Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 26
✝ Jenný Haralds-dóttir fæddist á Kolfreyjustað í Fá- skrúðsfirði hinn 12. ágúst 1928. Hún and- aðist á Landspít- alanum 3. nóvember síðastliðinn. For- eldrar hennar voru séra Haraldur Jón- asson, prófastur á Kolfreyjustað, og kona hans Guðrún Valborg Haralds- dóttir. Hálfbróðir Jennýjar (samfeðra) var Jónas, f. 1916, d. 1998. Alsystk- ini hennar voru Sigrún, f. 1923, Ragnar, f. 1925, Þórey, f. 1930, Rannveig, f. 1933, Haraldur f. 1936, Björgvin, f. 1938, d. 2002, Hilmar, f. 1940 og Helga, f. 1941, d. 1991. Jenný giftist hinn 30. desember 1950 Davíð Kr. Jenssyni, bygg- ingameistara, f. 8. apríl 1926, d. 1. janúar 2005. Foreldrar hans voru Jens Gíslason frá Selárdal og kona hans Ingveldur Benediktsdóttir. Börn Jennýjar og Davíðs eru: 1) Valborg, f. 3. júní 1952, gift Ragn- ari B. Ragnarssyni, þau eiga fjögur börn og átta barnabörn. 2) Krist- rún, f. 8. maí 1954, gift Ásgeiri Ei- ríkssyni, þau eiga tvo syni og eitt barnabarn. 3) Inga, f. 17. febrúar 1959, d. 26. október 2009. Sambýlismaður var Jóhann Bjarna- son, þau eiga eina dóttur. Fyrri maður Ingu var Haraldur Eggertsson, þau eiga eina dóttur. 4) Jenný, f. 10. febrúar 1962, sambýlismaður er Ólafur Einarsson sem á tvö börn. Jenný var í sambúð með Ómari Ingólfssyni, þau eiga eina dóttur. 5) Hild- ur, f. 2. september 1967, gift Hreini Hafliðasyni. 6) Elsa María, f. 25. maí 1971, gift Þórhalli Matthíassyni, þau eiga þrjú börn. Jenný og Davíð hófu búskap sinn í Reykjavík og byggðu sér fljótlega framtíðarheimilið í Langagerði 60, þar sem Jenný hefur áfram búið eftir fráfall Davíðs. Að afloknu skyldunámi stundaði Jenný nám við Tóvinnuskólann á Svalbarðs- strönd og Húsmæðraskóla Reykja- víkur. Hún sinnti húsmóðurstörfum meðan dæturnar komust á legg. Jenný starfaði á gæsluvellinum við Tunguveg þar til að hún lét af störfum fyrir aldurs sakir. Útför Jennýjar fer fram frá Bú- staðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Í dag er jarðsungin elskuleg móðir okkar Jenný Haraldsdóttir. Við systurnar minnumst hennar ekki eingöngu sem fyrirmyndarmóð- ur heldur einnig sem kraftmikillar og duglegrar konu sem kenndi okkur margt á lífsleiðinni. Hún lagði mikið upp úr því að viðhalda sterkum fjöl- skylduböndum, en hún lét þar ekki við sitja því hún hugsaði einnig vel um vinahóp sinn. Fjölmörg boð voru í Langagerði 60 og þar var ávallt glatt á hjalla þar sem mamma reiddi fram veitingar með sínum kviku hreyfingum. Hún var dugleg við að rækta garðinn bæði í Langagerði og að Móum, sumarbústað okkar á Þingvöllum, en þar skildi hún eftir sig gróskumikinn sælureit. Mamma var mikil hannyrðakona og skilur eftir sig mörg falleg útsaumsverk. Hún var einnig iðin við prjónaskap- inn og prjónaði fjöldann allan af lopapeysum sem hlýja mörgum. Við vorum allar svo lánsamar að hafa fengið að ferðast með foreldrum okkar bæði innan lands og utan. Þeg- ar við lítum til baka voru þetta okkur dýrmætar stundir. Foreldrar okkar nutu þeirrar gæfu að ferðast um heiminn sem veitti þeim ómælda ánægju og gleði. Biðum við stelpurn- ar spenntar eftir myndakvöldunum og frásögnum þeirra af ógleyman- legum ferðum. Mamma hafði sterka réttlætis- kennd og kenndi okkar að gera öllum jafn hátt undir