Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 GRUNUR er um að eldur hafi verið borinn að húsinu Bergþórshvoli á Dalvík, sem brann í fyrrinótt. Slökkvilið var kallað út á fimmta tímanum um nóttina og tók nokkra stund að ráða niðurlögum eldsins. Mikinn reyk lagði yfir byggðina á Dalvík vegna brunans og þurftu íbú- ar því að yfirgefa hús sín en gátu snúið aftur heim til sín í morguns- árið. Að sögn lögreglunnar á Akur- eyri, sem fer með rannsókn málsins, bentu öll ummerki á vettvangi til íkveikju og að eldsupptök væru í kjallara. Bergþórshvoll stóð við Goðabraut á Dalvík. Húsið var tæplega 100 ára gamalt og eitt fyrsta fjölbýlið í þorp- inu. Húsið var einangrað meðal ann- ars með heyi og torfi og því logaði milli þilja, sem torveldaði slökkvi- starf. Húsið er gjörónýtt eftir brun- ann og til stóð að rífa það í gær, en beðið var eftir formlegu leyfi sýslu- manns svo hefjast mætti handa. sbs@mbl.is Ljósmynd/Katarzyna Lewicka Bruni Slökkviliðið á Dalvík við slökkvistarf, sem gekk greiðlega. Bruni á Berg- þórshvoli Kveikt í hundrað ára gömlu húsi á Dalvík Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is SAMKVÆMT nýlegri úttekt sem KPMG hefur unnið fyrir Eignar- haldsfélagið Fasteign hf. (EFF), hafa sveitarfélög sparað töluvert á sam- starfi við eignarhaldsfélagið. Meðal þess sem úttektin leiddi í ljós, er að kostnaður við byggingu skóla í sam- starfi við EFF, var allt að 30% lægri en kostnaður við sambærileg verkefni sem sveitarfélög sáu um sjálf. EFF er eignarhaldsfélag sem er að 70% hluta í eigu 11 sveitarfélaga, og hefur séð um fjármögnun og bygg- ingu ýmissa fasteigna sem sveitar- félögin leigja svo af félaginu. Þá hafa mörg sveitarfélaganna fært eignir í félagið og leigja þær svo aftur. Kostnaður við að byggja fimm skóla og leikskóla í samstarfi við EFF var borinn saman við kostnað vegna svipaðra verkefna þar sem sveitar- félög sáu sjálf um að fjármögnun og byggingu. Meðalkostnaður við bygg- ingu skóla reyndist 30% lægri þegar byggt var í samstarfi við EFF, en meðalkostnaður við byggingu leik- skóla 26% lægri. Sérhæfing og samlegðaráhrif Í niðurstöðum úttektarinnar segir að með „sérhæfðri starfsemi EFF …[náist] fram stærðarhag- kvæmni og hagstæðari samningar við byggingar- og viðhaldsaðila“. Þá er bent á að ávinningur af lægri kostnaði við byggingu skóla og leikskóla sé mikill, enda hlaupi kostnaður við slík- ar framkvæmdir á hundruðum millj- óna. Bergur Hauksson, framkvæmda- stjóri EFF, tekur undir að stærðar- hagkvæmnin skipti miklu. Sveitar- félögin sem eigi EFF séu mörg hver lítil, og hafi því oft hvorki þekkingu né reynslu af fjármögnun og byggingu fasteigna. Þá bendir hann á að ábyrgðin verði að mörgu leyti skýrari með samstarfi við EFF. „Við þekkjum öll dæmi á borð við stúkuna í Laugardal og Grímseyjar- ferjuna, þar sem kostnaður fór mikið fram úr áætlun og menn bentu hver á annan,“ segir Bergur. Þegar sveitar- félög fara út í verkefni í samstarfi við EFF sé ólíklegra að slíkt komi upp. Byrjað er á því að gera kostnaðar- áætlun sem leiga sveitarfélaga til EFF er miðuð við. EFF ber svo ábyrgð á að verkið fari ekki yfir kostnaðaráætlun. Verði heildarkostn- aður verks lægri en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir, lækkar leigan sem sveitarfélögin þurfa að greiða í hluta- falli við það. Hagstæðara en krónuleiga Leigan er að 55% hluta reiknuð í evrum og 45% hluta í krónum. Eins og fram hefur komið hefur leiga hjá mörgum þeim sveitarfélögum sem eru í samstarfi við EFF hækkað mik- ið að undanförnu vegna þessa, í sam- sræmi við lækkun krónunnar. Í niðurstöðum KPMG segir að vissulega hafi leiga sveitarfélagana hækkað talsvert frá byrjun árs 2008. Þegar litið er fimm ár aftur í tímann, hafi þróun leigunnar frá EFF þó að meðaltali reynst vera hagstæðari en hún hefði verið ef hún væri tengd við vísitölu neysluverðs. Ódýrara með Fasteign ehf.  