Morgunblaðið - 31.10.2009, Page 20
20 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÉG sé mig tilneyddan til þess að höfða
skaðabótamál gegn KÍM [Kynning-
armiðstöð íslenskrar myndlistar] eftir
næstum tveggja ára þref. Verði þetta mál
ekki leitt til lykta með
formlegum hætti og
stofnunin sem að sýn-
ingunni stóð látin sæta
ábyrgð þá er komið
viðsjárvert fordæmi
fyrir því að það sé í
lagi að vanrækja það
að tryggja íslensk
myndlistarverk með
fullnægjandi hætti,“
segir Steingrímur Ey-
fjörð myndlistarmaður.
Forsaga málsins er sú að Steingrímur
var valinn fulltrúi Íslands á Feneyja-
tvíæringnum 2007 og vann af því tilefni
sýninguna Lóan er komin. Að sögn Stein-
gríms var það samkvæmt samningi sem
hann gerði við KÍM í höndum Christians
Schoens, forstöðumanns KÍM, að finna og
leigja sýningarhúsnæði. Jafnframt hafi
það verið í höndum KÍM að sjá um flutn-
ing listaverkanna til og frá sýningarstað
og kaupa vátryggingu til að tryggja lista-
verkin fyrir tjóni í flutningi og meðan á
sýningunni stæði.
Sýningarhúsnæðið flóðakjallari
„Salurinn sem Christian leigði fyrir
sýninguna var afleitur sýningarstaður.
Húsnæðið reyndist vera flóðakjallari og
það gerðist nokkrum sinnum meðan á
sýningunni stóð að það flæddi inn í kjall-
arann,“ segir Steingrímur og bendir á að
vatnið hafi valdið skemmdum á listaverk-
um hans. „Þrjú verka minna urðu fyrir
gáleysi. Það var á ábyrgð KÍM að tryggja
verkin með viðunandi hætti en það var
ekki gert og því tel ég eðlilegt að KÍM
bæti mér skaðann. Enda er það viðtekin
venja að sýningarstofnun beri ábyrgð á
öllum skemmdum sem kunna að verða á
verkum meðan á sýningu á hennar vegum
stendur. Ef tryggingarfélag bregst lendir
ábyrgðin á sýningarstofnuninni, ekki
listamanninum sem er skjólstæðingur
stofnunarinnar,“ segir Steingrímur sem
jafnframt gagnrýnir að Schoen skuli ekki
hafa látið gera fullnægjandi úttektir á
listaverkunum fyrir og eftir flutning til
Feneyja og aftur heim til Íslands.
Að sögn Steingríms leitaði hann að-
stoðar menntamálaráðuneytisins þar sem
KÍM hafði gert samning við ráðuneytið
um að sjá um framkvæmd íslenska skál-
ans á Feneyjatvíæringnum 2007. „Í apríl
sl. hafði ráðuneytið milligöngu um sátta-
tillögu sem fól í sér að KÍM myndi sjá um
viðgerð verkanna tveggja milliliðalaust
auk þess sem stjórn KÍM ætti að senda
mér skriflega afsökunarbeiðni. Þessu
hafnaði Fríða Björk [Ingvarsdóttir, þá-
verandi stjórnarformaður KÍM] sem er
sérkennilegt í ljósi þess að hún er tilnefnd
af menntamálaráðuneytinu í stjórn,“ segir
Steingrímur.
Fyrir nokkru komst Steingrímur yfir
skýrslu KÍM um þátttöku Íslands í Fen-
eyjatvíæringnum 2007. „Þar kemur fram
að KÍM hafi tekið tvær milljónir króna
sem ágóða af sýningu minni og sett í
næsta verkefni, þ.e. Feneyjatvíæringinn
2009,“ segir Steingrímur og tekur fram
að þessi upphæð hefði dugað til þess að
standa straum af viðgerðum á verkum
hans sem og lögfræðikostnaði, auk þess
sem honum finnist sérkennilegt að styrk-
ir sem aflað sé út á hans nafn renni til
annars verkefnis.
miklum skemmdum vegna þessara flóða,
þau eru Camera Obscura 2007, Don’t
Forget 2007 og Beautiful Move 2007.