höfði og greina rétt frá röngu. Við erum henni afar þakk- látar fyrir þetta góða veganesti. Mamma var heilsuhraust fram á síðasta dag. Hún náði að kveðja Ingu, elskulegu systur okkar, sem kvaddi þennan heim fyrir aldur fram, en þær mæðgur háðu baráttu um líf sitt á sama tíma. Megi góður guð varðveita og geyma ástkæru móður okkar og Ingu systur sem hafa sameinast nú hjá föður okkar. Við kveðjum þær með miklum sökn- uði og þökkum góðar samverustund- ir. Blessuð sé minning þeirra. Valborg, Kristrún, Jenný, Hildur og Elsa María. Við hjónin kveðjum nú okkar ást- kæru móður og tengdamóður. Hún var „drottningin“ okkar í Langa- gerðinu, þangað sem alltaf var gott að koma. Við minnumst hennar sem myndarlegrar og duglegrar konu sem prjónaði mikið, eldaði góðan mat, hafði glæsileg kaffiboð auk þess að hafa alltaf eitthvað fyrir stafni. Hún var okkur mjög góð og þótti alltaf svo vænt um okkur. Okkur þótt líka mjög vænt um hana og söknum hennar sárt. Við óskum þess að hún hvíli í friði og sé nú á ný sameinuð elsku pabba og tengdapabba sem tekur á móti henni á himnum. Við þökkum elsku mömmu og tengdamömmu allar góðu stundirnar og kveðjum hana með virðingu og söknuði. Hildur og Hreinn. Elskuleg tengdamóðir mín var burtkölluð hinn 3. júní sl. eftir skammvinna sjúkralegu. Hún kenndi sér þess meins sem dró hana til dauða einungis tæpum tveimur vikum fyrir andlátið. Með henni er gengin mikil sómakona sem ég var svo lánsamur að kynnast fyrir rúm- um 37 árum þegar við Kristrún dótt- ir hennar fórum að draga okkur sam- an. Jenný var gæfukona sem átti því láni að fagna að lifa hamingjusömu og innihaldsríku lífi, auk þess að vera heilsuhraust fram undir það síðasta. Jafnvel þótt á móti hafi blásið og ým- is áföll dunið yfir bjó hún yfir æðru- leysi, trú, styrk og innri krafti sem reyndist henni vel. Hún og Davíð tengdafaðir minn nutu þess að ferðast víða um lönd, auk þess sem þau áttu sinn sælureit til margra ára í sumarbústaðnum við Þingvalla- vatn. Þar lofa verkin meistarana. Jenný var ein af þessum konum sem hægt er að segja að sjaldan hafi fallið verk úr hendi. Hún átti fallegt heim- ili sem hún hugsaði vel um, hún hafði ánægju af prjónaskap og hún var ræktarsöm við ættingja sína og vini. Hún bjó nánast alla sína búskap- Jenný Haraldsdóttir artíð í Langagerði 60, þar sem þau Davíð byggðu sér og dætrum sínum fallegt heimili. Eftir að Davíð féll frá í upphafi árs 2005 var hún staðráðin í að búa áfram í Langagerðinu, enda heilsuhraust og fullfær um að sjá um sig sjálf. Að leiðarlokum þakka ég tengda- móður minni góð kynni og samfylgd- ina. Hún auðgaði líf mitt og án efa okkar allra sem þekktum hana og áttum með henni samleið. Það er mikill harmur kveðinn að fjölskyld- unni við fráfall Jennýjar. Systurnar og fjölskyldur þeirra sakna móður, tengdamóður, ömmu og langömmu. Á sama tíma syrgjum við öll Ingu dóttur hennar sem lést einungis rúmri viku fyrr, langt fyrir aldur fram. Blessuð sé minning þeirra beggja. Ásgeir. Elskuleg tengdamóðir mín og amma barnanna er farin og er sökn- uður okkar mikill. Hún hafði alltaf verið hraust en allt í einu gaf heilsan sig. Hún tók þeim tíðindum eins og öllu öðru með einstöku æðruleysi fram á síðasta dag. Jenny var trúuð kona og lifði sam- kvæmt því