Morgunblaðið - 12.11.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009
ÞAÐ fór vel á með þeim Össuri Skarphéðinssyni
og Þorsteini Pálssyni þegar samninganefnd Ís-
lands í væntanlegum aðildarviðræðum við Evr-
ópusambandið kom saman á sínum fyrsta fundi í
Þjóðmenningarhúsinu í gær. Í nefndinni sitja 19
manns en Stefán Haukur Jóhannesson sendi-
herra er formaður hennar. Gera má ráð fyrir að
fundir verði tíðir þegar formlegar aðildar-
viðræður hefjast á næstu vikum eða mánuðum.
Morgunblaðið/Ómar
SAMNINGANEFND ÍSLANDS STILLIR SAMAN STRENGI
FÍKNIEFNI fundust við húsleit í
íbúð í Reykjavík síðdegis á mánu-
dag. Um var að ræða amfetamín,
hass, marijúana, e-töflur og
stera. Á sama stað var einnig
lagt hald á töluvert af peningum
sem grunur leikur á að séu til-
komnir vegna fíkniefnasölu.
Í íbúðinni var einnig að finna
loftskammbyssu, sveðju og hnífa
og var það tekið í vörslu lög-
reglu. Fleiri munir, sem taldir
eru vera þýfi, voru haldlagðir.
Tveir karlar um þrítugt voru
handteknir í tengslum við rann-
sókn málsins. Þeir hafa áður
komið við sögu hjá lögreglu. Við
aðgerðina, sem er liður í að
hamla gegn sölu og dreifingu
fíkniefna, naut lögreglan á höf-
uðborgarsvæðinu aðstoðar sér-
sveitar ríkislögreglustjóra.
Fundu fíkniefni,
skammbyssu,
sveðju og hnífa
Safn Vopn í vörslu lögreglunnar.
TÆPLEGA 700 manns rituðu nöfn
sín á undirskriftalista til að mót-
mæla niðurskurði til Heilbrigð-
isstofnunar Blönduóss (HSB). Heil-
brigðisráðherra tók á móti hópnum
sem stóð fyrir söfnun undirskrift-
anna í gær og lofaði að athuga mál-
ið „en sagðist þó ekki telja að mest
væri skorið niður hjá HSB, né að
ósamræmi væri í kröfum ráðuneyt-
isins um niðurskurð til heilbrigð-
isstofnana“, segir í yfirlýsingu frá
undirskriftahópnum.
„Ljóst þykir að meira þarf til en
söfnun undirskrifta til að mótmæla
niðurskurði og að ekki er hægt að
láta staðar numið hér. Betur má ef
duga skal,“ segir þar.
Stofnuninni var gert að skera
niður um 56 milljónir og segja að-
standandendur undirskriftasöfn-
unarinnar að það sé meira en öðr-
um sé gert að spara.
Mikil óánægja er með þennan
niðurskurð meðal starfsmanna og
íbúa og halda þeir sem að undir-
skriftasöfnuninni stóðu því fram að
ef af þessu verði megi búast við
mikilli skerðingu á þjónustu og að
til uppsagna starfsmanna komi.
Mótmæltu niður-
skurði til HSB
ENN var hart deilt á Alþingi í gær og Stein-
unn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Sam-
fylkingarinnar, sagði að málflutningur stjórn-
arandstæðinga um skattamál væri „lýðskrum
af verstu sort“ í ljósi þess að stjórnarflokk-
arnir væru „í miðri hreingerningu“ eftir
valdaskeið Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks.
Vanvirðing við þjóðina
Hróp og frammíköll heyrðust í þingsalnum
meðan umræða um störf þingsins stóð yfir.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks, sagði alla landsmenn
spyrja um útfærslu skattastefnunnar og því
vanvirðing við þjóðina að tala eins og þing-
menn ríkisstjórnarflokkanna hefðu gert.
Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks,
sagði að stjórnarflokkarnir gætu engum
spurningum svarað um skattana. Vísaði hún
til ummæla hagfræðings sem hefði kallað
hugmyndirnar um þriggja þrepa tekjuskatt
veiðileyfi á launþega með 300-500 þúsund
króna mánaðarlaun.
Eitruð blanda skuldsetningar og skatta
Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, gagn-
rýndi sjálfstæðismenn fyrir að hækka ekki
persónuafsláttinn á sínum tíma.
Formaður Framsóknarflokksins, Sigmund-
ur Davíð Gunnlaugsson, sagði að „eitruð
blanda gífurlegrar skuldsetningar ríkisins og
ofurskatta“ hefði alltaf leitt til landflótta,
hvar sem hún hefði verið reynd. „Við hljótum
því að hafa áhyggjur af því í hvað stefnir á
Íslandi,“ sagði Sigmundur Davíð. kjon@mbl.is
Sakaði andstöðuna um lýðskrum
Guðlaugur Þór sagði landsmenn spyrja um útfærslu skattastefnunnar
Hróp og frammíköll í þingsal á meðan umræða um störf þingsins stóð yfir
Morgunblaðið/Heiddi
Bros Fjórar þingkonur leyfðu sér að hlæja í
gær, þrátt fyrir alvöru málsins. Fremst er
Birgitta Jónsdóttir en aftar, talið f. v., eru
Þuríður Backman, Steinunn Valdís Ósk-
arsdóttir og Anna Pála Sverrisdóttir.
