Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 35

Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 35
Menning 35FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009 Ljósmynd/Martin Bell Úrvalið sett upp Hannes Sigurðsson, forstöðumaður Listasafns Akureyrar, og Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari huga að uppsetningu sýningarinnar í gær og skoða gamla ljósmynd eftir Ólaf K. Magnússon. mínu á ljósmyndurum og vona að fólk velti fyrir sér hverja ég er að velja – á mínum persónulegu forsendum og míns fagurfræðilega mats,“ segir Einar Falur. Spurður hvort hann eigi sér uppá- haldsljósmyndara á sýningunni segir hann að erfitt sé að líta framhjá föður íslenskrar ljósmyndunar, Sigfúsi Ey- mundssyni. „Ég segi ekki annað en það að við ljósmyndarar á Íslandi er- um ennþá að reyna að ná honum. Sig- fús er mjög merkilegur ljósmyndari, brautryðjandi á mörgum sviðum og gríðarlega góður. Mikill listamaður.“ Ljósmyndarar með snilligáfu Einar Falur segir að þessir þrettán ljósmyndarar eigi það sameiginlegt að sköpunin hafi skipt þá miklu máli. „Það sem ég horfði á í vali mínu var að ljósmyndararnir hefðu eitthvað persónulegt til málanna að leggja sem aðrir höfðu ekki, listrænan streng, snilligáfu. Þetta er mjög ólík- ur hópur, tveir þeirra, Jón Kaldal og Sigríður Zoëga, voru t.d. hreinir stofuljósmyndarar. Eldri ljósmynd- ararnir lifðu á sínum stofum en ég vel myndir sem þeir tóku þegar þeir fóru út fyrir stofurnar.“ Í tengslum við sýninguna kemur út í vikunni bókin Úrvalið á íslensku og ensku. Í henni er úrval verka þessara þrettán ljómyndara með formála eftir Hannes Sigurðsson og ýtarlegri um- fjöllun Einars Fals um ljósmynd- arana og hugleiðingar hans um þá. Sýningin Úrvalið: íslenskar ljós- myndir 1866-2009 stendur til 18. október í Listasafni Akureyrar en heldur svo suður og verður opnuð í Hafnarborg í nóvember. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is LJÓSMYNDASÝNINGIN Úrvalið: íslenskar ljósmyndir 1866-2009 verður opnuð í Listasafni Akureyrar á laugardaginn. Þar verða til sýnis myndir eftir þrettán íslenska ljós- myndara sem Einar Falur Ingólfs- son ljósmyndari valdi. „Þegar Hannes Sigurðsson, for- stöðumaður Listasafnsins á Akur- eyri, hafði samband við mig og bauð mér að setja saman yfirlitssýningu yfir íslenska ljósmyndun langaði mig að velja þá ljósmyndara sem væru tvímælalaust í íslenska landsliðinu í ljósmyndun og í landsliðinu eru að- eins þeir bestu. Ég vildi setja smá- leik í valið en um leið vera grafalvar- legur og byggja bæði á mínum persónulega smekk og þekkingu á ljósmyndasögunni,“ segir Einar Fal- ur um val sitt á sýninguna. Fáar konur fæddar fyrir 1960 „Ég fer yfir alla söguna en gaf mér þó þann ramma að velja ekki ljósmyndara fædda eftir 1960 til að þeir hefðu a.m.k. aldarfjórðungs starfsreynslu. Sýningin byggist á fólki sem hefur gert ljósmyndun að ævistarfi. Fæð kvenna í stéttinni þótti mér mjög erfið en konur fyrri tíma hættu nánast undantekningar- laust í faginu þegar þær eignuðust börn og gengu í hjónaband. Undan- tekningarnar eru þó tvær sem ég vel á sýninguna, Nicoline Weywadt og Sigríður Zoëga, en hvorug þeirra gekk í hjónaband. Ég stend og fell með þessu vali Einar Falur Ingólfsson valdi úrval íslenskra ljósmynda fyrir sýningu í Listasafninu á Akureyri Ljósmyndari að ævistarfi Úrvalið Aðalstræti í Reykjavík um 1874 eftir Sigfús Eymundsson. ÞORVALDUR Þorsteins- son myndlistarmaður og rithöfundur heldur fyrir- lestur í kvöld kl. 20 í Lista- safni Reykjavíkur, Hafn- arhúsi. Hann leggur út af mynd á sýningu Errós í safninu. Myndin, Trafalgar 1805, sem Erró málaði árið 1977, sýnir Nelson flotafor- ingja og dauða hans við Trafalgar. Í fyrirlestrinum hugleiðir Þorvaldur sönnunargildi blekkingar- innar, jafnt í verkum sem veruleika Errós. Í dagskránni styðst hann við margvíslega miðla í síðbúinni leit að sannleikanum. Myndlist Þorvaldur og Erró á Trafalgar Þorvaldur Þorsteinsson DÓRA Árna opnaði mynd- listasýninguna mín sýn á Menningarnótt í listasaln- um Iðuhúsinu í Lækj- argötu. Dóra útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands árið 2002 og starfar ein- göngu að listsköpun. Þetta er fimmta einkasýning hennar. Um sýninguna seg- ir Dóra: ,,Hugurinn fangar augnablikið. Skynjunin skapar tilfinningu sem nær að festa rætur. Á réttum tíma er upplif- unin sótt og endursköpuð í raunveruleikann. Landið, alls staðar og hvergi: mín sýn.