Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 ✝ Ingimundur Sig-fússon fæddist á Seltjarnarnesi 8. sept- ember 1962. Hann lést á Akranesi 2. nóv- ember sl. Foreldrar hans voru hjónin Erla Jónasdóttir og Sigfús Ingimundarson, sem bæði eru látin. Ingi- mundur var 5. í röð 6 sona þeirra hjóna, og lifa þeir Jónas, Guðni, Ingólfur, Örn og Sig- urjón bróður sinn. Systkini samfeðra eru Bryngeir og Lovísa, sem er látin. Ingimundur kvæntist Hjördísi Árnadóttur árið 2006 og áttu þau soninn Sigfús Ara, en hann lést eins dags gamall. Fyrir átti Ingimundur Bjarneyju Vigdísi, f. 24. ágúst 1987, með Hrefnu Bjarna- dóttur. Ingimundur átti fjölbreytta starfsævi til sjós og lands. Ingi- mundur nam húsa- smíði og naut hand- lagni, natni og útsjónarsemi hans sín vel í því fagi, hvort heldur unnið var að nýsmíði eða viðhaldi gamalla húsa. Ingi- mundur var dagfars- prúður og flestra hugljúfi. Vart var hægt að hugsa sér þægilegri sam- starfsmann, sama hvert viðfangs- efnið var. Útför Ingimundar fer fram frá Akraneskirkju í dag, 12. nóvember, og hefst athöfnin kl. 11. Nú hefur stórvinur okkar og félagi kvatt í hinsta sinn og haldið á fund feðra sinna og mæðra. Alltof snemma kvaddir þú þennan heim, kæri vinur, en svona er lífið oft óútreiknanlegt og óréttlátt að manni finnst. Hið jákvæða í sorginni er þó að vita til þess að þú þurfir ekki að berjast við þennan „draug“ lengur eins og þú kallaðir veikindi þin. Hið jákvæða er einnig að eiga allar þær fallegu og skemmtilegu minningar og dýrmætu stundir er þú gafst okkur. Smitandi hlátur þinn, æðruleysi þitt og góðlát- legt grín og geðprýði var það sem gerði þig að svo einstökum félaga. Nærvera þín var einstaklega notaleg, þú varst alltaf þú sjálfur, engin upp- gerð eða látalæti, ætlaðist einungis til að maður sýndi slíkt hið sama. Þessir eiginleikar þínir æðruleysi, húmor fyr- ir sjálfum þér og öðrum sem og ótrú- legt rólyndi og innri styrkur hjálpuðu þér í gegnum veikindin og var aðdáun- arvert að sjá hvernig þú nálgaðist þetta erfiða verkefni. Ingi reyndist mér og minni fjöl- skyldu einstaklega traustur vinur. Söknuður barna minna og konu er því einnig mikill, þú varst einn af fjölskyld- unni. Einhvertíma í sumar var ég að rifja upp með sjálfum mér hvernig okkar fyrstu kynni voru, mig minnir að það hafi verið þegar við vorum um ell- efu ára. Ég átti þá rauðan trévörubíl frá Reykjalundi er þótti ákaflega vin- sælt leikfang í þá daga, með þennan trédrumb hljóp ég út um allt Teiga- hverfið í Mosfellsbæ. Einn daginn rakst ég á skolhærðan pilt sem átti al- veg eins bíl, og án þess að heilsa eða yrða hver á annan hlupum við þvert í gegnum allt hverfið burrandi með bíl- ana okkar. Síðan þá höfum við verið stórvinir. Reyndar sagði Ingi mér í haust að við hefðum hist einu sinni áð- ur, þá hafði hann verið að leika sér í garðinum heima hjá sér þangað sem hann var nýfluttur og ég hafi undið mér að honum og spurt hvort hann væri kúreki eða indíáni. Minnir að við höfum báðir verið indíánar. Á tímabili bjuggum við langt frá hvor öðrum og hittumst því minna en oft áður. En nú seinni árin styrktist vinátta okkar á nýjan leik og náði nýj- um hæðum. Eins og ég sagði fyrr reyndist Ingi börnum mínum einstak- lega vel og hlökkuðu þau alltaf til að fá hann í heimsókn. Ingi kynntist einstaklega yndislegri konu henni Hjördísi og urðu þau tíðir gestir á okkar heimili og við hjá þeim. Okkur þykir ákaflega vænt um allar þær ljúfu stundir er við áttum saman. Við vottum Hjördísi okkar innilegustu