og þótti gott að koma til kirkjunnar sinnar. Ég mun minnast Jennýjar tengdamóður minnar fyrst og fremst fyrir hjálpsemi hennar, hlýju og góðvild. Kynni mín af henni hófust þegar ég fór að eltast við yngstu dóttur hennar Elsu Maríu. Var mér tekið af tengdaforeldrum mínum með hlýhug og vinsemd og hef ég búið að því æ síðan. Margar minningar koma upp í hugann þegar ég sit og rita þessar línur. Jenný bar mikla umhyggju fyrir afkomendum sínum og hafði áhuga á öllu sem þeir tóku sér fyrir hendur. Allar stundinar í Langa- gerðinu eru okkur mjög ofarlega í huga. Oft voru þar mikil veisluhöld hjá stórfjölskyldunni. Á meðan við hjónin byggðum okkar fyrsta hús bjuggum við inni á þeim og vakti hún eftir mér langt fram eftir með heitan mat og ég tala nú ekki um hvað ég var alltaf í vel straujuðum fötum á þeim tíma. Síðan þegar við héldum okkar fyrstu jól með þeim í nýja hús- inu okkar þá settist hún niður við messuna og sagði að það væri í fyrsta skiptið sem hún hlustaði á messuna og hvíldist án alls umstangsins sem fylgir jólamatnum. Eftir það voru þau, og síðar hún, alltaf hjá okkur á jólunum, okkur og börnunum til mik- ilar ánægju. Það verður tómlegra við matarborðið hjá okkur í Heimalind- inni á jólunum í framtíðinni. Það voru forréttindi að vera með þér þessar stundir, eiga með þér jól- in og njóta þeirra saman. Spánar- ferðin með þeim hjónum er mjög eft- irminnileg og vorum við með frumburðinn með í för sem var gjöfin hennar á 70 ára afmælisdeginum ár- ið áður. Ferðin seinna til Kanarí með ömmunum tveimur var mjög skemmtileg og vel heppnuð í alla staði. Ekki er annað hægt en minn- ast á allar ferðirnar á Þingvöll þar sem Davíð og Jenný höfðu gert sum- arbústað, sem var eins og heimili þeirra, alveg einstakur í alla staði og þar sást að mikil garðyrkjukona var á ferð. Eftir að við hjónin bjuggum tímabundið á Akureyri var hún tíður gestur hjá okkur, dvaldi oft lengi sem var yndislegur tími fyrir okkur og börnin sem fengu og njóta hennar enda var hún alltaf til í að sinna þeim. Jenny var mikil prjónakona og hafa allir afkomendur notið góðs af því, m.a. eru litlir sokkar og vettlingar á ungbörnin svo listilega gerðir að un- un var að sjá. Elma Jenný okkar fékk fram á síðasta dag kennslu í prjónaskap og þótti Matthíasi Davíð bróður hennar þetta mjög framandi en var svo farinn að sauma út með ömmu. Jenný var sannkallaður heimsborgari og hafði mjög gaman af að ferðast og skoða heiminn, var alltaf svo vel til höfð og hafi mjög gaman af því að koma vel fyrir. Við kveðjum Jenný með söknuði og ömmubörnin Elma Jenný, Matt- hías Davíð og Tómas Fannar eru þakklát fyrir góð kynni. Við sendum dætrum Jennýar og fjölskyldum þeirra hughreystandi kveðjur. Þórhallur Matthíasson. Við viljum með nokkrum orðum minnast ömmu okkar, Jennýjar Har- aldsdóttur, sem kvaddi okkur svo skyndilega að okkur fannst. Hún var alla tíð afar heilsuhraust sem við er- um afar þakklátir fyrir. Okkur fannst því erfitt að skilja þegar kom- ið var að kveðjustund eftir alvarleg en blessunarlega skammvinn veik- indi. Amma okkar var sterk, hjartahlý og einstaklega barngóð kona. Stórum hluta barnæsku okkar var varið bæði að heimili hennar og afa okkar í Langagerði sem og á róló- vellinum skammt hjá þar sem hún vann