Morgunblaðið - 12.11.2009, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 12.11.2009, Qupperneq 15
Fréttir 15ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2009 Glerárgata 32, 600 Akureyri | Opið Mán.- fös. 9 -18 • Laug. 11-16 | Faxafeni 12, 108 Reykjavík | Opið Mán.- fös. 8 -18 • Laug. 11-16 www.66north.is • Hlý og vatnsfráhrindandi • • Mjúk í hálsinn • • Mjúkir og hlýir • Klæddu þig vel! Þórsmörk Parka Verð nú: 38.000 kr. Verð áður: 58.800 kr. Kaldi dömu peysa Verð nú: 11.800 kr. Verð áður: 18.800 kr. Kaldi vettlingar Verð nú: 4.000 kr. Verð áður: 7.500 kr. Kaldi húfa Verð nú: 5.000 kr. Verð áður: 8.800 kr. Opið hús í Réttarholtsskóla, fimmtud. 12. nóvember, kl. 17.00 - 18.30 Umræður um framtíðarskipulag í þínu hverfi Vinnuhópar með aðferðum Air Opera. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, kynnir stuttlega vinnu við nýtt aðalskipulag áður en umræður hefjast. Hugmyndasmiðja Hugmynda- og teiknivinna með ungum arkitektum. Vinnustofa fyrir börn Undir stjórn Myndlistaskólans í Reykjavík. www.adalskipulag.is YFIRVÖLD á Seychelles-eyjum og Evrópusambandið hafa undirritað sam- starfssamning sem heimilar herskipum ESB að elta og handtaka sómalska sjóræningja í lögsögu eyjanna. Eyjaskeggjar óttast að árásir sjóræningj- anna stórskaði helstu atvinnuvegi þeirra, ferðaþjónustu og túnfiskveiðar. Mogadishu Sanaa S Ó M A L Í A J E M E N 10 0 m ílu r 20 0 m ílu r 30 0 m ílu r 40 0 m ílu r 50 0 m ílu r 60 0 m ílu r 70 0 m ílu r 80 0 m ílu r 90 0 m ílu r 1.0 00 mí lur ÁRÁSIR SJÓRÆNINGJA Í SÓMALÍU Heimildir: International Maritime Bureau (IMB), siglingamiðstöð NATO , UNOSAT Umfangsmikið eftirlit alþjóðlegs herskipaflota undan ströndum Sómalíu virðist hafa orðið til þess að sómalskir sjóræningjar hafi tekið upp nýjar aðferðir og herji á skip lengra úti á hafi en áður Sjóræningjar réðust á gámaflutningaskip í um 1.000 sjómílna fjarlægð frá Mogadishu í fyrradag en þeim tókst ekki að ræna því. Þeir hafa aldrei áður gert árás svo langt frá strönd Sómalíu , að sögn IMB, alþjóðlegrar stofnunar sem safnar upplýsingum um sjórán SKÝRING 200 km Siglingasvæði þar sem alþjóðlegur herskipafloti heldur uppi eftirliti Fyrsta hrina árása maí-júní 2008 Önnur hrina sept.-des. 2008 Þriðja hrina feb.-apr. 2009 IMB ráðlagði skipum að halda sig a.m.k. 600 mílur frá strönd Sómalíu Oíuskip varð fyrir árás um 990 mílur frá Mogadishu á mánudag Ráðist á danskt gámaflutningaskip um 1.000 mílur frá Sómalíu í fyrradag Indlandshaf stöðvar sjóræningja árásir 2008 árásir í ár E Þ Í Ó P Í A Stafar ógn af sjóránum THAKSIN Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra Taílands, heldur áfram að kynda undir pólitískri ólgu í heimalandinu á útlegðarflakki sem hann hóf til að komast hjá því að afplána fangelsisdóm fyrir spillingu. Nú síðast reitti Thaksin andstæðinga sína í Taílandi til reiði með því fara til grannríkisins Kambódíu og vera stjórn landsins til ráðgjafar í efnahagsmálum. Kambód- íska stjórnin synjaði í gær beiðni ríkisstjórnar Taílands um að framselja Thaksin og er óttast að deilan verði til þess að átök blossi upp að nýju við landamæri ríkjanna. Að minnsta kosti sjö hermenn hafa beðið bana í átökum vegna deilu um fornt hof við landamærin frá því í júlí á síðasta ári. Thaksin var steypt af stóli í september 2006. Hann hef- ur verið í útlegð síðan í ágúst í fyrra þegar hann ákvað að snúa ekki aftur til Taílands eftir Ólympíuleikana í Peking vegna saksóknar á hendur honum fyrir spillingu. Seinna var hann dæmdur í tveggja