samúð sem og ástkærri dóttir hans Bjarneyju Vigdísi, og öðrum aðstand- endum. Þökk fyrir allt, kæri vinur. Örlygur Atli Guðmundsson, Hólmfríður G. Magnúsdóttir, Tinna Eyberg Örlygsdóttir og Atli Eyberg Örlygsson. Ég sit hér dofin að skrifa um þig, Ingi minn, sem varst mér svo kær. Þetta er erfitt og mörg tár hafa fallið síðustu daga. Þú komst inn í líf mitt þegar ég var lítil stelpa og allar götur síðan hékk ég í þér, hvert sem þú fórst. Það þeytast í gegnum hugann milljón minningar. Í nótt, líkt og síðustu nætur lá ég and- vaka og ég reyndi eins og ég gat að stoppa hugsanirnar en þær brutust um í einum hrærigraut. Ég ýmist grét eða brosti ein í myrkrinu og vonaði svo innilega að ég sæi þig. Hugsanirnar leiddu mig vestur og þar þeyttust allar minningarnar yfir mig, síðan suður í Mosó, á Bragagötuna, Glaðheimana og áramótin sem við fórum með stelpurn- ar í Perluna. Ég minnist líka þess þeg- ar að þú varst á Hringbrautinni og all- ar þessar minningar eru mér svo dýrmætar vegna þess að þú varst allt- af svo góður við mig. Á endanum eltir þú litla dýrið á Skagann og ég var svo ánægð, ég gat hangið í þér endalaust og gerði það. Presthúsabrautin var okkar gata ásamt pabba og þar eyddir þú miklum tíma með mér í smíðum og kenndir mér margt þar. Í nótt kom einmitt ein minningin þaðan, þegar pabbi kom yfir og lét okkur borða sóla- hringssoðnu öndina og þú með fullan munninn af höglum. Síðan var tími til kominn að þú næð- ir þér í konu og við að kortleggja þetta allt saman. Hjördís var í sigtinu og hún var látin passa og þú sendur í heim- sókn, það tókst með ykkur vinskapur sem leiddi til hjónabands ykkar. Ég var með smá eftirsjá, enda þurfti ég að deila þér og upplifði mig sem litla syst- ir sem væri að missa stóra bróður. Ég varð samt svo himinlifandi með ykkar hjónaband vegna þess að þú náðir þarna í yndislega konu, sem var þér svo góð og Bjarneyju er hún alveg yndisleg. Þið eignuðust lítinn dreng, Sigfús Ara, sem lést stuttu eftir fæð- ingu og það var sárt símtalið frá þér þegar þú hringdir í mig grátandi að til- kynna mér veikindin hans. Þið fenguð síðan ömmu og afabarn, hana Emilíu litlu ykkar. Litla skottið var mikið hjá afa og ömmu á Skaganum og þar á hún sitt skjól. Nú sitja þær saman Hjördís, Bjarney og Emilía litla og ylja sér saman við ykkar minningar sem eru þeim ómetanlegar. Ég hef misst ástvini og marga vini en enga jafn kæra mér og pabba og þig. Nú eruð þið saman og þú með Sig- fús Ara í fanginu. Mömmustrákur varstu og það var sár missir ykkar bræðra og föður þegar hún lést. Þú tal- aðir mikið um mömmu þína, sauma- skapinn sem hún kenndi þér sem barn og mörgum minningum fengum við að deila með þér. Elskum elsku Ingi, ég veit ekki hvernig ég á að enda þetta. Mér finnst svo endanlegt að skrifa þetta en ég veit samt að ég á eftir að ylja mér við allar góðu minningarnar okkar. Takk fyrir allar stundirnar okkar og takk fyrir að hafa verið mér svona góður. Elsku Hjördís, Bjarney og Emilía Rán, ég vona að allar vættir vaki yfir ykkur, leiði ykkur og styrki við ykkar mikla missi. Þín vinkona Katla. Andinn hverfur, allt er hljótt, lífið lætur undan síga. Allt er svo endanlegt þegar dauðinn kveður dyra. Skiptir þá engu þótt örlögin verði ekki umflúin. Ingimundur (Ingi) var gæfumaður í þeim skilningi að hann veitti konu sinni hamingju. Sjálfur ólst hann ekki upp við slíkan munað. Var ungur sendur burt frá fjölskyldu sinni til vinnu í sveit. Var lítt tengdur föður sínum og bræðrum, missti móður sína