Morgunblaðið - 12.11.2009, Side 1
F I M M T U D A G U R 1 2. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
305. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
JÓLAGJAFAHANDBÓK VIÐSKIPTABLAÐSINS
KONFEKT, BLÓM EÐA FLÍK?
HVAÐ ER BEST AÐ GEFA?
«DAGLEGTLÍF
Presturinn lék fyrir
dansi Grímseyinga
96
ára
Eftir Bjarna Ólafsson
og Hlyn Orra Stefánsson
MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s hef-
ur lækkað lánshæfiseinkunn Orku-
veitu Reykjavíkur úr Baa1 í Ba1,
sem þýðir að skuldabréf fyrirtæk-
isins eru ekki lengur í svokölluðum
fjárfestingarflokki heldur í því sem
kallað er ruslflokkur. Fylgir lækk-
unin í kjölfarið á lækkun á einkunn
ríkissjóðs í Baa3, sem er einum
flokki yfir einkunn OR.
Segir í rökstuðningi Moody’s að
áframhaldandi veikt gengi krón-
unnar hafi gert skuldastöðu OR erf-
iðari, þar sem skuldir fyrirtækisins
séu einkum í erlendri mynt, en
tekjur þess í íslenskum krónum. Þá
hafi eftirspurn eftir orku frá fyr-
irtækinu dregist saman vegna efna-
hagserfiðleikanna. Fyrir hafi Orku-
veitan staðið höllum fæti
fjárhagslega.
Veik lausafjárstaða
Þá leggur Moody’s áherslu á að
lausafjárstaða OR sé veik, en tekur
þó fram að Orkuveitan segist munu
geta fullnægt fjármögnunarþörfum
sínum með innlendum lánum, auk
lána annars staðar frá. Einnig telur
Moody’s líklegt að farið verði af stað
með Hellisheiðarvirkjun, sem geti
aukið tekjur OR í bandaríkjadölum
og þar með auðveldað greiðslu er-
lendra lána.
Hvað varðar stuðning opinberra
aðila við Orkuveituna, verði þörf á
slíku, segir Moody’s að gera megi
ráð fyrir því að Reykjavíkurborg og
íslenska ríkið muni gera sitt besta til
að koma fyrirtækinu til hjálpar.
Hins vegar verði að hafa í huga að
vegna efnahagsörðugleikanna sé
geta opinberra aðila til slíkra björg-
unaraðgerða töluvert minni en áður.
Guðlaugur G. Sverrisson, stjórn-
arformaður Orkuveitunnar, segir að
fyrirtækið hafi fengið þær upplýs-
ingar að opinber fyrirtæki séu alltaf
einum flokki fyrir neðan viðkomandi
ríki. „Við áttum því aldrei séns. Það
eina sem við getum gert er að sýna
fram á greiðsluflæði, lausafjárstöðu
og að við stöndum við skuldbind-
ingar okkar.“
Hann segir þau mál sem snúa að
Orkuveitunni hafa verið í lagi, en
fyrirtækið geti ekkert gert að því
þótt lánshæfiseinkunn ríkisins
lækki. Það sé hins vegar mjög alvar-
legt mál að ríkið sé komið í þessa
stöðu.
Ekki áhrif á eldri lán
Aðspurður hvort lakara lánshæfi
hafi áhrif á eldri lán Orkuveitunnar,
segist Guðlaugur ekki telja svo vera.
Undir það tekur Anna Skúladóttir,
fjármálastjóri OR. „Það eru engin
skilyrði í lánasamningum Orkuveit-
unnar sem tengjast lánshæfi,“ segir
hún. Guðlaugur segir hins vegar að
gera megi ráð fyrir því að lægri
einkunn geri fjármögnun töluvert
erfiðari í framtíðinni.
Fyrr í mánuðinum var greint frá
því að Evrópski fjárfestingarbank-
inn hefði samþykkt rúmlega 30 millj-
arða króna lán til Orkuveitunnar,
vegna virkjana við Hverahlíð á
Hellisheiði. Þau Guðlaugur og Anna
segja lækkandi lánshæfi ekki heldur
hafa áhrif á það lán.
„Skilaboðin þegar við tókum lánið
frá EIB [Evrópska fjárfesting-
arbankanum] voru ósköp einföld,“
segir Guðlaugur. „Lánið er byggt al-
gjörlega á mati þeirra á Orkuveit-
unni. Þeir eru með sitt eigið áhættu-
mat og fara ekki eftir Moody’s eða
Fitch.“
Lánshæfiseinkunn OR
er komin í ruslflokk
„Áttum aldrei
séns,“ segir stjórn-
arformaður OR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Alltaf neðar en ríkið Í rökstuðningi Moody’s segir að veikt gengi krónunnar hafi gert skuldastöðu OR erfiðari, þar
sem skuldir fyrirtækisins séu einkum í erlendri mynt. Þá leggur Moody’s áherslu á að lausafjárstaða OR sé veik.
