Morgunblaðið - 31.10.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn
Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór
Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK Íslands munu
kæra til umhverfisráðherra þá ákvörðun Skipu-
lagsstofnunar að umhverfisáhrif suðvesturlína
skuli ekki metin með öðrum framkvæmdum sem
tengjast fyrirhuguðu álveri í Helguvík á Reykja-
nesi. Því er ljóst að enn verða tafir á málinu sem
þegar eru farnar að valda óþægindum fyrir
Norðurál. Framtíð álversins verður rædd á
stjórnarfundi Century Aluminum, móðurfélags
Norðuráls, í nóvember.
Auk fyrirhugaðs álvers munu gagnaver á
Ásbrú á Reykjanesi og kísilmálmverksmiðja í
Helguvík nýta sér flutningskerfi suðvesturlína.
Í niðurstöðu Skipulagsstofnunar segir að ekki
séu uppfyllt lagaskilyrði um að fleiri en ein mats-
skyld framkvæmd séu fyrirhugaðar sem unnt sé
að láta meta sameiginlega, sér í lagi ef höfð sé í
huga sú túlkun sem komi fram í úrskurði um-
hverfisráðherra frá 3. apríl 2008 vegna álvers í
Helguvík en þar var niðurstaðan sú, að ákvörðun
um sameiginlegt mat skuli liggja fyrir áður en
tekin sé ákvörðun um matsáætlun.
Hægt að afgreiða málið fyrir jól
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ,
fagnaði niðurstöðunni í samtali við fréttavef
Morgunblaðsins. Árni segir að þar sem úrskurð-
urinn sé í raun óbreyttur með þessari niðurstöðu
og ráðuneytið búið að skoða málið mjög ítarlega
ætti ekki að þurfa að dvelja lengi við það. „Það
ætti að vera hægt að klára þetta mál fyrir jól
með þessari niðurstöðu enda ekki hægt að klára
fjármögnun fyrr en það er afgreitt,“ segir Árni.
Forsvarsmenn Norðuráls eru einnig ánægðir
með niðurstöðu Skipulagsstofnunar en segja
hana þó ekki koma á óvart, enda kom ekkert
annað til greina að þeirra mati. „Vonandi klárast
þetta mál bara sem fyrst,“ segir Ágúst F. Haf-
berg, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og
samskipta. „Það var farið yfir þetta mál árið
2006 og þá ákveðið að fara ekki í sameiginlegt
mat. Það er mjög óþægilegt og hefur skapað
okkur mikil vandræði að karpa um eitthvað sem
er löngu ákveðið ár eftir ár.“
Þrátt fyrir ákvörðun Skipulagsstofnunar er
ljóst að málið leysist ekki í bráð. Kæra má
ákvörðun Skipulagsstofnunar til umhverfis-
ráðherra og er kærufrestur til 4. desember nk.
Árni Finnsson, formaður Náttúruverndar-
samtaka Íslands, segir liggja ljóst fyrir að sam-
tökin muni kæra ákvörðunina. Hann á von á því
að umhverfisráðherra taki á málinu af festu og
kveði upp úr um málið í samræmi við at-
hugasemdir samtakanna.
Suðvesturlínur aftur til ráðherra
Skipulagsstofnun hefur á ný tekið ákvörðun um að umhverfisáhrif suðvesturlína skuli ekki
metin með öðrum framkvæmdum tengdum álveri í Helguvík Ákvörðunin verður kærð
Í HNOTSKURN
»Skipulagsstofnun tók ímars ákvörðun um að
ekki skyldi fara fram sam-
eiginlegt mat á umhverfis-
áhrifum suðvesturlína og
öðrum framkvæmdum sem
tengjast framkvæmdum í
Helguvík.
»Svandís Svavarsdóttir,umhverfisráðherra,
felldi þá ákvörðun úr gildi í
september og lagði fyrir
Skipulagsstofnun að taka
málið fyrir að nýju.