Fyrstu tvö verkin voru seld áður en sýn-
ingin var sett upp. Þegar skemmdirnar
komu í ljós ákvað kaupandi Camera
Obscura 2007 að láta gera við verkið á
eigin kostnað, en ég hef ekki getað afhent
Don’t Forget 2007 kaupanda vegna
skemmdanna og Beautiful Move 2007 er
óseljanlegt í núverandi ástandi,“ segir
Steingrímur. Segir hann Morkinskinnu
hafi metið það sem svo að það kosti um
eina milljón að gera við síðastnefndu
verkin tvö.
„Þegar ég fór að grennslast fyrir um
málið komst ég að því að í trygginga-
samningnum sem Christian gerði er sér-
staklega tekið fram að tryggingafélagið
tryggi ekki rakaskemmdir, en Christian
virðist ekki hafa gert sér grein fyrir
þessu fyrr en löngu eftir að sýningunni
lauk. Sýningarstjóri minn lagði mikla
áherslu á að verkin yrðu tryggð gegn
vatnsskemmdum og henni var sagt að
slík trygging væri fyrir hendi. Ég tel því
að Christian hafi gerst sekur um vítavert
Vill að einhver sæti ábyrgð
Steingrímur Eyfjörð segir sig tilneyddan til að fara í mál við KÍM vegna vanrækslu á tryggingu lista-
verka hans Lögfræðingur hans segir stefnu gegn KÍM í undirbúningi sem afhent verði í næstu viku
Morgunblaðið/Einar Falur
Vatnsleki Meðan sýning Steingríms, Lóan er komin, var sýnd á Feneyjartvíæringnum flæddi nokkrum sinnum inn í sýningarsalinn.
Í HNOTSKURN
»Feneyjatvíæringurinn er um-fangsmikil alþjóðleg myndlist-
arsýning helguð samtímalist hald-
in annað hvert ár í Feneyjum.
» Ísland var fyrst með 1960 oghefur frá 1984 sýnt í finnska
skálanum sem Aalto hannaði.
»Árið 2007 ákváðu Finnar aðnota skálann sjálfir og því
þurfti að finna annað húsnæði.
Steingrímur
Eyfjörð
„ÉG er að vinna að
sáttarlausn því við
leggjum allt kapp á
að leysa þetta þannig
að enginn sitji eftir
með sárt ennið,“ seg-
ir Halldór Björn
Runólfsson, nýr
stjórnarformaður
KÍM. „Við teljum að
verði farið út í hart
þá sé staða KÍM mjög sterk, því við höfum fylgt öllum
nauðsynlegum reglum,“ segir Halldór Björn, en tekur
fram að hann sé þeirrar skoðunar að endi málið fyrir
dómstólum muni það skaða alla málsaðila. Undir þetta
tekur Christian Schoen, forstöðumaður KÍM, sem segist
binda vonir við að hægt verði að leysa málið með farsæl-
um hætti.
„Ég óttast að málaferli gætu skaðað Steingrím,“ segir
Halldór Björn og bætir við: „Hvað KÍM varðar þá myndi
þetta vera leiðinlegur blettur á ungri stofnun sem hefur
verið að staðfesta sig og styrkja ímynd sína í landinu og
hefur unnið mjög þarft verk, auk þess sem þetta myndi
bitna fjárhagslega á okkur,“ segir Halldór Björn og tekur
fram að allir íslenskir listamenn séu skjólstæðingar KÍM.
„Og þetta myndi strax setja einhvern blett á annars mjög
fína og jákvæða starfsemi sem hefur verið hingað til.“
Vilja leysa málið
með farsælum hætti
Christian
Schoen
Halldór Björn
Runólfsson
„RÁÐUNEYTIÐ lít-
ur þannig á að það sé
KÍM að leiða málið
til lykta eins og öll
önnur efnisatriði eða
framkvæmdaatriði í
kringum þennan
Feneyjatvíæring,“
segir Eiríkur Þor-
láksson, sérfræð-
ingur á skrifstofu
menningarmála hjá mennta- og menningarmálaráðu-
neytinu. Bendir hann á að KÍM sé sjálfstætt starfandi
sjálfseignarstofnun, en að gerður hafi verið sérstakur
samningur milli hennar og ráðuneytisins þess efnis að
KÍM annaðist Feneyjatvíæringinn 2007 sem og 2009.
