- lensku bankaeigend- urnir sitja stikkfríir í áhorfendastúkunum og horfa á slagsmálin, í boði alþingis. Í hvað fór féð af Ice- save reikningunum? Jú, í lán til eig- enda bankanna, lán til tengdra að- ila, til áhættufjárfestinga, til þess að fjármagna sölu á gjaldþrota fyr- irtækjum eigenda bankanna, í arð- greiðslur í eigin vasa, einkaþotur, bónusgreiðslur, ofurlaun o.s.fr. Ice- save-málið ætti að snúast um að endurheimta þetta illa fengna fé Forstjóri FME benti nýlega á að þótt „útrásin“ væri augljóslega svindlbóla þá myndi taka óheyri- legan tíma að fara í gegnum mál bankanna, það skortir aðstöðu, mannafla, fé, reynslu, tíma o.s.fr. Íslenskt réttarkerfi og embættis- mannakerfi mun aldrei geta leitt þetta mál til lykta við núverandi að- stæður. Hvað er þá til ráða? Svarið er að draga ekki lappirnar við að setja sanngjörn og réttlát lög og skattareglur. Reyna ætti að ná samningum við Breta um eftirfar- andi tvöföldu leið: Breskir aðilar koma með mannafla og þekkingu til þess að rannsaka viðskipti Lands- bankans. Allar færslur sem ljóst mátti vera að ykju skuldastöðu bankans (og þar með íslensks al- mennings) verða látnar ganga til baka, þannig verður féð endurheimt úr félögum fyrri eigenda Lands- bankans og notað upp í Icesave- greiðslur. Með mannafla frá Bret- um væri kannske hægt að ná þessu til baka í núverandi lagaumhverfi, en ef það reynist ógerlegt þá þyrfti að styðja við málið með sanngjarni löggjöf sem einfaldar og flýtir máls- meðferð. Hinn armurinn er að allt íslenskt fé sem Bretar geta leitað uppi á Bresku Jómfrúaeyjunum og öðrum skattaskjólum verði lagt í pott. Samtímis setja Íslendingar löggjöf um að fyrirtæki sem hafa þurft að fá aðstoð frá ríkissjóði, eða skuldir þeirra gjaldfallið á ríkið (t.d. gegn- um bankana) eigi að endurgreiða útgreiddan arð fyrri ára. Enn- fremur verði lagður 95% skattur á arð af skortstöðutöku gegn íslensku krónunni. Þannig (og með öðrum ráðum sem of langt mál yrði að rekja hér) myndi mest allt fé í pott- inum endurheimtast og hægt að nota til að niðurgreiða Icesave. Þess má geta að arðgreiðslu nú gjaldþrota fyrirtækja og hagnaður af skortstöðu gegn krónunni hafa numið margföldum skuldbindingum Icesave. Það gekk hratt og snurðulaust að breyta landslögum þannig að af- henda mátti fáeinum einkaaðilum alla sameign íslensku þjóðarinnar, hvers vegna er svona miklu erfiðara að breyta lögunum í hina áttina til þess að endurheimta illa fengið fé? Lagasetning er ekkert annað en að færa í orð það sem endurspeglar réttlætiskennd þjóðar. Það er sífellt verið að lagfæra lög og aðlaga þau nýjum veruleika, það væri í hæsta máta óeðlilegt að hinar algerlega nýju aðstæður sem nú eru komnar upp krefðust ekki nýrra lagasetn- inga. Kosturinn við þessa aðferð, fyrir utan að hún er ódýrust, er að á þennan hátt myndum við end- urheimta orðspor okkar erlendis, því nágrannaþjóðir okkar horfa agndofa á að Íslendingar virðast ekki ætla í neitt uppgjör við ger- endur bankahrunsins. Eftir Andrés Magnússon » Íslenskur og breskur almúgi er á sama báti, Icesave-deilan ætti að standa milli sameinaðs íslensks- og bresks al- mennings gegn íslensk- um bankamönnum. Andrés Magnússon Höfundur er læknir. Hin eðlilega leið í Icesave- málinu KÆRI herra fjár- málaráðherra, Stein- grímur Jóhann Sig- fússon. Um þessar mundir hefur þú gegnt starfi fjár- málaráðherra í rúma átta mánuði og ættir því að vera orðinn flestum hnútum kunnugur í starfinu. Þar að auki ert þú eldri en tveggja vetra í íslenskum stjórnmálum og hefur því haft tækifæri til að kynna þér málin betur en hinn almenni Íslendingur. Þann tíma