Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 22
22 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
NORSKI athafnamaðurinn Endre
Røsjø hefur kært dagblaðið Dagens
Næringsliv (DN) til lögreglu fyrir
umfjöllun þess um viðskipti Røsjø
og norska olífyrirtækisins DNO.
Fullyrðir blaðið jafnframt að Røsjø
hafi bæði hótað blaðamanni sem og
boðið honum háar fjárhæðir fyrir
upplýsingar um heimildarmenn.
Fullyrðir norska blaðið að félag í
eigu Røsjø, Pinemont Securities,
hafi haft milligöngu um greiðslur
frá DNO til bandaríska erindrek-
ans Peter Galbraith. Segir jafn-
framt að DNO hafi greitt Galbraith
fyrir að hafa auðveldað fyrirtækinu
að fá olíusamninga við stjórnvöld í
Kúrdahéruðum Íraks árið 2004.
Var DNO fyrst vestrænna olíu-
fyrirtækja til að gera slíkan samn-
ing.
Hefur blaðið ekki fengið útskýr-
ingar á því hvers vegna greiðslur
Galbraiths fóru í gegnum Pine-
mont.
Lánaði til hlutabréfakaupa
Tengsl Røsjø við norska olíu-
fyrirtækið og forstjóra þess, Helga
Eide, eru enn nánari samkvæmt
frétt DN. Árið 2004 ákvað Eide að
ráða Røsjø sem ráðgjafa. Skömmu
síðar lánaði félag í eigu Røsjø, Cen-
tennial AS, Eide fimm milljónir
norskra króna, andvirði um 110
milljóna íslenskra króna á núvirði.
Lánsféð notaði Eide til að kaupa
hlutabréf í DNO, sem ári seinna
höfðu nær fjórfaldast í verði. Ekki
var greint frá láninu í ársreikn-
ingum DNO, en Eide segir að þar
sem hann hafi greitt Røsjø féð til
baka fyrir áramótin 2004/2005 hafi
ekki reynst nauðsynlegt að skýra
frá því í ársskýrslu.
Sem áður segir hefur Røsjø ekki
verið alls kostar sáttur við umfjöll-
un blaðsins og segir hana byggða á
stolnum gögnum. Mun hann hafa
boðið blaðamanni um 10 milljónir
íslenskra króna fyrir upplýsingar
um hinn meinta skjalaþjófnað.
Segir jafnframt að hann hafi sagt
blaðamanni að ónafngreindir Kúrd-
ar ættu óuppgerðar sakir við hann.
Þegar blaðamaður spurði Røsjø
hvaða Kúrdar þetta væru mun
Røsjø hafa sagt blaðamanninum að
stíga einfaldlega upp í næsta leigu-
bíl og segja til nafns.
MP banki skoðar málið
Áður hefur verið frá því sagt í
Morgunblaðinu að til standi að
Røsjø muni leggja MP banka til
nýtt hlutafé og greiða fyrir það
1.400 milljónir króna. Eftir það
verði hann næststærsti hluthafi
bankans á eftir Margeiri Péturs-
syni.
Hluthafafundur hefur þegar veitt
stjórn heimild til að auka hlutafé
bankans, en það hefur ekki enn
verið gert. Margeir Pétursson sagði
í samtali við Morgunblaðið í gær að
verið væri að skoða málið og hvort
eitthvað væri á bak við fréttir
norska blaðsins, en að öðru leyti
vildi hann ekki tjá sig um málið.
Hótaði blaðamanni og bar á hann fé
Endre Røsjø, verðandi hluthafi í MP banka, kærir norskt dagblað vegna umfjöllunar blaðsins
MP banki skoðar hvort eitthvað sé á bak við fréttirnar, en til stendur að Røsjø verði hluthafi í MP
Endre
Røsjø
Margeir
Pétursson
● FYRSTU níu mánuði ársins hefur ver-
ið afgangur á vöruskiptum við útlönd
upp á tæpa 44 milljarða króna. Fluttar
hafa verið út vörur fyrir 341 milljarð
króna en inn fyrir 297 milljarða króna.
Eftir sama tímabil á síðasta ári voru
vöruskiptin óhagstæð um 65 milljarða
á sama gengi. Í september sl. var flutt
út fyrir tæpa 44 milljarða en inn fyrir
rúma 40 milljarða.
Vöruskiptin hagstæð
um 44 milljarða króna
ÞETTA HELST ...
