Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 33
Dagbók 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Sudoku
Frumstig
1 4
9 2
2 4 8
3 9 2
5 1 6
6 4 8
6 1
1 9 7
8 3 2
1
4 8 3
9 5 7
6
6 7 4 1
8 2
7 8 9
3 1 6 2 7
4 2
6 2
3 4
7 8 9
3 1 6
9 5 4
7 6 9
3 6
9 8 4
7 1 8
6 7 4 5 3 9 1 2 8
1 9 8 2 4 7 5 6 3
5 2 3 1 6 8 9 4 7
4 3 7 9 2 1 6 8 5
9 5 6 3 8 4 7 1 2
2 8 1 7 5 6 3 9 4
7 4 2 6 1 5 8 3 9
3 6 9 8 7 2 4 5 1
8 1 5 4 9 3 2 7 6
4 9 2 1 7 3 8 6 5
8 3 5 2 9 6 4 7 1
7 1 6 4 8 5 9 3 2
1 5 4 9 6 7 3 2 8
2 6 9 3 4 8 1 5 7
3 8 7 5 1 2 6 4 9
5 4 1 7 3 9 2 8 6
6 2 3 8 5 1 7 9 4
9 7 8 6 2 4 5 1 3
3 5 2 8 9 6 7 4 1
9 4 6 3 1 7 2 5 8
8 7 1 4 5 2 9 6 3
1 3 4 2 7 8 6 9 5
7 9 5 6 4 1 8 3 2
2 6 8 9 3 5 4 1 7
4 2 9 5 8 3 1 7 6
5 8 7 1 6 9 3 2 4
6 1 3 7 2 4 5 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 27. ágúst,
239. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik
en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyr-
ir vini sína. (Jh. 15, 13.)
Stóra brennivínsmálið á Alþingihefur valdið Víkverja hugar-
angri fyrir margra hluta sakir. Sig-
mundur Ernir Rúnarsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, var sakaður
um ósæmilega framkomu á Alþingi.
Sagður hafa mætt drukkinn til um-
ræðna eftir boð hjá MP-banka. Boðið
er reyndar kafli út af fyrir sig.
x x x
Víkverji er fyrst og fremst hissa áSigmundi Erni. Eftir grjót-
harða neitun sá hann að sér, við-
urkenndi mistök og baðst velvirð-
ingar á dómgreindarbresti sínum.
Sagðist hafa smakkað það en ekki
fundið til áhrifa mjaðarins. Um áhrif-
in dæmir þingmaðurinn sjálfur.
x x x
Hvers vegna þingmaður en um-fram allt þaulreyndur fjöl-
miðlamaður, sem Sigmundur Ernir
er, kýs að grípa til lyginnar undir
þessum kringumstæðum, er Víkverja
hulin ráðgáta. Sigmundur Ernir er
maður að meiri að hafa á endanum
séð að sér en Víkverji sá ekki að fram
kæmi afsökunarbeiðni vegna lyg-
innar. Hann sagði þjóðinni ósatt. Það
er miður og traustið trosnað.
x x x
Víkverji rifjaði í fljótheitum uppfjölmörg mál sem snerta dóm-
greindarbrest stjórnmálamanna fyrr
og nú. Ef þröngt er skoðað og mörkin
dregin við feilspor í dansinum við
Bakkus kemur tylft manna upp í
hugann. Sumir sluppu með skrekk-
inn, aðrir fyrir horn með mála-
myndaathygli fjölmiðla og enn aðrir
sættu ábyrgð, misstu jafnvel stöðu
sína.
Það breytir þó engu um gjörðir
Sigmundar Ernis og hvorki fegrar
stöðu hans né bætir.
x x x
Eftir hrunið mikla í fyrrahausthafa stjórnmálamenn, ekki síst
flokkur Sigmundar Ernis, tíðum tal-
að um hið nýja Ísland, þar á meðal
um heiðarleika. Þó kann að vera að
Víkverja hafi bara dreymt þessa um-
ræðu eftir eitt rauðvínsglös eða tvö.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 reiðilegt á
svip, 8 legill, 9 hlunn-
indin, 10 fugls, 11 nirfill,
13 skrika til, 15 tappa-
gat, 18 reif, 21 kriki, 22
lokka, 23 lítill bátur, 24
jarðaði.
