Morgunblaðið - 12.11.2009, Page 4

Morgunblaðið - 12.11.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is Opið virka daga 10–18, laugard. 11–16 og sunnud. 14–16 Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu Eftir Hlyn Orra Stefánsson hlynurorri@mbl.is EFNAHAGSRÁÐGJAFI rík- isstjórnarinnar gagnrýnir stjórnvöld harðlega fyrir seinagang við end- urreisn efnahagsins. Hann segir aðrar þjóðir ekki hafa verið jafn lengi að bregðast við. Seinagang- urinn valdi miklum kostnaðarauka, en kostnaður vegna kreppunnar gæti numið 85% af vergri landsfram- leiðslu. „Svo virðist sem endurreisn efna- hagslífisins sé ekki í forgrunni hjá stjórnvöldum þessa dagana. Skortur á pólitískri ákvörðunartöku er það sem helst stendur í vegi fyrir end- urreisn íslensks efnahags,“ sagði Mats Josefsson á ráðstefnu á vegum Capacent Glacier sem haldin var á Grand Hotel í gær. Samhæfingu skortir Mats telur slæmt að endurreisn bankakerfisins sé gerð að pólitísku bitbeini, þar sem kapp sé lagt á að finna sökudólga. Þá gagnrýnir hann stjórnvöld fyrir skort á samhæfingu. „Meginveikleikinn í endurreisninni er að engin stofnun ber endanlega ábyrgð á ákvarðanatökum,“ sagði Mats. Ein stofnun þurfi að hafa yfirum- sjón með viðreisninni og bera skýra ábyrgð, frekar en að málum sé kast- að á milli ráðuneyta eins og hingað til hafi verið raunin. Þá segir Mats stjórnvöld þurfa að standa sig betur í upplýsingagjöf, meðal annars svo almenningur sé meðvitaður um hver kostnaður end- urreisnarinnar verði. Til þess þyrfti einnig að tryggja að tiltekin stofnun hefði yfirumsjón með og bæri ábyrgð á að koma réttum upplýs- ingum á framfæri. Loks gagnrýndi Mats seinagang við stofnun og starfsemi svokallaðs eignaumsýslufélags ríkisins. Alþingi samþykkti lög um eignaumsýslu- félagið í júlí, meðal annars að tillögu Mats, en tilgangur félagsins er taka þátt í endurskipulagningu mjög skuldsettra fyrirtækja svo ekki þurfi að verða stöðvun á rekstri þeirra. Mats sagði að ef til félagsins hefði verið stofnað fyrr hefði gengið mun betur að reisa við efnahag þjóð- arinnar. Þá sagði hann æskilegt að „halda stjórnmálamönnum frá félag- inu“, en í meðförum þingsins var frumvarpinu meðal annars breytt í þá átt að eftirlit þingsins með félag- inu var aukið. Eitt og annað jákvætt má þó segja um aðgerðir stjórnvalda að und- anförnu, segir Mats. Sem dæmi sé ánægjulegt að svo virðist sem nið- urstaða í Icesave-málinu sé í sjón- máli. Það hafi dregist of mikið á langinn og grafið enn meira undan tiltrú erlendis á íslenskan efnahag. Dýrari en aðrar kreppur Mats hóf erindi sitt með þeim orð- um að öfugt við þann hrylling sem drápstól valda, verði skemmd- arverkum þeim sem verða af völdum bankamanna ekki lýst með orðum. Sagði hann að jafnvel mætti búast við því að kostnaður íslensks þjóð- arbús vegna kreppu sem stafaði af gjörðum örfárra bankamanna næmi um 85% af vergri landsframleiðslu. Það væri töluvert meira en í öðrum löndum. Margir hafa spurt sig hvers vegna enginn hafi séð harmleikinn fyrir og ekki hafi tekist að afstýra honum. Í því samhengi verður að hafa í huga að fjölmargir högnuðust á vexti fjár- málakerfisins og hækkun hluta- bréfaverðs, segir Mats. „Því er erfitt að sjá hvernig Ís- lendingar hefðu getað stöðvað þró- unina. Hið alþjóðlega fjármála- samfélag hefði hins vegar átt að sjá áhættuna fyrir og hætta að lána ís- lenskum fyrirtækjum.“ Endurreisn gengið hægt  Efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar gagnrýnir stjórnvöld fyrir seinagang og skort á samhæfingu  Kostnaður vegna kreppunnar gæti numið 85% af VLF „Það getur verið erfitt að eiga við vinstri-græn stjórn- völd, sem vilja af hugmyndafræðilegum ástæðum ekki að erlendir aðilar fjárfesti í auðlindum landsins,“ sagði Ross Beaty, forstjóri Magma Energy, í erindi á ráðstefnu Capacent Glacier í gær. Aðspurður sagði Beaty að það fyrsta sem hann myndi gera sem íslenskur ráðherra, væri að bæta viðmótið gagnvart erlendum fjárfestum. Honum fannst fyrir- tækið fá heldur neikvæða umfjöllun í sumar vegna þátt- töku sinnar í íslenskum jarðvarmaiðnaði, og tók fram að fyrirtækið myndi ekki starfa í landinu í óþökk þjóð- arinnar. Í erindi sínu fór Beaty yfir ástæður þess að Magma ákvað að fjárfesta í HS orku, og rakti sögu fjárfestingarinnar. Hann sagði að litið væri á fjár- festingar hér á landi sem langtímaverkefni og að áhersla