Morgunblaðið - 26.09.2009, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. SEPTEMBER 2009
um leið útgáfutónleikar því það er að
koma út ferilsplata sem Sena gefur
út, sem líklega verða þrefaldir
diskar í albúmi, þar á meðal upp-
tökur frá Metropolitan, Covent
Garden og Vín. Síðan verður haldið
til Akureyrar 5. desember og haldnir
jólatónleikar í Akureyrarkirkju. Á
næsta ári ætla ég svo í samstarfi við
Senu að halda stórtónleika í Laug-
ardalshöllinni en ég er mjög ánægð-
ur með okkar samstarf.
Ég er að kenna í Söngskóla Sig-
urðar Demetz. Ég geng að því með
galopið hjarta. Þar er yndislegt list-
rænt andrúmsloft og skemmtilegt og
ekki skemmir fyrir að þar eru gömlu
húsgögnin hans Demma, myndirnar
hans og ekki síst gamli flygillinn
hans. Í söngkennslu er sífellt verið
að tala um öndun og munnstillingu
en aðalatriðið er að söngurinn komi
frá hjartanu.
Það er vandi að kenna söng, það er
ekki öllum gefið. Góð vinkona mín í
Veróna, Micaela, sem er píanóleik-
ari, sagði eitt sinn við mig upprifin
þegar ég hitti hana: „Ég er farin að
kenna söng.“ „Og veistu hvað,“ svar-
aði ég, „ég er farinn að kenna á pí-
anó.“ Hún sagði furðu lostin: „Ha, þú
sem spilar sama og ekkert á píanó.“
Ég svaraði: „Nei, en kannt þú að
syngja?“
Sem söngkennari verður maður
að byrja á byrjuninni. Ég leyfi nem-
endum mínum ekki að syngja lög og
aríur fyrstu mánuðina, læt þá bara
gera tækniæfingar. Ég þjálfa þá eins
og íþróttamenn. Ég byrja á byrj-
uninni og þegar þeir hafa náð valdi á
tækninni byrja þeir að syngja af
hjarta og sál. Söngur er túlkun, tján-
ing en ekki bara falleg hljóð. Skóla-
stjórinn, Guðbjörg Sigurjónsdóttir,
segir: „Elsku Kristján minn, gerðu
þetta bara eins og þú vilt en við erum
með námskrá og reyndu nú samt
eitthvað að fylgja henni.“
Einstaklega lánsamur
Heldurðu að það sé nauðsynlegt
fyrir íslenska óperusöngvara að
fara til útlanda í framhaldsnám til
að ná verulegum árangri?
„Já, yngra söngfólk fer alltof seint
út. Miðað við kollega þeirra erlendis
eru þeir tíu árum á eftir. Góður óp-
erusöngvari þarf að kunna að leika
og kunna reiprennandi þýsku,
ítölsku og frönsku. Þess vegna
þyrftu söngnemendur að læra leik-
list og framkomu samfara söngnám-
inu, allavega þeir sem ætla í óperu-
sönginn. Ég er í sambandi við
nokkrar umboðsskrifstofur og söng-
akademíur erlendis og langar til að
koma á fót nemendaskiptum við
söngakademíurnar. Þá erum við að
tala um söngfólk á aldrinum 20-25
ára. Ungir íslenskir söngvarar þurfa
að kynnast því hvernig söngnám
gengur fyrir sig erlendis, þurfa að
láta skamma sig og læra að það sé
allt í lagi. Þannig vex maður og lær-
ir.“
Þegar þú lítur yfir 30 ára söng-
feril hvernig tilfinningar bærast í
brjósti þér?
„Gleði – hamingja – fögnuður og
stolt. Einn og annar þyrnir hafa orð-
ið á leið minni, þetta hefur ekki alltaf
gengið alveg fyrirhafnarlaust, en
smámótbyr hefur hingað til bara
hert mig og ég geri mér grein fyrir
að ég hef verið einstaklega lán-
samur.
Ég hef lifað ótrúlega litríku lífi og
á glæsilegan söngferil að baki, en
þegar öllu er á botninn hvolft, þá
felst lífshamingjan í fjölskyldunni og
fólkinu í kringum þig. Þeim sem þú
deilir sætu og súru með – eða hvað?“
Morgunblaðið/Kristinn
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan
16.00 mánudaginn 5. október.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt sérblað um
tísku og förðun föstudaginn
9. október 2009.
Í Tísku og förðun verður fjallað um
tískuna haustið 2009 í hári, förðun,
snyrtingu og fatnaði auk umhirðu
húðarinnar, dekur og fleira.
Meðal efnis verður :
Nýjustu förðunarvörurnar.
Húðumhirða.
Haustförðun.
Ilmvötn.
Snyrtivörur.
Neglur og naglalökk.
Hár og hárumhirða.
Tískan í vetur.
Flottir fylgihlutir.
Góð stílráð.
Íslenskir fatahönnuðir.
Ásamt fullt af öðru spennandi efni.
Tíska og
förðun