Lóðrétt | 2 horskur, 3
falla í dropum, 4 ótti, 5
guðirnir, 6 hugarfar, 7
elska, 12 ætt, 14 bók-
stafur, 15 fokka, 16 eld-
stæði, 17 beitti þjöl, 18
glyrna, 19 styrkið, 20
spilið.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 yrkja, 4 falsa, 7 japla, 8 risar, 9 rúm, 11 rýrt,
13 knár, 14 ýlfur, 15 skýr, 17 ókum, 20 err, 22 pausi, 23
öldur, 24 róaði, 25 geiga.
Lóðrétt: 1 yljar, 2 kopar, 3 apar, 4 form, 5 lasin, 6 aurar,
10 úlfur, 12 Týr, 13 kró, 15 sýpur, 16 ýsuna, 18 koddi, 19
merja, 20 eimi, 21 röng.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. c4 d5 4. Rc3
Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 c5 7. dxc5 Bxc5
8. Dc2 Rc6 9. a3 Da5 10. Rd2 Bb4 11.
cxd5 exd5 12. Bd3 d4 13. O-O Bxc3
14. Rc4 Dh5 15. bxc3 dxe3 16. Rxe3
Bd7 17. Hfd1 Re7 18. c4 Bc6 19. Bg3
Hfe8 20. He1 Had8 21. c5 Hd4 22.
Rc4 Dd5 23. Re3 Dh5 24. Had1 Be4
25. Bxe4 Hxe4 26. Rc4 Rc6 27. Hxe4
Rxe4 28. Rd6 Hd8 29. He1 Rxc5
Staðan kom upp á alþjóðlegri
skákhátíð sem lauk fyrir skömmu í
Kaupmannahöfn í Danmörku. Ísra-
elski stórmeistarinn Boris Avrukh
(2.641) hafði svart gegn norska koll-
ega sínum Jon Ludvig Hammer
(2.583). 30. Rxb7! Rxb7 31. Dxc6 Dd1
32. f3 Ra5 33. Db5 Dd4+ 34. Bf2 og
svartur gafst upp enda getur hann
ekki bæði varist máti og haldið í ridd-
arann á a5.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gamalt og nýtt.
Norður
♠D984
♥76
♦Á
♣976432
Vestur Austur
♠G1075 ♠K2
♥G2 ♥109854
♦DG1093 ♦842
♣D10 ♣KG5
Suður
♠Á63
♥ÁKD3
♦K765
♣Á8
Suður spilar 3G.
Í ellinni virðist allt vera endurtekið
efni og það á ekki síst við um gam-
alreynda bridsmenn, sem lengi hafa
setið undir spilasólinni. „Ég hef séð
þetta áður – oft áður,“ segja þeir
þunglyndislega og láta sig dreyma um
fyrsta skvísinn, eins og aðrir rifja upp
fyrsta kossinn. En einstaka sinnum
gerist eitthvað nýtt og þá lifnar sálin
við. Hvernig á að spila 3G með ♦D
út?
Ekkert nema kraftaverk í spaða-
litnum getur bjargað spilinu. Legan
sem þarf er kóngur annar í austur
(eða blankur). Spaðaníunni er spilað
úr borði og henni rennt til vesturs.
Síðar meir fellir ásinn kónginn og loks
er áttunni svínað. Þetta skilar þremur
slögum á litinn og níu alls, eins til var
stofnað.
Hafðirðu séð þetta áður?
Stjörnuspá
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Metnaður þinn er minni en
venjulega og þú finnur fyrir þreytu.
