Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Mjúkir pakkar ! Dúnsokkar Kr. 6.900,- Faxafeni 5 S. 588 8477 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is LOKIÐ er mati á uppskerubresti hjá kartöflu- bændum í Þykkvabænum vegna þess að kartöflu- grös féllu vegna næturfrosts í lok júlí í sumar. Í meðalári hefði uppskeran átt að verða um 5.500 tonn en hún varð rétt um helmingur þess. Því vantar a.m.k. 2.500 tonn upp á meðaluppskeru. Slegið var á það í sumar, að tekjutap kartöflu- bænda gæti numið allt að 250 milljónum króna. Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Sambands garðyrkjubænda, segir að enn vanti gögn til að hægt sé að áætla tapið nákvæmlega. Að sögn Bjarna reyndist uppskeran vera mjög misjöfn hjá einstaka bændum í Þykkvabænum. Sá sem best slapp tapaði um 20% af uppskeru sinni en sá bóndi sem verst fór út úr næturfrostunum tapaði þremur fjórðu af uppskerunni. Náttúru- legar aðstæður virðast hafa ráðið því hvar nætur- frostið olli mestum skaða. Í þeim görðum sem eru með vökvunarkerfi var tjón tiltölulega lítið, en Bjarni segir að því fylgi geysimikill kostnaður að koma upp vökvunarkerfi í kartöflugörðunum. Haft verður samband við Bjargráðasjóð Nú er unnið að því að afla lokagagna og reikna út tjónið. Verður þeim gögnum komið til Bjarg- ráðasjóðs, en hans hlutverk er að koma bændum til bjargar, sem orðið hafa fyrir uppskerubresti. Það verði svo í valdi sjóðsins að ákveða framhald- ið. „Það er að mínu mati enginn munur á þessu og kalskemmdum í túnum, sem fást bættar. Þetta er af sama toga nema um er að ræða frostskemmdir á miðju sumri,“ segir Bjarni. Þá á Bjarni von á því að forystumenn kartöflubænda muni óska eftir fundi með Jóni Bjarnasyni landbúnaðarráðherra til að gera honum grein fyrir stöðunni. Fram hefur komið í fréttum að í búnaðardeild Bjargráðsjóðs séu nú til um 236 milljónir króna. Búnaðardeildin hefur greitt bændum styrki vegna uppskerubrests og kalskemmda. Bjarni Jónsson reiknar með því að þrátt fyrir uppskerubrestinn muni íslenskar kartöflur verða á boðstólum í verslunum fram í mars á næsta ári. Munar þar mestu að uppskera í Eyjafirði var í góðu meðallagi og uppskeran hjá bændum í Hornafirði var vel yfir meðallagi. 50% uppskera í Þykkvabænum  Vantar í það minnsta 2.500 tonn til að meðaluppskera hafi náðst  Tap kart- öflubænda er umtalsvert  Munu leita til Bjargráðasjóðs til að fá tap sitt bætt Morgunblaðið/Golli Góðgæti Íslenskar kartöflur verða á boðstólum fram í mars á næsta ári. Eftir Ívar Pál Jónsson ivarpall@mbl.is ÍSLANDSBANKI skoðar nú svipuð úrræði fyrir fyrirtæki og bankinn hef- ur kynnt og boðið einstaklingum, að sögn Birnu Einarsdóttur banka- stjóra, en hún kynnti þær hugmyndir á ráðstefnu KPMG nýlega. Þar er um að ræða svokallaða höf- uðstólsleiðréttingu, þar sem höfuð- stóll erlendra lána er fluttur yfir í ís- lenskar krónur og lækkaður. Hjá einstaklingum er höfuðstóllinn lækk- aður um u.