sem þú varst í stjórn- arandstöðu hafðir þú sterkar skoð- anir á flestum hlutum og fórst ekki leynt með þær. Ég hef ekki ástæðu til að ætla að þessar skoðanir þínar hafi farið neitt, en hins vegar fer minna fyrir opinberum lýsingum þínum á þeim, sem mér þykir miður. Eftir fjármálahrunið sem varð hér í fyrrahaust, og raunar þar á undan líka, tjáðir þú þig gjarnan um nauðsyn gegnsæis og góðs sið- ferðis í íslensku viðskiptalífi. Þinn stjórnmálaflokkur, VG, hefur einn- ig rækilega minnt á þetta í gegn- um tíðina. Þið Jóhanna lögðuð mikla áherslu á það við myndun rík- isstjórnarinnar að endurreisn Ís- lands yrði gerð uppi á borðum og horft væri til gegnsæis og upplýs- inga til almennings (þú leiðréttir mig ef ég fer rangt með). Ég vil einnig minna hér á öll þau orð sem þú og þínir samflokksmenn höfðuð um það sem þið kallið gjarnan „einkavinavæðingu“ á árunum í kringum síðust aldamót. Ég vil hafa það alveg á hreinu hér að ég er að rifja þetta upp þér til hróss og til að undirstrika væntingar mínar til þín, sem ég deili örugg- lega með mörgum öðrum. Það sem fær mig til að skrifa þetta bréf til þín og setja niður þennan formála er það sem mig grunar að sé að gerast í íslensku viðskiptalífi í dag. Mér sýnist á öllu, og flest það sem ég hef heyrt staðfestir grun minn, að nú sé í gangi eitt mesta spillingarskeið í viðskiptalífinu frá upphafi. Margt er keimlíkt því sem gerðist í Rúss- landi eftir hrun kommúnismans. Ég leyfi mér að halda því fram að „einkavinavæðingin“ svokallaða sé sem léleg upphitun fyrir það sem nú er í gangi. Í dag sitja örfáir einstaklingar að kjötkötlunum og maka krókinn fyrir sig og sína. Um er að ræða skilanefndirnar og stjórnendur nýju bankanna, sem voru líka flestir stjórnendur gömlu bankanna. Bankarnir hafa alla þræði í viðskiptalífinu og ráða því algerlega hvaða fyrirtæki lifa, hver deyja og hvernig. Þeir ráða því líka hverjir eiga, hverjir mega eiga og hverjir ekki. Bankarnir hafa verið að leysa til sín fyrirtæki og setja sína menn í stjórnir, stund- um sömu aðilana og stýrðu útlán- unum til þeirra nokkrum miss- erum áður að því er virðist. Oft hefur í gegnum tíðina verið rætt um kennitöluflakk en slíkt flakk er stundað í dag af mikilli ástríðu að því er virðist. Á sama tíma erum við alveg hlessa á því að kröfuhaf- ar skuli vera pirraðir. Þú sem fjár- málaráðherra og handhafi allra hlutabréfanna í bönkunum ert lyk- ilmaður í endurreisninni og þeim siðferðisgildum sem mótuð eru til framtíðar. Ég vil setja hér fram nokkrar spurningar sem ég tel mig og þjóðina eiga rétt á að fá svör við. Ég vonast eftir skjótum svör- um og þess verður sérstaklega gætt að spyrja ekki spurninga sem geta fallið undir hina margrómuðu bankaleynd, ekki viljum við fá á okkur lögbann. Hversu mörg fyrirtæki hafa rík- isbankarnir leyst til sín? Ég er ekki að spyrja um efnahag né inni- stæður þessara fyrirtækja heldur bara fjölda (engin bankaleynd yfir því). Hver eru þessi fyrirtæki sem bankarnir eiga? Eru þau til sölu og ef svo er, hvar fær maður upp- lýsingar um verðmiða og slíkt? Það eru allir sammála um það, jafnvel vinstrimenn, að ríkið ætlar ekki að vera í miklum rekstri á markaði. Að þeim fyrirtækjum undanskildum sem bankarnir hafa leyst til sín, í hversu mörgum fyr- irtækjum eru fulltrúar bankanna komnir inn eða í stjórnir? Spyr Opið bréf til fjármálaráðherra Eftir Bjarna Benediktsson Bjarni Benediktsson »Eftir fjármálahrunið sem varð hér í fyrra- haust, og raunar þar á undan líka, var gjarnan rætt um nauðsyn gegnsæis og góðs sið- ferðis í viðskiptalífinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.