Morgunblaðið - 26.09.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
STÓRA herbergjamálið á Alþingi
hefur verið leitt til lykta. Framsókn-
armenn munu yfirgefa þingflokks-
herbergi sitt, græna herbergið svo-
kallaða, og eftirláta það Vinstri
grænum. Herbergið er framsóknar-
mönnum einkar kært því þar hafa
þeir ráðið ráðum sínum áratugum
saman. Að auki er herbergið græn-
málað, en sá litur er í miklu uppá-
haldi hjá framsóknarmönnum. For-
Bragi Sveinsson, formaður þing-
flokks framsóknarmanna. Hann seg-
ir aftur á móti að framsóknarmenn
séu ekki ánægðir með málsmeðferð-
ina. Þeir hafi staðið í þeirri meiningu
að málið yrði leyst í samráði við þá.
„En það var ekki gert heldur var far-
ið með þessa tillögu á fund forsæt-
isnefndarinnar. Ég á von á því að við
lýsum yfir óánægju okkar með þessi
vinnubrögð. En það eru bara svo
miklu stærri mál sem eru uppi á
borðum en þetta,“ segir Gunnar
Bragi.
sætisnefnd afgreiddi í vikunni tillögu
skrifstofustjóra Alþingis um að
stærð þingflokka réði því í hvaða
herbergjum þeir funduðu. Þar sem
Vinstri grænir náðu inn fleiri þing-
mönnum en Framsókn í kosning-
umnum í vor þurfa flokkarnir að hafa
herbergjaskipti. Forseti Alþingis
vildi að þetta yrði gert strax eftir
kosningar en framsóknarmenn
þráuðust við og sátu sem fastast í
herberginu.
„Ég á ekki von á öðru en við unum
þessari niðurstöðu,“ segir Gunnar
Stóra herbergjamálið er leyst
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti að framsóknarmenn yfirgæfu græna herbergið og eftirlétu VG
Stærð þingflokka ræður í hvaða herbergjum er fundað Framsókn hefur haft herbergið í áratugi
Morgunblaðið/Kristinn
Herbergið Framsóknarmenn vildu ekki yfirgefa herbergið og græna litinn.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÁSMUNDUR Stefánsson, banka-
stjóri Landsbankans, sagði á aðal-
fundi Samtaka fiskvinnslustöðva á
Grand Hóteli í gær að fjárfestingar í
skipum með og án kvóta væri
ástæða rekstrarvanda útvegsfyr-
irtækja í 54 prósent tilvika.
Með öðrum orðum væri vandinn
ekki til kominn af rekstrinum sem
slíkum heldur fjárfestingum sem út-
gerðarfyrirtækin hefðu farið út í, en
Landsbankinn hefur gert sérstaka
úttekt á stöðu útvegsfyrirtækja.
Fjárfestingar íþyngja rekstri
Ásmundur sagði að hlutabréfa-
kaup væru í 28 prósent tilfella
ástæða rekstrarvanda og kaup á af-
leiðum í 15 prósent tilvika.
Ásmundur sagði að óvissa um til-
vist fiskveiðistjórnunarkerfisins í
núverandi mynd leiddi til þess að
erfitt væri að fá nýtt fé inn í fyr-
irtækin í atvinnugreininni. Hann
sagði jafnframt að leiguverð hefði
hækkað mikið en mörg smá og milli-
stór félög væru háð kvótaleigu.
Ásmundur vék að því að fjár-
magnskostnaður hefði verið að
hækka með aukinni skuldsetningu.
Ástæða til bjartsýni
Landsbankinn hefur skipt sjáv-
arútvegsfyrirtækjum í þrjá flokka
eftir því hver staða þeirra sé. Græn
fyrirtæki eru fyrirtæki með stönd-
ugan rekstur og eru 46 prósent sjáv-
arútvegsfyrirtækja í þeim flokki.
Gul fyrirtæki sigla sæmilega lygnan
sjó en þurfa á úrræðum að halda og
eru 27 prósent sjávarútvegsfyr-
irtækja gul að mati bankans. Þriðji
flokkurinn nær yfir sjávarútvegsfyr-
irtæki sem glíma við mikla erfiðleika
og eru 27 prósent útvegsfyrirtækja í
þeirri stöðu.
Þrátt fyrir vanda sjávarútvegsfyr-
irtækja er ekki fullkomin ástæða til
svartsýni því atvinnugreinin er á
góðri siglingu. Samkvæmt úttekt
Landsbankans eru 70 prósent út-
vegsfyrirtækja að glíma við minni-
háttar yfirstíganlega erfiðleika.