Aðspurður segir Eiríkur ráðuneytið þekkja málið
ágætlega þar sem báðir málsaðilar hafi leitað til ráðu-
neytisins og kynnt því málavöxtu. „Við höfum hvatt báða
til að ná sáttum um málið og leitt þá saman með það í
huga, án þess að á ráðuneytinu hvíldi nein skylda til þess
eða ábyrgð á málalokum,“ segir Eiríkur. Undir þetta tek-
ur Sigtryggur Magnason, aðstoðarmaður mennta-
málaráðherra. „Það er okkar ósk að þetta mál verði
leyst.“
Spurður með hvaða hætti ráðuneytið hafi haft milli-
göngu um málið lýsir Eiríkur því sem óformlegum þreif-
ingum. „Það er nú yfirleitt þannig þegar tveir deila að
það hefur hvorugur 100% rétt fyrir sér og ef menn geta
ekki mæst á miðri leið þá verður að nota úrræði réttar-
ríkisins.“
Á ábyrgð KÍM að
leiða málið til lykta
Sigtryggur
Magnason
Eiríkur
Þorláksson
Nefnd um vist- og meðferðarheimili
Viðtöl við einstaklinga sem dvöldu á vistheimilinu
Silungapolli sem börn á árunum 1950-1969
Með erindisbréfi, dags. 2. apríl 2007, skipaði forsætisráðherra nefnd á grundvelli laga nr. 26/2007 um skipan
nefndar til að kanna starfsemi vist- og meðferðarheimila fyrir börn. Hlutverk nefndarinnar er að kanna hver
tildrög þess hafi verið að börn voru þar vistuð, hvernig opinberu eftirliti hafi verið háttað með starfsemi
viðkomandi stofnunar og hvort börn sem þar voru vistuð hafi sætt illri meðferð eða ofbeldi á meðan á dvöl
þeirra stóð.
Um þessar mundir er vistheimilisnefnd m.a. að kanna starfsemi vistheimilisins Silungapolls sem starfrækt var á
árunum 1950-1969. Af því tilefni óskar nefndin vinsamlegast eftir því að þeir sem dvöldu sem börn á
vistheimilinu Silungapolli, og hafa áhuga á því að veita nefndinni viðtal og upplýsa hana um reynslu sína af
dvölinni, hafi samband við nefndina fyrir 1. desember nk. í síma 563-7016 eða á netfangið
vistheimili@for.stjr.is.
ÞVÍ var harðlega mótmælt á aðal-
fundi LÍÚ, sem lauk í gær, að svokall-
aðar strandveiðar hefðu tekist vel í
sumar. Þvert á móti hefðu þær verið
eins misheppnaðar og efni stóðu til.
„Strandveiðarnar stuðluðu ekki að
nýliðun, ekki að bættri aflameðferð,
ekki að bættu öryggi sjómanna og
stuðluðu alls ekki að sátt um fisk-
veiðistjórnina,“ segir í ályktun aðal-
fundarins, sem leggur til að strand-
veiðar verði ekki heimilaðar áfram.
Útgerðarmenn samþykktu líka á
fundum ályktun þar sem mótmælt er
harðlega hugmyndum um upptöku
aflaheimilda og hvetur stjórnvöld til
að hverfa nú þegar frá þeim. „Upp-
taka aflaheimilda er alvarleg ógn við
íslenskan sjávarútveg og bein aðför
að landsbyggðinni. Þessar hug-
myndir hafa þegar valdið atvinnu-
greininni og tengdum þjón-
ustugreinum fjárhagstjóni. Með
upptökunni yrði gerður að engu sá
ávinningur og sú hagræðing sem
náðst hefur í sjávarútvegi undanfarin
ár.“
Fullyrt er að upptaka aflaheimilda
myndi leiða til stórfellds skaða vegna
gjaldþrota fyrirtækja í sjávarútvegi.
Kostnaðurinn myndi lenda á þjóð-
félaginu öllu.
Ekki rétt að strand-
veiðar hafi gengið vel
LÍÚ mótmælir fyrningu aflaheimilda