Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 „KLASSÍK Í AMERÍSKRI ÍÞRÓTTASÖGU.“ 100/100 - VARIETY „THIS IS ONE HELLUVA GOOD MOVIE...“ 90/100 - HOLLYWOOD REPORTER „A KNOCKOUT OF A SPORTS DOCUMENTARY.“ 80/100 – LOS ANGELES TIMES FRÁBÆR MYND UM UPPVAXTARÁR EINS ÁSTSÆLASTA KÖRFUBOLTAMANN SAMTÍMANS, LEBRON JAMES. SÝND Í ÁLFABAKKA YFIR 30.000 GESTIR HVERNIG STÖÐVARÐU MORÐINGJA SEM ER NÚ ÞEGAR Í FANGELSI? GERRARD BUTLER OG JAMIE FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU HASARMYND Á ÞESSU ÁRI! FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB „VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG“ SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI BÍÓ GESTIR TJÁ SIG Á FACEBOOK - Æðisleg! - Algjört meistarverk!! - Myndin er geeðveik! :D - sá myndina þína í dag þú er idolið mitt sveppi - Þetta er geðveik mynd!!!! Allir að fara á hana - Langbesta myndin líka - Sveppi á erindi til okkar allra - hún er geeeðveik - Snillddddddd - Besta fjölskyldumyndin síðan MEÐ ALLT Á HREINU - Hún er jafn fyndin fyrir fullorðna! - Strákurinn minn er enn með stjörnur í augunum / ÁLFABAKKA LAW ABIDING CITIZEN kl. 5:50 - 8 - 10:20 16 COUPLES RETREAT kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 LAW ABIDING CITIZEN kl. 8 - 10:20 LÚXUS VIP GAMER kl. 8 16 MORE THAN A GAME kl. 5:50 - 8 - 10:20 7 ORPHAN kl. 10:20 16 THE INFORMANT kl. 8 - 10:20 L ALGJÖR SVEPPI OG LEITIN... kl. 6 L THE INFORMANT kl. 5:50 LÚXUS VIP TOY STORY 1 m. ísl. tali kl. 63D L 3D-DIGITAL / KRINGLUNNI LAW ABIDING CITIZEN kl.8:10-10:30 16 SKELLIBJALLA... m. ísl. tali kl.6:15D L THE INFORMANT kl.8:10-10:30 L FAME kl.6 L TOY STORY 1 m. ísl. tali kl.6:153D L 3D-DIGITAL COUPLES RETREAT kl.8:10D -10:30D 12 DIGITAL Law Abiding Citizen, erhefndartryllir í andaDeath Wish-myndannameð Charles Bronson sem vinsælda nutu á áttunda tug síðustu aldar. Formúlan er einföld. Eig- inkona og barn eru myrt á hrottaleg- an hátt, eftir situr örvinglaður eig- inmaður, sem í tilfelli Law Abiding Citizen nefnist Shelton (Butler). Hann telur sig í ofanálag svikinn af réttvísinni þegar morðinginn fær fljótlega náðun fyrir að ljóstra upp um annan glæpamann. Bronson var mun trúverðugri per- sóna, hann tifaði út á götuna eftir sólarlagsbil og jafnaði um óbermin og flestir bíógesta glöddust innilega þegar hann sendi þá inn í eilífðina. Það var búið að ganga þannig frá hnútunum að þeir áttu ekkert betra skilið. Og svo var Bronson mun betri leikari en Butler og átti samúð manns alla, a.m.k. í fyrstu Death Wish-myndunum. Öfgarnar í Law Abiding Citizen eru það yfir-gengilegar að flestir heilvita menn hafa fengið meira en nóg af limlestingum, drápum og mis- þyrmingum eftir fyrsta korterið. Ekki nóg með það heldur er sögu- þráðurinn yfir máta ótrúverðugur, órökréttur og götóttur. Shelton á vissulega að vera einskonar ofur- spæjari og óopinbert drápstól á veg- um leynilegrar ríkisstofnunar. Sú skýring er látin nægja til að út- skýra það að honum tekst að halda íbúum milljónaborgarinnar Fíladel- fíu í heljargreipum lengst af sýning- artímanum, sprengjandi heilu hverf- in í loft upp og mannfallið líkt og í heimsstyrjöld. Á meðan situr Shel- ton niðurnjörvaður í einangrun. Nick Rice (Foxx), lögreglumaðurinn sem á að koma honum á kné, er þó enginn aukvisi, heldur mikið mannval úr hópi réttvísarinnar bestu manna. Grey er natinn við að sviðsetja krassandi átakaatriði og bregst ekki bogalistin með sprengiefni og elds- voða, frekar en í A Man Apart og The Italian Job. Butler er hvorki fugl né fiskur, Foxx (Ray) er einfaldlega í hlutverki sem er ekki hæfileikum hans sam- boðið Auðgleymd mynd og ómerkileg að undanskildum nokkrum milljón dala brellum og vel sviðsettum bardaga- atriðum. saebjorn@heimsnet.is Morðfól og milljón dala brellur Foxx og Butler Söguþráður myndarinnar er yfirmáta ótrúverðugur. Sambíóin Law Abiding Citizen – Löghlýðnir borgarar bbmnn Leikstjóri: F. Gary Gray. Aðalleikarar: Jamie Foxx, Gerard Butler, Leslie Bibb (Sarah Lowell), Bruce McGill, Colm Meaney, Viola Davis, Michael Irby. 107 mín. Bandaríkin. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Eftir Kristrúnu Ósk Karlsdóttur kristrun@mbl.is UM HELGINA mun Norræna hús- ið halda í fyrsta skipti „suðræna tón- listarsprengju“ frá norðri. Tónlist- inni er lýst sem fjörugri og frumlegri. „Þetta eru tónlistarmenn frá Norðurlöndunum og það sem er sér- stakt við þetta er að flestir meðlimir hljómsveitanna eru innflytjendur sem búa á Norðurlöndunum,“ segir Þuríður Helga Kristjánsdóttir, kynningarstjóri hjá Norræna hús- inu. „Flytjendurnir hafa sérhæft sig til dæmis í tónlist forfeðra sinna í upprunalöndunum.“ Kvöldin byrja í rólegri kantinum, en enda síðan sem danspartí. Hljómsveitin sem hefur leikinn á morgun heitir Trans-Nations og kemur frá Danmörku. Sveitin spilar seiðandi tónlist undir gambískum og evrópskum áhrifum. Sveitarmeð- limir nota m.a. gambíska hljóðfærið cora, sem er 21 strengs hljóðfæri og líkist einna helst hörpu. „Með næstu tveimur böndum fær- ist meira stuð yfir tónlistina, en kvöldið endar á hljómsveitinni Shava frá Finnlandi. Nafnið Shava er úr indversku og þýðir partí og tónlistin stendur alveg undir því nafni,“ segir Þuríður. Heimsfræg djasshljómsveit Laugardagskvöldinu er startað með hljómsveit frá Grænlandi. „Textarnir eru á grænlensku og er tónlistin undir áhrifum frá ínúíta- tónlist,“ segir Þuríður. „Einnig spil- ar þá heimsfræga djasshljómsveitin Another World; mjög skemmtilegur bræðingur spilaður af fremstu djasstónlistarmönnum Danmerkur sem eru undir miklum áhrifum frá Gana.“ Kvöldið endar svo á Dj Nad Jee en þar blandast saman Bollywood- bhangra danstaktur og finnsk hátt- vísi. „Hann er meðal annars með dansara og indverskar trommur á sviðinu og heldur uppi miklu stuði. Fólk er því hvatt til að taka dans- skóna með.“ Tónlistin er ekki það eina sem tengist menningu þessara suðrænu landa. Nokkrar konur hafa tekið sig til og ætla að elda helstu rétti land- anna og munu gestir geta gætt sér á þeim milli tónlistaratriða. „Veislan er því fyrir öll skilning- arvit; matur fyrir munninn, tónlist fyrir eyrun og litir og sýning fyrir augun,“ segir Þuríður að lokum. Norræna húsið býður til suðrænnar tónlistarsprengju frá norðri Miðasala fer fram á midi.is Heitur DJ Nad Jee. Veisla fyrir öll skilningarvit ÍSLENSKI tónlistarsöluvefurinn gogoyoko.com, sem færði út tjald- hælana til Norðurlandanna í byrjun október, er þegar farinn að vekja þar athygli. Þannig prýðir frétt um gogo- yoko.com forsíðu fréttavefjar norska dagblaðsins Aftenposten í dag. Í frétt Jan Gunnars Furuly er lögð áhersla á að íslenski Gogoyoko tón- listarvefurinn fari nýjar leiðir til að tryggja tónlistarmönnum sanngjarnt endurgjald fyrir tónlist sína. Norska félagið Ignitas hefur fjár- fest í vefnum ásamt fleirum og það gerir Gogoyoko kleift að útvíkka starfsemina til Norðurlandanna. Enn sem komið er eru flestir tónlist- armennirnir á tónlistarvefnum frá Ís- landi og Færeyjum, einnig má finna þar sænska og danska tónlistarmenn. Viðræður standa yfir við norska tón- listarmenn. Tónlistarsíðan gogoyoko.com var opnuð 2. október síðastliðinn fyrir notendur og listamenn á Norð- urlöndum. Þar með tók íslenska sprotafyrirtækið gogoyoko sitt stærsta skref á alþjóðavettvangi til þessa, að sögn Eldars Ástþórssonar hjá gogoyoko í samtali við Morg- unblaðið. Þau hundruð íslenskra listamanna og hljómsveita sem nú eru á gogo- yoko.com gátu þar með selt tónlist sína í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Stefnt er að því að opna síðuna á fleiri markaðssvæðum síðar á þessu ári. Morgunblaðið/Frikki Retro Stefson Ein þeirra fjölmörgu sveita sem vista tónlist sína á Gogoyoko. Útrás vekur athygli Heimskona Katerine Suwalski í Another World.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.