lengi. Við vorum báðir einnig á leikskóla í götunni. Nálægðin við ömmu okkar var því mikil og tengsl- in sterk. Við eigum margar sterkar minn- ingar úr Langagerðinu. Skyr í há- deginu, Tommi og Jenni í sjónvarp- inu, kubbarnir í skemlinum sem voru nú aftur komnir í notkun fyrir barna- barnabörnin sem komu í heimsókn í „Langömmugerði“. Allar pönnukök- urnar, rabarbarasultan, matarboðin og ekki síst prjónaskapurinn sem var henni svo kær alla tíð. Hún var ekta amma. Við höfum oft heyrt hversu sam- rýnd fjölskylda okkar er. Svo sam- rýnd að það þykir eftirtektarvert. Okkur þótti það sjálfsagt á uppvaxt- arárunum en nú gerum við okkur grein fyrir því hversu dýrmætt það er eiga sterka og nána fjölskyldu. Það er ekki síst ömmu okkur að þakka. Hún lagði ríka áherslu á að fjölskyldan hittist reglulega og rækt- aði tengslin. Styrkurinn sem hlýst af því að eiga stórt og gott bakland hef- ur verið afar dýrmætur, ekki síst á þessum erfiðu tímum. Amma missti dóttur sína og móð- ursystur okkar, Ingu, í miðjum veik- indum sínum. Við viljum einnig minnast hennar hér en okkur er huggun í því að vita að þær mæðgur eru nú saman á góðum stað. Guð varðveiti minningu þeirra. Eiríkur Stefán og Davíð. Þegar ég hugsa um engla hugsa ég um ömmu og mömmu, tvær mikil- vægar manneskjur í mínu lífi. Þær kveðja snöggt, en eftir lifa dýrmætar minningar. „Elsku amma Jenný mín, þú hefur alltaf verið konan sem ég lít mest upp til. Þú varst með stórt og gott hjarta, gerðir allt sem þú vildir og þú gast gert allt sem þú vildir. Þú kenndir mér, þú hlustaðir og gast gefið. Þú ert ein ótrúlegasta kona sem ég hef kynnst. Ég er svo þakklát fyrir stundirnar sem við höfum átt, bæði í stórum hóp eða bara við tvær. Ég hef verið svo heppin að vera alnafna þín sem er einn mesti heiður sem hægt er að fá. Ég held að kraftarnir sem í þér bjuggu fylgi nafninu. Þegar ég hugsa til þín fæ ég styrk, styrk til að halda áfram, styrk til að trúa og gera það sem hjartað segir mér. Þér þótti ekki leiðinlegt að fylla Langagerðið af fólki, þér leið best ef þú fékkst að vera á iði allan tíman. En til að slappa af inn á milli tókstu prjónana þína upp, ef til vill dottaðir þú yfir þeim. Þú hugsaðir jafn vel um blómin þín og fólkið þitt, enda hefur þú ræktað fallega garða í kringum þig bæði á Móum og í Langagerðinu. Þér þótti gaman að upplifa, innan- lands sem utanlands og ekki var verra að fá að upplifa með þér, elsku amma.“ Erfitt er að skilja að mamma og amma eru farnar. En þessar tvær eru mínir englar og munu passa mig og fjölskylduna okkar. Þær eru alltaf hjá okkur. Ég sakna ykkar og ég elska ykkur. Ykkar, Jenný Haraldsdóttir. Elsku systir, ég vil þakka þér fyrir allar ánægjustundir sem við áttum saman. Fráfall þitt bar svo skjótt að, eng- in hefði trúað að duglega konan sem alltaf var svo hraust og aldrei varð misdægurt kveddi svona snöggt. Þú varst svo elskuleg að koma oft til mín eftir að Hjörtur dó síðastliðið ár. Þá vorum við báðar orðnar ekkjur og náðum vel saman. Þá eru góðar minningar um ferðalögin sem við fórum í sumar og svo ferðir sem við fórum með mönnum okkar í gamla daga. Þar bar aldrei neinn skugga á. Það var mikið áfall þegar Inga dóttir þín dó núna 26. október þegar þú varst á spítalanum en þú stóðst þig eins og hetja, eins og alltaf. Elsku systurdætur og allir ætt- ingjar, það er mikið áfall að missa móður og systur með viku millibili. Mér er orða vant. Ég bið Guð að styrkja ykkur í sorginni. Elsku systir, hafðu þökk fyrir allt og allt. