Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 13
Fréttir 13INNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Kringlunni BIOTHERM dagar í snyrtivörudeild Lyfja & heilsu Kringlunni 12.–17. nóvember. Kaupaukinn* þinn þegar þú kaupir 2 Biotherm vörur Verðmæti kaupaukans 9.000 krónur Einnig aðrar gerðir kaupauka - Eau Pure Body lotion 75 ml - Eau Pure sturtusápa 75 ml - Eau Pure ilmur 15 ml - Aquasource rakakrem 20 ml - Aquateinte litað dagkrem 5 ml - Pure extract of thermal plankton 7 ml SKIN VIVO Fyrsta kreminu sem snýr við öldrunarferli húðarinnar1 Æskan er í genum þínum. Virkjaðu þau með Allt að 10 ára yngri húð á aðeins 4 vikum2. Í hjarta hverrar frumu er DNA sem inniheldur gen sem tryggja lífsskilyrði allra frumna. Með aldrinum veikjast frumugenin og þar af leiðandi hægist á frumuendurnýjun sem hefur veruleg áhrif á öldrun húðarinnar. Nýjung – tvöföld virkni gegn öldrun húðarinnar: DNA + GEN Einstök sameining Pure Thermal Plankton og Reverserol SV, sem er öflugt og virkt jurtaefni, stuðlar að viðgerð á DNA skemmdum, endurvekur virkni3 frumugenanna og örvar frumuendurnýjun4. Öldrun húðarinnar er „afturkölluð” og hún verður sjáanlega unglegri Árangur: Fyllir upp innan frá og dregur úr hrukkum. Þéttari og stinnari húð. Einstakur ljómi. Vísindalegar sannanir á rannsóknarstofum. Prófað á yfir 300 konum. NÝ TÆKNI 8 EINKALEYFI 1) Fr á Bi ot he rm .2 )m æ lt m eð sk an nm yn d á þé ttl ei ka á stu ðn in gs ve fh úð ar in na r- um bæ tu rj af ng ild a 10 ár um – pr óf að á 32 se m no tu ðu da gk re m ið .3 )t já ni ng .4 )i n vi tro ra nn só kn ir. G ild ir á ky nn in gu nn im eð an bi rg ði re nd as t. G ild ir ek ki m eð 2 de od or an t. Ei nn ka up au ki á vi ðs ki pt av in . GEISLAVARNASTOFNANIR Ís- lands, Finnlands, Noregs og Svíþjóð- ar leggja til að börnum og ungmenn- um yngri en 18 ára verði bönnuð notkun ljósabekkja. Yfirlýsing nor- rænu geislavarnastofnananna birtist sameiginlega í löndunum fjórum í gær. Norrænar geislavarnastofnanir ráðlögðu árið 2005 fólki undir 18 ára aldri og fólki með ljósa húð að nota ekki ljósabekki. Í nýrri sameiginlegri yfirlýsingu fjögurra geislavarna- stofnana í Finnlandi, Svíþjóð, Íslandi og Noregi er nú lagt til að 18 ára ald- ursmörk verði sett á notkun ljósa- bekkja. Í tilkynningu frá Geislavörnum rík- isins segir: „Útfjólublá geislun eykur marktækt líkur á húðkrabbameinum. Börn og ungmenni eru viðkvæmari en aðrir fyrir henni. Þeir sem sól- brenna ungir eiga frekar á hættu að fá illkynja sortuæxli síðar á ævinni. Illkynja sortuæxli eru talin alvarleg- asta gerð húðkrabbameina. Samkvæmt alþjóðlega viður- kenndri meginreglu í geislavörnum skal sérhver notkun geislunar vera réttlætanleg, þannig að gagn vegi þyngra en skaði. Alþjóðlega rann- sóknarstofnunin í krabbameins- fræðum (IARC) sem starfar á vegum Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar, WHO, hefur nýlega flokkað geislun frá ljósabekkjum sem „krabbameins- valdandi fyrir fólk“. Þetta vekur áleitnar spurningar um hvort rétt- læta megi notkun ljósabekkja til að fá brúnan húðlit. Geislavarnastofnanirnar mæla þess vegna með að settar verði reglur um ljósabekki á sólbaðstofum opnum almenningi sem banna notkun, sölu eða leigu þeirra til barna eða ung- linga undir 18 ára aldri. Löggjöf um þetta hefur þegar verið innleidd í ýmsum Evrópulöndum.