Byggingarkostnaður hjá Eignarhaldsfélaginu Fasteign er 20-30% lægri en kostnaður vegna fram- kvæmda sem sveitarfélögin sjá sjálf um  Leiga félagsins er til lengri tíma hagstæðari en krónuleiga Ný bygging Meðal fasteigna EFF er bygging Háskólans í Reykjavík. Hvað er Eignarhaldsfélagið Fasteign? Stærstu eigendur Fasteignar eru Íslandsbanki, Háskólinn í Reykja- vík og eftirfarandi sveitarfélög: Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Vogar, Garðabær, Álftanes, Ölfus, Grímsnes- og Grafningshreppur, Vestmannaeyjabær, Fjarðabyggð, Fljótsdalshérað og Norðurþing. Sveitarfélög þessi hafa ýmist fengið eignarhaldsfélagið til að fjármagna og byggja nýjar fast- eignir fyrir sig, eða fært inn í fé- lagið eldri fasteignir, og leigja þær svo aftur af eignarhalds- félaginu. Eignir Fasteignar eru um 70 tals- ins, þar á meðal skólar, leikskólar og ýmsar fasteignir sem hýsa starfsemi Íslandsbanka. S&S Heilbrigðisráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar embætti land- læknis en skipað er í það til fimm ára í senn. Matthías Halldórsson var settur landlæknir fyrir réttu ári eftir að Sigurður Guðmundsson lét af því starfi og tók við starfi forseta heil- brigðisvísindasviðs Háskóla Íslands. Embætti land- læknis auglýst MARGIR vita fátt betra en að hjúfra sig inni við með góða bók í hendi þegar veturinn skellur á af fullum þunga, með tilheyrandi myrkri, kulda og snjó. Nú líður að þeim tíma þegar fólk fer að kynna sér bækurnar sem gefnar verða út fyrir jólin og vonast eftir að sjá þær, sem settar voru á óskalist- ann, þegar skrautlegur jólapappírinn hefur verið rifinn utan af hörðu pökkunum. Það má þó ekki gleyma því að gamlar bækur eru ekki síðri en nýj- ar og fjöldi gersema finnst líka í búðum sem sér- hæfa sig í notuðum bókum. Hleypa birtu í lífið á dimmum dögum Morgunblaðið/Árni Sæberg „ÞETTA var ágætt kropp sem menn voru að fá og best virðist hafa gengið á Austfjörðum,“ segir Sig- mar B. Hauksson, formaður Skotveiðifélags Ís- lands. Fyrsti dagur rjúpnatímabilsins var í gær og gengu margir til rjúpna, en á þessu hausti eru veiðar heimilaðar á föstudögum, laugardögum og sunnudögum fram til 6. desember. Skv. upplýsingum Náttúrufræðistofnunar er rjúpnastofninn í uppsveiflu og með sama áfram- haldi getur hann orðið nokkuð sterkur að tveimur til þremur árum liðnum, jafnvel jafnsterkur og þegar hann var hvað sterkastur á síðustu öld. Það er meira af fugli nú en oft áður, en hann er afar styggur í þessari tíð og flýgur hátt,“ segir Sigmar. Víða var rigning í gær á vestanverðu landinu og sneru skyttur því blautar til byggða síðdegis. Skv. upplýsingum Morgunblaðsins héldu margir sig því heima í dag og ætla frekar til rjúpna í dag, enda veðurspáin bærileg. Ein rjúpnaskytta varð í gær viðskila við félaga sína við Skjaldbreið en skilaði sér aftur eftir um klukkustund eða áður en björgunarsveitir voru ræstar út. sbs@mbl.is Ágætt kropp á fyrsta rjúpnadegi  Góð veiði á Austfjörðum  Rjúpnaskytta viðskila við félaga sína en kom í leitirnar eftir klukkustund Morgunblaðið/Ómar Rjúpa Í gær hófst rjúpnaveiði og gengu margir til fjalla en veiðitímabilið er til 6. desember.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.