Morgunblaðið - 27.08.2009, Page 36
36 Menning
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 2009
Annað kvöld verður haldið
skemmtikvöld í tengslum við söfn-
unina Á allra vörum. Um er að
ræða skemmtidagskrá sem verður
í beinni útsendingu á SkjáEinum
þar sem landsmönnum gefst kostur
á að styrkja söfnun fyrir nýju
hvíldarheimili fyrir krabbameins-
sjúk börn. Fjöldi skemmtiatriða
verður á boðstólum í útsending-
unni, til dæmis mun Stefanía Svav-
arsdóttir, sem er rísandi stjarna í
tónlistarheiminum og ný söngkona
Stuðmanna, syngja fyrir áhorf-
endur, stuðstelpurnar í gam-
anleiknum Fúlar á móti, þær Edda
Björgvins, Helga Braga og Björk
Jakobs koma fram, auk þess sem
nýtt myndband við lagið „Von“
með Mannakornum verður frum-
sýnt, en sveitin hefur gefið allan
ágóða af sölu lagsins til söfnunar-
innar. Þá munu þekktir ein-
staklingar svara í símann og taka
við framlögum, en þar á meðal eru
Ragnar Bjarnason, Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, Jóhanna
Guðrún og Bryndís Schram.
Frægt fólk tekur
á móti framlögum
Fólk
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur fengið Schola
cantorum-kórinn til liðs við sig við upptökur á
sjónvarpsþætti sem verið er að gera um söng-
konuna. Kórinn syngur með henni í þremur lög-
um í þættinum, sem er hluti af þáttaröð sem Jón-
as Sen er með í bígerð.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Björk nýtur
aðstoðar Schola cantorum því kórinn söng inn á
plötuna Medúlla, auk þess að hafa komið fram
með henni á tónleikum í Frakklandi, Englandi
og í Langholtskirkju. Aðspurður segir Benedikt
Ingólfsson, verkefnastjóri kórsins og bassa-
söngvari, vinnuna með Björk hafa verið sérlega
ánægjulega. „Það er svo mikill kraftur í henni,
og þetta er sérstaklega skemmtilegt fyrir okkur
sem syngjum allt öðruvísi og formfastari tónlist
dagsdaglega. En með henni þurfum við að gefa
okkur aðeins lausan tauminn, innan ákveðinna
marka þó,“ segir Benedikt, en lögin sem kórinn
syngur eru „Where Is The Line?“, „Immature“
og „Pleasure Is All Mine“.
„Það er mjög áhugavert að sjá þessi lög á nót-
um, eins og þau eru skrifuð út, og það er líka
gaman að vinna þau með henni. Maður kann
nefnilega betur og betur að meta þau eftir
hverja hlustun. Mörg þeirra eru kannski svolítið
erfið við fyrstu hlustun en svo áttar maður sig á
því hvað þetta er vel samið hjá henni. Hún er
nefnilega þrusutónskáld,“ segir Benedikt.
Þátturinn um Björk verður sýndur í Sjónvarp-
inu í vetur.
Björk fær Schola cantorum til liðs við sig
Morgunblaðið/G.Rúnar
Innlifun Björk á tónleikunum í Langholtskirkju. Síðastliðinn laugardag birtist hér
í Morgunblaðinu grein þar sem ætl-
unin var að útskýra fyrir lesendum
muninn á tveimur íslenskum tón-
listarmönnum sem báðir kalla sig
Bigga Bix. Ekki vildi betur til en
svo að myndatextar í greininni víxl-
uðust þannig að lesendur urðu ef-
laust enn ruglaðari en áður. Hér að
ofan má sjá myndir af þeim fé-
lögum, til vinstri er raftónlist-
armaðurinn Birgir Sigurðsson (sá
eldri) en til hægri er trúbadorinn
Birgir Örn Sigurjónsson (sá yngri).
Vonandi er þá allur misskilningur
úr sögunni.
Svo skemmtilega vill annars til
að höfundur áðurnefndrar greinar
heitir einnig Birgir, og verður hann
hér eftir kallaður Biggi Mix.
Biggi Bix, Biggi Bix og
jafnvel líka Biggi Mix
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
STEFNT var að því að opna nýjan
stað í húsinu sem áður hýsti
skemmtistaðinn Sirkus í miðbæ
Reykjavíkur í júlíbyrjun. Ekki hefur
enn orðið af því og að sögn Lofts
Loftssonar eiganda staðarins strand-
ar allt hjá Reykjavíkurborg.
„Staðurinn er nánast tilbúinn en ég
þarf að fá teikningarnar samþykktar
til að klára það sem eftir er. Málið er
á því stigi núna, tveimur mánuðum
eftir að ég sótti um leyfið, að bygging-
arfulltrúi borgarinnar er að biðja um
hljóðvistarskýrslu sem sýnir hljóð-
mengun frá húsinu.
Ég skil vel að þeir séu varkárir en
þegar ég bið byggingarfulltrúa um
upplýsingar um hvernig þessi skýrsla
lítur út eða fordæmi fyrir henni fæ ég
engin svör. Það er líka undarlegt að
gera þessar hávaðakröfur til mín þeg-
ar það eru margir aðrir skemmti-
staðir í nokkurra metra radíus frá
húsinu,“ segir Loftur og bætir við að
ferlið hafi allt verið mjög leiðinlegt.
Aldrei gengið jafn illa
„Í upphafi voru allir mjög ánægðir
með að nýr staður yrði opnaður í hús-
inu en síðan gerðist eitthvað og mér
fóru að berast margar athugasemdir.