ára fangelsi og eignir hans voru frystar. Talinn hafa tekið áhættu Thaksin komst til valda árið 2001 með miklum stuðn- ingi kjósenda úti á landsbyggðinni, einkum í norðaustur- hluta landsins, og hann nýtur enn mikilla vinsælda þar. Stjórnmálaskýrendur í Taílandi segja að Thaksin hafi tekið mikla áhættu með því að ganga til liðs við stjórn- völd í Kambódíu því það geti orðið til þess að hann missi stuðning heima fyrir. „Hann heldur áfram herferð sinni en leikur sér að þjóðarstoltinu og jafnvel stuðningsmönn- um hans kann að mislíka það,“ sagði Thitinan Pongsudh- irak, stjórnmálafræðingur við Chulalongkorn-háskóla í Bangkok. Thaksin er sextugur og var lögreglumaður áður en hann haslaði sér völl í viðskiptum og síðar stjórnmálum. Hann stórauðgaðist á viðskiptunum og sætti harðri gagnrýni fyrir að selja hlut sinn og fjölskyldu sinnar í símarisanum Shin Corp til fjárfestingafyrirtækis frá Singapúr eftir að hann varð forsætisráðherra og haga sölunni þannig að hann þyrfti ekki að greiða skatta af gróðanum. Hann keypti m.a. enska fótboltafélagið Manchester City en seldi það í fyrra eftir að eignir hans í Taílandi voru frystar. bogi@mbl.is „Thaksin leikur sér að þjóðarstoltinu“ Kann að missa stuðning í Taílandi með því að ganga til liðs við stjórn Kambódíu Reuters Vinir Thaksin Shinawatra (t.v.) faðmar Hun Sen, for- sætisráðherra Kambódíu. Þeir eru vinir og golffélagar. RANNSÓKNIR vísindamanna benda til þess að svín séu tiltölulega greindar skepnur, fljótar að læra en gleymi seint og líkist mönnum á margan hátt. Í tímaritinu Animal Behaviour skýra vísindamenn frá rannsókn sem bendir til þess að alisvín geti verið fljót að læra hvernig speglar virka og þau noti skilning sinn á spegilmyndunum til að átta sig á umhverfinu og finna fóður. Vísindamennirnir segjast ekki vita hvort svínin átta sig á því að augun í speglinum eru þeirra eigin augu, eða hvort svínin séu eins greind og apar, höfrungar og fleiri dýr sem geta þekkt sjálf sig í spegli. Slíkar rannsóknir gefa vísbend- ingar um sjálfsvitund og greind dýra. Svínin virðast þó vera ólík mörg- um öpum (og mönnum) að því leyti að þau taka ekki upp á því að snyrta sig fyrir framan speg- ilinn, enda hafa þau ekki verið þekkt fyrir snyrtimennsku. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að svín eiga auðvelt með að muna hvar fóður er geymt og hversu mikið fóður er á hverjum geymslustað miðað við aðra. Þær hafa einnig leitt í ljós að svín A getur verið fljótt að læra að elta svín B þegar síðarnefnda svínið sýnir merki um að vita hvar gott fóður er geymt. Svín B reynir þá að blekkja svínið sem eltir og losa sig við það til að geta setið eitt að fóðrinu, að því er fram kemur í grein í bandaríska dagblaðinu The New York Times. Rannsóknirnar benda einnig til þess að svín séu á meðal þeirra dýra sem eru fljótust að temja sér nýjar venjur eða athafnir. Þegar þau hafa lært eitthvað gleyma þau því seint. The New York Times hefur eftir einum vísindamannanna, Lawrence Schook við Illinois-háskóla, að fróð- legt verði að bera saman erfða- mengi svína og manna. „Hjarta svínsins er eins og hjarta manns- ins,“ segir hann og bætir við að lífs- stílssjúkdómar manna séu raktir til hegðunar sem svín séu þekkt fyrir. „Svín njóta þess að liggja í leti, þeim finnst gott að drekka ef þau fá tækifæri til þess, þau myndu reykja og glápa á sjónvarp.“ bogi@mbl.is Svín eru skarpar skepnur Rannsóknir sýna að svín eru fljót að læra og gleyma seint

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.