Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
Bryndís
Ólafsdóttir
Sundferill Bryndísar Ólafsdóttur stóð
sem hæst seint á níunda áratug síðustu
aldar. Bryndís setti nokkur glæsileg
Íslandsmet á ferlinum sem hafa staðist
tímans tönn. Það var ekki fyrr en fyrir
tveimur árum sem það síðasta féll.
Bryndís tók þátt í nokkrum stórmótum
á erlendri grund en þar ber hæst
þátttöku á Ólympíuleikunum í Seoul
1988. Hún tók auk þess þátt í nokkr-
um Evrópumótum. Bryndís keppti
undir merkjum Ungmennafélags
Selfoss, Ungmennafélagsins Þórs í
Þorlákshöfn, Sundfélagsins Ægis og
Keflavíkur.
Setti nokkur met fyrir
Ólympíuleikana í Seoul
„Það má segja að mesti uppgangstími
minn í sundinu hafi verið fyrir Ólympíu-
leikana í Seoul. Þá setti ég nokkur met og
eitt þeirra tryggði mig inn á Ólympíuleik-
ana,“ sagði Bryndís í spjalli við Skinfaxa.
„Þegar ferlinum lauk settist ég á skóla-
bekk í Íþróttakennaraskólanum á Laugar-
vatni og í kjölfarið fór ég út í kraftlyfting-
ar. Ég fluttist búferlum til Þýskalands og
bjó þar um tíu ára skeið og kom heim
„Ferillinn
skemmtilegur,
gefandi, en
jafnframt
erfiður“
Bryndís Ólafs-
dóttir var ein
sterkasta sund-
kona landsins
um árabil. Hún
setti fjölda
Íslandsmeta á
glæsilegum ferli
sínum.
2005. Í dag er ég sjúkraþjálfari í Mætti
sem ég á með öðrum. Ég lærði sjúkraþjálf-
unina í einkaháskóla í Þýskalandi. Þá sé
ég um þrekþjálfun hjá handboltaakadem-
íunni við Fjölbrautaskóla Suðurlands
á Selfossi og hef verið sundþjálfari hjá
sunddeild Ungmennafélags Selfoss í
fimm ár. Ég keppi í dag í kraftlyftingum
og setti á dögunum Íslandsmet í mínum
aldursflokki,“ sagði Bryndís.
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
Reynsla og þekking
hafa hjálpað mér
– Það er greinilegt á öllu að íþróttirnar
hafa gefið þér mikið.
„Íþróttirnar hafa leikið stórt hlutverk í
lífi mínu. Reynslan og þekkingin, sem ég
hef aflað mér, hefur hjálpað mér mikið í
þeim störfum sem ég er að vinna í dag.
Þegar ég lít til baka var keppnisferillinn í
sundinu mjög skemmtilegur, gefandi og
jafnframt erfiður. Ég hefði ekki fyrir mitt
litla líf vilja missa af þessum tíma. Þessi
reynsla nýtist manni mest persónulega
en maður temur sér mikinn sjálfsaga.
Íþróttirnar toga mikið í mann og ég
fór í sjúkraþjálfun því ég vildi ekki vera
þjálfari með litla menntun. Ég vildi afla
mér eins mikillar menntunar og ég gæti,“
sagði Bryndís.
Sundið gengur í bylgj-
um eins og allt annað
– Hvernig finnst þér sundið standa í dag?
„Mér finnst framfarirnar hafa orðið
minni en maður átti von á. Í kringum
1980–1980 voru miklar framfarir en þetta
gengur í bylgjum eins og allt annað,“
sagði Bryndís Ólafsdóttir.