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
MARGT bendir til að á höfuðborgar-
svæðinu og á Akureyri hafi svína-
flensufaraldurinn náð hámarki. Þetta
er mat fulltrúa Almannavarna og heil-
brigðisþjónustunnar sem héldu sinn
reglulega fund í gærmorgun. Víða um
land er flensan hins vegar í sókn, til
dæmis á Húsavík. Starfsmenn heilsu-
gæslustöðva sjá til dæmis glögg
merki um að hlutfallslega fleiri börn
veikist nú en áður. Hins vegar fækkar
veikindatilfellum meðal fólks sem er
15 til 30 ára.
Á Landspítala voru í gær 43 flensu-
sjúklingar, þar af 11 á gjörgæslu. Á
Sjúkrahúsinu á Akureyri eru þrír
með flensu þessa stundina, þó enginn
á gjörgæslu.
Bólusetning byrjar í nóvember
Annríki er mikið á Landspítalan-
um, en nokkrir þeirra sem þar liggja
og eru með flensuna eru fólk utan af
landi úr byggðarlögum þar sem ekki
er aðstaða til gjörgæsluhjúkrunar.
Horfur eru á að unnt verði að hefja
almenna bólusetningu við svínaflens-
unni strax fyrri hlutann í nóvember
en ekki í desember eins og áður var
talið. Meira berst af bóluefni til lands-
ins en gert var ráð fyrir, sem auðveld-
ar málin. Búið er að bólusetja 20 þús-
und manns. Engar fréttir hafa borist
af alvarlegum aukaverkunum bólu-
setningar.
Flensan í sókn á landsbyggðinni
Morgunblaðið/RAX
Húsavík Svínaflensan komin norður og hefur verið í vexti síðustu daga.
KÁRI Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfða-
greiningar og prófessor við Háskóla Íslands, tók
í gær við verðlaunum Anders Jahre sem veitt
eru árlega í viðurkenningarskyni fyrir fram-
úrskarandi árangur við rannsóknir í læknavís-
indum á Norðurlöndum. Athöfnin fór fram í við-
hafnarsal Óslóarháskóla að viðstöddum Haraldi
V. Noregskonungi. Kári er fyrstur Íslendinga til
að hljóta þennan heiður
HLAUT HIN VIRTU VERÐLAUN ANDERS JAHRE
BIÐLISTI fyrir
hjartaþræðingar
á Landspítala er
svo gott sem
tæmdur, að því
er kemur fram í
Talnabrunni,
fréttabréfi land-
læknis um heil-
brigðistölfræði.
Þegar staða á biðlistum í október er
borin saman við stöðu á biðlistum í
október árin áður sést að listarnir
hafa styst fyrir nær allar skurð-
aðgerðir.
Verulegur árangur hefur náðst
varðandi biðlista vegna hjartaþræð-
inga, en hann var mjög langur á ár-
unum 2007 og 2008. Biðlisti fyrir
augnaðgerðir hefur einnig styst um-
talsvert og eru um tólf hundruð ein-
staklingar sem bíða eftir aðgerð á
augasteini. Þeir voru ríflega fimm-
tán hundruð á sama tíma í fyrra.
Þá hefur biðtími vegna gerviliða-
aðgerða á hné styst um 33 vikur en
hann var 68 vikur í október á síðasta
ári. Sautján vikna bið er eftir gervi-
liðaaðgerð á mjöðm en var 25 vikur
á sama tíma í fyrra.
andri@mbl.is
Nær allir
biðlistar
hafa styst
Nánast engin bið eft-
ir hjartaþræðingu
Sveitarfélögin á höfuðborg-
arsvæðinu vinna nú öll eftir
samræmdum viðbragðsáætl-
unum sem gerðar voru undir
umsjón slökkviliðs. Vel hefur
gengið að tryggja þjónustu
þrátt fyrir forföll starfsfólks.
Neyðarstjórn hefur verið
skipuð í hverju sveitarfélagi fyr-
ir sig undir formennsku fram-
kvæmdastjóra viðkomandi
sveitarfélags. Komi til þess að
neyðarstjórn verði virkjuð starf-
ar hún í samráði við aðgerða-
stjórn Almannavarna. Náið sam-
ráð er haft við sóttvarnalækni
og lögreglustjóra.
Samræmd áætlun