Teikningar eru teknar fyrir á þriðju-
dagsfundum hjá borginni og það er
mjög eðlilegt að fá athugasemdir eftir
þá fundi. Maður fær tækifæri til að
leiðrétta þær og skila teikningunum í
breyttri mynd inn fyrir næsta fund. Í
eitt skipti skilaði ég inn teikningu og
fékk athugasemdir, arkitektinn minn
fór í frí og náði ekki að skila inn nýj-
um teikningum fyrir næsta fund. Þeir
tóku þá óvart teikningarnar frá vik-
unni áður fyrir aftur og þá fékk ég
samt níu nýjar athugasemdir. Ég fór
þá að hugsa að það væri einhver
þarna inni sem vildi koma í veg fyrir
að ég opnaði staðinn.“
Loftur hefur komið að mörgum
skemmtistöðum í gegnum tíðina og
segir að það hafi aldrei gengið svona
illa áður. „Þetta er orðinn mjög lang-
ur tími og ég fæ alltaf athugasemd.
Mér finnst það undarlegt því það var
þarna skemmtistaður áður og við höf-
um ekki gert neinar stórtækar breyt-
ingar á staðnum.
Byggingarfulltrúi hefur rétt á að
biðja um hljóðvistarskýrslu ef þú ert
að byggja nýtt hús en þetta hús var
byggt 1893. Það stendur í reglugerð-
inni að ef verið er að fjalla um eldri
byggingu skal taka tillit til þess. Það
er mjög óraunhæft að ætlast til þess
að ég fari að byggja nánast nýtt hús á
staðnum,“ segir Loftur, en það er
Fasteignafélagið Festar sem á húsið.
Loftur segir að hugmynd hans að
rekstri í húsinu sé fjarri því sem var
þar áður. „Ég er með þá hugmynd að
hafa þarna rólegan tónleikastað sem
verði lokað snemma. Staðurinn á að
Hávaði sagður hindrunin
Erfiðlega gengur að fá leyfi til að opna nýjan skemmtistað í gamla Sirkus-
húsinu Loftur Loftsson fær athugasemd eftir athugasemd frá borginni
Morgunblaðið/Kristinn
Peran Loftur Loftsson í portinu á bak við húsið þar sem hann ætlar jafnvel að hafa skautasvell yfir vetrartímann.
heita Peran og ef ég fæ leyfi vil ég
vera með skautasvell úti í portinu og
sýna svarthvítar þöglar myndir á
stóru tjaldi. Þetta á að vera pínu róm-
antískur staður sem verður opnaður
snemma á morgnana.“
skæling á laginu „Ice Ice Baby“ með
Vanilla Ice og heitir í hinum nýja
búningi „Ice Ice Iceland“.
„Okkur fannst þessi umræða ekki
alveg sanngjörn, fólk var að spyrja
hvort við ættum fyrir mat þarna á
Íslandi og svona. En um leið erum
við ekkert saklaus af því sem komið
hefur fyrir. Þannig að það eru engin
ein skilaboð í textanum,“ segir Helgi
og bætir því við að um ákveðna
ádeilu sé að ræða.
„Einhverjir gætu haldið að við
værum mjög hrokafullir, en við er-
um líka að draga okkur Íslendinga
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞAÐ eru svo undarlegir tímar í
gangi, og allir eru farnir að tala svo
illa um Ísland. Þannig að okkur
langaði til þess að koma með smá-
mótsvar við því,“ segir Helgi Jean
Claessen sem ásamt félaga sínum,
Hjálmari Erni Jóhannessyni, hefur
vakið töluverða athygli fyrir tónlist-
armyndband sem þeir settu á You-
tube. Í myndbandinu rappa þeir um
ástandið á Íslandi, með mjög gam-
ansömum hætti þó. Lagið er skrum-
svolítið niður. Við segjum til dæmis
að það sé hægt að vinna okkur í
hvaða íþrótt sem er, svo lengi sem
það sé ekki handbolti karla,“ segir
hann og hlær.
Myndbandið er fagmannlega gert,
og sömuleiðis rappið, en þrátt fyrir
það segir Helgi að þeir félagar hafi
litla sem enga reynslu af rappi og
myndbandagerð. Þeir vöktu hins
vegar nokkra athygli fyrir jólin árið
2007 þegar þeir sendu frá sér bókina
Konur eru aldrei hamingjusamar því
þær eru með svo litlan heila – og
karlar rosa pirrandi.
„Ice Ice Iceland“ er andsvar
við neikvæðri umræðu
Helgi og Hjálmar Eru einstaklega svalir í myndbandinu, eins og sjá má.
Tveir íslenskir rapparar vekja töluverða athygli á Youtube
Magnús Sædal Svavarsson bygg-
ingarfulltrúi Reykjavíkurborgar
segir að þeir sem sæki um að opna
skemmtistað þurfi að uppfylla
ákveðna hávaðareglugerð. „Árið
2007 gekk í gildi reglugerð nr. 585
þar sem gerð er grein fyrir því
hvaða hávaðastig megi vera inni á
svona stöðum og gerðar kröfur um
hvernig hávaðinn á að vera deyfður
svo hann mengi ekki umhverfið.
Það er okkar skylda að framfylgja
reglugerðinni og það sem við höf-
um óskað eftir hjá þessum umsækj-
anda er að hann geri grein fyrir því
hvernig hljóðið dreifist frá staðnum
m.v. hávaðastigið sem má vera
inni,“ segir Magnús. Reglugerðir
eru aldrei afturvirkar svo þeir staðir
sem voru opnaðir áður en hávað-
areglugerðin tók gildi þurfa ekki að
uppfylla hana. „En ef það kemur til
verulegra breytinga á stað er eins
víst að hún gildi.“ Magnús neitar
því að farið sé að taka harðar á að
veita nýjum stöðum leyfi. „Ekkert
nema það sem þessa nýju reglu-
gerð varðar.“
Hávaðareglugerð nr. 585