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virzt mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson.) Þín systir, Sigrún. Jenný Haraldsdóttir, alnafna eldri dóttur minnar, fer í sína hinstu ferð í dag. Þótt ýmislegt benti til alvarleika veikinda Jennýjar þá datt mér ekki í hug þegar ég og stelpurnar mínar heimsóttum hana á spítalann að það væri í síðasta sinn sem ég sæi þessa merku konu. Jenný var kona sem engan átti sinn líka. Hún var kona sem ég mat mikils allt frá fyrstu tíð. Hún hafði skoðanir og hún hafði drauma. Það var fátt sem stoppaði hana. Líf henn- ar var fjölbreytt og það er heiður að hafa átt hlut að því. Margar voru stundirnar sem ég átti með henni og Davíð sem geym- ast í minningunni. Allar stundirnar að Móum, í Langagerði, í húsunum okkar, í veislum, í ferðalögum og heimsóknum á báða bóga. Þetta átti bara að vera svona allt- af, en allt breyttist og mikið saknaði ég gömlu hjónanna alla tíð. Nú eru þau hjónin sameinuð á ný og saman geta þau nú haldið för sinni áfram á vit ævintýra, gleði og vænt- umþykju. Við sem eftir lifum gleymum ekki og höldum minningu þeirra á lofti alla tíð. Við erum þakklát fyrir það sem við fengum í fararnesti frá Jen- nýju og Davíð. Jenný, takk fyrir þau ár sem við áttum saman og takk fyrir það sem ég hef lært af þér í gegnum tíðina. Þú lifir áfram í hjarta mínu. Haraldur Eggertsson. Það er bjart yfir minningu Jennýj- ar Haraldsdóttur, sem kvödd er í dag. Jenný er fjórða barn séra Haralds Jónassonar (1885-1954), prófasts á Kolfreyjustað, sem kveður þetta jarðlíf. Séra Haraldur eignaðist 10 börn með eiginkonum sínum Sig- rúnu Jónsdóttur (1881-1919) og Guð- rúnu Valborgu Haraldsdóttur (1901- 1990). Skólabróðir Haralds, Magnús Jónsson, prófessor, segir svo m.a. í minningargrein um hann. „Mér finnst þetta táknrænt um þennan mæta mann og trúa þjón. Hann sest að starfi og haggast ekki þaðan fyrr en yfir lýkur. Vinnur starf sitt, and- legt og veraldlegt, ef þar skal í milli greina, preststarf og prófastsstarf, heimilislíf með konu og börnum, bú- skap, sveitarstörf og allt annað, svo að ekki fellur blettur á skjöld hans.“ Jenný bar það með sér alla tíð hvað- an hún kom og hverjar voru rætur hennar. Hún ólst upp á Kolfreyjustað og kynntist þar öllum almennum störf- um og ekki síst hannyrðum. Hún stundaði nám við Gagnfræðaskólann í Neskaupstað og síðar við Tóvinnu- skólann á Svalbarði við Eyjafjörð, undir handarjaðri Halldóru Bjarna- dóttur, hinnar merku forystukonu í vefnaði og heimilisiðnaði. Bjó hún að þessu námi alla ævi og fór það ekki á milli mála, að Halldóra hafði haft sterk áhrif og þroskandi á nemanda sinn. Ung að árum stofnuðu þau til hjú- skapar Jenný og Davíð Kr. Jensson byggingameistari frá Selárdal. Þau hjónin voru samtaka í lífsbaráttunni og eignuðust myndarlegt heimili, þar sem rausn og glaðværð réð ríkjum. 26 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég mun sakna þín, elsku amma mín. Þín Íris. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.