● FRESTUR til að lýsa kröfum í þrotabú
gamla Landsbankans rann út á mið-
nætti. Samkvæmt upplýsingum frá slita-
stjórn bankans í gær verður ekkert upp-
lýst um kröfurnar fyrr en á fundi með
kröfuhöfum bankans 23. nóvember
næstkomandi en ljóst er að kröfurnar
skipta þúsundum. Fram að þeim fundi
mun slitastjórn fara yfir og meta kröf-
urnar og munu kröfuhafar fá á þeim
fyrstu kynningu. Engu að síður liggur
nokkuð ljóst fyrir að stærsta krafan
verður frá Tryggingasjóði innistæðueig-
enda vegna Icesave-reikninganna, eða
um 670 milljarðar króna. Jafnframt má
búast við kröfum frá tryggingasjóðum í
Hollandi og Bretlandi vegna Icesave.
Skilanefnd Kaupþings hefur svo feng-
ið lengri frest til að taka ákvörðun um
aðkomu kröfuhafa að Nýja-Kaupþingi en
fresturinn átti að renna út í dag.
Þúsundir krafna í þrota-
bú Landsbankans
● FJÓRIR nýir
starfsmenn bæt-
ast í hópinn eftir
helgi hjá embætti
sérstaks saksókn-
ara, Ólafs Þórs
Haukssonar. Þrír
þeirra koma frá
lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu
og einn frá embætti ríkislög-
reglustjóra. Að sögn Ólafs Þórs er um
tímabundnar ráðningar að ræða sem
líklega verða framlengdar í ljósi aukinna
og umsvifamikilla verkefna. Alls eru nú
23 starfsmenn hjá embættinu en ný-
verið tóku þar til starfa þrír sjálfstæðir
saksóknarar. bjb@mbl.is
Sérstaki fær fjóra menn
Eftir Þorbjörn Þórðarson og
Örn Arnarson
ÞAÐ virðist vera á reiki hver staða
1998 ehf. er en það er móðurfélag
Haga sem meðal annars rekur versl-
unarkeðjurnar Hagkaup, Bónus og
10-11 auk fleiri verslana. Félagið hef-
ur verið í eigu Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar og fjölskyldu hans en Morg-
unblaðið hefur fengið staðfest innan
úr Nýja Kaupþingi að bankinn hafi
eignast meirihluta í félaginu. Einnig
hefur komið fram í fréttum að bank-
inn hafi skipað tvo af þremur mönn-
um í nýrri stjórn 1998 og að heim-
ilisfang félagsins hafi verið fært til
höfuðstöðva Nýja Kaupþings í Borg-
artúni.
Jóhannes Jónsson, kenndur við
Bónus, vísar þessu hins vegar á bug
og segir engar breytingar hafa orðið á
1998 en hann situr í stjórn félagsins
ásamt fulltrúum Nýja Kaupþings.
Hann segir að skriflegur samningur
um samstarf um fjármögnun félags-
ins liggi fyrir og hann feli ekki í sér
neinar breytingar á eignaraðild enn
sem komið er.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er um að ræða samkomulag á
milli helstu eigenda 1998 og Nýja
Kaupþings um að þeir fyrrnefndu
komi með nýtt fjármagn inn í félagið.
Samkomulagið tengist viðræðum sem
hafa átt sér stað um skuld félagsins
við bankann, sem upphaflega var 30
milljarðar króna en stendur nú í 48
milljörðum. Heimildir Morgunblaðs-
ins segja að takist að afla nýs hluta-
fjár þá muni Jón Ásgeir og fjölskylda
halda yfirráðum sínum yfir félaginu.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
hafa núverandi eigendur nokkurra
vikna svigrúm til þess að ljúka við
hlutafjáraukninguna. Fullyrt er á
fréttavef Viðskiptablaðsins að eigend-
um 1998 dugi að leggja fram fimm
milljarða í nýtt hlutafé til þess að
halda yfirráðum sínum og þar með
tryggja eignarhald sitt á Högum.
Bankinn fjármagnaði kaupin
Skuld 1998 við Nýja Kaupþing varð
til þegar Jón Ásgeir og fjölskylda
keyptu Haga af sjálfum sér úr Baugi.
Bankinn lánaði 1998 allt kaupverðið
en það nam 30 milljörðum á gengi
þess tíma og fylgdi 15 milljarða
rekstrarskuld með í kaupunum. Það
fé var voru svo nýtt til að greiða eldri
skuld Baugs við Kaupþing sem nam
25 milljörðum og aðra skuld við Glitni
sem nam 5 milljörðum. Kaupþing tók
95,7% veð í 1998 gegn láninu.
