Morgunblaðið - 26.09.2009, Page 20
20 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
6 6 7
7
6 #6
7
7
89
:$;
7
7
<#1
46
7
7
6$0
6 (+
7
7
Þetta helst ...
● ENGAR breytingar urðu á gengis-
vísitölu krónunnar í gær og er hún
234,53 stig. Evran er 183 krónur,
danska krónan 24,592 krónur, Banda-
ríkjadalur 124,67 krónur og pundið
199,09 krónur, samkvæmt upplýs-
ingum frá gjaldeyrisborði Íslandsbanka.
Velta með hlutabréf í Kauphöllinni í
gær nam um sjö milljörðum króna.
Velta með hlutabréf nam 43 milljónum
króna. bjorgvin@mbl.is
Pundið kostar 199 kr.
● MAGNÚS Jóns-
son hefur látið af
störfum sem for-
stjóri Atorku.
Atorka fékk í gær
áframhaldandi
heimild til
greiðslustöðvunar
til 30. október nk.
Segir félagið, að
áfram verði unnið
að fjárhagslegri endurskipulagningu fé-
lagsins.
Samkvæmt upplýsingum frá Atorku
hefur enginn verið ráðinn forstjóri í
stað Magnúsar en hann á stóran hlut í
félaginu.
Meðal eigna Atorku eru ráðandi eign-
arhlutur í Promens, sem er ein stærsta
plastverksmiðja í heimi og ráðandi hlut-
ur í þriðja stærsta gámafyrirtæki í heimi.
Magnús Jónsson for-
stjóri Atorku hættur
Magnús Jónsson
● EKKI stendur til að skipta um nafn
eða vörumerki Landsbankans, að sögn
Ásmundar Stefánssonar, bankastjóra.
Jón Hákon Magnússon, eigandi Kom
Almannatengsla, hefur sagt að bankinn
þurfi að byrja upp á nýtt og skipta um
nafn og merki, enda verði nafnið um
ókomna tíð tengt við beitingu hryðju-
verkalaga þökk sé leitarvélinni Google.
Fleiri deila þessari skoðun með Jóni.
„Ég held að vandamálið í þessu sé það
að það hlaupi enginn svo léttilega frá
fortíð sinni með nafnabreytingu að það
skipti sköpum í stöðunni eins og hún er
núna. Ef menn ætla að skipta um nafn
held ég að það sé ástæða til að láta ein-
hvern tíma líða,“ segir Ásmundur.
thorbjorn@mbl.is
Landsbankinn hleypur
ekki frá fortíð sinni
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÞEGAR FL Group (nú Stoðir)
seldi hluti sína í Geysi Green
Energy í febrúar á síðasta ári á
genginu 1,4 til Glitnis, Atorku og
fleiri aðila tók Glitnir 500 milljónir
króna í þóknun vegna ráðgjafar við
sölu bréfanna. Auk Glitnis og dótt-
urfélags Atorku, Renewable
Energy Resources, bauð VGK In-
vest einnig í bréfin.
Þetta er meðal þess sem endur-
skoðunarfyrirtækið Ernst &
Young sá ástæðu til að athuga nán-
ar með tilliti til riftunar í sérstakri
skýrslu um viðskipti tengdra aðila
sem unnin var að beiðni aðstoð-
armanns Stoða í greiðslustöðvun.
Stjórn Stoða hafði frest til 26.
ágústs síðastliðins til að höfða mál
til að láta reyna á riftun örlæt-
isgerninga eða samninga sem fólu í
sér ótilhlýðilega ráðstöfun fjár-
muna til tengdra aðila 24 mán-
uðum áður en félagið óskaði eftir
greiðslustöðvun. Eftir samþykkt
nauðasamnings er þriggja mánaða
svigrúm til að láta reyna á riftun.
Stjórn félagsins hefur ákveðið að
láta reyna á riftun í fimm tilvikum,
eins og Morgunblaðið greindi frá í
gær. Ekki hefur hins vegar fengist
upp gefið hvaða samningar það eru
sem um er að ræða.
