Morgunblaðið - 31.10.2009, Blaðsíða 46
46 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. OKTÓBER 2009
Mörgum áhorfendum
mun eflaust finnast
þeir sviknir …50
»
BANDARÍSKI
ljósmyndarinn
Roy DeCarava
er látinn, 89 ára
gamall. Hann var
sonur fátækrar
einstæðar móður
í Harlem í New
York, og öðlaðist
frægð fyrir að
skrásetja mannlíf
stórborgarinnar í
myndum, einkum þó helstu djass-
leikara sinnar kynslóðar. DeCarava
hlaut menntun sem grafíklistamað-
ur en færði sig smám saman yfir í
ljósmyndun, að hluta til vegna þess
að sá miðill bauð upp á meiri hraða
í úrlausnum, en ekki síður vegna
þess að hann upplifði svo miklar
takmarkanir sem listamaður í sam-
félagi sem gerði greinarmun á hör-
undsdökkum og hvítum borgurum.
„Ef ég ætlaði að vera svartur mál-
ari þurfti ég að ganga inn í heim
hvítra – eða komast ekkert áfram,“
sagði DeCarava eitt sinn. Hann
varð fyrsti blökkumaðurinn til að
hljóta Gugg- enheim-styrk til list-
sköpunar. Í umsókninni sagðist
hann vilja skrásetja heim svartra í
Bandaríkjunum eins og einungis
svartur ljósmyndari gæti gert.
DeCarava
látinn
Skrásetti sögu
djassins í myndum
Roy DeCarava
HUNDRAÐASTA Skálda-
spírukvöldið verður haldið í
Safnahúsinu á Sauðárkróki á
mánudaginn, 2. nóvember.
Hefst dagskráin klukkan 20.
Í tilefni þessa merka áfanga
verður blásið til veglegrar af-
mælisveislu Skáldaspírunnar,
með lestri skálda upp úr bók-
um, flutningi efnilegra söngv-
ara og gómsætu bakkelsi.
Verður m.a. lesið úr verkum
Sigurðar Pálssonar en ýmis önnur skáld lesa úr
eigin verkum og annarra. Nemendur úr Söng-
skóla Alexöndru flytja sönglög á milli upplestr-
aratriða. Skipuleggjandi er Benedikt S. Lafleur.
Bókmenntir
Hundrað Skálda-
spírukvöld
Siguður Pálsson
LEIKSÝNINGIN Rúi og Stúi
sem Leikfélag Kópavogar
frumsýndi síðastliðið vor hefur
verið tekin upp að nýju. Þriðj-
ungur af miðaverði mun renna
til Barna- og ungmennastarfs
Rauða krossins. Rúi og Stúi
fjallar um sérkennilega upp-
finningamenn sem hafa fundið
upp vél sem getur búið til eða-
lagað hvað sem er. Höfundar
verksins eru Skúli Rúnar Hilm-
arsson og Örn Alexandersson. Sex leikarar taka
þátt í sýningunni sem er í leikstjórn Harðar Sig-
urðarsonar. Sýnt er í Leikhúsinu Funalind 2.
Næstu sýningar eru í dag og á morgun kl. 14.
Leiklist
Rúi og Stúi í
Kópavoginum
Úr sýningunni Rúa
og Stúa.
HAUKUR Sigurðsson, fyrrver-
andi menntaskólakennari, frum-
flytur í kvöld klukkan 20.00 ein-
leikinn Kynngi og kærleikur í
Eyrbyggju á Sögulofti Land-
námssetursins í Borgarnesi.
Haukur á að baki áratuga feril
sem kennari og fræðimaður og
hefur kennt Íslendingasögurnar
í gegnum tíðina. Hann hefur nú
sett saman dagskrá sem byggist
á Eyrbyggju, einhverri mögn-
uðustu Íslendingasögunni, en hún er full af forynjum
og draugum. Haukur leiðir áheyrendur í fótspor ber-
serkja á Hrauni, á slóðir Fróðárundranna, út í Drit-
sker og upp á Helgafell.
Leikist – Fræði
Sögustund helg-
uð Eyrbyggju
Á Eyrbyggju-
slóðum í Breiðuvík.
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„ÉG er hér staddur með einum
fremsta hljóðfæraleikara Norð-
urlanda og ég held bara Evrópu,“
sagði Víkingur Heiðar Ólafsson pí-
anóleikari í gær þegar blaðamaður
náði tali af honum í Salnum í Kópa-
vogi, rétt fyrir æfingu. Hljóðfæra-
leikarinn færi sem Víkingur nefnir
er Martin Fröst, sænskur klari-
nettuleikari sem er gestalistamaður
Sinfóníuhljómsveitar Íslands í ár.
Víkingur getur vart leynt aðdáun
sinni á Fröst og á býsna mörg orð
til að lýsa dásamlegum tónlistar-
flutningi Svíans. Víkingur segist
hafa hlýtt á Fröst í fyrrakvöld á
tónleikum með Sinfóníuhljómsveit
Íslands og segir klarinettuleikarann
með þeim allra bestu sem hann hafi
nokkurn tíma séð, ef ekki þann
besta.
