Morgunblaðið - 31.10.2009, Side 39

Morgunblaðið - 31.10.2009, Side 39
Minningar 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009 tíðarinnar, áttir sæti í bæjarstjórn og varst góður liðsmaður í lúðra- sveitinni. Ekki má ég gleyma að nefna það að listagyðjan var þér gjöful og málaðir þú margar falleg- ar myndir. Ég man sérstaklega eft- ir einni sem þú kallaðir „einelti“ en hún sýndi tvo hvíta svani að elta svartan svan. Við systkinin áttum líka góðar stundir nú seinni ár og þá er mér efst í huga kvöldstund ásamt mök- um okkar í sumarbústað í Skorra- dal og heimsókn ykkar Jónu þegar ég varð áttræð. Tryggvi, minn elskulegi bróðir. Ég þakka þér allt sem þú gafst okk- ur með því að vera til. Ég veit þú varst búinn að eiga í erfiðum veik- indum og líklega orðinn þreyttur en engu að síður er alltaf sárt að kveðja þá sem manni þykir vænt um. Ég bið guð að styrkja Jónu þína og dæturnar, þær Karenu, Júlíu og Ásgerði og fjölskyldur þeirra. Góða heimferð, vinurinn, það verður örugglega tekið vel á móti þér. Við kveðjum þig með söknuði. Þín systir, Ingibjörg. Æskufélagi og vinur, Tryggvi Jónasson, er látinn, nokkrum dög- um eldri en áttræður. Hann fæddist 4. október 1929, en lést þann 17. október í ár. Andlát Tryggva snart mig og fjölmarga vini, drengi og stúlkur, sem kynntust sem börn í skóla á Ísafirði og haldið hafa hóp- inn og hist og glaðst saman, oft með nokkurra daga samveru í einu, allt frá berskudögum. Þau orð sem hér eru sögð eru fyrir munn okkar allra. Tryggvi var mannkostamað- ur, óeigingjarn og velviljaður. Hann var mannblendinn og vin- margur þegar í æsku. Hlýjan og sólskinið í kringum hann verður mér og okkur skólasystkinunum frá Ísafirði ógleymanlegt. Ungur kynntist Tryggvi Vest- mannaeyjastúlkunni Jónu Margréti Júlíusdóttur, sem kom til náms í húsmæðraskóla á Ísafirði, og urðu þau hjón. Jóna lifir mann sinn og stúlkurnar Ásgerður, Júlía og Kar- en. Þeim og fjölmörgum afkomend- um vottum við vinahópurinn inni- lega samúð og hluttekningu í harmi þeirra. Í amstri dægranna var Tryggvi rennismiður. Þá iðn lærði hann á Ísafirði, en starfaði lengst að henni í Vestmannaeyjum, en þangað flutt- ist hann um 1950. Hann vann í upp- hafi í svonefndri Steinasmiðju, en síðar stofnuðu nokkrir félagar vél- smiðjuna Völund, en hún samein- aðist eftir nokkur ár Skipalyftunni, en þar var starfsvettvangur Tryggva og fjölmargra lærisveina hans um langan aldur. Af þeim ótal ánægjustundum og dögum, sem við öll áttum saman á langri ævi, var þriggja daga heim- sókn hópsins til Vestmannaeyja af- ar minnisstæð. Sú för varð öllum ógleymanleg, enda rausn þeirra hjóna og getrisni stórfengleg. Tryggvi er genginn, en hann lifir enn í hjörtum okkar og minningum. Slíks manns sem hann var er gott að minnast. Kristján Arngrímsson. Það var vorið 1971 sem ég byrj- aði að læra vélvirkjun í Vélsmiðj- unni Völundi hér í bæ. Þá kynntist ég Tryggva Jónassyni fyrst, og það var dálítið merkilegt að við urðum strax mjög góðir vinir frá fyrstu tíð. Kannski vegna þess að ég á ættir mínar að rekja til Vestfjarða eins og hann. Tryggvi var einn af eig- endum Völundar ásamt Tryggva Jóns, Friðþóri Guðlaugs, Erlendi Eyjólfssyni og Gunnlaugi Axels- syni. Allt voru þetta fínir karlar og góðir félagar. Tryggvi Jónasson var alltaf hress og stutt í glensið hjá honum, hann var aldrei neitt sér- staklega alvörugefinn og var alltaf til í að taka þátt í fíflaríinu hjá okk- ur peyjunum sem unnum í Völundi á þessum árum. Árið 1976 fóru við Tryggvi saman í „útgerð“ ásamt þeim Gulla heitn- um Axels og Hrafni Steindórssyni vinnufélögum okkar. Við festum kaup á nýrri þriggja tonna trillu og fóru páskarnir það ár í að stand- setja trilluna, setja niður vél, smíða stýrishús o.fl. Trillan var skírð Fjarki VE 444 og fórum við fé- lagarnir ófáa túrana á skak eða skytterí. Við Tryggvi vorum dug- legastir okkar eigendanna að róa, og það var ekki mikið kynslóðabil milli okkar, því það