ungur. Einstæðingur í mörgu tilliti. Kynntist Hjördísi á fertugasta aldursári, hún nokkrum árum yngri. Kom sem vonbi- ðill með rauðar rósir og gerði hosur sínar grænar. Þau felldu hugi saman. Tveir einstaklingar í miðju lífs. Eitt barn eignuðust þau, Sigfús Ara, er lifði skammt. Sorgin var mikil og nær allt frá þeim hjónum tekið. Í andstreymi lífsins er gott að gleyma sér við vinnu. Ingi var völund- ur á tré og hamhleypa til vinnu. Park- etlagði, gerði upp baðherbergi, þiljaði og gerði húsakynni þeirra hjóna að miklum sælureit. Svo kenndi hann sér meins, upp- götvaðist seint, meinið hafði dreift sér. Hjónin voru samhent, breyttu mat- aræði og lífstíl. En eigi má sköpum renna. Eftir situr minning um góðan mann er unni konu sinni, var valmenni. En Hjördís mín, þó að þér steðji mikill harmur þá styttir öll él upp um síðir. Sorgin er vissulega mikil og lengi skal manninn reyna. Þú átt alla okkar sam- úð og hlýju. Magnús Örn Friðjónsson Ingimundur Sigfússon✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA VIGFÚSDÓTTIR frá Hrísnesi, Barðaströnd, lést á heimili sínu, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Seljahlíð, sunnudaginn 8. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Fella- og Hólakirkju mánudaginn 16. nóvember kl. 13.00. Ólafur Kristinn Þórðarson, Kolbrún Ólafsdóttir, Hörður Eiðsson, Skarphéðinn Ólafsson, Sigríður Skarphéðinsdóttir, Þórður G. Ólafsson, Jónína S. Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Faðir okkar, tengdafaðir og afi, BERGÞÓR HÁVARÐSSON vélstjóri frá Vinaminni, Stöðvarfirði, lést þriðjudaginn 10. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Börn, tengdabörn og barnabörn. ✝ Okkar ástkæra, ÞORBJÖRG GUÐRÚN PÁLSDÓTTIR, myndhöggvari, er látin. Útförin verður auglýst síðar. Stefán Andrésson, Þórunn Andrésdóttir, Katrín Andrésdóttir, Gunnar Kristjánsson, Þóra Andrésdóttir, Gunnar Roach, Andrés Narfi Andrésson, Ása Sjöfn Lórensdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HALLDÓR GUÐNASON, Kóngsbakka 10, Reykjavík, lést á hjartadeild Landspítalans þriðjudaginn 10. nóvember. Guðný Hjartardóttir, Guðrún Halldórsdóttir, Pétur Haraldsson, Kristín Halldórsdóttir, Haukur Sigurðsson, Guðni Halldórsson, Hildur Mikkaelsdóttir, Sæmundur Halldórsson, Henný Bára Gestsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra DÓRA ÞORSTEINSDÓTTIR, lést á Heilbrigðisstofnuninni Sauðárkróki mánudaginn 9. nóvember. Sigurgeir Angantýsson, Vanda Sigurgeirsdóttir, Jakob F. Þorsteinsson, Andri Sigurgeirsson, Aníta S. Ásmundsdóttir, ömmubörnin og aðrir vandamenn. ✝ Ástkær bróðir okkar, LÁRUS ÞORGRÍMUR JÓNSSON, lést á Sjúkrahúsinu á Seyðisfirði þriðjudaginn 10. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Svandís og Olga Jónsdætur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ERIKA ANNA EINARSSON, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 10. nóvember. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánu- daginn 16. nóvember kl. 13.00. Ingvar G. Snæbjörnsson, Ingigerður Guðmundsdóttir, Einar F. Snæbjörnsson, Ólafía Agnarsdóttir, Fannlaug S. Snæbjörnsdóttir, Guðjón S. Snæbjörnsson, Soffía Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Rósa Geir- þrúður Halldórsdóttir ✝ Rósa GeirþrúðurHalldórsdóttir fæddist á Hlíðarenda á Eskifirði 14. október 1928 1928. Hún and- aðist á Landakoti í Reykjavík 13. október sl. og fór útför henn- ar fram frá Fossvogskirkju 23. október. Meira: mbl.is/minningar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.