þ.b. fjórðung, en hver lækkunin verður veltur á myntkörf- unni sem um ræðir og lengd lánsins. Lækkunin gæti þó orðið veruleg, en þó ekki eins mikil og í tilviki erlendu húsnæðislánanna, þar sem yfirleitt er um styttri lán að ræða hjá fyrirtækj- um. Úrræðið verður ætlað fyrirtækj- um sem eru með tekjur í íslenskum krónum. Reglur um skuldaaðlögun Birna segir að innan bankans sé verið að reikna út hvaða svigrúm bankinn hafi til þessara aðgerða og að vonandi verði hægt að kynna þessi úr- ræði innan tíðar. „Jafnframt erum við að leggja lokahönd á reglur um skuldaaðlögun fyrirtækja, sem bygg- ist á því hvernig við stillum upp lána- pakka fyrirtækja miðað við tekjuflæði þeirra, ef þau eru lífvænleg. Ætlunin er að setja upp vinnuramma, sem birtur verður á vef bankans og segir t.a.m. hvernig við metum það hvaða fyrirtæki eiga þess kost að fá þessa meðferð.“ Birna segist sjá fyrir sér að búið verði að afgreiða úrræði fyrir einstaklinga að mestu leyti um ára- mót og þá geti úrræði fyrir fyrirtæki komið til framkvæmda. „Ég geri ráð fyrir því að við getum hafist handa við fyrirtækin í byrjun næsta árs. Árið 2010 hjá Íslandsbanka verður ár fjár- hagslegrar endurskipulagningar hjá fyrirtækjum. Við höfum fram að þessu einblínt á skammtímalausnir fyrir fyrirtæki og það hefur að ég held margborgað sig, enda hefur komið í ljós að mörg þeirra eru betur stödd en við þorðum að vona í byrjun þessa árs. Þessar skammtímaaðgerðir hafa að mínu mati komið í veg fyrir að gjaldþrot fyrirtækja yrðu fleiri en þau hafa orðið. Langtímalausnirnar eru næstar á dagskrá,“ segir hún. Höfuðstólsleiðrétting á lánum fyrirtækja Íslandsbanki hyggst kynna fyrirtækjaúrræði á næstunni BARNAVERNDARNEFND Reykjavíkur braut lög þegar hún ákvað að taka 9 ára dreng skyndi- lega úr umsjá ömmu sinnar og senda hann í fóstur austur á land. Þetta er mat Daggar Pálsdóttur, lögmanns móður drengsins. Ekki sé hægt að setja barn í varanlegt fóstur nema svipta fyrst foreldri forsjár- rétti, það hafi ekki verið gert. Kvört- un vegna vinnubragðanna verður send Barnaverndarstofu í dag. Móðir drengsins hefur forræði yf- ir honum og eldri bróður hans en þeir hafa verið vistaðir hjá ömmu sinni. Móðurbróðir drengins segir í aðsendri grein á síðu 21 í Morgun- blaðinu í dag að barnaverndaryfir- völd níðist á réttindum drengsins. Hagsmuna drengsins gætt Í yfirlýsingu frá Barnaverndar- nefnd Reykjavíkur segir að hún harmi að viðkvæm málefni barns séu til umfjöllunar í fjölmiðlum. „Barnavernd Reykjavíkur hefur yfirfarið sérstaklega ferli þessa til- tekna máls og telur að þar hafi verið unnið með bestu hagsmuni barnsins að leiðarljósi,“ segir í yfirlýsingunni. Málið er í biðstöðu meðan Barna- verndarnefnd fjallar um það. Deilan um drenginn í biðstöðu Kvörtun send í dag ÞAÐ var hiti í hafnfirskum unglingum í gær þegar þeir fjölmenntu á mótmælafund vegna niðurskurðar sem bitnar á félagsmiðstöðvum bæjarins. Unglingar úr 8.-10. bekk grunnskól- anna fylltu Strandgötuna á milli ráðhúss Hafn- arfjarðar og kaffihússins Súfistans í hádeginu og telja forystumenn mótmælanna að nokkur hundruð hafi mætt, margir með mótmælaspjöld. Þrír framsögumenn voru á mótmælunum, þau Jóhanna Sif Sigurðardóttir, Adda Guðrún Gylfa- dóttir og Gunnar Þór Sigurjónsson. Ungling- arnir vonast til að mótmælin hafi einhver áhrif á ákvörðun bæjaryfirvalda og hafa þegar fengið þau svör að ekki verði frekari niðurskurður á framlögum til félagsmiðstöðvanna. Hafnfirskir unglingar þrýsta á bæjaryfirvöld Mótmæltu niðurskurði til félagsmiðstöðva Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.