Glitnir tók 500 milljónir í
þóknun vegna sölu til sín
Í HNOTSKURN
»Í skýrslu Ernst & Young errakinn fjöldinn allur af
samningum FL Group fyrir
bankahrunið við tengda aðila
eins og Baug, Glitni og Primus
sem ástæða er til að skoða
frekar að mati fyrirtækisins.
»Samkvæmt upplýsingumfrá Stoðum var ekki
ákveðið að byggja á umræddri
skýrslu Ernst & Young þar
sem hún þótti ekki nægilega
vel unnin.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ráðgjöf Glitnir tók hálfan milljarð króna í ráðgjafarþóknun vegna sölu á
bréfum þegar bankinn sjálfur var meðal kaupenda bréfanna.
Stoðir höfðu þrjá
mánuði til að láta
reyna á riftun
BEAT Siegenthaler, sérfræðingur
hjá TD Securities, segir í bréfi til við-
skiptavina sinna í gær að hann taki
undir með Seðlabankanum að krón-
an muni styrkjast á næsta ári. Evran
muni kosta minna en 170 krónur.
TD Securities hefur haft umsjón
með meirihluta af allri útgáfu svo-
kallaðra jöklabréfa og miðlað til út-
lendinga, sem vildu nýta sér vaxta-
mun milli Íslands og annarra
myntsvæða.
Krónur í eigu þessara útlendinga
festust á Íslandi eftir að gjaldeyr-
ishöftin voru sett á. Telji þeir að
krónan muni styrkjast eru meiri lík-
ur á að þeir bíði rólegir með að skipta
krónum yfir í evrur á aflands-
markaði. Það minnkar þrýsting á
veikingu krónunnar. bjorgvin@mbl.is
Jákvæður
á styrkingu
krónunnar
Telur að evran fari í
170 krónur 2010
ÞRJÁTÍU starfsmönnum Jarðbor-
ana hefur verið sagt upp störfum.
Eftir uppsagnirnar munu um 150
manns starfa hjá Jarðborunum en
þegar mest var sumarið 2008, störf-
uðu um 210 manns hjá félaginu.
„Samhliða efnahagserfiðleikum á
Íslandi hefur verkefnum Jarðbor-
ana hf. við borun eftir jarðhita
fækkað verulega, auk þess sem taf-
ir á framgangi stórframkvæmda
hafa haft neikvæð áhrif. Er nú svo
komið að draga þarf úr starfsemi
félagsins hér á landi,“ segir í til-
kynningu. bjorgvin@mbl.is
Jarðboranir
fækka fólki
Færri verkefni við
borun eftir jarðhitaÍ NEYÐARLÖGUNUM er heimild
til þess að færa íbúðalán frá bönk-
unum til Íbúðalánasjóðs. Ekki er
útilokað að af þessu verði og hefur
nýting þessarar heimildar m.a. ver-
ið rædd að undanförnu á ríkis-
stjórnarfundum.
Ásmundur Stefánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að erfitt
sé að meta í fljótu bragði hvaða af-
leiðingar það hefði fyrir bankann ef
af þessu yrði. „Það þyrfti að koma
greiðsla fyrir og íbúðalánin yrðu þá
sett í sérstakan farveg og yrðu ekki
lengur tengd öðrum skuldum við-
komandi lántakanda. Hjá flestum
eru skuldirnar ekki afmarkaðar við
íbúðalán, en margir eru með bílalán
sem geta gert fólki erfitt fyrir að
standa í skilum með greiðslur,“
segir Ásmundur. Hann segir ekki
ljóst á þessari stundum hvort þetta
yrði góðs eða skaða hvort sem það
væri fyrir skuldarana eða bankann.
Yfirfærsla íbúðalána er ein af
fjölmörgum hugmyndum sem
nefnd þriggja ráðherra hefur verið
að skoða, sem lið í lausn á skulda-
vanda heimilanna. Aðspurður segir
Ásmundur að Landsbankinn hafi
ekki verið beðinn um að gefa álit
sitt á yfirfærslu íbúðalánanna.
