Morgunblaðið - 31.10.2009, Síða 14

Morgunblaðið - 31.10.2009, Síða 14
Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is FRAMUNDAN eru miklar breyt- ingar á húsi Domus Medica við Egils- götu. Samkvæmt tillögu að breyttu deiliskipulagi verður nýtt þjónustu- rými með aðalinngangi um 2.200 fer- metrar og bílakjallari á tveimur hæð- um verður 3.825 fermetrar. Jón Gauti Jónsson, framkvæmdastjóri Domus Medica og Læknahússins, segir að þessar breytingar muni létta mjög álagi af Egilsgötu og starfsemi hússins tengist eftir breytingar beint inn á Snorrabraut. Jón Gauti segir að breytingarnar hafi lengi verið í undirbúningi og í því ferli hafi verið tekið mið af mörgum athugasemdum og hugmyndum. „Framkvæmdirnar eru liður í fram- tíðarþróun starfsemi okkar, en við förum okkur að engu óðslega. Um- sagnarferli lýkur í lok nóvember og þá tekur borgin afstöðu til at- hugasemda sem fram kunna að koma og að því loknu tekur hönnunarferlið við. Við erum búin að vera hér í rúm 40 ár og erum ekki þekkt fyrir að taka stór stökk, en á næstu árum verður ráðist í þessar framkvæmdir, sem margir koma að,“ segir Jón Gauti. Hann segir óvarlegt að nefna kostnað við þessar framkvæmdir, hann gæti þó verið á bilinu 500-1.000 milljónir króna. Hringrás umferðar verður neðanjarðar Í greinargerð sem fylgir kynn- ingu á tillögu að breyttu deiliskipu- lagi segir að nútímaheilbrigðisþjón- usta geri meiri kröfur um aukinn húsakost, m.a. vegna meiri áherslu á tæknibúnað á skurðstofum og rannsóknarstofum og kallar á sam- felld stærri rými fyrir starfsemina. Til þess að mæta kröfum um aukið þjónusturými er óskað eftir aukn- ingu byggingarmagns á lóðinni. Breytingin nær m.a. til nýs aðal- inngangs á 1. hæð með aðkomu frá Snorrabraut. Tveggja hæða bíla- geymsla verður með gegnumakstri og verða op bílageymslunnar á sömu hæð og aðalinngangurinn. Núverandi aðkomuhæð frá Egils- götu, sem er önnur hæð, verður framlengd til vesturs og verður 3. og 4. hæðin, sem snúa að Heilsu- verndarstöðinni, inndregnar. Bíla- kjallarinn með aksturshringrás neð- anjarðar verður í raun í kringum gamla húsið. Endurbygging á teikniborðinu Heilsuverndarstöðin Bílageymsla neðanjarðar Egilsgata 3 Domus Medica Olís Við- bygging Götuásýnd frá Egilsgötu Olís Domus Medica Bíla- geymsla Nýbygging (4h) Heilsuverndarstöðin E G I L S G A TA S N O R R A B R A U T Egilsgata 3 deiliskipulag út inn Framkvæmdir við Domus Medica gætu kostað 500- 1.000 milljónir 14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 Hættumatsnefnd Skaftárhrepps Í samræmi vi› ákvæ›i laga nr. 49/1997 og regluger›ar nr. 505/2000 hefur veri› unnin tillaga a› hættumati vegna ofanfló›a fyrir Kirkjubæjarklaustur. Tillagan liggur nú frammi til kynningar á skrifstofu Skaftárhrepps. Athugasemdum skal skilað til Skaftárhrepps í síðasta lagi þriðjudaginn 1. desember 2009. Hættumat fyrir Kirkjubæjarklaustur „ÞAÐ sem stjórnvöld eru að gera með þessari greiðslujöfnun er að bæta nýju flækjustigi inn í þegar mjög flókna stöðu,“ segir Breki Karlsson, forstöðumaður Stofnunar um fjármálalæsi. Stofnunin geldur varhug við greiðslujöfnunarvísitölunni sem stjórnvöld hyggjast tengja afborg- anir lána við, en hún reiknast út frá lanaþróun og atvinnustigi og segir Breki lausnina byggða á rangri hugsun. „Vandamálið við verð- tryggðu lánin er ekki verðtrygg- ingin sjálf, heldur verðbólgan, svo það sem við þurfum að gera til að lækka afborganir er að halda verð- bólgunni niðri. Að sama skapi þyrftum við þá að berjast við að halda launum og atvinnustigi niðri með greiðslujöfnunarvísitölunni, sem er náttúrlega mjög skakkt og gæti skekkt kjarabaráttu framtíð- arinnar.“ Breki segir launavísitöl- una auk þess ekki gagnsæja því hún mælir ekki laun einstaklinga eins og hópa. Þetta sést m.a. á því að síð- asta árið hefur stór hópur fólks hætt í bankageiranum og því misst mjög há laun, en á sama tíma hefur launavísitalan hækkað. Svo ef kennarastéttin t.d. fær launahækk- un, þá þurfa hjúkrunarfræðingar að borga meira af lánunum sínum. „Þarna er komið tæki til að setja lok á kjarabaráttuna því hún skilar sér í hærri greiðslubyrði.