Morgunblaðið - 31.10.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
GRÍMUR Sæ-
mundsen, læknir
og forstjóri Bláa
lónsins, fékk í
fyrradag við-
urkenningu frá
Samtökum psori-
asis og ex-
emsjúklinga, fyr-
ir ómetanlegt
framlag til psori-
asis-meðferðar
hér á landi. Bláa lóns meðferðin
sem veitt er í Bláa lóninu Lækning-
arlind, er einstök á heimsvísu og
með því besta sem þekkist í heim-
inum í dag.
Viðurkenning fyrir
psoriasis-meðferð
Grímur
Sæmundsen
Á MORGUN sunnudag, verður
haldið upp á 100 ára vígsluafmæli
Stóra-Núpskirkju. Hátíðarguðs-
þjónusta verður kl. 14 þar sem Karl
Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
prédikar. Dagskrá og kaffi í Árnesi
að messu lokinni. Áður en athöfn
hefst kl. 13.40 verður gerð stutt
grein fyrir þeim framkvæmdum
sem hafa átt sér stað á Stóra-Núpi.
100 ára afmæli
Stóra-Núpskirkju
SKJÁREINN býður nú upp á Skjá-
Frelsi, nýjung sem felur það í sér að
áskrifendur SkjásEins á Sjónvarpi
Símans geta horft á dagskrána þeg-
ar þeim hentar. Um er að ræða
tækni sem býður upp á þann mögu-
leika að sækja innlenda og erlenda
sjónvarpsþætti hvenær sem er í
eina til fjórar vikur. SkjáFrelsi
verður innifalið í áskrift að Skjá-
Einum. Síminn og Skjárinn hafa nú
þegar samið um dreifingu á Skjá-
Einum um Sjónvarp Símans, sem er
aðgengilegt fyrir um 100 þúsund
heimili um land allt. Áætlað er að
þjónustan hefjist 1. desember.
Forsvarsmenn Símans og Skjásins.
Skjáfrelsi fyrir
áskrifendur
NÚ standa yfir framkvæmdir á vegum Faxaflóa-
hafna sf. við ýmis verkefni við frágang hafn-
arkanta á Slippasvæðinu. Um er að ræða frágang
á undirstöðum fyrir göngubrautir við sjó og bygg-
ing á útivistar- og setpöllum við Sjóminjasafnið að
Grandagarði 8.
Síðastliðið sumar óskuðu Faxaflóahafnir sf. eft-
ir tilboðum í þetta verk og í framhaldi af því var
gengið til samninga við lægstbjóðanda, Ísar ehf.,
en tilboð hans var 69,7% af kostnaðaráætlun.
Höfnin lagði aftur á móti til verks allt timbur.
Verktakinn hóf síðan verkið síðla sumars og
þessa dagana eru ýmsir verkáfangar að taka á sig
mynd. Pallasmíði við Grandagarð 8 er að ljúka,
grjótröðun á landköntum í gangi og samhliða lokið
niðurrekstri á undirstöðustaurum fyrir göngu-
brautir sem byggðar verða þarna síðar. Þessum
áfanga framkvæmda lýkur síðan í desember.
Við verklok þessara framkvæmda má segja að
nokkrar áhugaverðustu lóðir til úthlutunar og
uppbyggingar í Reykjavík séu nú að verða til-
búnar. Húsin á svæðinu verða 4-5 hæðir með
verslunum á neðri hæðum og íbúðum á efri hæð-
um. Þetta kann að taka breytingum því nú er í
gangi hugmyndsamkeppni um svæðið.
Að sögn Gísla Gíslasonar hafnarstjóra hefur
verið frestað að auglýsa lóðirnar til úthlutunar,
ekki síst vegna efnahagsástandsins. Eins vilja
menn bíða og sjá hver verður niðurstaða hug-
myndasamkeppninnar. sisi@mbl.is
Unnið við eftirsóttar lóðir
Frestað hefur verið að auglýsa lóðir á Slippasvæðinu vegna efnahagsástandsins
ÞAÐ var góður sprettur sem Hulda Bjarkar Gylfadótt-
ir tók í Sporthúsinu í Kópavogi í gær þegar hún reri
103 km og sló þar með Íslandsmet. Enginn hefur áður
róið svo langt og lengi, en hún var ellefu klukkustundir
„undir árum“. Í leiðangurinn fór hún til styrktar verð-
ugu málefni, sem er baráttan gegn brjóstakrabba-
meini. Peningar sem söfnuðust með róðrinum renna til
átaksins Bætum brjóst en tilgangurinn þar er að safna
fyrir röntgentæki fyrir Landspítalann og þannig bæta
þjónustu við konur sem eru með brjóstakrabbamein.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
HULDA RERI GEGN KRABBAMEINI
MEÐAL stofn-
fjáreigenda Spari-
sjóðsins í Keflavík,
SpKef, eru 35
ófjárráða ein-
staklingar, eða
börn undir 18 ára
aldri. Að sögn
Angantýs V. Jón-
assonar spari-
sjóðsstjóra hafa
engir ófjárráða einstaklingar fengið
lán hjá sparisjóðnum til kaupa á
stofnfjárbréfum og engin börn eru
meðal skuldara í sjóðnum. Sam-
kvæmt verklagsreglum sjóðsins sé
ekki heimilt að veita slík lán.
Angantýr segir engar takmarkanir
á því að ófjárráða aðilar geti verið
stofnfjáreigendur, þeir geti t.d. eign-
ast stofnfjárbréf gegnum erfðir eða
fengið þau að gjöf.
Eins og fram hefur komið fengu 10
börn meðal stofnfjáreigenda Byrs
lán hjá gamla Glitni vegna stofnfjár-
aukningar í sparisjóðnum. Þar sem
ekki fékkst samþykki sýslumanns
fyrir þeim lántökum lítur Íslands-
banki svo á að lánin séu ógild og þau
verði ekki innheimt. bjb@mbl.is
Barnalán
ekki veitt
í Keflavík
Angantýr V.
Jónasson
Sigmundur með
14,6%
RANGHERMT var í blaðinu í gær
að 4,6% aðspurðra í könnun Við-
skiptablaðsins treystu Sigmundi
Davíð Gunnlaugssyni best til að
leiða Íslendinga út úr efnahags-
kreppunni. Rétt tala er 14,6%. Mis-
tökin má rekja til prentvillu í Við-
skiptablaðinu.
Rangur myndatexti
RANGUR myndatexti birtist með
mynd um réttarhöld í morðmáli í
Dresden í Þýskalandi í Morgun-
blaðinu sl. þriðjudag. Á myndinni
var Elwy Ali Okaz, eiginmaður hinn-
ar myrtu, en ekki meintur morðingi.
LEIÐRÉTT