“ Sýningin er opin alla daga kl. 9-22 til 3. sept. Myndlist Sýn Dóru Árna á sýningu í Iðuhúsi Dóra Árna KJALLARI Norræna hússins verð- ur undirlagður af bókum, bókakaffi, bókaspjalli og lifandi bókmenntum á Bókmenntahátíð í Reykjavík, sem hefst sunnudaginn 6. september. „Þetta verður eins konar bókaklúbb- ur hátíðarinnar,“ segir Óttar Proppé, einn stjórnenda hátíðar- innar. Lifandi dagskrá verður í aðalsal Norræna hússins alla daga hátíðar- innar frá hádegi, og verður klúbbur- inn viðbót við hana og opinn frá kl. 13-17 alla dagana. Þar verður kaffi- sala, sýning á bókum hátíðarskáld- anna, ljósmyndasýning og bóksala. Skipulögð skáldadagskrá Þarna geta bókaunnendur hist og spjallað yfir kaffisopa um bækur og skoðað verk skálda sem hafa komið á hátíðina frá upphafi. Í klúbbnum í kjallaranum verður einnig skipulögð dagskrá með þar sem skáld hátíð- arinnar lesa úr verkum sínum og segja frá. Að sögn Óttars verður lif- andi tónlist einnig á dagskránni. Hjalti Snær Ægisson, fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar, segir að bókaklúbbur hátíðarinnar verði at- hvarf fyrir skáldin milli atriða á efri hæðinni, og gera megi ráð fyrir því að gestir geti hitt á þau þar. „Þetta er kærkomið tækifæri fyrir fólk til að hitta skáldin og þarna verður hægt að kaupa bækur þeirra og fá þær áritaðar.“ begga@mbl.is Kjallara Norræna hússins verður breytt í bókaklúbb á Bókmenntahátíð í Reykjavík í september Tækifæri til að hitta skáld Bókmenntahátíðar Morgunblaðið/Kristján G. Skáldin Isabel Allende og Thor Vilhjálmsson á Bókmenntahátíð 1987. Á TÍU ára afmælisári sínu býður Salurinn í Kópavogi upp á sex tónleika kl. 17.30 á fimmtudögum fram í október. Jónas Ingimund- arson fær til sín söngvara í fremstu röð og kynnir ís- lenskar einsöngsperlur. Fyrstu tónleikarnir eru í dag, og þá syngur Þóra Einarsdóttir sópran- söngkona með Jónasi. Bjarki Sveinbjörnsson, forstöðumaður Tónlistarsafns Íslands, flytur stuttan pistil um tilurð laganna og sýndar verða ljósmyndir af íslenskum listaverkum. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Íslenskt og ókeyp- is í Salnum í dag Þóra Einarsdóttir NÍNA Margrét Gríms- dóttir píanóleikari leikur á tónleikum í Selinu á Stokkalæk á Rangárvöllum í kvöld kl. 20. Á efnis- skránni verða m.a. verk eft- ir Mozart, Mendelssohn, Schubert, Schumann, De- bussy, Sveinbjörn Svein- björnsson og Pál Ísólfsson. Miðaverð er 1.500 krónur og verður kaffi borið fram í hléinu. Tónleikarnir eru liður í kynningu á hinu nýstofnaða tónlistarsetri á Stokkalæk, sem hentar vel fyrir margs konar tónlistar- iðkun. Nánar á stokkalaekur.is Tónlist Nína Margrét á Stokkalæk í kvöld Nína Margrét Grímsdóttir Í FYRSTA sinn í sögu Bókmenntahátíðar verður gefin út bók í nafni hátíðarinnar. Það er ljóðabók með verkum Griffin-skáldanna, sem sækja hátíðina heim, en þau eiga það sameiginlegt að hafa öll unnið til kanadísku, alþjóðlegu Griffin-verðlaunanna fyrir skáld- skap sinn. „Við fengum tilboð frá Griffin-ljóðlistar- verðlaununum um að þau heimsæktu hátíð- ina og yrðu með dagskrá. Hún verður loka- dag hátíðarinnar, laugardaginn 12. septem- ber. Þetta er einvala lið skálda og í hópnum er meðal annarra Michael Ondaatje sem skrifaði Enska sjúklinginn.“ Ljóðabókin heitir Birtan í húminu, og í henni eru ljóð Griffin-skáldanna, bæði á ensku og á íslensku. „Skáldin völdu sjálf ljóð sem þau sendu okkur en þýðendurnir höfðu líka svigrúm til að velja það sem þeir vildu þýða.“ Meðal þýðenda eru Sjón, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Ólöf Péturs- dóttir, Sigurbjörg Þrastardóttir og Kristín Eiríksdóttir. Birtan í húminu Á sýningunni eru níu látnir ljós- myndarar og fjórir sem enn starfa. Ellefu þeirra eru karlmenn og tvær konur. Ljósmyndararnir eru: Sigfús Ey- mundsson, Nicoline Waywadt, Magnús Ólafsson, Pétur Brynjólfs- son, Sigríður Zoëga, Jón Kaldal, Ólafur Magnússon, Vigfús Sigur- geirsson, Ólafur K. Magnússon, Guðmundur Ingólfsson, Sigurgeir Sigurjónsson, Ragnar Axelsson og Páll Stefánsson. Sigfús Eymundsson (1837-1911) var fyrsti íslenski ljósmyndarinn sem náði að gera ljósmyndun að lífsstarfi. Hann lærði í Noregi og kom heim til Íslands árið 1866. Þrettán ljósmyndarar: níu látnir, fjórir lifa

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.