Moody’s lækkar | Viðskipti
ROSS Beaty, forstjóri Magma
Energy, segir að ráðherrar þurfi að
bæta viðmótið gagnvart erlendum
fjárfestum. Hann undrast hversu
hörð viðbrögð það vakti er fyrir-
tækið keypti hlut í HS orku.
Beaty flutti erindi á ráðstefnu
Capacent Glacier um erlenda fjár-
festingu. Spurður að því hvað þurfi
að gerast til að fyrirtækið yfirgefi
landið, sagði hann að ef endurtekið
yrði komið fram eins og fyrirtækið
væri ekki velkomið, myndi hann
íhuga að söðla um.
Þá sagði Beaty ekki rétt að
halda því fram að fyrirtækið væri
að stela auðlindum landsins, eins
og hefði mátt skilja af ummælum
fjármálaráðherra í fjölmiðlum.
Á ráðstefnunni gagnrýndi Mats
Josefsson, efnahagsráðgjafi ríkis-
stjórnarinnar, stjórnvöld fyrir
seinagang við endurreisn efnahags-
ins. | 4
Slæmar viðtökur
Segir erlenda fjárfesta fá slæmar móttökur
Gagnrýnir seinagang ríkisstjórnarinnar
ÍSLENDINGUR og Norðmaður
duttu í lukkupottinn í gær og voru
með allar tölur réttar í Vík-
ingalottóinu. Þeir deila með sér að-
alvinningnum og fá hvor um sig
107.433.890 isk. Íslendingurinn hef-
ur enn ekki gefið sig fram en mið-
inn örlagaríki var keyptur í Víd-
eómarkaðnum í Hamraborginni í
Kópavogi í gær og sögðust starfs-
menn vonast til að hinn nýi millj-
ónamæringur léti vita af sér.
Þetta er stærsti vinningur í Vík-
ingalottóinu sem komið hefur til
landsins og sannarlega dýrmætur
gjaldeyrir fyrir þjóðarbúið eins og
Íslensk getspá bendir á. Allir þeir
sem áttu leið um Vídeómarkaðinn í
gær og keyptu sér víkingalottómiða
eru hvattir til að skoða miðann vel.
Íslendingur vann rúmar 100
milljónir í Víkingalottóinu
HÖFUÐSTÓLL er-
lendra lána hjá Ís-
landsbanka gæti lækk-
að verulega hjá
fyrirtækjum. Lausnin,
sem er til skoðunar
felst í að höfuðstóll er-
lendra lána er fluttur
yfir í íslenskar krónur
og lækkaður, en hversu mikið hann
lækkar veltur á myntkörfunni og
lengd lánsins. »2
Höfuðstóll fyrirtækjalána
gæti lækkað verulega
Jón Ásgeir og tengd félög eru með
miklar skuldir í íslensku bönk-
unum. Vilhjálmur Bjarnason telur
að taka ætti 1998 ehf., móðurfélag
Haga, til gjaldþrotaskipta.
VIÐSKIPTI
Taka ætti 1998 til
gjaldþrotaskipta
Fullkomin óvissa ríkir um hvort
ríkið stofnar eignaumsýslufélag,
líkt og áform hafa verið uppi um.
Áhersla hefur verið lögð á að koma
Bankasýslu ríkisins á laggirnar.
Óvissa um eigna-
umsýslufélag
Jón Gerald Sullenberger opnar
nýja verslun á laugardag, Kost.
Hann segist hafa fundið mikinn
mótbyr frá sumum innlendum
birgjum en heitir góðu verði.
Opnar Kost þrátt
fyrir mótbyr
„KOSTNAÐUR við smíði LSH á
þessum stað verður líka að öllum
líkindum umtalsvert meiri en áætl-
anir gera ráð fyrir og mun meiri en
ef byggt yrði austar á höfuðborg-
arsvæðinu,“ skrifa Árni Gunn-
arsson, stjórnarmaður í fram-
kvæmdanefnd vegna byggingar
nýs Landspítala – háskólasjúkra-
húss, og Gestur Ólafsson, arkitekt
og skipulagsfræðingur og fv. for-
stöðumaður Skipulagsstofu höfuð-
borgarsvæðisins. Þeir segja jafn-
framt að þrátt fyrir allan tilkostnað
á undirbúningstímanum ríki alls
ekki einhugur um staðsetningu
LSH. »19
Enginn einhugur um stað-
setningu nýs sjúkrahúss Því lægri sem lánshæfis-einkunn fyrirtækis eða op-
inbers aðila er, því hærri er
fjármögnunarkostnaður. Er
það vegna þess að lægri eink-
unn er talin merki um að
auknar líkur séu á því að út-
gefandi skuldabréfs muni ekki
geta staðið í skilum. Ákveðnar
tegundir fjárfesta vilja ekki
eða mega ekki fjárfesta í öðr-
um skuldabréfum en þeim
sem eru í fjárfestingarflokki.
Falli lánshæfi í ruslflokk
fækkar þeim sem veitt geta
viðkomandi fyrirtæki lán og
fjármögnunarkostnaður eykst
til muna.
Hærri kostnaður
Jólagjafa
handbók
Viðskipta
blaðsins
12 | 11 | 0
9