Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 32
32 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009  Margir íslenskir myndlistarmenn hafa fundið harkalega fyrir krepp- unni, þar sem sala á verkum þeirra hefur dregist hressilega saman. Sú virðist þó ekki vera raunin hjá Dav- íð Erni Halldórssyni, hinum lita- glaða málara. Öll málverkin nema tvö, á sýningunni sem hann opnaði í Hafnarborg um liðna helgi, munu hafa selst fyrstu dagana. Verk Davíðs Arnar selj- ast þrátt fyrir kreppu Fólk Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is BUBBI Morthens hefur í nógu að snúast nú um stundir; hann stendur við Færibandið á Rás 2 á hverjum mánudegi, í síðasta mánuði kom út ný skífa hans með Egóinu, 6. október, og í vikunni kom út ný laxveiðibók hans og Einar Fals Ing- ólfssonar. Þrátt fyrir annir er Bubbi á fullu að undirbúa næstu skífu, jólaplötu sem hann ætlar að hafa með kántrýsniði. Að því er kom fram í stuttu spjalli í vikunni hefur hann samið nokkur jólalög og stefnir á að byrja á upptökum eftir áramót með nokkrum traustum samstarfs- mönnum, þar á meðal Pétri Hallgrímssyni gít- arleikara. Auk eigin jólalaga hyggst Bubbi taka upp nokkur lög af frábærri jólaplötu Hauks frænda síns Morthens Hátíð í bæ. Í spjalli á vefnum bubbi.is setur Bubbi fram skoðun sína á jólamúsík yfirleitt og er ekki að skafa utan af því frekar en fyrri daginn: „Það er meira helvíti sem menn geta eyðilagt þessi jóla- lög okkar í sykri, fitu, glassúr og strengjum dauðans. Það virðist enginn hafa þann metnað að gera jólaplötu frá hjartanu ekki pyngjunni. Seinasta góða jólaplatan sem kom út á Íslandi var jólaplata Hauks Morthens. Síðan hefur með- almennskan verið að gera út af við jólalögin þar sem allir halda að ef þú hefur þetta nógu væmið í útsetningu þá sé það jól-ó. Auðvitað hlýtur að vera þarna eitthvað sem er bitastætt sem ég bara hef ekki heyrt, ef lag er gott þá er lagið gott, en það er hægt að rústa því með bjöllu- hljóm, stengjum og syrkurhjúpuðum kór.“ Sykur, fita, glassúr og strengir dauðans Morgunblaðið/Ómar Kántrý Bubbi gerir jólaplötu frá hjartanu.  Íslenskir fatahönnuðir verða með opið hús milli kl. 18 og 21 í verslunum sínum í miðbænum. Þetta eru STEiNUNN, ELM, Spaks- mannsspjarir, GuSt, MUNDI, Júni- form, Andersen & Lauth, HANNA, Kisan/Farmers Market, Nakti ap- inn, Ásta creative clothes, Nostrum, BIRNA, Nikita, E-label og Rósa De- sign. Verslanirnar eru við Lauga- veg, Bankastræti, Ingólfsstræti og Klapparstíg. Áhugamenn um ís- lenska fatahönnun ættu því að drífa sig í bæinn. Annars vekur það at- hygli hversu mörg þessara merkja og verslana rita nöfn sín með há- stöfum. MERKILEGT. Fatahönnuðir bjóða í heimsókn í kvöld  Fataverslunin Gyllti kötturinn í Austurstræti heldur upp á fjögurra ára afmæli milli kl. 14 og 18 á laug- ardaginn. Þá verður aftur opnuð herradeild verslunarinnar, „eftir mikinn þrýsting frá karlmönnum“, að sögn aðstoðarverslunarstjóra, Viktoríu Hermannsdóttur. DJ Anna Rakel þeytir skífum og Sigríður Thorlacius syngur nokkur lög. Herradeild Gyllta katt- arins opnuð í afmæli Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is TÓLF tónleika túr Mugisons og gít- argoðsins Björgvins Gíslasonar um gervallt landið hefst í kvöld í Edin- borgarhúsinu á Ísafirði og lýkur í Batteríinu, Reykjavík, þann 27. nóv- ember. „Ég sá Björgvin spila með blús- bandi þegar ég var sautján ára,“ segir Mugison, talandi frá flugvell- inum á Ísafirði þar sem hann er kominn til að ná í goðið. „Ég féll algerlega í stafi og hét því að einhvern tíma yrði ég það frægur að ég gæti gengið upp að honum og beðið hann um að djamma með mér. A.m.k. það fræg- ur að ég yrði nokkuð viss um að hann myndi ekki segja nei!“ Björgvin hefur áður leikið með Mugison, lagði t.d. til gítarleik þeg- ar hann vann tónlistina fyrir mynd- ina A little trip to heaven og lék með honum á Eurosonic-hátíðinni árið 2008. „Hann kom inn í þá tónleika með tveggja daga fyrirvara og ég kenndi honum lögin í flugvélinni á leiðinni út. Ég kynnti hann svo sem afa minn þegar hann kom upp á svið.