Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 31.10.2009, Qupperneq 32
32 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 ÓLAFUR Thorder- sen, bæjarfulltrúi Sam- fylkingarinnar í Reykjanesbæ, reynir að tvöfalda vægi orða sinna með því að birta nánast sömu grein í Morgunblaðinu og hann gerði daginn áður í Víkurfréttum. Tvöföld skilaboð geta verið misvísandi. Sami Ólaf- ur hefur um árabil gert athugasemdir við uppbyggingu Helguvíkurhafnar. Hann hefur skrifað um skuldasúpu sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ vegna hafnarinnar, löngu fyrir mína aðkomu að þeim málum, og fárast yf- ir þeim framkvæmdum. Hann segist svo vera stuðningsmaður álvers í Helguvík! Allir vita að án hafnar væri ekkert álver í Helguvík. Greiðslur sem skila auknu virði Ólafur tvöfaldar einnig skuldastöð- una þegar hann leggur saman greiðslur til okkar eigin fyrirtækis, sem sér m.a. um fasteignir 11 sveitar- félaga. Hann á að vita að leigu- greiðslur standa undir að greiða fjár- festingu sem eykur virði okkar í félaginu. Að loknum 30 árum stendur eignin skuldlaus í félaginu og eykur þannig virði okkar í því. Samkvæmt reikningsskilum ber samt að gera grein fyrir þessu sem skuldbindingu í ársreikningum. Tölur beint úr Árbók Sambands íslenskra sveitarfélaga Verst er fyrir Ólaf að hann gerir þetta á sama tíma og Árbók Sam- bands íslenskra sveitar- félaga er nýkomin út. Hún sýnir samanburð í fjármálum, tekjum og kostnaði allra sveitarfé- laga á landinu. Hún sýnir að síðasta ár var gríð- arlega erfitt fyrir Reykjanesbæ. Mesta atvinnuleysi á landinu varð að mæta með auknum framkvæmdum. Fjögurra milljarða kr. reiknað tap af Hitaveitu Suðurnesja varð að færa í bækur okkar og við stóðum enn ein uppi með uppbyggingu Helguvík- urhafnar og þær skuldir sem henni tilheyra, þrátt fyrir fögur fyrirheit ráðherra. Barátta okkar um atvinnu gengur út á að útvega íbúum betur launuð störf. Þrátt fyrir þessa erfiðu stöðu sýna tölur árbókarinnar að af tíu stærstu sveitarfélögum á landinu árið 2008 var bæjarsjóður Reykjanesbæjar með þriðju minnstu skuldir og skuld- bindingar á íbúa. Þegar teknar eru saman skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs Reykja- nesbæjar og stofnana hans eins og hafnanna (bls. 146-147) eru skuldir og skuldbindingar á íbúa 1,3 milljónir kr. en meðaltalið á landinu öllu er 1,5 milljónir kr. Reykjanesbær er því undir landsmeðaltali í skuldum og skuldbindingum á íbúa. Af tíu stærstu sveitarfélögum á Íslandi er Reykjanesbær með fimmtu minnstu skuldir og skuldbindingar á íbúa. Í árbókinni kemur einnig fram að Reykjanesbær er með lægstu skatt- tekjur á íbúa af öllum sveitarfélögum landsins. (bls. 108) Þetta þýðir að við þurfum að veita þjónustu okkar með hagkvæmari hætti en aðrir, ef við eigum að veita sambærilega þjón- ustu. Frábært starfsfólk Upplýsingar Árbókar Sambands íslenskra sveitarfélaga sýna einnig að starfsmenn okkar vinna verk sitt vel: Þegar borin eru saman stöðugildi starfsmanna sem veita þjónustuna fyrir bæinn (bls. 158-159) og þeim deilt á íbúafjölda, kemur í ljós að stöðugildi starfsmanna Reykjanes- bæjar eru tæpum þriðjungi færri en meðaltalið á landinu og sýnir næst- lægsta hlutfall starfsmanna, séu 10 stærstu sveitarfélög á landinu þannig borin saman. Samt hafa kannanir sýnt að við erum í hópi sveitarfélaga sem fá hæstu einkunn fyrir þjónustu sína. Það sýnir best hvað við eigum gott starfsfólk. Eftir Árna Sigfússon Árni Sigfússon » Samkvæmt Árbók sveitarfélaga eru skuldir og skuldbind- ingar bæjarins á íbúa 1,3 milljónir kr. en með- altalið á landinu á íbúa er 1,5 milljónir kr. Höfundur er bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Tvöföld skilaboð Á LIÐNUM mán- uðum og misserum hafa íslenskir landa- mæraverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar náð eftirtektarverðum ár- angri og hefur árvekni þeirra vakið athygli. Ábyrgð íslenskra landamæravarða er mikil því samkvæmt Schengen-samn- ingnum ber Ísland ábyrgð gagnvart svæðinu öllu og er hluti af samhæfðri evrópskri landamæravörslu. Hér- lendis starfa landamæraverðir eftir íslenskum lögum og reglum sem mótaðar eru eftir löggjöf Evrópu- sambandsins og