Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 27
Mjög gestkvæmt var hjá þeim, enda voru þau bæði einstaklega gestrisin og kunnu vel hina vandmeðförnu list að rækja vináttuna. Þau hjónin eign- uðust 6 dætur sem allar giftust og er afkomendahópurinn orðinn stór. Sorgardagur var það er Inga dótt- ir þeirra var jarðsungin 3. nóv. sl. og þann sama dag andaðist Jenný á Landspítalanum. Átti þar við hið forna orðatiltæki sjaldan er ein bár- an stök. En huggun er það harmi gegn að þær hafa sameinast á ný. Ég kveð mágkonu mína með sökn- uði og þakka samfylgdina, eiginkona mín Rannveig kveður elskulega syst- ur með þakklæti fyrir allt hið góða, sem hún gerði henni. Gleðiefni er það í minningunni er þær systur Jenný og Sigrún heim- sóttu okkur sl. sumar í Hvamm og gistu. Við héldum síðan saman suður með viðkomu á Blönduósi, þar sem þær skoðuðu rækilega og af kunn- áttu Heimilisiðnaðarsafnið á Blöndu- ósi og heiðruðu minningu Halldóru Bjarnadóttur. Er safn þetta hið merkilegasta og nátengt sögu þjóð- arinnar hvað varðar ullarvinnslu. Við hjónin vottum öllum afkom- endum og aðstandendum Jennýjar Haraldsdóttur okkar dýpstu samúð. Stend ég meðal grænna grafa, grafa æskuvina minna. Einn og einn þeir hnigu, hurfu, hurfu undir jarðarsvörðinn. Hægt og rótt á hausti mildu hnígur regn úr dökkum skýjum. Einn ég stend hjá grónum gröfum gröfum æskuvina minna. (Þorsteinn Jónsson (Þórir Bergsson).) Rannveig og Hilmar Björgvinsson. Það er ljúfsárt að minnast Jennýj- ar Haraldsdóttur. Það er ljúft og gott að minnast góðrar konu, sem svo vel hefur reynst fjölskyldu sinni og vinum. Og það er sérstaklega sárt að hún skyldi kveðja svo fljótt og óvænt, sem raun ber vitni. Jenný hafði notið góðrar heilsu, og því kom- ið svo mörgu í verk og átti þó mörgu ólokið. Jenný giftist hinn 30. des. 1950 Davíð Kr. Jenssyni frá Selárdal. Gaf faðir hennar þau saman á æskuheim- ili hennar á Kolfreyjustað í Fá- skrúðsfirði. Það var okkur öllum í fjölskyldu Davíðs mikið gleðiefni, að hann skyldi ná ástum svo góðrar stúlku, enda reyndist sambúð þeirra alla tíð farsæl og hamingjurík. Húsið þeirra og heimili að Langagerði 60 hefur reynst góð og traust umgjörð um líf og störf fjölskyldunnar. Það hefur einnig verið athvarf vina og vandamanna, sem notið hafa frá- bærrar gestrisni Jennýjar. Þá var ekki síður gott að koma í heimsókn í sumarbústaðinn Háum við Þing- vallavatn, þar sem við nutum margra gleðistunda. Já, það er margs að minnast og þakka. Lífið og tilveran tekur stundum skyndilegum breyt- ingum. Nokkrum dögum fyrir andlát Jennýjar deyr Inga dóttir hennar, 26. okt. sl. Það var mikið áfall fyrir Jennýju og fjölskylduna. Okkur langar einnig að minnast Ingu Davíðsdóttur. Hún var góð stúlka, sem varð að lúta í lægra haldi og fékk ekki að njóta lífsins lengur hér á jörðu. Blessuð sé minning hennar. Við sem skrifum þessi minningar- orð, ásamt fjölskyldum okkar, flytj- um öllum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Jennýjar Har- aldsdóttur. Teitur Jensson, Elsie og Ólafía. Kvödd er í dag æskuvinkona mín Jenný Haraldsdóttir en hún lést 3. þ.m. eftir stutt veikindi. Ég naut þeirrar gæfu að kynnast Jenný á okkar ungu dögum í glöðum hópi ungra kvenna, sem þá stunduðu nám við Húsmæðraskóla Reykjavík- ur. Þar var stofnað til góðrar vináttu sem allar nutu. Frá þeim tíma áttum við nána samleið sem aldrei bar skugga á og fyrir það er þakkað. Jenný ólst upp í góðum foreldra- húsum í stórfjölskyldu, sem heldur vel hópinn og er mikið mannkosta- fólk. Jenný giftist Davíð Jenssyni, miklum ágætismanni, og eignuðust þau sex indælar dætur, sem gáfu þeim stóra fjölskyldu. Hún eignaðist gott og fallegt heimili, sem var róm- að fyrir rausn og myndarskap og þess nutum við vinirnir ekki síst. Jenný gleymdi engum. Hún var mikil fjölskyldumanneskja og fátt gladdi hana meira en þegar allir voru mættir í Langagerði í góðgerðir. Var þá oft