„Eins og kærastan mín sagði,
þessi maður er svolítið á annarri
plánetu, þegar maður heyrir hann
leika músík finnst manni eins og
hann tali tungumálið músíkölsku,“
segir Víkingur um tónleikana. Í list-
sköpun hans megi greina mikla
gleði. „Ég hef aldrei séð jafn nátt-
úrlegan listamann, náttúrlegan á
sviði og í tónlist. Hann er svo yfir-
þyrmandi músíkalskur og næmur
og inni í því sem hann er að gera, í
núinu, að maður þarf ekkert að tala
við hann. Það gerist bara allt af
sjálfu sér, hann skapar töfra og
lyftir öllu sem hann gerir upp á
æðra plan,“ segir Víkingur Heiðar
um þennan sænska klarinettumeist-
ara.
Þú kallar hann landkönnuð í
tölvupósti vegna tónleikanna.
„Já, ég geri það. Hann er í mjög
óvenjulegum verkefnum, hann er
frægur fyrir dansgetu sína, dansar
á sviðinu á meðan hann spilar. Svo
er hann að vinna með dönsurum og
vídeólistamönnum, í því að útvíkka
þetta sem við skilgreinum sem
klassíska tónlist, leikur sér svo mik-
ið með samruna listamanna o.fl. Á
morgun verður hann t.d. með sóló-
verk fyrir sjálfan sig og elektróník.
Hann er einhvern veginn maðurinn
sem er að skapa söguna og það eru
ekki margir þannig.“
Ber virðingu fyrir Víkingi
Víkingur Heiðar er sjálfur einn
virtasti píanóleikari Íslands og átti
frumkvæðið að tónleikunum í dag,
sendi Fröst geisladiskinn Debut
sem hann gaf út í sumar og falaðist
eftir samstarfi. Fröst tók slaginn og
segist bera mikla virðingu fyrir Vík-
ingi, bæði sem listamanni og per-
sónu.
„Mér finnst hann vera að gera
margt mjög merkilegt í sinni list og
áhugavert að ræða við hann um tón-
list. Hann er frábær píanóleikari,“
segir Fröst. En er hann spenntur
fyrir því að leika með Víkingi? „Ég
er mjög spenntur, mér finnst æfing-
ar hafa gengið mjög eðlilega og
vandræðalaust fyrir sig,“ svarar
Fröst. Hann segist vinna gríðarlega
mikið, enda í fámennum hópi klarin-
ettuleikara sem hafa lífsviðurværi
sitt af því að vera sólóistar.
Miðasala á tónleikana fer fram á
salurinn.is.
Talar tungumálið
músíkölsku
Víkingur Heiðar og Martin Fröst leiða saman hesta sína
Morgunblaðið/Heiddi
Víkingur og Fröst Slógu ekki slöku við frekar en fyrri daginn, á æfingu í Salnum í Kópavogi í gær.
Þeir félagar, Víkingur og Fröst,
halda tónleika í Salnum í dag kl.
17 og efnisskráin er frönsku-
skotin. Tónleikarnir hefjast á
Rapsodíu Claude Debussy,
Martin leikur því næst eigið
sólóverk, Voices on Wings og
svo klarinettusónötu eftir
Poulenc. Eftir hlé leika þeir svo
Varíasjónir eftir Jean Francix og
klarinettusónötu í es-dúr eftir
Brahms. Víkingur segir Fröst
hafa stungið upp á þessari efn-
isskrá og hann samþykkt um
hæl þar sem hún hafi einmitt
verið það sem hann hafði í
huga. Tónleikarnir verða í heild
um 70 mínútur að lengd, að
sögn Víkings Heiðars.
Frönskuskotið
Víkingur Heiðar stofnaði fyr-
irtækið Hands On Music til að
gefa út sína fyrstu plötu, Debut,
sem kom út 17. maí sl. Á honum
leikur Víkingur 19. aldar tónlist
eftir Beethoven og Brahms.
Hann segist vera að vinna í því
að koma diskinum í búðir á
Bretlandi en segir aðalatriðið að
fólk geti keypt hann á netinu.
Víkingur leggur nú drög að
öðrum diski og stefnir að því að
hann verði „allt öðruvísi“ en sá
fyrsti.
Hugar að plötu
Kristínu Marju
Baldursdóttur
Ri
tþ
in
g
G
er
ðu
be
rg
s
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
Boðið verður upp á léttar veitingar
og Tríó Leifs Gunnarssonar leikur
fyrir gesti
Óreiðan söguheimur Karitasar
Nánari upplýsingar um dagskrána á www.gerduberg.is
Menningarmiðstöðin Gerðuberg • Gerðubergi 3-5
111 Reykjavík • Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
Stjórnandi: Halldór Guðmundsson
Spyrlar: Ármann Jakobsson og Þórhildur Þorleifsdóttir
Tónlistaratriði: Bryndís Halla Gylfadóttir, sellóleikari
og Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari
Upplestur úr verkum Kristínar: Silja Aðalsteinsdóttir
Verið velkomin
á Ritþing með
laugardaginn 31. október kl. 13.30-16.00
Að Ritþingi loknu, kl. 16 opnar sýningin:
Mætið tímanlega til að tryggja ykkur sæti!