“ Ljósabekkir bannaðir börnum „Þeir sem sólbrenna ungir eiga frekar á hættu að fá illkynja sortuæxli síðar á ævinni“ Hættan er ljós Slagorð gegn notk- un unglinga á ljósabekkjum. Í MORGUNBLAÐINU á þriðjudag var sagt að bygging Tónlistar- og ráðstefnuhússins stefndi 7,9 millj- arða fram úr upphaflegri kostn- aðaráætlun Portusar. Austurhöfn- TR, hefur sent Morgunblaðinu at- hugasemd. Eftir að upphaflegt tilboð Portusar hafi verið lagt fram, hafi verið ákveðið að stækka húsið. „Það olli kostnaðarauka sem þá- verandi eigendur ætluðu að bera og töldu borga sig og hafði engin áhrif á fyrirheit um framlag frá opinber- um aðilum. Uppgefin kostnaðartala í umræddri frétt var einungis mið- uð við verðlagsþróun hingað til og spá Seðlabankans um verðbólgu til verkloka vorið 2011. Uppgefnar töl- ur um kostnað voru því eingöngu óbreytt áætlun og ekki rétt að verk- ið stefni miljarða fram úr áætlun,“ segir í athugasemdinni. onundur@mbl.is Fer ekki milljarða fram yfir ÖNNUR úthlutun styrkja úr Um- hverfissjóði UMFÍ, Minningarsjóði Pálma Gíslasonar – formanns UMFÍ á árunum 1973-1993, voru veitt í fyrradag við hátíðlega at- höfn í þjónustumiðstöð Ungmenna- félags Íslands við Laugarveg. Við athöfnina flutti m.a. formaður UMFÍ, Helga Guðrún Guðjóns- dóttir, ávarp og Stella Guðmunds- dóttir, ekkja Pálma afhenti styrk- ina. Sjóðsstjórninni bárust 18 um- sóknir og var samþykkt að styrkja fimm umsóknir að upphæð samtals 1 milljón króna. Þeir sem fengu styrkina voru Íþróttafélagið Hamar sem fékk 400.000 kr., Blakdeild Þróttar fékk 300.000 kr., Golfklúbburinn Glanni fékk 150.000 kr., Hestamanna- félagið Geysir fékk 75.000 kr. og Blakdeild Hattar fékk 75.000 kr. Úthlutað úr Um- hverfissjóði UMFÍ KRISTJÁN L. Möller samgöngu- ráðherra veitti í fyrradag viðtöku fyrsta eintaki nýrrar handbókar um umferðarfræðslu. Handbókinni er ætlað að auðvelda kennurum og skólum að byggja upp og efla um- ferðarfræðslu. Útgáfan er hluti af umferðaröryggisáætlun stjórn- valda. Umferðarstofa gefur hand- bókina út en gerð hennar var í höndum starfsmanna Umferð- arstofu og Grundaskóla á Akranesi. Hægt er að skoða handbókina á pdf formi og prenta hana út af heima- síðu Umferðarstofu, www.us.is. Einnig er hægt að panta hana út- prentaða á heimasíðunni. Handbók um umferðarfræðslu Fyrsta eintakið Arnar Freyr Sig- urðsson, Grundaskóla, og Kristján L. Möller samgönguráðherra. FÉLAG stjórnmálafræðinga heldur í dag opinn fund um persónukjör. Yfirskrift fundarins er „Persónu- kjör, lýðræðisbót eða spilling- arhít?“. Farið verður yfir kosti og galla persónukjörs og þeirra frum- varpa um opna framboðslista til sveitarstjórnar- og alþingiskosn- inga sem nú eru í meðförum Al- þingis. Gestir í pallborði verða Svanur Kristjánsson, Silja Bára Ómarsdóttir, Gunnar Helgi Krist- insson, Valgerður Bjarnadóttir og Birgir Ármannsson. Fundurinn verður haldinn í stofu 132 í Öskju (Háskóla Íslands) og stendur kl. 12:15-13:00. Opinn fundur um persónukjör

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.