tekið lagið, en Davíð maður hennar hafði fallega söngrödd og var duglegur að leiða sönginn. Ég minn- ist margra slíkra góðra og glaðra stunda. Á tímabili áttu þau sumarhús í Miðfellslandi sem þau höfðu mikla ánægju af, en eftir að Davíð missti heilsuna létu þau garðinn heima duga og sinnti Jenný gróðrinum af mikilli natni alla tíð. Hún var starfs- glöð og vandvirk með afbrigðum. Hannyrðir léku einnig í höndum hennar og bar heimilið þess fagurt vitni. Jenný hafði óvenju góða skapgerð. Lífsgleði, hjálpsemi, gestrisni og hlýja voru förunautar hennar. Hún samgladdist þegar vel gekk og sýndi stuðning þegar á móti blés. Hún sótti styrk sinn í trúna sem þau hjón bæði ræktuðu af mikilli alúð. Ég kveð með miklum söknuði elskulega vinkonu mína Jenný og þakka ógleymanlega liðna tíð. Ástvinum Jennýjar votta ég inni- lega samúð. Minning hennar mun lifa. Ingunn Finnbogadóttir. Minningar 27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Antík Antík í Maddömunum á Selfossi Komnar með mánaðarbollana aftur! Ýmislegt fallegt í jólapakkana. Opið föstudag 13-18 og eftir samkomulagi. Sími 483 3083 og 866 9269. Gisting AKUREYRI Sumarhús (140 fm) til leigu við Akureyri. TILBOÐ Á LEIGU - Sun - Fim. verð 45 þús. Glæsilegt útsýni yfir Akureyri. www.orlofshus.is eða Leó, sími 897 5300. Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Tómstundir Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Bílar VW Golf Syncro 4x4 árg. '98 Ek. 140 þ. km, bsk., station, skoðaður ´10, vetrar- og 2 umg. sumardekk, ný- yfirfarinn bíll í toppstandi. V. 390 þús. Uppl.: jgj@snilli.is, sími 896 8989. Bílaþjónusta Ökukennsla Glæsileg kennslubifreið Subaru Impreza AERO 2008, FWD. Öruggur í vetraraksturinn. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Húsviðhald Skipti um rennur og bárujárn á þökum, einnig smávægilegar múrviðgerðir og ýmislegt fl. Þjónum landsbyggðinni einnig. Upplýsingar í síma 659-3598. Sisal teppi Strönd ehf. Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík. s. 533 5800, www.strond.is Mig langar að minn- ast elskulegrar mág- konu minnar, Katrínar Valtýsdóttur, sem lést 16. október sl. á Landspítalnum í Fossvogi. Kynni mín af Kötu, eins og hún var alltaf kölluð af fjölskyldunni, hófust þegar hún kynntist bróður mínum, Guðbirni Guðjónssyni, ættuðum frá Reykjum í Vestmannaeyjum árið 1946. Fljótlega myndaðist góð vinátta okkar á milli og liðu ekki margir dag- ar á þessum ríflega 60 árum sem við höfðum ekki samband hvor við aðra. Kata var uppalin á Selárbakka við Eyjafjörð. Þaðan lá leiðin í Hús- mæðraskólann á Laugalandi í Eyja- firði til náms. Þar kynntist hún mörg- um ungum konum á leið út í lífið eins og hún sjálf. Þær stofnuðu saman saumaklúbb sem hittist reglulega á meðan heilsa og geta leyfðu. Kata vann í Gefjuni á Akureyri við sauma- skap áður en hún hleypti heimdrag- anum og fluttist til Reykjavíkur. Þar fékk hún vinnu við sauma á Sauma- stofunni Fix sem starfrækt var í miðbæ Reykjvíkur. Fljótlega kynnist hún Bjössa og stofna þau heimili og eignast dótturina Bergþóru. Kata og Bjössi byggðu sér af miklum dugnaði á erfiðum tímum hús við Sogaveg 220 þar sem þau bjuggu lengst af, en fluttu síðan í Haukanes 5 í Garðabæ í glæsilegt hús sem þau byggðu og þar bjó hún uns yfir lauk. Kata var alla tíð mikið fyrir hann- yrðir og saumaskap og til hennar gat ég leitað eftir aðstoð ef eitthvað vafð- ist fyrir mér á því sviði. Hún var einn- ig mikil blómakona og blómstruðu nánast allar tegundir blóma í hönd- unum á henni.