Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 BDP 50/2000RS Bónvél SKEIFAN 3E-F · SÍMI 581-2333 · FAX 568-0215 · WWW.RAFVER.IS Heildarlína í þrifum ...fyrir allar gerðir af gólfefnum Puzzi 8/1 C Teppahreinsivél BR 60/95 RS kefli BD 60/95 RS diskur Gólfþvottavélar BR 45/40 C kefli BD 45/40 C diskur Teppahreinsivélar AB 84 Þurrkblásari Nýtt Gólfþvottavéll l LILJA Móses- dóttir er fyrsti flutningsmaður frumvarps til laga um breytingu á lögum um samn- ingsveð sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Verði lagabreytingin að lögum mun það þýða að fasteignaveðlán geti ekki orðið grundvöllur aðfarar í öðrum eignum lántaka en þeim sem veð- réttindin taka til. Í því felst frávik frá þeirri meg- inreglu íslensks kröfuréttar að skuldari ábyrgist efndir fjárkröfu með öllum eignum sínum. Jafn- framt á lántaki að vera laus undan persónulegri ábyrgð á greiðslu lánsins ef veðið hrekkur ekki til greiðslu þess. Ekki skiptir máli hvort veðsali er lántaki eða þriðji maður. Í greinargerð með frum- varpinu er bent á að þar sem frum- varpið mæli fyrir um frávik sé ekki um eiginlega afskrift að ræða sem leiðir til skattskyldu. „Við núverandi aðstæður er hætta á að kröfuhafar sækist eftir auknum tryggingum eða geri fjár- nám í óveðsettum eignum sem ekki getur talist sanngjarnt þar sem mörg heimili hefðu staðið við skuld- bindingar sínar við eðlilegri kring- umstæður,“ segir m.a. í greinar- gerðinni. Tekið er fram að frumvarpinu sé ætlað að styrkja stöðu skuldara sem hafi í kjölfar bankahrunsins orðið fyrir verulega neikvæðum áhrifum gengis og verð- tryggingar. „Telja verður að staða einstak- linga og heimila sé svo alvarleg um þessar mundir að til samfélagslegr- ar eyðileggingar horfi ef gamalgró- inni reglu samningaréttarins um að samninga skuli halda verður fylgt til hins ýtrasta.“ Opnar möguleika á að skila lyklunum Lilja Mósesdóttir Leggur til breytingar á lögum um samningsveð Það er mat sérfræðinga að at- vinnuleysi á þessu hausti hafi aukist hægar en reiknað var með. Þá hefur hert eftirlit með svikum leitt til þess að hundruð manna hafa fallið út af skránni og lækkar það hlutfall atvinnulausra. andi var á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri. Fjöldi þeirra sem hafa verið at- vinnulausir lengur en 6 mánuði er nú 7.352 og minnkar úr 7.397 í lok september og er um 51% þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá. Þeir sem verið hafa atvinnulausir í meira en 12 mánuði voru 1.700 í lok októ- ber en 1.024 í lok september. Fjölg- að hefur hratt í þessum hópi að undanförnu. Stærsti hópurinn, 3.355 manns, hefur verið án atvinnu í 39 til 51 vikur. Hátt hlutfall ungs fólks Atvinnuleysi meðal ungs fólks er tiltölulega hátt hlutfallslega. Þannig eru 3.321 manns 29 ára eða yngri án atvinnu, eða um 23% allra á skránni. Sérstaka athygli vekur að 523 ein- staklingar á aldrinum 15-19 ára voru án atvinnu í október. Yfirleitt versnar atvinnuástandið frá október til nóvember. Þróun síð- ustu vikna bendir til að svo verði einnig raunin í ár segir Vinnu- málastofnun, en erfitt sé að áætla Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SKRÁÐ atvinnuleysi í október síð- astliðnum var 7,6% eða að meðaltali 12.682 manns. Jókst atvinnuleysið um 4,4% að meðaltali frá september eða um 537 manns. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1,9%, eða 3.106 manns. Þetta kemur fram í yfirliti Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysi er nú mest á Suð- urnesjum 12,4% en minnst á Norð- urlandi vestra 2,2%. Atvinnuleysi á höfuðborgarsvæðinu er 8,5%. At- vinnuleysi eykst um 5% meðal karla en um 3,6% meðal kvenna og er 8% meðal karla og 7% meðal kvenna. Alls voru 14.369 skráðir án at- vinnu í lok október, en í gær var þessi tala komin upp í 15.164. Þeir sem voru atvinnulausir að fullu í mánaðarlok voru 11.511 og af þeim voru 1.901 í einhvers konar úrræð- um á vegum Vinnumálastofnunar. Samtals voru 2.514 af þeim sem voru án atvinnu í lok október í hlutastörfum. 821 sjálfstætt starf- atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslíf- inu. Vinnumálastofnun áætlar að at- vinnuleysið í nóvember 2009 aukist og verði á bilinu 7,6%-8,1%. Í fyrra var atvinnuleysið 3,3% í nóvember en hæst fór það í apríl s.l. eða 9,1%. Atvinnuleysi mældist 7,6% í október  1.700 manns hafa verið á atvinnuleysisskrá lengur en eitt ár  23% allra á atvinnuleysisskránni eru 29 ára eða yngri  523 einstaklingar á aldrinum 15-19 ára voru án atvinnu í október  Fjölgun hægari en búist var við TVÖFÖLDUN Vesturlands- vegar, veglýs- ing inn að Kollafirði og göngu- og reiðstígar voru meðal áherslu- mála sem fram komu á vel sóttu opnu húsi á Kjalar- nesi í fyrradag um framtíðar- skipulag hverfisins í tengslum við endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. Opna húsið á Kjalarnesi fór fram í Klébergsskóla og var mæt- ingin góð, segir í tilkynningu. Júl- íus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, kynnti fyrst stutt- lega þá vinnu sem nú fer fram við nýtt aðalskipulag og síðan út- skýrðu Haraldur Sigurðsson, verkefnisstjóri hjá Skipulags- og byggingarsviði, og Ólöf Örvars- dóttir skipulagsstjóri þá nýju að- ferðafræði og skipulag sem vinnan sem nú er hafin felur í sér. Tvöföldun og veglýsing Í dag, miðvikudaginn 11. nóv- ember, heldur Hlutverkasetur hátíð í tilefni þess að starfsem- in er flutt í Borgartún 1. Hátíðin hefst kl. 16.15. Hlutverkasetur hefur sinnt atvinnuendurhæfingu frá árinu 2007. Í kjölfar efnahagshruns- ins víkkaði Hlutverkasetur út starfsemi sína og opnaði hana fyrir atvinnuleitendur. Hlut- verkasetur leggur áherslu á að allir geti lagt eitthvað af mörk- um og hafa því margir boðið fram krafta sína og þekkingu, bæði atvinnuleitendur sem og fólk sem er í vinnu. Þessi viðbót hefur haft jákvæð áhrif á starf- semi Hlutverkaseturs. „At- vinnuleitendur eru góðar fyr- irmyndir og hvati fyrir aðra og hafa þeir aukið á fjölbreytileik- ann.“ Hátíð á nýjum staðFjöldi atvinnulausra eftir menntun 8000 7000 6000 5000 4000 3000 2000 1000 0 Grunn- skólanám Ýmis framh. skólanám Vélstj.- eða stýri- mannanám Iðnnám Verlsunar- próf (2 ár) Stúdents- próf Háskóla- nám/ sérskólar 7.413 470 132 2.108 376 1.647 2.223 Í lok október 2009 52% 3% 1% 15% 3% 11% 15% OFT getur verið kuldalegt að vinna úti við yfir vetrartímann. Undanfarna daga hafa þó veð- urguðirnir verið í góðu skapi og sveipað lands- menn veðurblíðu. Í slíku veðri er í góðu lagi að vinna úti og ekki verra að hafa heitan loga log- suðutækisins við höndina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í STILLUNNI ER STÁLIÐ SOÐIÐ Í SLIPPNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.