starfsaðferðir þeirra eru að miklu leyti mótaðar af sam- bandinu. Samvinna landamæravarða og yf- irvalda á sviði stjórnunar landamæra í Evrópu er náin og krefst stöðugrar árvekni. Meginhlutverk Landa- mærastofnunar Evrópusambands- ins, Frontex, er að samræma og sam- þætta vinnu Evrópuríkja við landamæraeftirlit og stuðla að öruggari landamærum. Samevrópsk verkefni sem áður heyrðu undir mismunandi yfirvöld í Evrópu hafa verið færð undir Frontex. Óhætt er að segja að starfsemi Frontex hafi aukist hratt að umfangi allt frá stofnun árið 2005. Ísland hefur tekið þátt í ýmsum verk- efnum á vegum Frontex allt frá stofnun samtak- anna. Raunar hefur lögreglan á Suð- urnesjum, áður lögreglan á Keflavík- urflugvelli, tekið þátt í margvíslegum samevrópskum verkefnum sem nú tilheyra Frontex, allt frá virkjun Schengen-samningsins á landamær- um hér hinn 25. mars 2001. Frontex hefur haldið utan um samvinnuverkefni sem Ísland hefur m.a. verið þátttakandi í. Þessi verk- efni standa að öllu jöfnu yfir í þrjár vikur og miða að því að efla eftirlit með ólöglegum ferðum fólks inn á Schengensvæðið, greina mynstur í hegðun þeirra sem eru brotlegir og hvar álagspunktar eru á ytri landa- mærum Schengen-svæðisins. Sam- starfsverkefnin lúta ekki síst að því að samræma vinnubrögðin við eftir- litið á hinum ytri landamærum Schengen-svæðisins. Fyrstur Íslendinga til að taka þátt í samvinnuverkefni á vegum Frontex vorið 2008 var lögreglumaður úr lög- reglunni á Suðurnesjum. Hann tók virkan þátt í eftirliti er laut að því að stemma stigu við komu ólöglegra út- lendinga inn á Schengen-svæðið á flugvellinum í Frankfurt í Þýska- landi. Annar lögreglumaður frá sama lögregluembætti fór til Ítalíu og vann við samskonar verkefni á flugvell- inum í Róm fyrr á þessu ári. Á sama tíma tók flugstöðvardeild lögregl- unnar á Suðurnesjum á móti tveimur evrópskum lögreglumönnum, öðrum frá Ítalíu, hinum frá Austurríki, sem hér tóku þátt í sama samvinnuverk- efninu. Frontex stendur árlega fyrir mörgum slíkum samvinnuverk- efnum. Nú er nýkominn heim lög- reglumaður er starfaði í þrjár vikur í samvinnuverkefni í höfuðstöðvum Frontex í Varsjá í Póllandi. Tveir lögreglumenn til viðbótar munu taka þátt í samvinnuverkefni á vegum Frontex nú fyrir áramótin, annar mun fara til Ungverjalands en ekki liggur fyrir á þessari stundu hvar hinn mun starfa. Kostnaður af þátttöku Íslands í þessum samvinnuverkefnum er end- urgreiddur af Frontex. Kostnaður- inn fyrir Ísland er því hverfandi en ávinningurinn m.a. fólginn í aukinni þekkingu og hæfni íslenskra lög- reglumanna sem skilar sér í árang- ursríkari landamæravörslu. Eftir Jón Pétur Jónsson Jón Pétur Jónsson »Hlutverk Frontex er að samræma og samþætta vinnu Evrópuríkja við landa- mæraeftirlit og stuðla að öruggari landa- mærum. Höfundur er aðstoðaryfirlögreglu- þjónn hjá lögreglunni á Suðurnesjum og yfirmaður flugstöðvardeildar. Frontex-samstarfið er mikið, náið og krefst stöðugrar árvekni LAUGARDAGINN 24. októ- ber síðastliðinn birtust tvær greinar hlið við hlið á bls. 28 í Morgunblaðinu; líklega fyrir skemmtilega uppstillingu starfs- manns með kímnigáfu. Báðar voru þær um Kárahnjúkavirkj- un, umdeildustu framkvæmd hér á landi það sem af er þessari öld. Sjónarmiðin í þessum grein- um voru algerlega andstæð. Í annarri sagði m.a.: „Mín spá má vera sú að um miðja þessa öld verði almenn- ingur sáttur við þessa fram- kvæmd og telji vel hafa tekist til, fyrir utan þann hagnað sem þjóðarbúið hefur þá haft af framkvæmdinni og þeim tæki- færum í ferðamennsku sem fylgdu með í kaupbæti.“ Sjónarmiðin voru önnur í greininni við hliðina: „Virkjunin mun standa sem minnismerki um skammsýni og græðgi, sem er reiðubúin að fórna öllu, jafnvel dýrmætum náttúruperlum, fyrir ímyndaðan gróða. Erum við ekki búin að fá nóg af slíku?