Það varð að föstum lið hjá mér og dætrum mínum að mæta í eftirsaumklúbb hjá Kötu og þar var ekki komið að tómum kofanum því kökurnar hennar voru lystilega skreyttar og ljúffengar eftir því. Bergþóra dóttir þeirra hefur lengst af búið í Ameríku ásamt eig- inmanni sínum Karli, börnum og barnabörnum. Kata fylgdist vel með þeim öllum úr fjarlægð og sýndi hún gestum stolt myndir af afkomendun- um sem prýddu heimili hennar og ✝ Katrín Valtýs-dóttir fæddist í Vallholti á Árskógs- strönd í Eyjafirði 8. júní 1923. Hún lést á Landspítalanum Fossvogi 16. október síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Bústaðakirkju 2. nóv- ember. duldist engum hversu annt hún lét sér um þeirra hagi, en vissu- lega saknaði hún sam- verustunda við barna- börnin og barnabarnabörnin sín. Það hefur reynst Berg- þóru minni erfitt að vera svona langt í burtu frá pabba sínum og mömmu sl. misseri, en hún og elsti sonur hennar Guðbjörn komu til landsins dag- inn sem Kata kvaddi. Það var ómetanlegur stuðningur fyr- ir Bjössa að hafa þau sér við hlið á erf- iðri stundu. Ávallt voru Kata og Bjössi miklir aufúsugestir á mínu heimili, enda fylgdust þau alla tíð vel með og létu sér annt um hvernig mínum börnum reiddi af í lífsbaráttunni eins og þau væru þeirra eigin.Síðustu árin urðu Kötu mágkonu minni þung og erfið veikindaár. Hún naut ómældar ástar og umhyggju Bjössa, sem annaðist hana af mikilli natni og gerði henni kleift að vera heima nema síðustu 2 mánuðina þegar hún dvaldi á sjúkra- húsi. Rakel bróðurdóttir Kötu hefur reynst þeim hjónum einstaklega vel í veikindastíðinu og sýnt þeim hlýju og umhyggju sem er eftirtektarverð. Megi góður Guð gefa að öllum þraut- um Kötu sé nú lokið. Bjössa, Berg- þóru og fjölskyldu hennar votta ég innilega samúð mína og bið Guð að blessa þau. Jóhanna Guðjónsdóttir og fjölskylda. Kær vinkona hefur kvatt þennan heim. Ég kynntist Kötu fyrir rúmum ald- arfjórðungi, þegar ég flutti inn í kjall- arann í húsi þeirra hjóna. Þau voru þá bæði komin yfir miðjan aldur og bjuggu í fallegu húsi við Sogaveginn. Hjá þeim bjó ég í tæp sex ár og var sambýlið einstakt. Kata var greind og fríð kona. Vöxturinn grannur og hár- ið fallegt og þykkt. Hún var hrein og bein, skýr í hugsun og hafði ríka rétt- lætiskennd. Hjartahlý og létt í lund. Ég á margar góðar minningar um Kötu. Oft bauð hún mér að borða með þeim hjónum og voru það sannkall- aðar dýrðarstundir. Kata var ung í anda og fann ég aldrei fyrir þeim ára- tugum sem skildu okkur að í aldri. Hún var greiðvikin og alltaf tilbúin að leggja mér lið, hvort sem það sneri að matargerð eða saumaskap, en á þeim sviðum var Kata mín snillingur. Hennar góðu ráð hafa dugað mér vel í gegnum árin. Kata hafði græna fing- ur og átti mikið af fallegum blómum sem hún ræktaði af mikilli alúð. Oft gaukaði hún að mér afleggjurum sem mér tókst misjafnlega til með. Starfsævi sinni varði Kata innan veggja heimilisins. Henni og þeim hjónum báðum var mikil snyrti- mennska í blóð borin og áttu þau fal- legt heimili á Sogaveginum og síðar á Arnarnesi. Öll sín verk unnu þau af alúð, fóru vel með sitt og sýndu mikla ráðdeildarsemi. Stóran hluta ævi sinnar bjó Kata mín við heilsubrest, sem varð til þess að hún treysti sér illa út af heimilinu. Það háði henni sérstaklega að geta ekki heimsótt einkadóttur sína og barnabörn í Bandaríkjunum eins oft og hún hefði viljað. Kata lét sér mjög annt um barnabörnin sín. Hún sýndi mér stolt myndir af þeim og sagði af þeim fréttir. Heilsuleysið og veikindin ágerðust með árunum og voru síðustu árin henni erfið. Í veikindum sínum naut hún einstakrar umhyggju Bjössa eig- inmanns síns. Aldrei kom til greina að þiggja nokkra utanaðkomandi hjálp. Kata sýndi mér og fjölskyldu minni alla tíð einstaka vináttu og tryggð. Fyrir það er ég henni þakklát. Nú hefur Kata lokið lífsgöngu sinni og leiðir skilur að sinni. Megi góður Guð vaka yfir henni á ókunnum slóð- um. Ég trúi því að hún sé nú eins og vindblærinn, laus undan oki síns hrjáða líkama, og gangi nú um létt- stíg og glöð í góðra vina hópi. Eiginmanni, dóttur og fjölskyldu allri sendi ég hugheilar samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Katrínar Val- týsdóttur. Svanhvít Jakobsdóttir. Katrín Valtýsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.