Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 42

Skinfaxi - 01.02.2011, Blaðsíða 42
42 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands Íþróttadagur Félags áhugafólks um íþrótt- ir eldri borgara, FÁÍA, var haldinn í íþrótta- húsinu í Austurbergi 9. mars sl. Þetta var í 26. sinn sem þessi dagur er haldinn og var mikil og góð stemning á hátíðinni. Vel var mætt á hátíðina og skein gleði og ánægja úr hverju andliti. Á íþrótta- og leikjadeginum komu fram nokkrir hópar af Reykjavíkursvæðinu og sýndu atriði við góðar undirtektir áhorfenda. Þess má geta að fyrsti íþróttadagur aldraðra var haldinn árið 1987 en fyrstu sex árin komu eldri borgarar saman og gerðu sér glaðan dag á gervigrasvellin- um í Laugardal. Mikil vakning hefur orðið í íþróttum og hreyfingu almennt meðal eldri borgara hin síðustu ár og er ljóst að hún mun aðeins vaxa enn frekar á næstu árum. „Íþróttadagurinn gekk afskaplega vel. Allir voru glaðir og kátir og skemmtu sér hið besta. Það er orðin mikil hefð fyrir þessum degi og þetta sinn mættu á annað hundrað manns. Það er gróska í félaginu og atburðir eru yfirleitt vel sóttir. Við munum í fyrsta sinn fara með boccia- mótið út fyrir borgarmörkin en það verð- ur í ár haldið í Borgarnesi,“ sagði Þórey S. Guðmundsdóttir, formaður FÁÍA, í samtali við Skinfaxa. Aðalfundur Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra, FÁÍA, var haldinn 25. febrúar sl. í þjónustumiðstöð Ungmenna- félags Íslands, UMFÍ, við Sigtún. Ung- mennafélag Íslands hefur verið í samstarfi 41. ársþing USVS var haldið á Hótel Vík 26. mars sl. Við það tækifæri var tilkynnt um val á íþróttamanni USVS 2010. Fyrir valinu varð Arnar Snær Ágústsson, Umf. Kötlu. Efnilegasti íþróttamaður USVS 2010 varkjör- inn Þorsteinn Björn Einarsson, Umf. Kötlu. Petru K. Kristinsdóttur og Ragnheiði Högna- dóttur, báðum frá Umf. Kötlu, var veitt starfs- merki UMFÍ fyrir störf sín í þágu hreyfingar- innar. Þingið var starfsamt og skemmtilegt og voru lagðar línur að spennandi starfsári hjá USVS sem fram undan er. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, og Sæmund- ur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, sátu þingið. Ný stjórn var kosin og er hún þannig skipuð: Ragnheiður Högnadóttir, Umf. Kötlu, formaður, Harpa Ósk Jóhannesdóttir, Umf. Skafta, Linda Agnarsdóttir, Umf. Ármanni, Úr hreyfingunni Ársþing Ungmennasambands Vestur-Skaftafellssýslu, USVS: Ragnheiður og Petra sæmdar starfsmerki UMFÍ Pálmi Kristjánsson, Golfklúbbnum Vík, Salóme Þóra Valdimarsdóttir, Umf. Kötlu. Í varastjórn eru Ármann Daði Gíslason, Umf. Skafta, Kristín Ásgeirsdóttir, Kóp, og Sigurð- ur Elías Guðmundsson, Umf. Kötlu. Verðlaunahafar á ársþingi USVS. Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ, sæmdi þær Petru K. Kristinsdóttur og Ragnheiði Högnadóttir starfsmerki UMFÍ. Íþróttadagur FÁÍA haldinn í Austurbergi: Allir glaðir og kátir og skemmtu sér hið besta við FÁÍA síðustu ár og hefur félagið haft aðstöðu í þjónustumiðstöð UMFÍ þar sem stjórn þess hittist á vikulegum fundum. Stjórn FÁÍA er þannig skipuð: Þórey S. Guðmundsdóttir, formaður, Hjörtur Þór- arinsson, varaformaður, Flemming Jes- sen, gjaldkeri, Hörður S. Óskarsson, ritari, Guðmundur Magnússon, vararitari, Sig- mundur Hermundsson, meðstjórnandi, Sigurrós Ottósdóttir, meðstjórnandi. Borghildur Sigurbergsdóttir næringar- fræðingur flutti á aðalfundinum afar athyglisvert erindi um næringu eldra fólks. Frá íþróttadegi FÁÍA sem haldinn var í Austurbergi. Stjórn Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.