væri lögð á að búa til fyrirtæki sem væri stórt á heimsmælikvarða. Ekki væri rétt að Magma væri komið hingað til Íslands til að stela auðlindum landsins, eins og hefði mátt skilja af viðbrögðum ráðherra í sumar. Raunar þætti mörg- um verðið sem fyrirtækið greiddi fyrir afnot af auðlindum landsins und- arlega hátt. „Það besta við Ísland er frábær mannauður,“ sagði Beaty. Hann sagðist ekki vera í vafa um að Ísland kæmist út úr þeirri efnahagslægð sem geng- ur yfir þjóðina, og að Magma vildi taka þátt í uppbyggingunni með því að koma með fjármagn til landsins. Bæti viðmótið gagnvart fjárfestum Ross Beaty Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Gagnrýninn Mats Josefson, efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar, segir endurreisnina ekki hafa tekið jafn langan tíma í öðrum löndum og fyrri kreppum. UNDIRBÚNINGI vegna útboða á ýmsum framkvæmdum í sam- göngumálum verður haldið áfram þrátt fyrir efnahagsástand, en rík- isstjórnin samþykkti tillögu sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra þess efnis í gær. Meðal þeirra framkvæmda sem eru í pípunum eru nokkrar sem til stendur að lífeyrissjóðirnir láni til, en viðræður standa ennþá yfir við fulltrúa lífeyrissjóðanna um hugs- anlega þátttöku þeirra. Meðal verkefna sem stefnt er að má nefna breikkun hluta Suður- landsvegar, á 6,5 km kafla austan við Litlu Kaffistofuna. Gerð út- boðsgagna vegna verksins er langt komin að sögn samgöngu- ráðuneytisins og er miðað við að það verði hefðbundin ríkisfram- kvæmd en mögulegt er að síðari áfangar verði boðnir út í einka- framkvæmd og er það eitt þeirra verkefna sem rætt hefur verið um að lífeyrissjóðirnir komi að. Vaðlaheiðargöng eru önnur framkvæmd sem til greina kemur að lífeyrissjóðirnir láni til. Skipu- lagsvinnu ganganna er lokið og mat á umhverfisáhrifum óþarft. Miðað er við að verkið skuli fjár- magnað með veggjöldum. Önnur verkefni sem stefnt er að því að verði boðin út á næstunni eru þrjú verkefni sem tengjast þjónustu og rekstri Landeyjahafnar og er ráð- gert að um næstu mánaðamót verði bygging þjónustuhúss boðin út. Á sama tíma er einnig ráðgert að bjóða út dýpkun hafnar og inn- siglingar. Þá hefur lengi staðið til að reisa samgöngumiðstöð við Reykjavík- urflugvöll og er það enn í kort- unum. Viðræður standa enn við borgarstjórn um málið en vonast er til að framkvæmdir geti hafist snemma á næsta ári. Bæði samgöngumiðstöðin í Reykjavík og fyrirhuguð stækkun flugstöðvarinnar á Akureyri verða fjármagnaðar með þjónustu- og leigugjöldum ef af verður. Samgönguframkvæmdir verða boðnar út á næstunni Morgunblaðið/ÞÖK Samgöngumiðstöð Er fyrirhuguð. BOÐAÐ hefur verið til stofn- fundar Fram- takssjóðs Íslands þann 24. nóv- ember, en það eru lífeyrissjóðir í landinu sem að sjóðnum standa. Þetta kom fram í máli Hrafns Magnússonar, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða, á ráð- stefnu Capacent Glacier í gær. Hlutverk sjóðsins er að taka þátt í endurreisn íslensks atvinnulífs, einkum með fjárestingum í íslensk- um fyrirtækjum sem lent hafa í fjár- hagserfiðleikum en eiga sér væn- legan rekstrargrundvöll. Í máli sínu fór Hrafn yfir þær fjárfestingar sem mögulega standa til hjá lífeyrissjóðunum. Fram kom að tuttugu lífeyrissjóðir hafa lýst yf- ir áhuga á að koma að fjármögnun nýbyggingar Landspítalans. Þá hafa fulltrúar lífeyrissjóðanna átt í við- ræðum við forráðamenn Landsvirkj- unar um hugsanlega aðkomu að fjár- mögnun Búðarhálsvirkjunar. „Framhald málsins ræðst af því hve- nær Landsvirkjun gengur frá lang- tíma raforkusamningi vegna orku frá Búðarhálsvirkjun,“ sagði Hrafn. Fjármögnun samgöngu- miðstöðvar við Reykjavíkurflugvöll hefur einnig verið rædd, en Hrafn sagði málið virðast „enn og aftur stranda á lóðarmálum milli ríkis og borgar“. hlynurorri@mbl.is Stofna Fram- takssjóð Bjóða fram fé Hrafn Magnússon BANNAÐ verð- ur að henda rusli úr ökutæki á ferð og leyft verður að reiða á til þess búnum reið- hjólum sam- kvæmt drögum að frumvarpi til nýrra umferðar- laga. Fallið hefur verið frá ákvæði um hámarksfjölda farþega í bílum ungra ökumanna um helgar. Drögin eru nú lögð fram í annað sinn. Frumvarpsdrögin eru fjölþætt og m.a. lagt til að ef hjólastígur og göngustígur liggi samhliða verði einungis leyft að hjóla á hjólastígn- um. Bannað að henda rusli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.