“ Greiðslujöfnunarvísitalan gæti skekkt kjarabaráttuna næstu árin Morgunblaðið/Skapti Hallgríms 1. maí Kjarabaráttan gæti litast. FRÉTTASKÝRING Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is GREIÐSLUJÖFNUN verðtryggðra húsnæðislána sem gengur í gegn á gjalddaga í desember á við um alla lántakendur sem eru í skilum, hjá öll- um lánastofnunum, jafnt bönkum sem Íbúðalánasjóði. Einu gildir í hversu mörg ár greitt hefur verið af láninu og hversu mikl- ar eða litlar eftirstöðvar eru af höf- uðstólnum, öll verðtryggð húsnæð- islán í skilum verða greiðslujöfnuð nema lántakandinn óski eftir öðru. Líkt og sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær er ekki gefið að greiðslujöfnun sé úrræði sem borgar sig fyrir alla lántakendur þótt hún sé mörgum kærkomin og er því öllum ráðlegt að taka upplýsta ákvörðun um hvort hún hentar eða ekki. Tryggir ekki framtíðaröryggi En fyrir hverja er greiðslujöfnun heppileg? Þessar aðgerðir stjórn- valda eru ekki einfaldar og óvissu- þættirnir margir svo erfitt er að al- hæfa, en í stuttu máli má segja að fyrir þá sem ráða enn við afborganir lána þrátt fyrir verðbólguna borgar sig sennilega ekki að þiggja greiðslu- jöfnun né heldur hentar hún þeim sem eru verst staddir og þurfa á sér- stökum úrræðum að halda. Greiðslujöfnun er því fyrst og fremst heppilegt úrræði fyrir fólk í þeirri stöðu að það muni verulega mikið um 15-17% lækkun á afborg- unum eins og fjárhagsstaðan er í dag, en þá þarf líka að hafa í huga að það er tímabundin lausn því í heild verður kostnaður við lánið hærri. Greiðslujöfnun er þannig ekki trygging fyrir öruggari framtíð, því óvissuþættirnir eru of margir til að hægt sé að gera áreiðanlega greiðsluáætlun til loka lánstímans. Minni lánabyrði í fimm ár Stofnun um fjármálalæsi hefur hins vegar sett fram spá um þróun greiðslujöfnunarvísitölu og verð- bólgu. Samkvæmt spánni má gera ráð fyrir að greiðslujöfnuð lán séu ekki hagstæð lengur en út árið 2014, eftir það verði greiðslubyrði þyngri en óbreyttra lána. Greiðslujöfnun felur því ekki í sér langtímalausn. Á hinn bóginn er rétt að ítreka að hvort sem lántakendur velja á þess- ari stundu að greiðslujafna lánin sín eða ekki þá brenna þeir ekki allar brýr að baki sér. Þeir sem hafna greiðslujöfnun núna geta sótt um hana síðar ef þeir skipta um skoðun og eins er hægt að segja sig frá greiðslujöfnun hvenær sem er, en þá leggst mismunurinn aftur á höfuð- stólinn með vöxtum. Morgunblaðið/Árni Sæberg Nýbyggingar Afborgun verðtryggðra húsnæðislána í desember verður miðuð við janúar 2008 eftir greiðslujöfnun. Borgar sig í 5 ár  Greiðslubyrði greiðslujafnaðra lána verður líklega þyngri en óbreyttra frá og með 2015  Erfitt að gera lánsáætlun Aðgerðir stjórnvalda henta fyrst og fremst þeim sem munar verulega um 15-17% lækkun á greiðslubyrði eins og fjárhags- staðan er í dag, en er óráðleg fyrir aðra lántakendur. Mismunandi greiðslubyrði lána 2008-2028 Greiðslujafnað lán 140 120 100 80 60 40 20 0 % Heimild: fe.is Uppsöfnuð ársbreyting á greiðslubyrði láns eftir því hvort lánið sé tengt greiðslujöfnunarvísitölu eða vísitölu neysluverðs 2008 2010 2015 2020 2025 2028 Lán tengt vísitölu neysluverðs (verðtryggt) Hverjir fá greiðslujöfnun? Allir sem eru með verðtryggð húsnæðislán, óháð lánastofnun, upphæð, aldri eða lengd láns, svo lengi sem lánið er í skilum. Er hægt að hætta við hana? Já, það er hægt hvenær sem er en tilkynningin þarf að berast eigi síðar en 10 dögum fyrir næsta gjalddaga. Þeir sem vilja hafna greiðslujöfnun strax þurfa því að gera það fyrir 20. nóvember. Hvar er hægt að gera það? Hjá viðkomandi lánastofnun, t.d. í gegnum staðlað form í heimabankanum og á heimasíðu Íbúðalánasjóðs. Hvernig er greiðslujöfnun? Afborganir eru færðar aftur til þess sem þær voru í janúar 2008 og tengdar sérstakri vísitölu í stað neysluvísitölu. Þær ættu því að lækka um 15-17% í upphafi. S&S ÚTGJÖLD sveitarfélaganna vegna fjárhagsaðstoðar félagsþjónustunn- ar hafa aukist um 70% á þessu ári og húsaleigubætur eru póstur sem er 60% hærri en í fyrra. Við þær að- stæður geta sveitarfélögin ekki tek- ið á sig aukin útgjöld vegna ráðstaf- ana í ríkisfjármálum, segir í ályktun sem stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga samþykkti á fundi sín- um í gær. Í ályktun segir að komi til frekari hækkunar tryggingagjalds sé mik- ilvægt að það leiði ekki til útgjalda- auka sveitarfélaga. Um slíkt hafi verið gefin fyrirheit í stöðugleika- sáttmálanum. Áætlað er að áhrif af hækkun tryggingagjalds sl. sumar nemi tveimur milljörðum á þessu og næsta ári. Með frekari hækkun sé sé hagræðingarstarf að undanförnu fyrir gýg unnið. Félagsþjónusta dýrari

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.