Allt sem þú hefur valið til þessa, leiddi
þig að þessum tímapunkti.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hæfileikar þínir til hugsanaflutn-
ings eru í hámarki. En það sem skilur
að er óljósi þátturinn sem þarf til þess
að geta náð árangri. Gættu þín.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú er að velta fyrir þér leið-
um til að bæta heilsu þína og líkamlegt
atgervi. En enginn getur gert allt
einn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Fjárhagsleg atriði verða
skyndilega mun eftirsóknarverðari í
þínum augum. Notaðu eigin dómgreind
og fylgdu hjarta þínu er taka þarf
ákvörðun.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Gættu þess að sjálfselskan grípi
þig ekki svo að þú sýnir samstarfs-
mönnum þínum tillitsleysi. Gerðu þér
far um að ræða við fólk, því það mun
njóta þess sem þú segir.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Mundu að oft er skammt á milli
hláturs og gráts. Þér mun farnast vel í
viðræðum sem þú getur þurft að eiga
við embættismenn og forstjóra í dag.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þetta er góður dagur til þess að
kaupa eitthvað fyrir heimilið, ann-
aðhvort hannyrðir eða hreinlætisvörur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það eru ýmsar spurningar
á sveimi í kollinum á þér. Mundu að
maki þinn á ekki síður kröfur á þig en
þú á hann.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þér finnst álagið í vinnunni
vera orðið fullmikið. Samræður við
nána vini og maka rugla þig bara í
ríminu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er dásamlegt að hafa
duttlungafulla áhrifavalda í lífinu.
Segðu öðrum að þú viljir hugsa málin
vandlega áður en þú tekur ákvörðun.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú átt auðvelt með að láta
aðra halda að þú hafir ráð undir rifi
hverju, hvort sem það er rétt eða
rangt. Nú er tími fyrir þolinmæði sem
leyfir litlum fræjum að vaxa.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér hefur tekist að verða hluti
af aðstæðum sem þig dreymdi mikið
um að komast í. Ekki fara ófögrum
orðum um náungann.
27. ágúst 1994
Kvikmyndin Bíódagar eftir
Friðrik Þór Friðriksson hlaut
norrænu Amanda-kvikmynda-
verðlaunin. Hún var að mati
dómnefndar í senn þjóðleg og
alþjóðleg.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Sigríður Sí-
vertsdóttir
Hjelm, fyrrver-
andi sjúkraliði,
Hrísmóum 4,
Garðabæ,
verður sjötug
sunnudaginn
30. ágúst. Af
því tilefni
bjóða hún og
eiginmaður hennar, Bragi Eyjólfs-
son, ættingjum og vinum heim í
vöfflukaffi á afmælisdaginn á milli
kl. 15 og 17.
70 ára
Rebekka Rut Jónsdóttir, Lenaya
Rún Taha Karim og Arnaldur Leó
Þrastarson, heimsóttu Barnaspítala
Hringsins og færðu honum 10.000
krónur að gjöf, sem er ágóði af
tombóku sem þau héldu og pen-
ingar sem Rebekka fékk í afmælis-
gjöf og Lenya Rún gaf tannféð sitt.
Hlutavelta
„VIÐ fjölskyldan ætlum að hittast heima hjá
mömmu á Akranesi í súpu, kaffi og kökum,“ segir
Sigurbjörg Þrastardóttir, ljóðskáld og rithöf-
undur, sem fagnar 36 ára afmæli í dag. „Það er nú
einn mikilvægari afmælisdagur en minn í fjöl-
skyldunni í dag, því systurdóttir mín, Sigurbjörg
Helga, verður eins árs. Þetta verður því fyrsta af-
mælið okkar saman.“
Þær frænkur eru skírðar í höfuðið á sömu ömm-
unni. „En ég vil nú líka meina að hún sé að ein-
hverju leyti skírð eftir mér af því hún á þennan af-
mælisdag,“ segir Sigurbjörg hlæjandi.
Eftirminnilegasti afmælisdagur Sigurbjargar var sá þrítugasti en
þá var hún stödd á ljóðahátíð í Slóveníu. „Hátíðin er styrkt af vín-
bændum í héraðinu svo við gerðum lítið annað alla daga en að drekka
léttvín í vínkjöllurum, borða osta og lesa svo ljóð undir berum himni á
kvöldin,“ rifjar Sigurbjörg upp. Hún ætlaði sér að halda afmælinu
leyndu en það komst upp og var henni þá fært hunangsvín frá gest-
gjöfunum. „Það er ennþá uppáhalds áfengi drykkurinn minn.“
Sigurbjörg mun snúa aftur til Slóveníu nú á sunnudag til að lesa
ljóð. Það er spurning hvort hún finnur aftur hunangsvínið góða.
Sigurbjörg Þrastardóttir skáld er 36 ára í dag
Hunangsvínið heillar enn
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is