Þetta sé heldur ekki til umræðu
innan bankans. thorbjorn@mbl.is
Kostir yfirfærslu
lána ekki augljósir
Bankastjórinn Ásmundur Stefánsson segir ekki ljóst hvort yfirfærsla
íbúðalána yrði til góðs, hvort sem það væri fyrir bankann eða skuldara.
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„ÞETTA kemur á óvart. Við höfum
beðið um afrit af kærunni til að vita
í rauninni hvað er á bak við hana.
Við getum ekki séð að þetta falli
undir valdsvið sérstaks saksóknara.
Við bíðum bara og sjáum á hvaða
forsendum þessi kæra er byggð,“
segir Bjarnfreður Ólafsson lögmað-
ur hjá Logos lögmannsþjónustu.
Nýja Kaupþing hefur kært til
sérstaks saksóknara forsvarsmenn
Exista og þá starfsmenn Deloitte og
Logos lögmannsþjónustu sem önn-
uðust tilkynningu til hlutafjárskrár
vegna hlutafjáraukningar Exista í
desember 2008. Að mati bankans
fer háttsemi viðkomandi aðila gegn
lögum um hlutafélög. Fyrirtækja-
skrá úrskurðaði hlutafjáraukn-
inguna ólögmæta í sumar og gerði
alvarlegar athugasemdir við fram-
göngu lögmanna og endurskoðenda
Exista. Hilmar A. Alfreðsson skrif-
aði undir skýrslu Deloitte.
Nýi Kaupþing banki hefur einnig
kært forsvarsmenn Exista vegna
sölu á hlut Exista í Bakkavör Group
þann 11. september 2009 til sér-
staks saksóknara.
Í tilkynningu frá Nýja Kaupþingi
kemur fram að það sé mat bankans
að forsvarsmenn Exista hafi fyrir
hönd félagsins brotið gegn ákvæð-
um 250. grein í auðgunarbrotakafla
almennra hegningarlaga með söl-
unni. Sú grein fjallar um skilasvik.
Nýja Kaupþing mun jafnframt leita
einkaréttarlegra úrræða.
Fram hefur komið að þeir Ágúst
og Lýður Guðmundssynir létu Ex-
ista, sem er að mestu í óbeinni eigu
kröfuhafa í dag, fjármagna kaup
þeirra sjálfra á 39,62 prósenta hlut
Exista í Bakkavör með skuldavið-
urkenningu upp á 8,4 milljarða
króna. Þetta þýðir að bræðurnir
lögðu ekkert eigið fé fram við kaup-
in.
Í fréttum Stöðvar 2 hefur komið
fram að vextir á láninu í dag séu
2,71%. Þeir séu breytilegir og með
föstu álagi. Það eru mun betri láns-
kjör en öðrum stendur til boða á
markaðnum í dag. Sem dæmi eru
vextir á láni vegna Icesave-skuld-
bindinga, sem ríkið ábyrgist, 5,5%.
Ekki náðist í Ágúst Guðmunds-
son, stjórnarmann Exista, Erlend
Hjaltason, forstjóra, eða Finn
Sveinbjörnsson bankastjóra Nýja
Kaupþings í gær.
Hlutafjáraukning Exista og salan á Bakkavör kærð
Kæra Kaupþings beinist
að stjórnendum Exista
Morgunblaðið/Golli
Í ströngu Bakkabræður berjast nú
fyrir yfirráðum í Bakkavör.
● GREININGARDEILD Kaupþings tel-
ur óvíst að útgáfa innstæðubréfa, sem
Seðlabankinn tilkynnti um í fyrradag,
hafi tilætluð áhrif til að draga úr lausu
fé í umferð.
Ástæðan er sögð sú að það gæti
reynst kostnaðarsamt fyrir banka að
binda of mikið af sínu lausafé í slíkum
bréfum ef þörf fyrir lausafé myndi
aukast á ný. Ávinningur sé lítill miðað
við þá áhættu að þurfa að taka veðlán
á 12% vöxtum. bjorgvin@mbl.is
Ávinningur af útgáfu
innstæðubréfa óviss