Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.11.2009, Blaðsíða 34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Loksins er Heilsubælið íGervahverfi komið út ámynddiski, þættir sem í huga margra Íslendinga eru klass- ík. Grínklassík. Undirritaður man eftir því að hafa legið yfir þátt- unum á þrettánda ári, en þeir komu út árið 1987. Hvernig skyldu nú Hallgrímur Ormur, Dr. Saxi, Mal- berg Snædal, Simonetta Sörensen, Olli ofviti og dr. Adolf Litli þola ár- in 22 sem liðin eru frá því þættirnir voru sýndir á Stöð 2? Eitthvað sem var sprenghlægilegt þegar maður var 13 ára, er það ennþá hlægilegt? Og kann maður að meta hámark ís- lenska týpuskrípaleiksins þar sem Laddi fór fremstur í flokki? Á móti má spyrja: Hverjum finnst ekki fyndin atriðin í viðbjóðslegasta eld- húsi heims, eldhúsi heilsubælisins, þar sem mestu skítkokka allra tíma er að finna, Gulla og Hallgrím? „Gulliiiiiiiiiii!“, „Hallgrímuuuuu- uuuuur!!“ Hallgrímur Ormur er einhver skemmtilegasta og ýktasta persóna sem sést hefur í íslensku sjónvarpi og einhver sú besta sem Laddi hefur skapað. Og er þó af nægu að taka. Samskipti yfirlækn- isins, dr. Adolfs Litla, við Hallgrím Orm eru hreinasta snilld. Hvar er annars Júlíus Brjánsson í dag, sá frábæri gamanleikari?    Allt frá því heilsbælisgengiðmarserar hænuskrefum inn í bælið á tvöföldum hraða veit mað- ur á hverju er von. Algjöru aula- gríni, orðaleikjum og ýkjulátum, skrípaleik og gríni sem er orðið dá- lítið gamaldags ef litið er til nýlegri gamanþátta á borð við Fóstbræður og Stelpurnar. Grínið er auðvitað ekkert verra fyrir það, síður en svo, en maður veltir því fyrir sér hvort þessir þættir myndu njóta eins mikillar hylli væru þeir sýndir í dag. Og árin virðast einhvern veg- inn svo miklu fleiri en 22 frá því maður hermdi eftir Olla, Hallgrími Ormi og félögum, jafnvel oft á dag. En hvað þótti manni svona fyndið? Jú, þessi rosalega ýkti grínleikur Ladda, Pálma, Eddu, Júlíusar og Gísla Rúnars. Að öðrum ólöstuðum er Laddi stjarna þáttanna, hann skapaði margar sígildar persónur á borð við Hallgrím Orm (kokkinn sem var alltaf að borða hvítlauk og ætlaði allt að drepa með and- remmu), sjálfvirka heimsækjand- ann („halló, halló, halló, ahahaha- hahha) og prestinn síflissandi.    Stundum fær maður það á tilfinn-inguna að íslenskt grín sé Laddi, að Laddi sé holdgervingur íslensks skopskyns. Ótrúlegar vin- sældir afmælissýningar Ladda í Borgarleikhúsinu sanna þetta, ef til vill, fólk virtist ætla að streyma endalaust á hana. Enda verður að segjast að hugmyndaflug Ladda er magnað þegar kemur að grín- persónusköpun. Að sama skapi þekkir maður marga sem þola ekki Ladda, einmitt út af þessu ýkta týpugríni, hafa fengið of stóran skammt af honum. Menn hlæja ekki lengur aðfyrstu áramótaskaupunum, nema þá þeir sem komnir eru yfir sextugt. Kannski á það sama við um Heilsubælið. Ekki get ég þó gefið mér hvaða smekk íslensk þjóð hef- ur almennt fyrir grínefni. Heilsu- bælið var mjög vinsælt, hví skyldi það ekki vera það enn? Það fyndn- asta er kannski það sem stendur aftan á DVD-hylkinu: „Diskurinn er tileinkaður þeim sem eignast hann áður en hann verður til sölu á af- slætti aftan á pulsupakka.“ helgisnaer@mbl.is Hæ, Litli! Hallgrímuuuuuur!!! AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson Heilsubælið Skrípaleikur og týpugrín frá árinu 1987. Laddi, Edda Björgvinsdóttir og Pálmi Gestsson skera upp. »En hvað þóttimanni svona fyndið? Jú, þessi rosalega ýkti grínleikur Ladda, Pálma, Eddu, Júlíusar og Gísla Rúnars. Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum This is It kl. 5:45 - 8 - 10:10 LEYFÐ Jóhannes kl. 5:45 - 8 - 10 LEYFÐ Paranormal Activity kl. 6 - 8 -10 B.i.16 ára Wanted and Desired kl. 5:45 B.i.12 ára Zombieland kl. 8 - 10 B.i.16 ára Broken Embraces kl. 6 - 9 B.i.12 ára Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 6 - 9 B.i.16 ára Desember kl. 6 - 8 - 10 B.i.10 ára This is It kl. 5:30 - 8 - 10:30 LEYFÐ Jóhannes kl. 6 - 8 - 10 LEYFÐ Stúlkan sem lék sér að eldinum kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i.16 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI YFIR 27.000 MANNS! Sýningum fer fækkandi HHHH „AÐDÁENDUR VERÐA EKKI SVIKNIR.“ V.J.V, Fréttablaðið HHH D.Ö.J., kvikmyndir.com SÝND Í SMÁRABÍÓI, REGNBOGANUM OG BORGARBÍÓI „Myndin er spennandi og heldur athygli áhorfandans enda tekur hún á eldfimu og umdeildu efni“ -H.S., MBL HHH SÝND Í REGNBOGANUM SLÁANDI, ÓGNVEKJANDI OG SVO MÖGNUÐ AÐ ÞÚ SITUR EFTIR Í LOSTI! SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HHH „Vel gert og sannfærandi jóladrama sem minnir á það sem mestu máli skiptir“ -Dr. Gunni, FBL HHHH „Myndin er afburðavel gerð og kærkomin viðbót í íslenska kvikmyndasögu” H.S., MBL „Leikararnir eru ómótstæðilegir.” T.V., Kvikmyndir.is „Raunsæ og vel útfærð.“ -E.E., DV HHHH -Þ.Þ., DV „Fantagóð hrollvekja sem er meðal þeirra bestu síðuastu ár“ VJV - Fréttablaðið HHHH „Taugatrekkjandi og vægast sagt óþægileg” T.V. - Kvikmyndir.is HHHH „... í heildina er myndin fantagóð og vel gerð... góð tilbreyting“ -H.S., MBL „Á eftir að verða klassísk jólamynd.” - Ómar Ragnarsson „Frábær íslensk bíómynd!!” - Margrét Hugrún Gústavsdóttir, Eyjan.is Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og HáATH. ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIÐ GILDIR EKKI Í BORGARBÍÓI, LÚXUS, 3-D MYNDIR OG ÍSLENSKAR MYNDIR Sunnudagsmogginn er nú borinn út með laugardagsblaðinu. Spennandi efni, viðtöl, menningarumfjöllun, Lesbók.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.