kom fyrir um sumarið að þegar ég var að koma af balli þrjú, fjögur um nótt og gott veður þá hringdi ég í Tryggva og dreif hann á sjó. Það var aldrei vandamál, alltaf klár. Tryggva fannst það reyndar ekkert leiðin- legt, að þegar líða fór á daginn fór gamanið að kárna hjá mér og sjó- veiki að hellast yfir vegna gleði næturinnar og gerði hann óspart grín að mér. Við Tryggvi unnum saman í 20 ár, fyrst í Völundi, síðan í Skipalyft- unni og vorum við alla tíð góðir vin- ir og félagar. Þegar ég rak verk- stæðið mitt upp úr 1990 leitaði ég ósjaldan til Tryggva með ýmis vandamál sem upp komu og stóð aldrei á því að hann leysti þau fyrir mig, í mínum huga var hann algjör öðlingur. Ég votta Jónu og fjölskyldu inni- legustu samúð. Hallgrímur Tryggvason og fjölsk. Kveðja frá Skipalyftunni Í dag kveðjum kveðjum við Tryggva Jónasson, fyrrverandi meðeiganda og samstarfsmann til margra ára. Kynni mín af Tryggva hófust fyrir alvöru þegar við hófum störf hjá Skipalyftunni í Vest- mannaeyjum 1981, en Skipalyftan varð til við sameinigu þriggja iðn- fyrirtækja í Eyjum. Tryggvi var menntaður renni- smiður. Hæfileikar hans við renni- bekkinn voru miklir, og leysti hann oft erfiðustu verkefni þótt tækja- kosturinn sem þá var notaður þætti ekki merkilegur í dag. En hæfileik- ar Tryggva voru ekki eingöngu bundnir við rennibekkinn, hann þótti handlaginn í því sem hann tók sér fyrir hendur. Tryggvi hafði gaman af því að mála. Eftir að starfsdegi hans í Skipalyftunni lauk fór hann að sinna þessu áhugamáli sínu, fór m.a. á námskeið með þeim sem höfðu sömu áhugamál. Það kom fljótlega í ljós eftir að Tryggvi fór að sinna þessu áhugamáli sínu að í honum leyndist listamaður. Ég held að fari ekki með rangt mál að Tryggvi hafi tekið þátt í einni sýn- ingu. Tryggvi hafði skoðun á flestu milli himins og jarðar. Við vorum ekki alltaf sammála, við vildum stundum nálgast hlutina hvor frá sínum endanum, en takmörkin hjá okkur voru þau sömu; að vilja hag Skipalyftunnar og starfsmanna hennar sem mestan. En það sem ég virti mest við Tryggva var það að hann kom til dyranna eins og hann var klæddur, sagði sínar skoðanir umbúðalaust við hvern sem er, án þess að vera óheiðarlegur. Þegar ég hugsa til baka sé ég það að Tryggvi hafði oftar en ekki rétt fyrir sér. Tryggvi var mikill fjölskyldu- maður og vildi hag fjölskyldu sinn- ar sem mestan, þar held ég að barnabörnin hafi notið góðs af. Tryggvi var stoltur af sínu fólki, og má hann vera það, sum af barna- börnum hans eru mikið íþróttafólk og skara þar fram úr svo tekið er eftir. En lífið lék ekki alltaf við Tryggva og fjölskyldu hans frekar en aðra. Tryggvi missti tvo bræður sína í snjóflóðum, annan í Neskaup- stað og hinn á Ísafirði. Þegar Tryggvi var kominn á sex- tugsaldurinn fékk hann alvarlegt hjartaáfall, hann háði hetjulega baráttu við þennan sjúkdóm það sem hann átti eftir ólifað, hann hreinlega storkaði honum. Ég veit að Tryggvi fór ekki alltaf eftir því sem læknar ráðlögðu honum. Hann ætlaði að berjast á móti, hann vildi lifa lífinu. Og ekki var hann að hlífa sér í vinnunni eftir að hann hóf störf aftur eftir veikindi sín. En hann varð að gefa eftir að lokum. Ekki alls fyrir löngu þurfti Tryggvi að fara í mjög erfiða aðgerð sem síðan dró hann til dauða hinn 17. okt. sl. Októbermánuður er okkur Skipalyftumönnum ekki til heilla, því hinn 16. okt. 2006 lést Gunn- laugur Axelsson, einn af meðeig- endum okkar, í bílslysi, og daginn eftir, 17. okt. sama ár, hrundu upp- tökumannvirki Skipalyftunnar, þannig að október er enginn uppá- haldsmánuður hjá okkur. Nú þegar komið er að kveðju- stund viljum við meðeigendur þínir og fyrrverandi samstarfsmenn í Skipalyftunni þakka þér fyrir sam- starfið. Við biðjum Guð almáttugan að halda verndarhendi yfir Jónu eiginkonu Tryggva, dætrum hans og fjölskyldum þeirra. Guð blessi góðan dreng. Stefán Örn Jónsson.  