Morgunblaðið - 26.09.2009, Page 18

Morgunblaðið - 26.09.2009, Page 18
18 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009 ð 13-15 ára 16-20 ára 21-25 ára www.naestakynslod.is Vilt þú... ...vera einbeittari í námi? ...geta staðið þig vel í vinnu? ...vera jákvæðari? ...eiga auðveldara með að eignast vini? ...vera sáttari við sjálfan þig DALE CARNEGIE FYRIR UNGT FÓLK Kíktu á naestakynslod.is og sjáðu hvað aðrir þátttakendur höfðu að segja um þjálfunina Kynningarfundir verða haldnir: mánudaginn 5.janúar kl.20:00 og miðvikudaginn 7.janúar kl.20:00, Ármúla 11, 3.hæð. Æskilegt að foreldrar mæti með þeim sem fara á námskeið fyrir 13-15 ára. Næstu námskeið hefjast: mánudaginn 12.janúar 13-15 ára, miðvikudaginn 14.janúar 16-20 ára, þriðjudaginn 20.janúar 21-25 ára. Hafðu samband við skrifstofu Dale Carnegie í síma 555 7080 og fáðu nánari upplýsingar um Næstu kynslóð w .naest slod.is 13-15 ára og 16-20 ára Kynningarfundur verður haldinn sunnudaginn 27.september kl.16 í Ármúla 11, 3. hæð. Æskilegt að foreldrar mæti með þeim sem fara á námskeið fyrir 13-15 ára. Næstu námskeið hefjast: Miðvikudaginn 30. sept. 3-15 ára Fimmt i n 1. okt. 16-20 Föstudaginn 2. okt. 13-15 ára. ÞAU hoppuðu í parís og töldu upp á tíu á spænsku í leiðinni. Þannig var ein tungumálaæfingin sem nemendur Menntaskólans við Sund lögðu fyrir nemendur í Vogaskóla í gær. Fleiri lærdómsríkar þrautir voru lagðar fyrir börnin. Miðuðu þær allar að því að kenna börnum ólík tungumál en í dag, laugardag, er evrópski tungumáladagurinn. Í tilefni tungumáladagsins stendur Stofnun Vig- dísar Finnbogadóttur og Félag enskukennara fyrir námsefniskynningu á Hótel Sögu. Kynningarnar spanna nám og kennslu allt frá leikskólastigi til há- skólastigs. Ísbrú, fagfélag kennara sem kenna ís- lensku sem erlent mál, stendur að skipulagningu kynningarinnar. Þar munu sautján aðilar kynna nýtt, frumsamið og framsækið námsefni. Kynningin hefst kl. 14 og lýkur kl. 17.30. Nánar á www.ki/isbru. Evrópski tungumáladagurinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Talið við hvert hopp Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is MATARKARFA Alþýðusambands Íslands (ASÍ) er ódýrust í verslun Bónuss Egilsstöðum en dýrust í Krónunni í Vestmannaeyjum. Kost- ar karfan 14.267 kr. í Bónus en 15.595 í Krónunni og nemur mun- urinn 9%. Er þetta meðal niður- staðna verðkönnunar ASÍ sem gerð var síðastliðinn þriðjudag í fjórum lágvöruverðsverslunum landsins. Verð var kannað í verslun Kaskó á Húsavík og Nettó á Akureyri auk áð- urnefndra verslana. Þar var matar- karfan 6% dýrari en í Bónus á Egils- stöðum. Vörukarfan stóð saman af 38 vörum á borð við mjólkurvörur, brauð, grænmeti og ýmsar pakka- vörur. Verulegur verðmunur var á hreinlætisvörum en Colgate Total tannkrem reyndist 21-121% dýrara í öðrum verslunum en Bónus þar sem það var ódýrast, 2.590 kr./l. Dýrast reyndist það í Krónunni, 5.720 kr/l. Head & Shoulders flösuhársápa var 87% dýrari í Krónunni en í Bónus sem bauð lægsta verðið. Umtalsverður munur reyndist einnig á grænmetisverði milli versl- ana. Þannig voru tómatar 71% dýr- ari í Krónunni en í Bónus og græn paprika 27% dýrari í Krónunni en í hinum verslununum þremur. Merkingar hamli samkeppni Tiltölulega lítill verðmunur var á forverðmerktum osti og áleggi. Tel- ur ASÍ þetta vísbendingu um að for- verðmerkingar hamli verðsam- keppni eins og verðeftirlit sambandsins hafi margsinnis bent á. Sömu sögu er að segja af verði mjólkurvara en nam munurinn mest 8% og var þar um að ræða kókó- mjólk. Enginn verðmunur var á ný- mjólk, rjóma og 17% gouda osti. Hvetur ASÍ neytendur til að vera á varðbergi og gera verðsamanburð áður en gengið er til kaupa. Matarkarfa ASÍ ódýrust í Bónus Tannkremið tvöfalt dýrara í Krónunni                               ! "   #! $   %  !    &'((( (&) *'+)) *'),+ -), ))+ ,.& -&/ &-( &'0)(  &',+& ,00 *'*0( *')/& *'*/0 -./ 0(/ *'+&& (*) &'-+,  &',+( ,00 *'*0( *'.0* *'/() -&. ,.+ *'+&& (*) &'-)0   &'(,( ,/0 *'*-/ *'.,( *'*(/ *'++- 0-* *'+(& &-0 ('&))        1    %2 3  4 "  5'" „Í FORSÍÐUFRÉTT í Morgun- blaðinu, 25. september sl., er því haldið fram að talsvert magn ólög- legra lyfja, nokkur hundruð þús- und krónur í peningum og á þriðja þúsund sterataflna hafi fundist við húsleit tollgæslu í versluninni Per- form.is í Kópavogi. Þetta er rangt hjá Morgunblaðinu,“ segir í frétta- tilkynningu frá Sunnu Hlín Gunn- laugsdóttur, verslunarstjóra og einum eiganda Perform.is. „Hið rétta er að ofangreindar steratöfl- ur, fjármunir og ólögleg lyf fund- ust við leit á einum eiganda versl- unarinnar og við húsleit heima hjá honum. Aðrir eigendur Perform.is harma það að Morgunblaðið skuli hafa dregið nafn verslunarinnar inn í umræðuna með þessum hætti meðal annars með því að fullyrða að framangreindir fjármunir og efni hafi fundist og verið til sölu í versluninni. Því er vinsamlegast beint til Morgunblaðsins að láta innanhússátök ekki bitna á fagleg- um vinnubrögðum á blaðinu, en Morgunblaðið sá ekki ástæðu til þess að leita eftir viðbrögðum hjá eigendum verslunarinnar, sem hefðu geta leiðrétt rangfærslur blaðsins áður en þær birtust á for- síðu þess. Eigendur Perform.is munu í framhaldi kanna hvort ástæða sé til þess að höfða skaðabótamál á hendur útgáfufélagi Morgunblaðs- ins vegna þess tjóns sem umfjöllun blaðsins hefur valdið versluninni,“ segir jafnframt í tilkynningunni. Aths. ritstj. Morgunblaðið stendur við frétt- ina. Fundust á eiganda

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.