Fá ekki fé vegna óvissu
70% útvegsfyrirtækja í litlum vanda Vandi sjávarútvegs til kominn vegna
fjárfestinga Óvissa um tilvist fiskveiðistjórnunarkerfis veldur erfiðleikum
Þrátt fyrir erfiðleika margra út-
vegsfyrirtækja eru um sjötíu pró-
sent sjávarútvegsfyrirtækja að
glíma við minniháttar rekstr-
arvanda, að mati bankastjóra
Landsbankans.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ræðumenn Vilhjálmur Egilsson og Ásmundur Stefánsson voru báðir meðal
framsögumanna á aðalfundi Samtaka fiskvinnslustöðva í gær.
NÝIR ritstjórar Morgunblaðsins hófu störf í
gærmorgun og hófu daginn á að heilsa upp á
starfsfólk. Því næst funduðu þeir með starfsfólki
þar sem þeir kynntu sig. Fremstur á þessari
mynd er Jón Helgi Davíðsson blaðamaður en að
baki honum eru, frá vinstri talið, Davíð Oddsson
ritstjóri, Óskar Magnússon útgefandi, Haraldur
Johannessen ritstjóri og Sigurbjörn Magnússon,
formaður stjórnar Árvakurs hf., sem er útgáfu-
félag Morgunblaðsins. Davíð Oddsson sagði þeg-
ar hann mætti til starfa í gær að hann væri afar
ánægður með að vera kominn aftur til starfa á
Morgunblaðinu. Hann segist ekki telja að nær-
vera sín í ljósi fyrri starfa varpaði rýrð á trú-
verðugleika blaðsins. Það sem hver maður hafi í
farangri sínum geti hann yfirleitt notað til fram-
dráttar í nýju starfi, ef viðkomandi fari vel með
sitt. Haraldur, sem einnig starfaði áður á Morg-
unblaðinu, kvaðst sömuleiðis ánægður. Hann
hefði á sínum tíma horfið af blaðinu með hálfum
hug, en sneri nú aftur með heilum hug.
NÝIR RITSTJÓRAR MORGUNBLAÐSINS TIL STARFA
Morgunblaðið/Heiddi
Banaslys í
Jökulsárhlíð
BANASLYS varð um klukkan ellefu
í gærmorgun í Jökulsárhlíð skammt
norðan við bæinn Sleðbrjót í Norð-
ur-Múlasýslu. Er bærinn um 25 kíló-
metra norður af Egilsstöðum.
Jeppi á leið norður Hlíðarveg valt
með þeim afleiðingum að annar
tveggja manna í bílnum lét lífið.
Hinn maðurinn var fluttur töluvert
slasaður á Fjórðungssjúkrahúsið í
Neskaupstað.
Tildrög slyssins eru enn sem kom-
ið er ekki ljós en rannsóknardeild
lögreglunnar á Eskifirði hefur rann-
sókn málsins með höndum í náinni
samvinnu við lögregluna á Egilsstöð-
um. Frekari upplýsingar var ekki að
fá hjá lögreglunni í gærkvöld en yf-
irlýsingar vegna málsins er að vænta
á næstu dögum að sögn lögreglunnar
á Egilsstöðum.
skulias@mbl.is
DAVÍÐ Oddsson, ritstjóri
Morgunblaðsins og fv. seðla-
bankastjóri, hefur tvívegis verið
kallaður í sjö klukkustunda yf-
irheyrslu hjá Rannsóknarnefnd
Alþingis um bankahrunið. Þetta
kom fram í viðtali Sölva
Tryggvasonar við Davíð á Skjá
einum í gærkvöldi.
Aðspurður sagði Davíð þegar
kæmi að umfjöllun Morgunblaðs-
ins um væntanlega skýrslu
nefndarinnar myndi hann fela
öðrum það verk, enda væri eng-
inn dómari í eigin sök. Hann
sagðist úr fyrra starfi búa yfir
ýmsum upplýsingum en myndi
ekki rjúfa trúnað – enda þótt
hann vænti þess að reynsla sín og
þekking nýttist blaðinu að öðru
leyti.
Davíð tvívegis
yfirheyrður
EKKI þarf að vera nein hindrun í
vegi þess að lagafrumvörp um
greiðsluaðlögun o.fl. vegna fólks
sem á í alvarlegum greiðsluvanda
verði lögð fyrir Alþingi í byrjun
þings í október. Þetta er mat Magn-
úsar Norðdahl, lögfræðings ASÍ, en
hann á sæti í nefnd félags-, við-
skipta- og dómsmálaráðherra. Að
sögn Magnúsar eru uppi hug-
myndir um að halda næsta fund
nefndarinnar á þriðjudaginn. Hann
vonar að boðað verði til fundar
fyrr. „Við teljum tímann líða svo
hratt að það sé óviðunandi að sitja
með hendur í skauti í marga daga
ef á að skila þessum lagafrum-
vörpum fyrir mánaðamótin,“ segir
hann. Segist hann alltaf hafa staðið
í þeirri meiningu að þessi mál yrðu
meðal fyrstu frumvarpa sem lögð
verða fyrir Alþingi í byrjun októ-
ber. omfr@mbl.is
Óviðunandi að
sitja með
hendur í skauti