Fleiri minningargreinar um Tryggva Jónasson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Jódís Stefánsdóttir ✝ Jódís Stef-ánsdóttir fædd- ist á Norður- Reykjum í Hálsa- sveit í Borgarfirði 31. október 1927. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Eir í Reykjavík 27. september 2009. For- eldrar hennar voru hjónin Stefán Þorvaldsson, bóndi á Norður- Reykjum, f. í Hægindi í Reykholts- dal 24. júní 1892, d. 28.október 1971 og Sigurborg Guðmundsdóttir, f. í Dyngju á Hellissandi 24. sept- ember 1899, d. 5. ágúst 1978. Jódís var elst 6 systkina. Systkini hennar eru: Guðríður, f. 8. desember 1930, búsett í Lindarbæ, Reykholti. Þor- valdur, f. 15. júlí 1932, búsettur í Reykjavík. Kona hans Sveinbjörg Jónsdóttir. Þau eiga 5 börn. Guðrún Sigríður, f. 30. mars 1935, búsett í Reykjavík. Maki Óskar Ósvaldsson. Snæbjörn, f. 14. ágúst 1936, d. 5. janúar 2006. Sambýliskona Kristrún Valdimars- dóttir. Snæbjörn átti 4 börn með fyrrverandi konu sinni Helgu Bene- diktsdóttur. Þórður, f. 15. október 1939, búsettur á Arnheiðarstöðum sem er nýbýli út frá Norður- Reykjum. Kona hans er Þórunn Reykdal og eiga þau 2 syni. Þórður á kjördóttur frá fyrra hjónabandi. Eiginmaður Jódísar var Hálfdán Daði Ólafsson, f. í Bolungarvík, 3. ágúst 1926, d. 26. september 1993. Börn þeirra eru: Margrét, f. 19. september 1953. Maki Benedikt Jónsson. Hún á 4 börn, Sigurð Hálf- dán, Guðna Frey, Snædísi Perlu og Húna. Hlédís Sigurborg, f. 31. júlí 1956. Maki Gunnar Sigurðsson. Þau áttu 3 börn, Róbert Anna, Jódísi Tinnu sem lést á fyrsta ári og Sunnu Kamillu. Stefán Grímur, f. 24. júlí 1958. Maki Rigmor Rössling. Hann átti 1 son, Brynjar, sem lést árið 2000, 24 ára að aldri. Móðir hans er Bylgja Bragadóttir. Kristján Gunnar, f. 4. ágúst 1960. Maki Guð- ríður Magnúsdóttir. Dóttir þeirra er Elín Arna. Jóna Daðey, f. 11. sept- ember 1961. Maki Albert Krist- jánsson. Þau eiga 3 börn, Kristján, Halldór og Daðeyju. Guðrún Sigríð- ur, f. 29. október 1963. Maki Gunn- laugur Guðmundsson. Þau eiga 2 börn, Birki Snæ og Jódísi Erlu. Fyrir átti Guðrún Silju Dögg. Faðir henn- ar var Sigurður Sveinsson, d. 4. júlí 2004. Barnabörnin voru 15 (tvö eru látin eins og áður kom fram; Brynj- ar og Jódís Tinna). Barna- barnabörnin eru 11. Jódís ólst upp á Norður-Reykjum til fullorðinsára. Hún stundaði nám í Héraðsskólanum í Reykholti í 2 ár eftir skyldunám. Um tvítugt fór hún að fara til starfa í Reykjavík að vetrinum en var heima að sumrinu. Hún stundaði ýmis störf fram að giftingu. Frá árinu 1965 vann hún hins vegar ávallt fullan vinnudag, fyrst í Hraðfrystistöðinni og síðan hjá Bæjarútgerðinni. Seinna á lífs- leiðinni vann hún við fram- reiðslustörf, á Kránni og í Múla- kaffi. Hún vann einnig hjá Hollustuvernd en síðustu starfsár sín vann hún hjá Síldarréttum í Kópavogi. Útför Jódísar fór fram 6. október. ✝ Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts og útfarar móður okkar, INGIGERÐAR BJARNADÓTTUR frá Andrésfjósum, síðast til heimilis Sólvöllum, Eyrarbakka. Sérstakar þakkir til starfsfólksins á Sólvöllum. Fyrir hönd annarra aðstandenda, Hermann Ágúst, Ingimar Þorbjörnsson, Ingveldur Þorbjörnsdóttir. ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærs sonar okkar og bróður, STEINÞÓRS EDVARDSSONAR. Sérstakar þakkir til starfsfólks sambýlisins að Klettahrauni 17 Hafnarfirði fyrir sérstaka alúð og umhyggju. Ósk Skarphéðinsdóttir, Edvard Oliversson, Hólmfríður Edvardsdóttir, Ari Jónsson, Oliver Edvardsson, Sigrún Björk Sigurðardóttir, Edda Lovísa Edvardsdóttir, Agnar Guðmundsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru ÞÓRÖNNU HANSEN, Öldugötu 6, Dalvík. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki gjörgæsludeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góða umönnun. Aðalsteinn Grímsson, Hildur Aðalsteinsdóttir, Ólafur Baldursson, Aðalsteinn Ólafsson, Andrea Pálína Helgadóttir, Andri Þór Ólafsson, Hildur Helga Aðalsteinsdóttir, Hildur Hansen, Þórir Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.