“ Í vikunni kemur svo út ný plata, Ítrekun. Hún hefur að geyma lög sem breyttust mikið á hljómleika- ferðalagi vegna síðustu plötu Mug- isons, Mugiboogie. Hann og vösk sveit hans rúlluðu þeim því inn á band í ársbyrjun 2009. Tvíeykið Mugison og Björgvin munu síðan halda opnar upptökur í anda Damiens Rice í Sundlauginni, miðvikudaginn 25. nóvember, og ef vel tekst til verða þær gefnar út með einhverjum hætti. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Hringur Mugison ætlar að taka Björgvin Gíslason með sér um landið. Mugison og Bjöggi Gísla fara í kringum landið … … og halda opnar upptökur í Sundlauginni Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is „BÓKIN byrjar sem óbeint viðbragð við hruninu,“ segir Huldar Breiðfjörð um bók sína Færeyskur dansur, sem er ferðalýsing frá Færeyjum, en Huldar dvaldi þar í mánaðartíma, nánar tiltekið í febrúar á þessu ári. „Ég varð svolítið hissa þegar út- rétt hjálparhönd barst frá eyjunum í kjölfar efnahagshörmunganna – ég var eiginlega búinn að gleyma því að þær væru til! Það lagðist mikil Fær- eyjavæmni yfir fólk hér heima fannst mér, þetta var ekki lengur bara frændþjóð heldur hin eina sanna vinaþjóð.“ Vissi allt og ekki neitt Huldar segist hafa farið að velta fyrir sér sambandi þjóðanna í fram- haldinu. „Mér fannst það á margan hátt einkennilegt. Mér fannst ég vita allt um eyjarnar en um leið ekki neitt. Mér fannst eins og ég hefði heyrt allt um þær, en aldrei lagt við hlustir. Ég hafði aldrei komið þangað og þegar ég fór að spyrja vini og kunningja hafði enginn þeirra farið þangað heldur. Það er eins og það taki því varla að fara þangað, þær séu það ná- lægar. Það væri sóun á utanlands- ferð. Færeyjar væru eiginlega ekki í útlöndum. Þetta er skrítið mál, þær eru mjög nálægar en líka svo fjar- lægar.“ Huldar segir að hann hafi reiknað út að mánuður væri passlegur tími, enda séu fjarlægðir litlar þarna, klukkutími eða svo í allt að því er virðist. „Ég leigði mér herbergi í verka- mannakommúnu í Þórshöfn og vann þetta svo þaðan, fór út um allt. Norð- ur til Klakksvíkur og niður til Suður- eyja með ferjunni. Og það var sama hvar ég kom. Það var allt eins og á Ís- landi … en samt ekki. Undarleg til- finning. Klakksvík minnti mig t.d. á Ólafsvík. Ég eignaðist vini og kunn- ingja þarna en svo fór ég iðulega einn í göngutúra og dró inn stemn- inguna.“ Hrunið var ofarlega í huga allra um þetta leyti. „Þegar ég horfði á þá atburðarás frá eyjunum sá ég hana í öðru ljósi. Ísland var eins og stóri bróðir sem er í ruglinu en Færeyjar líkt og litli duglegi bróðirinn sem er að redda þeim eldri.“ Eftir dvöl sína í Færeyjum fór Huldar til Íslands og skrifaði bókina vestur á Flateyri þar sem hann var í sex mánuði. Fyrri bækur Huldars eru áþekkar, ferðasögur sem gerast á Íslandi og í Kína. „Þar hittum við fyrir ferðalang sem er í misdjúpum tilvistarspurn- ingum mætti segja. En það er raun- verulega ekkert samhengi á milli þessara þriggja landa í bókum mín- um, alltént á ég erfitt með að tjá mig um það. “ Huldar segir að eyjarnar togi í sig í dag. „Það er fallegt og þægilegt tempó þarna, fólk er sátt við sitt einhvern veginn og mig langar að fara aftur þangað. Aftur og aftur meira að segja. Eitt af því sem maður heyrði alltaf, frá öllum, var að Færeyingar væru svo afskaplega gott fólk. Það var bara afgreitt þannig. Það var al- veg sama við hvern var talað, allt var þetta á sömu leið. Mér fannst þetta skrítið en ekki lengur. Þetta er bara svona. Færeyingar eru afskaplega gott fólk.“ Nálægar en líka svo fjarlægar Ljósmynd/Grímar Jónsson Hjá herraþjóðinni Huldar var í Kaupmannahöfn þegar blaðamaður heyrði í honum og voru ljósmyndunarmál leyst á snaggaralegan hátt. Hann lét vin sinn smella af sér mynd og sendi svo um hæl í gegnum iður netsins.  Huldar Breiðfjörð sendir frá sér sína þriðju bók, Færeyskur dansur – ferðalýsing  Hugleiðing um einkennilegt samband tveggja grannþjóða „Ég datt dálítið inn í tónlistina þarna, en ég fylgist sæmilega með í þeim efnum svona al- mennt séð,“ segir Huldar. „Þetta er mikið músíkfólk, þetta liggur einhvern veginn svo djúpt í fólkinu, allir syngja og spila á hljóðfæri. Þetta er sterk- ara einhvern veginn en hérna. Líklega vegna þess að Fær- eyingar héldu lífi í tungumálinu með kvæðasöng og dansi á meðan við varðveittum okkar í skinnhandritunum. Músíkþjóð og bókaþjóð?“ „Fínur tónleikur“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.