“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hart er deilt í blöðum á Íslandi. Fyrir rúmum hundrað árum stóðu hörkudeilur um jafn hversdagslegt fyrirbæri nú á tímum og síminn er. Sumir töldu hann hið mesta framfaraspor. Aðrir töldu hann geta leitt til þess að „fólkið þurrkast burt af landinu“. Tíminn skar úr um hvorir höfðu rétt fyrir sér í símamál- inu. Hann mun einnig skera úr um hvorir höfðu rétt fyrir sér um Kárahnjúkavirkjun. Jakob Björnsson Tíminn mun skera úr Höfundur er fyrrverandi orkumálastjóri. ÉG EFAST ekki um að hver og einn geti með góðri sam- visku svarað þessari spurningu með stóru Nei-i. En hvernig stendur þá á því að þeir sem í þjóðfélag- inu fjalla mest um þjófnað og þjófa- gengi eru að fá á sig stimpilinn sjálfir? Þar á ég við blaða- menn. Ég er ekki viss um að mínir vinir meðal blaðamanna sætti sig við að vera kallaðir þjófar, hvað þá hluti af þjófagengi. En brátt fer nú samt svo sökum þess virð- ingarleysis sem þeir sýna fyrir eigum annarra og birtist á síðum net-rita, dagblaða og tímarita nánast á hverjum degi. Blaðamenn vita um höfund- arrétt. Það gera ritstjórar og út- gefendur líka. Samt sem áður koma þeir fram við unga áhuga- ljósmyndara sem og aðra ljós- myndara eins og höfundarréttur sé ekki til. Þeir svífast einskis í því að ná sér í myndir til uppfyll- ingar á blaðagreinum sínum og skeyta þar engu um að ljós- myndun er höfundavarið efni og bíta svo höfuðið af skömminni með því að fullyrða við unga áhugamenn að aldrei sé greitt fyrir notkun ljósmynda. Síðan hvenær spyr ég nú bara. Um höfundavarið efni eins og ljósmyndir gildir einföld regla: Ef þú hefur ekki í höndunum leyfi frá myndhöfundi til birt- ingar myndar, láttu hana þá vera. Þó svo mynd birtist á heimasíðu eða myndasafns-svæði myndhöf- undar er ekki þar með sagt að hann hafi gefið leyfi til birtingar myndarinnar annars staðar né að hafa tekjur af hans hugverki. Það er lítið mál að verða sér úti um leyfi til myndbirtingar. Ekkert meira mál en að verða sér úti um fréttir og fá á þeim staðfestingar. Í mörgum tilfellum þarf ekki annað en eitt símtal eða einn netpóst og leyfið er fengið. En blaðamenn nútímans virð- ast vera eitt þriggja, húðlatir, virðingarlausir gagnvart verkum annarra eða hreint og beint þjóf- ar. Ég veit um þónokkra blaða- menn sem ekki kæra sig um að vera undir þessum hatti, en hví viðgengst þetta þá og hví heyrist ekkert í Blaðamannafélaginu vegna þessara brota? Þó stríðir svona höf- undarréttarbrot gegn siðalögum BLÍ. Hví lætur BLÍ slík- an mynd þjófnað við- gangast meðal sinna félagsmanna á sama tíma og fjöldi ljós- myndara og fé- lagsmanna í BLÍ gengur um at- vinnulaus? Þjófnaður sem þessi rær ekki bara að því að gera ljós- myndara atvinnulausa heldur skaðar hann samfélagið í heild vegna þeirra skatttekna sem rík- ið verður af. Hér með skora ég á alla sem sýsla með myndir, blaðamenn og Blaðamannafélag Íslands að reka af sér þjófsviðurnefnið, sjá til þess að þeirra félagar virði lág- marksrétt myndhöfunda og sjái til þess að þjófnaður sem þessi verði aflagður. Þetta er ekki eins og hver annar ósiður. Þetta er lögbrot og það skýlaust og heyrir undir refsilöggjöfina. Blaðamenn ættu að bera virðingu fyrir þeirri staðreynd að ljósmyndarar hafa sýnt langlundargeð í þessum mál- efnum hingað til. Nú er hins veg- ar mál að linni. Ef þú, blaðamaður góður, vilt ekki kenna starfsstétt þína við þjófa, hjálpaðu þá til við að láta starfsfélaga þína fara eftir þess- ari einföldu reglu í lífinu: Þú skalt ekki stela. Er þjóðfélagið sátt við þjófagengi? Eftir Kristján Logason Kristján Logason »Ég er ekki viss um að mínir vinir meðal blaðamanna sætti sig við að vera kallaðir þjófar, hvað þá hluti af þjófagengi. Höfundur er ljósmyndari, fé- lagsmaður í Ljósmyndarafélagi Íslands, Félagi íslenskra samtíma- ljósmyndara, Myndstefi og áhuga- maður um höfundarrétt og skrifar um það efni á www.sjonarmid.com. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út- gáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefnum mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofn- ana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgun- blaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti. Í fyrsta skipti sem formið er not- að þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er not- að er nóg að slá inn netfang og lyk- ilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri há- markslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfs- fólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.