Það blasir við að 1998 er skuldsett
félag og má setja þá staðreynd í sam-
hengi við að dótturfélagið Hagar
þurfti að fá lánafyrirgreiðslu frá Nýja
Kaupþingi og NBI til þess að greiða
upp sjö milljarða króna skuldabréfa-
flokk fyrr í þessum mánuði. Haft var
eftir Finni Árnasyni, forstjóra Haga, í
Morgunblaðinu þann 9. þessa mánað-
ar að uppreiknað verð flokksins hefði
verið á bilinu 10 - 11 milljarðar og
hefði lánveiting skipst nokkurn veg-
inn jafnt á milli bankanna tveggja.
Megnið af langtímafjármögnun Haga
var þessi skuldabréfaflokkur.
Fá frest til þess að tryggja
sér eignarhald í Högum
Eigendur 1998 ehf. þurfa að reiða fram 5 milljarða til þess að tryggja eignarhaldið
Hagar Höfuðstöðvar Kaupþings eru
nýtt heimilisfang 1998 ehf.
Í HNOTSKURN
»Heimildir innan NýjaKaupþings fullyrða að
bankinn hafi eignast meiri-
hluta í 1998 ehf.
»Jóhannes Jónsson, kennd-ur við Bónus, segir enga
breytingu hafa orðið á eign-
arhaldi.
»Félagið 1998 á Haga semer móðurfélag Bónuss,
Hagkaupa, 10-11, Útilífs, De-
benhams, Karenar Millen,
Oasis, Zara og fleiri verslana.
um en sem kunnugt er hefur embætti sérstaks
saksóknara hafið samstarf við SFO við rannsókn á
bankahruninu.
EF marka má frásögn breska blaðsins Daily Mail
í gær er efnahagsbrotaskrifstofa bresku lögregl-
unnar, Serious Fraud Office (SFO) að hefja rann-
sókn á viðskiptum þriggja kunnra kaupsýslu-
manna á Bretlandseyjum, sem allir hafa með
einum eða öðrum hætti tengst viðskiptum við ís-
lenska banka og fyrirtæki.
Þetta eru þeir Mike Ashley, stofnandi versl-
unarkeðjunnar Sports Direct, Chris Ronnie, fyrr-
verandi forstjóri JJB Sports, og Robert Tchengu-
iz, fyrrum stjórnarmaður í Exista og
stórviðskiptavinur Kaupþings.
Samkvæmt frétt Daily Mail á þessi rannsókn að
byggjast á upplýsingum frá íslenskum stjórnvöld-
Tekið er fram í fréttinni að engar vísbendingar
séu um að kaupsýslumennirnir hafi gerst brotleg-
ir við lög. Vitnað er til þess að hópur starfsmanna
SFO, sem var hér á landi nýverið, muni senda frá
sér skýrslu um rannsóknina í næstu viku.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari,
segist ekkert geta staðfest um rannsóknir SFO,
annað en að þessi embætti hafi skipst á upplýs-
ingum á síðustu mánuðum. Í breska blaðinu kem-
ur m.a. fram að SFO sé að rannsaka lánafyr-
irgreiðslu til þessara manna, t.d. án sýnilegra
veða, og sömuleiðis hvort verðsamráð hafi verið á
milli Sports Direct og JJD Sports.
gummi@mbl.is/bjb@mbl.is
Robert
Tchenguiz
Mike
Ashley
Chris
Ronnie
Þrír Íslandsvinir til skoðunar
SFO í Bretlandi íhugar rannsókn á viðskiptum þriggja Breta við Íslendinga
„Við höfum lofað 100.000
sterlingspunda greiðslu fyrir
upplýsingar um þjófnaðinn í
skrifstofum okkar. Hafðu sam-
band og þáttur yðar í málinu
verður trúnaðarmál, líka hjá
Scotland Yard.“
„Ekkert hefur betri áhrif á
starfsferilinn en dómur fyrir
þjófnað eða viðskipti með
þýfi.“
„Ennfremur eru nokkrir
Kúrdar sem vilja gjarnan eiga
við yður orð. Hvar viljið þér að
það gerist?“
„Varðandi Kúrdana, stígðu
upp í leigubíl og segðu til
nafns.“
Úr tölvupóstum
Endre Røsjø til DN