Margrét Tryggvadóttir,
þingmaður Hreyfing-
arinnar, kvartaði í gær
yfir neftóbaksnotkun
þingmanna og ráðherra
í þingsalnum. Reyk-
ingar væru bannaðar í
öllu húsnæði þingsins
og einnig neysla matar
og drykkjar, nema vatns, í salnum.
„Sumum tekst að gera þetta án þess að
mikið beri á en aðrir eru hreinlega subbuleg-
ir og veifa vasaklútum með brúnum hor-
klessum um þingsalinn og það á tímum
svínaflensu,“ sagði Margrét. Þá dreifðust
tóbakskorn um borð þingmanna og heyrst
hafi að þau hafi valdið bilun á kosninga-
hnöppum sem virki þá ekki alltaf sem skyldi.
„Hreinlega subbulegir“
ÞORBJÖRG Guðrún
Pálsdóttir, mynd-
höggvari og húsmóðir,
lést í Reykjavík mið-
vikudaginn 11. nóv-
ember. Hún fæddist
10. febrúar 1919 í
Reykjavík, dóttir Páls
Ólafssonar, ræð-
ismanns og útgerð-
armanns, og Hildar
Stefánsdóttur hús-
freyju. Hún giftist 6.
ágúst 1942 Andrési Ás-
mundssyni lækni,
fæddur 30. júní 1916,
dáinn 30. október 2006.
Þau eignuðust fimm börn og tvö
kjörbörn, barnabörnin eru 18 og
barnabarnabörnin eru 4.
Þorbjörg stundaði nám við Verzl-
unarskóla Íslands og í ljósmyndun
við Iðnskólann í Reykjavík. Stund-
aði nám við Berggrens Målarskola
og við Konstfack í Stokkhólmi. Eftir
heimkomu frá Svíþjóð 1961 stundaði
hún nám hjá Ásmundi Sveinssyni,
Sigurjóni Ólafssyni og
Jóhanni Eyfells.
Þorbjörg stofnaði
Myndhöggvarafélagið
í Reykjavík árið 1972
ásamt nokkrum mynd-
höggvurum og árið
1997 var hún gerð að
heiðursfélaga þess.
Þorbjörg tók virkan
þátt í útisýningum
myndlistarmanna á
Skólavörðuholti í mörg
ár og þar var verkið
Dansleikur fyrst sýnt
árið 1970. Það hefur
síðan verið steypt í
brons og sett upp við Perluna. Þor-
björg hefur haldið nokkrar einka-
sýningar á verkum sínum sem og
tekið þátt í samsýningum bæði hér
heima og erlendis. Verk eftir Þor-
björgu eru í eigu ýmissa aðila,
þ.á m. Listasafns Íslands og Lista-
safns Reykjavíkur. Fyrir framlag
sitt til myndlistar hlaut Þorbjörg
starfslaun myndlistarmanna.
Andlát
Þorbjörg Guðrún
Pálsdóttir
LITLAR breytingar hafa orðið á
kennslu í skólum er varðar net-
öryggi síðustu ár. Tæplega 13% ís-
lenskra barna og unglinga segjast
hafa fengið reglulega kennslu í
skólum um notkun netsins, rúm
44% segjast nokkrum sinnum hafa
fengið kennslu um notkun netsins í
skólanum en 26,5% segjast hafa
fengið mjög litla kennslu um notk-
un netsins í skólanum.
Eitt af stærstu viðfangsefnum
SAFT verkefnisins er að kortleggja
notkun barna og unglinga á netinu
og öðrum skyldum miðlum. Árið
2003 og 2007 voru gerðar yfirgrips-
miklar kannanir á netnotkun ís-
lenskra barna og unglinga á aldr-
inum 9 til 16 ára. Sambærileg
könnun var gerð aftur nú fyrri
hluta ársins 2009 í samstarfi Heim-
ilis og skóla, Capacent Gallup og
Lýðheilsustöðvar.
Megináherslan var áfram á net-
notkun barna og unglinga á aldr-
inum 9 til 16 ára, að viðbættum sér-
stökum köflum um farsíma- og
tölvuleikjanotkun. Líkt og áður
voru lagðar spurningar fyrir bæði
börn og foreldra. Hluti spurninga í
könnuninni lýtur að kennslu í notk-
un netsins í skólum og upplýs-
ingagjöf til barna um örugga net-
notkun.
Hlutfall þeirra sem hafa ekki
fengið kennslu í notkun netsins í
skólum hefur hins vegar lækkað um
fimm prósentustig frá árinu 2007
sem er mjög jákvætt, segir í frétta-
tilkynningu. Nánar um verkefnið á
www.saft.is.
Litlar breytingar í
kennslu á netöryggi
Í HNOTSKURN
»SAFT, Samfélag, fjöl-skylda og tækni, er vakn-
ingarátak um örugga og já-
kvæða netnotkun barna og
unglinga á Íslandi.
»Verkefnið er unnið innanaðgerðaáætlunar ESB og
er SAFT í nánu samstarfi við
önnur lönd í Evrópu.